Morgunblaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 18
18 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010 N1 hefur sagt upp samningi við Ríkiskaup um sölu á eldsneyti og olíum fyrir ökutæki og vélar. Samning- urinn er upp á eina og hálfa milljón eldsneytislítra á ári, sem þýðir að verðmæti hans skiptir hundruðum milljóna árlega. Að sögn Hermanns Guðmundssonar, forstjóra N1, segir fyrirtækið samningnum upp vegna forsendubrests. „Skilyrði útboðsins voru þau að af- slættir væru fastir í prósentum. Þegar við gerðum til- boðið gáfum við okkur, eins og gefur að skilja, ákveðnar forsendur. Skömmu eftir að við fengum samninginn hóf ríkið að hækka álögur á eldsneyti, sem gerði að verkum að samningurinn var ekki lengur þolanlegur fyrir félagið,“ segir hann. Hermann segir fyrirtækið vera þeirrar skoðunar að meiri hækkanir séu í farvatninu, og því hafi ákvörð- unin verið fyrirbyggjandi aðgerð til að verja félagið gegn því að þurfa að greiða með eldsneytinu í framtíð- inni. Samningurinn hljóðar upp á 13% afslátt af almennri verðskrá. Hermann segir að viturlegra væri að afslátt- urinn væri föst krónutala, því álögur ríkisins af elds- neyti virki þannig að fyrirtækið verði að gefa afslátt af þeim líka. Þar með væri félagið farið að greiða með eldsneytinu. „Og það er í fyrsta lagi bannað og í öðru lagi ekki arðbær viðskipti,“ segir hann. Magnús G. Sigurgeirsson, verkefnastjóri hjá Ríkis- kaupum, segir að ekki þurfi að fara fram nýtt útboð í bráð, þar sem einnig hafi verið gerður rammasamn- ingur við Olís. Aðspurður hvort til greina komi að breyta fyrirkomulaginu þannig að afsláttur verði föst krónutala frekar en hlutfall af verðskrá, segir hann að það verði tekið til athugunar. ivarpall@mbl.is N1 segir upp hundraða milljóna króna samningi við Ríkiskaup Morgunblaðið/Ernir N1 Forstjórinn segir félagið hafa sagt upp samningnum vegna aukinna álagna ríkisins á eldsneyti. ÞETTA HELST ... Sigurgeir B. Kristgeirsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, segir ríkisstjórnina halda „fyrningarsvipu“ yfir sjávarút- veginum. Á meðan svo sé verði ekki ráðist í frekari fjárfestingar og fram- kvæmdir, svo sem við endurnýjun hús- næðis og vinnslutækja. Sigurgeir segir rekstur ársins 2009 hafa gengið vel, þrátt fyrir áföll á borð við loðnuveiði- bann. Rekstrartekjur ársins námu tæplega 58 milljónum evra, og hagn- aður 5,6 milljónum, eða sem samsvarar tæplega 900 milljónum króna. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins nýver- ið. Þrátt fyrir þessa góðu afkomu segir Sigurgeir að „rekstur félagsins [þoli] einfaldlega ekki að farið verði að fyrna aflaheimildir og ríkisvæða þannig sjávarútveginn í áföngum í samræmi við þennan gæfulausa boðskap úr Stjórnarráði Íslands.“ Færa reikninga í evrum Athygli vekur að Vinnslustöðin kýs að nýta sér lagaheimild til þess að færa reikninga sína í evrum. Í tilkynningu frá félaginu segir að tekjur og skuldir séu að mestu í erlendri mynt, og því rökrétt að reikningar séu færðir með þessum hætti. Væri umreiknað í ís- lenskar krónur gæfi það bjagaða mynd af stöðu rekstrarins. Eigið fé í lok síð- asta árs var um 30 milljónir evra og eiginfjárhlutfall tæp 33%. Sömu reikn- ingar í íslenskum krónum gæfu til kynna að eigið fé væri neikvætt um 872 milljónir króna, og eiginfjárhlutfallið neikvætt um 8,7%. Á aðalfundinum var samþykkt að hlutafé skyldi skráð í evr- um, og 18% arðgreiðsla gerð með sama gjaldmiðli. einarorn@mbl.is Vinnslustöðin skilar tæplega 900 milljóna rekstrarhagnaði  Þakkar starfsfólki og fiskveiðistjórnunarkerfi árangurinn Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson Loðnuvinnsla Loðnuveiðibann hafði neikvæð áhrif á rekstur Vinnslu- stöðvarinnar á síðasta ári, en kom þó ekki í veg fyrir að hún skilaði hagnaði. ● Birkir Hólm Guðnason, for- stjóri Ice- landair, er á forsíðu nýjasta tölublaðs Air- line Business, sem fjallar um starfsemi flug- félaga í heim- inum. Stórt viðtal er við Birki Hólm í blaðinu og þar segir hann m.a. að bankahrunið og eldgosið í Eyjafjallajökli hafi verið stærsta al- mannatengslavandamál félagsins frá upphafi. Um eldgosið segir hann: „Þeg- ar litið er til skamms tíma hafði það slæm áhrif, því fólk hætti að panta ferðalög. Til lengri tíma eru áhrifin já- kvæð, því fólk hefur fræðst um Ísland og fjöldinn allur af fólki vill heimsækja nýjasta svæði jarðarinnar.