Morgunblaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 32
32 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010  Á miðnætti byrja tónleikar á Só- dómu Reykjavík til heiðurs Pearl Jam en húsið verður opnað klukkan 23. Magni Ásgeirsson syngur, Franz Gunnarsson spilar á gítar, Haraldur V. Sveinbjörnsson spilar á gítar og syngur, Stefán Ingimar Þórhallsson trommar og Birgir Kárason spilar á bassann. Leikin verða lög af nánast öllum plötum sveitarinnar ásamt lögum sem hafa ratað inn í kvikmyndir. Pearl Jam á farsælan feril að baki og hefur ver- ið leiðandi rokksveit frá upphafs- árum sínum í grugginu, en sveitin er enn í fullu fjöri í dag. Meðlimir Pearl Jam sögðu nýlega í viðtali að Ísland væri á óskalista yfir þá staði sem þeir vildu sækja heim og spila fyrir og er það von tónleikahaldara að þessir heiðurstónleikar kunni að gera sveitina líklegri til að koma. Tónleikar til heiðurs Pearl Jam í kvöld Fólk Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Svartmálmssveitin Fortíð, sem er leidd af Ís- lendingnum Einari Thorberg (Eldur), mun halda þrenna tónleika á Íslandi á næstunni. Í kvöld leikur sveitin á staðnum Venue, á morgun í TÞM og þann 8. júlí á Eistnaflugi. Hljómsveitin sem gerir í dag út frá Noregi var stofnuð sem sólóverkefni á sínum tíma af Einari, en hann hefur verið mikilsvirkur í ís- lensku svartmálmssenunni í gegnum bönd eins og Curse og Potentiam. Tilgangurinn með For- tíð var að koma sjálfri Völuspá í tónaform og kom fyrsti hluti áætlaðs þríleiks út árið 2003 á vegum þýsku útgáfunnar No Colours Records. Völuspá part I: Thors Anger kallaðist hann og annar hlutinn, Völuspá part II: The Arrival of Fenris, kom út fjórum árum síðar á sama merki. Seinnipart árs 2008 flutti Einar til Noregs og kláraði þar þriðja hlutann, Völuspá part III: Fall of the Ages. Platan kom svo út í mars síð- astliðnum á vegum þýsku útgáfunnar Schwarz- dorn Production. Í millitíðinni sneri Einar verk- efninu upp í fullmannaða sveit og hefur hún m.a. komið fram á hinni virtu Inferno hátíð í Noregi. Það verða svo miklar þungavigt- arsveitir sem spila með Fortíð á Reykjavík- urtónleikunum, Wistaria, Forgarður Helvítis og Carpe Noctem leika á Venue en Chao, Piss- anthrope og Atrum spila með á TÞM. Meira þungarokk, meira helvíti! Fortíð með þrenna tónleika á Íslandi Helteknir Fortíð í mistri tímans.  Finna má kabarettgleði með Rocky Horror-þema á skemmti- staðnum Barböru í kvöld. Leik- ararnir Bjarni Snæbjörnsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir munu troða upp sem hið kon- unglega söngleikjapar Viggó og Víóletta kl. 23 og Orri Huginn Ágústsson hristir líka skankana og þenur raddböndin. Gestum mun hafa gefist kostur á að horfa á kvik- myndaútgáfu Rocky Horror- söngleiksins kl. 21. Þá verður öllum sem koma í búningum úr myndinni boðið upp á drykk á barnum. Áhugasömum er bent á að hyggja Viggós og Víólettu er sú að það sé guðsgjöf að vera alltaf einlæglega hamingjusöm, glöð og fáguð – vegna þess að þau horfa stanslaust á söngleiki. Þess vegna skal mæta með bros á vör. Fýlupúki tak gleði þína og gakk! Kabarettgleði á Barböru í kvöld  Í dag hefja göngu sína svokall- aðir Grapevine Got Legs!- göngutúrar, en um er að ræða fræðandi göngutúra um miðbæinn fyrir ferðamenn sem vilja ekki endilega að það sjáist að þeir séu ferðamenn. Göngutúrinn hefst í plötubúðinni Havarí í Austurstræti alla föstu- daga kl. 16. Þaðan er svo haldið í tveggja tíma göngutúr, þar sem sérfræðingar á vegum Grapevine munu fræða gesti um allt það helsta sem er að gerast miðbænum; best geymdu leyndarmálin, kaffihúsin, listagalleríin og að sjálfsögðu næt- urlífið. Ýmsir lista- og tónlistar- menn munu svo halda stuttar kynn- ingar á því sem um er að vera í bænum hverju sinni. Göngutúr með Reykja- vík Grapevine Guðmundur Egill Árnason gea@mbl.is Hin vinsæla kanadíska hljómsveit The Weakerthans hefur gefið út fimm plötur, þar af eina nýlega af tónleikum, sex tónlistarmyndbönd og ótal smáskífur, en John K. Sam- son, forsprakki hljómsveitarinnar, er mjög meðvitaður um íslenska arf- leifð sína. Hann var nýlega gerður tónlistarsendiherra í Winnipeg á vegum kanadísku ríkisstjórnarinnar þar sem Morgunblaðið náði tali af honum. „Winnipeg er menningar- höfuðborgin í ár og þetta er dagskrá sem þeir eru með þar sem einn sendiherra er valinn fyrir hvert svið listanna; myndlist, dans og bók- menntir, og þeir völdu mig fyrir tón- list af einhverri ástæðu. Verkefnið sem ég á að vinna er arfleifðarverk- efni sem þýðir að þetta á að verða hluti af arfleifð til komandi kyn- slóða. Ég hugsa að ég búi til eitt- hvert víðtækt samstarfsverkefni sem börn af svæðinu geta tekið þátt í.