Morgunblaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010 Halli Hallssyni þykir Evrópu-umræðunni snúið á haus:     Ritstjóri Fréttablaðsins sakarSjálfstæðisflokkinn um að ganga erinda þröngra sérhagsmuna með andstöðu við Evrópuaðild. Þetta er skrítin staðhæfing. Tveir þriðju hlutar þjóð- arinnar eru and- vígir aðild. Sjálfstæðis- flokkurinn stend- ur með fólkinu í landinu. Ritstjórinn vinnur fyrir Jón Ás- geir Jóhannesson: manninn sem öðr- um fremur keyrði þjóðina í þrot.     Í skjóli nætur færði lítil klíka íLandsbankanum Jóni Ásgeiri 365 fjölmiðla á silfurfati og afskrifaði milljarða.     Klíka í æðstu stjórn AriJon-bankavinnur baki brotnu að því að færa Jóni Ásgeiri Haga í andstöðu við þjóðina.     Á bak við luktar dyr í lokuðumbakherbergjum vinna öfl að því að viðhalda veldi Jóns Ásgeirs í helstu fjölmiðlum og áhrifamesta fyrirtæki landsins.     Aðeins útlenskir kröfuhafar íGlitni sjá manninn í réttu ljósi. Þeir eru ekki að skafa utan af hlutunum og kalla Jón Ásgeir og klíku hans bankaræningja.     Spillt vinstristjórn heldur vernd-arhendi yfir þessum manni.     Ritstjóri Fréttablaðsins gengur er-inda þessa manns.“     Blöskrar ekki fleirum en Halli? Hallur Hallsson Umræða á haus Veður víða um heim 1.7., kl. 18.00 Reykjavík 13 rigning Bolungarvík 8 alskýjað Akureyri 10 rigning Egilsstaðir 8 rigning Kirkjubæjarkl. 10 rigning Nuuk 7 skýjað Þórshöfn 11 skúrir Ósló 22 heiðskírt Kaupmannahöfn 19 heiðskírt Stokkhólmur 20 skýjað Helsinki 20 skýjað Lúxemborg 28 heiðskírt Brussel 29 heiðskírt Dublin 21 skýjað Glasgow 20 skýjað London 25 heiðskírt París 32 heiðskírt Amsterdam 25 heiðskírt Hamborg 26 skýjað Berlín 28 heiðskírt Vín 29 léttskýjað Moskva 25 heiðskírt Algarve 29 léttskýjað Madríd 32 léttskýjað Barcelona 26 heiðskírt Mallorca 27 heiðskírt Róm 30 léttskýjað Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 19 skýjað Montreal 18 léttskýjað New York 23 heiðskírt Chicago 22 léttskýjað Orlando 31 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR 2. júlí Fjara m Flóð REYKJAVÍK 3.57 0,8 10.00 ÍSAFJÖRÐUR 5.59 0,4 11.54 SIGLUFJÖRÐUR 2.04 DJÚPIVOGUR 1.04 0,5 7.01 Eyjafjarðarsveit | Heyskapur hefur gengið mjög vel það sem af er sumri og hafa margir bændur þegar lok- ið fyrri slætti. Tíðarfarið hefur leikið við menn og varla hefur dott- ið dropi úr lofti síðan sláttur hófst um 10. júní. Spretta er góð hjá þeim sem báru snemma á og friðuðu túnin fyrir beit. Heyvinnuvélarnar dregnar af gríðarlega öfl- ugum traktorum eru orðnar mjög afkastamiklar og koma töðunni í plast á undraskömmum tíma. Að eiga mikil og velverkuð hey fyrir veturinn er afar mikilvægt atriði í búskapnum og stuðlar að bættum hag bænda og búaliðs. Nú væri nokkur væta vel þegin því jarðvegur er orð- inn mjög þurr og hreinlega kallar á rigningu. Og í gær, fimmtudag, voru menn bænheyrðir því þá byrjaði að rigna. Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Heyskapur Stefán Ragnar Garðarsson, vinnumaður í Hleiðargarði Eyjafjarðarsveit, bindur heyið í rúllubagga. Sarka Mrnakova frá Tékklandi og Justyna Graf frá Póllandi fela endana á plastfilmunni svo allt líti vel út. Heyskapur hefur gengið vel Heildarverð- mæti seldra framleiðslu- vara árið 2009 jókst um rúma 28 milljarða króna frá árinu á und- an. Það sam- svarar 5,3% aukningu. Nam því heildarverðmæti seldra framleiðsluvara 574 milljörðum króna árið 2009. Vísitala framleiðsluverðs hækk- aði um 11,4% á sama tímabili og hefur því heildarverðmæti seldra framleiðsluvara dregist saman um 61% að raungildi. Þetta kemur fram í Hagtíðindum sem Hagstofa Íslands gaf út í gær. Aðallega fiskur og málmar Líkt og verið hefur vegur fram- leiðsla fiskafurða og málma þyngst. Hlutur fiskafurða var 34,8% af heildarverðmætinu og hlutur málmframleiðslu nam 33,4%. Ef heildarverðmæti seldra fram- leiðsluvara árið 2009 að undan- skildum fisk- og málmframleiðslu er skoðað kemur í ljós að það nem- ur um 183 milljörðum króna. Það er heldur minna en árið 2008 og nemur samdrátturinn um fjórum milljörðum króna. Framleiðsla fiskafurða jókst um 23% milli ára. Framleiðsla mat- og drykkjarvara, utan fiskafurða, jókst um 10,4% og nam hún 7,5 milljörðum króna. Hlutfallslega jókst verðmæti seldra framleiðsluvara mest í fram- leiðslu á pappír og pappavörum. Nam sú aukning um 580 milljónum króna sem samsvarar 29% aukn- ingu frá fyrra ári. hjaltigeir@mbl.is Aukning um 28 milljarða Verðmæti seldra framleiðsluvara jókst Héraðsdómur Reykjavíkur hefur kveðið upp úrskurð þess efnis að kröfur nokkurra erlendra banka í þrotabú Samsonar eignarhalds- félags hafi fallið niður sökum vanlýs- ingar. Samtals hljóðuðu kröfur bankanna upp á rúmar 2,1 milljón evra sem samsvarar um 330 millj- ónum króna. Úrskurðir Héraðsdóms eru tveir. Annars vegar var um að ræða mál 13 banka gegn þrotabúi Samsonar sem hljóðaði upp á tæpar 466 þúsund evr- ur auk vaxta. Hins vegar kröfu 8 banka á hendur þrotabúinu sem hljóðaði upp á 1,65 milljónir evra auk vaxta. Meðal banka sem lögðu fram kröf- urnar má nefna Commerzbank Int- ernational. Bankarnir höfðu haft uppi kröfu á hendur þrotabúinu vegna innstæðu á reikningi í Landsbanka Íslands hf. Helgi Birgisson hrl., skiptastjóri Samsonar, viðurkenndi ekki kröf- urnar á grundvelli vanlýsingar. Taldi hann þær of seint fram komnar og að auki væru þær ónákvæmar. Bank- arnir fóru því fram á að Héraðsdóm- ur úrskurðaði í málinu. Dómari hafnaði kröfum bankanna og staðfesti ákvörðun skiptastjóra Samsonar. Að auki þurfa bankarnir að greiða allan málskostnað. Samson var eignarhaldsfélag Björgólfsfeðga og fór áður fyrir ráð- andi hlut í Landsbankanum. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta 12. nóv- ember 2008. hjaltigeir@mbl.is Dómstóll staðfesti ákvörðun skiptastjóra Samsonar  Kröfur erlendra banka fallnar niður sökum vanlýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.