“ Hann segir að nú sé fjöldi pantana aftur orðinn eðlilegur. Eyjafjallajökull hafi hreinlega sett Ísland á landakortið. Birkir segist áætla að tap Icelandair vegna eldgossins nemi um 900 millj- ónum króna. Þó búist hann við góðu rekstrarári og svipaðri eða betri af- komu en árið 2009. Forstjóri Icelandair á forsíðu Airline Business ● Markaðsstofa Suðurnesja hefur tekið yfir rekstur Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í Flugstöð Leifs Eiríkssonar af Sandgerðisbæ, með samþykki Isavia ohf., sem áður hét Keflavíkurflugvöllur ohf., og Ferðamálastofu. Fyrir rekur Markaðsstofan Upplýsingamiðstöð Suðurnesja í Reykjanesbæ. Markaðs- stofan hefur jafnframt samið við ITA um að halda úti alhliða bókunarþjón- ustu í tengslum við Upplýsingamiðstöð- ina í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Á næstu dögum verða gerðar breytingar í komu- sal á útliti og starfsaðstöðu við Upplýs- ingamiðstöðina til að geta sinnt bók- unarþjónustunni betur. „Með því að bjóða upp á aukna þjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vonast Markaðsstofan og Isavia ohf. til þess að erlendir ferða- menn verði ánægðari og öruggari um ferðir sínar um Ísland,“ segir í tilkynn- ingu sem Markaðsstofa Suðurnesja sendi frá sér í gær. Tekur við upplýsinga- miðstöð í Leifsstöð Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Íslandsbanki sendi í gær frá sér árs- hlutareikning fyrir fyrsta fjórðung þessa árs. Rekstrarafgangur bank- ans á þessu tímabili nam 3,6 millj- örðum króna. Til samanburðar var rekstrarafgangur alls ársins í fyrra tæpir 24 milljarðar, eða 6 milljarðar á fjórðung að jafnaði. Birna Einars- dóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir uppgjörið í takt við væntingar, rekstur bankans hafi gengið vel. Eigið fé í lok ársfjórðungsins nam 95,7 milljörðum króna, og arðsemi þess á ársgrundvelli var 15,3%. Eigið fé yfir viðmiði FME Fjármálaeftirlitið gerði þá kröfu til bankanna, þegar mat var lagt á viðskiptaáætlanir þeirra í fyrra, að áhættuvegið eiginfjárhlutfall þeirra (CAD) færi ekki undir 16 prósent. Samkvæmt reikningum Íslands- banka er þetta hlutfall 20,8 prósent, nokkuð yfir viðmiðum FME. Gunnar Andersen, forstjóri FME, sagði á blaðamannafundi í Seðlabankanum í vikunni að hann teldi líklegt að bank- arnir færu niður fyrir 16 prósentin, en erfitt væri að segja til um það hvort þeir færu niður fyrir lögbundið lágmark, sem er 8 prósent. Ljóst má telja af stöðu Íslandsbanka að mikið þurfi að ganga á í lánasafni félagsins til þess að svo verði. Í athugasemd- um með árshlutareikningnum gerir bankinn grein fyrir áhyggjum sínum af þeirri óvissu sem enn ríkir varð- andi gengistryggð lán. Honum hafi þegar borist tilkynningar um fyrir- hugaðar lögsóknir vegna þeirra. Lánasafnið stöðugt Lítil hreyfing var á lánasafni bankans á fjórðungnum, og hélst samsetning þess í grófum dráttum óbreytt. Tæpur þriðjungur útlána er til einstaklinga, 13 prósent til sjávar- útvegsfyrirtækja og 14 prósent til fasteignafyrirtækja. Að sama skapi breytist heildarupphæð útlána lítið frá áramótum, dregst saman um 2 prósent og stóð í lok fjórðungsins í 568 milljörðum. Heildarinnlán voru á sama tíma 465 milljarðar. Þar af voru innstæður einstaklinga 146 milljarðar. Bankinn er í dag að mestu leyti fjármagnaður með óbundnum innstæðum. Þegar að- stæður batna á fjármálamörkuðum er stefnan að breyta því, með útgáfu skuldabréfa til styttri og lengri tíma. Afkoma í takt við áætlun  Íslandsbanki hagnaðist um 3,6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi  Áhættuvegið eiginfjárhlutfall tæpum 5 prósentustigum yfir lágmarksviðmiði Fjármálaeftirlits Morgunblaðið/Júlíus Tilbúinn Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka, segir bankann í stakk búinn til að takast á við óvissuna sem ríkir vegna gengistryggðra lána. Rapparinn góð- kunni Snoop Dogg reyndi að taka heilt Evr- ópuland á leigu fyrir nýjasta tón- listarmyndband sitt. Hann gerði tilraun til þess að taka Liechten- stein á leigu, en fyrirspurnin kom yfirvöldum þar í landi í opna skjöldu. Breska blaðið Daily Mirror hefur eftir Karli Schwaerzler, leigumiðl- ara í Liechtenstein, að fyrirspurnin hafi verið einsdæmi. „Við höfum fengið fyrispurnir um hallir og þorp, en aldrei áður allt landið,“ segir hann við blaðið. Karl segir þó að mögulegt hefði verið að verða við óskum rapparans, en fulltrúar hans hefðu ekki gefið yfirvöldum nægileg- an tíma til undirbúnings. Liechtenstein er dvergríki á milli Sviss og Austurríkis. Það er 160 fer- kílómetrar að stærð og íbúar eru 36.000 talsins. ivarpall@mbl.is Snoop Dogg Vildi leigja Liechten- stein Snoop Dogg með stórtækar áætlanir                     !  "   " #  " $ % & '  '  $ ()$( $ *! +,-./0 +/1.-2 ++1., ,3.11 +1.210 +-.44/ ++/.-0 +.240/ +/0./ +5-.4- +,0.+0 +13.+ ++1.55 ,+.35+ +1.552 +-.4/- ++1 +.22, +//.4- +5-./ ,+4.3-50 +,0.20 +13.5- ++1.1 ,+.++, +1.-++ +-.242 ++1.44 +.22-, +//.1, +50.,2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.