“ John kemur úr pönkrokksenunni í Winnipeg sem er mjög sterk en tónlist Weakerthans hefur verið lýst sem indí- og folk-rokki og folk- og postpönki. „Þeir tónlistarmenn sem ég hef kynnst hérna í gegnum árin hafa veitt mér innblástur og fyrir mig sem lagasmið hafa John Waite, John Prine og Bob Dylan verið áhrifamestir. Nýlega hafa rosalega margir íslenskir tónlistarmenn veitt mér innblástur. Ég kynntist sumum þeirra þegar ég var að aðstoða við Núnanow-listahátíðina í Winnipeg og þá fengum við meðal annars Ólöfu Arnalds, og hún spilaði nokkr- um sinnum,“ segir John Kristjan. Íslenska arfleifðin „Ég hef tvisvar komið til Íslands. Í fyrra skiptið árið 2001 og þá fór ég norður á Hofsós. Í annað skipti sem ég kom til Íslands var það sem framleiðslustjóri Núnanow- hátíðarinnar en tveir meðlimir hljómsveitarinnar eru meðlimir há- tíðarnefndarinnar, þannig að við fór- um yfir hafið til Íslands og vörð- um miklum tíma í að velta vöngum og ráfa um, leitandi að fólki sem gæti viljað spila.“ Núnanow-hátíðin er hluti af Canada Iceland Arts Festi- val Inc. og sér nefnd lista- manna og útgefenda í Manitoba um hana. Þá styrkja kanadísk og íslensk fyrirtæki hátíðina sem er tenging Vestur-Íslendinga og Íslendinga hvorra við aðra. „Íslenska arfleifðin vekur áhuga minn, aðallega menning- arlega; hvernig Winnipeg og Ís- landi svipar hvoru til annars. Þau eru bæði frekar ein- angruð landfræðilega; stærsta borg- in í nálægð Winnipeg er í 10 klukku- stunda akstursfjarlægð og Toronto og Vancouver eru 24 klukkustundir frá okkur, hvor í sína áttina. Hvort svæði fyrir sig hefur neyðst til þess að skemmta sjálfu sér og þurft að skilgreina sig í gegnum menningu sína. Þetta er það sem mér finnst áhugaverðast en ekki erfðateng- ingin, ég hef engan áhuga á henni. Ísland er hrífandi staður en ég held að það sem hrífur mig sé að það minnir mig á menninguna hérna heima.“ Afi kunni tungumálið aftur á bak og áfram „Afi minn, Jón Viktor, var Vestur- Íslendingur. Hann var prentari hérna í Winnipeg þannig að sagan af honum var alltaf sú að hann hefði kunnað tungumálið aftur á bak og áfram, bókstaflega, vegna þess að þannig var því háttað í prent- smiðjum í gamla daga. Prentarar þurftu að geta lesið og skrifað aftur á bak og áfram. Tungumálið var tal- að hérna heima hjá okkur þangað til um 1960, en maður heyrir alltaf bergmál þess. Hér er mikið stolt og mikill áhugi á þeirri sérstöku menn- ingu sem nýju Íslendingarnir fundu upp á; hún var ólík íslenskri menn- ingu og ólík kanadískri menningu. Hún var mjög sérstök og mér finnst hún áhugaverð að mörgu leyti en all- ir í föðurætt minni eru Vestur- Íslendingar,“ segir John Kristjan að lokum. Yfir fimmtán þúsund Vestur- Íslendingar búa í Manitoba en talið er að heildarfjöldi Vestur-Íslend- inga í Kanada sé um 88.000 manns. www.theweakerthans.org/ www.nunanow.com John Kristjan Samson Vestur-Íslendingur  Forsprakki kanadísku hljómsveitarinnar The Weakerthans  Mjög meðvit- aður um íslenska arfleifð sína Afinn kunni íslenskuna aftur á bak og áfram Um 20.000 Íslendingar flýðu land frá 1870-1915 vegna fjölgunar, landskorts og eldgoss. Um 300 Íslendingar komu að Willowpoint nálægt Gimli 21. október 1875 og 1200 Íslendingar bættust við seinna það sumar. Ríkisstjórn Kanada veitti þeim ferðaréttindi innan Kanada og búseturéttindi fyrir svæði sem yrði nefntNew Iceland. Landnemum fjölgaði næstu árin en áætlað er að um þessar mundir séu um 80.000 Vestur-Íslendingar í Kanada, þar af 25.000 í Winnipeg, höfuðborg Manitoba-fylkis, eða um 2% íbúanna. Flýðu land vegna eldgoss og landleysis ÍSLENSKIR LANDNEMAR Á 19. ÖLD Gimli Risavaxin víkingastytta er einkennismerki bæjarins John Kristjan Íslenska arfleifðin vekur áhuga tónlistarmannsins, sem á rætur sínar að rekja til Íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.