Fréttablaðið - 14.10.2011, Blaðsíða 4
14. október 2011 FÖSTUDAGUR4
SAMFÉLAGSMÁL „Ég er algjörlega
orðlaus yfir þessum viðbrögðum
og rosalega þakklát,“ segir Lilja
Rós Sigurðardóttir, 23 ára gömul
einstæð móðir.
Eins og fram
kom í Frétta-
blaðinu í gær
var Lilja fyrir
mistök rukkuð
um of háa upp-
hæð um síðustu
mánaðamót
fyrir leikskóla-
pláss sona r
hennar. Í kjöl-
farið óskaði hún ítrekað eftir því
við skóla- og frístundasvið Reykja-
víkurbogar að reikningurinn yrði
bakfærður, en fékk þau svör að
einungis væri hægt að bæta henni
þetta upp með lægri reikningi um
næstu mánaðamót. Lilja sá ekki
fram á að eiga fyrir útgjöldum út
mánuðinn án þessara peninga og
taldi því lausnina sem henni var
boðin gera lítið fyrir sig.
Málið leystist hins vegar í gær
þegar Lilja fékk loks endurgreitt.
Hún segir þungu fargi af sér létt
og er snortin vegna viðbragða
manns sem hafði samband við
hana í kjölfar fréttarinnar í gær.
„Maðurinn vildi einfaldlega
gefa mér 15 þúsund krónur til að
brúa bilið hjá mér. Þegar endur-
greiðslan hafði borist lét ég hann
svo vita að þessu hefði verið bjarg-
að. Þá sagði hann að ég mætti bara
eiga peningana, njóta vel og hafa
það sem best,“ segir Lilja full af
þakklæti.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg hefur borgin iðu-
lega reynt að koma til móts við fólk
í stöðu Lilju. Almennt hafi mál líkt
og hennar hins vegar verið leyst
með lægri reikningi mánuðinn
eftir. Mál Lilju hafi verið tekið
til skoðunar eftir að Fréttablaðið
hafði samband og starfsfólk skóla-
og frístundasviðs verið undir það
búið að endurgreiða henni. Sam-
skiptabrestur hafi hins vegar vald-
ið því að málið leystist ekki fyrir
helgi þegar Lilja hafði samband
við sviðið öðru sinni.
Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri
skóla- og frístundasviðs, segir mis-
tök hafa átt sér stað hjá borginni
í þessu máli. „Það er komið í ljós
að þarna áttu sér stað mistök. Ég
auðvitað harma þau og mér þykir
þetta mjög leiðinlegt gagnvart
þessum viðskiptavini okkar,“ segir
Ragnar.
„Þetta þýðir það að við munum
núna taka upp okkar verklag.
Hingað til hefur þetta verið þann-
ig að ef menn hafa greitt of mikið
hafa þeir fengið inneign hjá borg-
inni til næsta mánaðar. Nú ætlum
við á mínu sviði að skoða hvort
ástæða sé til að breyta þessu verk-
lagi,“ segir Ragnar og bætir við að
hann hafi fullan skilning á því að á
þessum erfiðu tímum geti fólk lent
í vanda vegna verklags sem þessa.
magnusl@frettabladid.is
ALÞINGI Óskað er eftir hækkun-
um fjárheimilda ríkissjóðs um
14,2 milljarða króna í fjárauka-
lögum fyrir árið 2011, en þau voru
lögð fram á þingi í gær. Stærstu
útgjaldaliðirnir tengjast kjara-
samningum.
Tekjuáætlun ársins 2011 er
hækkuð um 10 milljarða, þar sem
3,8 prósenta betri innheimta hefur
verið á tekjum fyrstu 8 mánuði
ársins en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Þar af hækka frumtekjur um 9,3
milljarða og vaxtatekjur um 0,8
milljarða.
Í skýringum með frumvarpinu
segir að mestar breytingar fjár-
heimilda eigi rætur að rekja til
áhrifa af kjarasamningum sem
gerðir hafa verið á árinu og hækk-
ana á bótum almannatrygginga
og atvinnuleysistrygginga sem
ákveðnar voru í kjölfarið á því.
Meðalhækkun á launaliðum stofn-
ana vegna kjarasamninga er rétt
um 5 prósent í frumvarpinu en
bótagreiðslur voru hækkaðar um
8,1 prósent.
Gert er ráð fyrir að í ár verði
heildartekjur ríkissjóðs 482,7
milljarðar króna á rekstrar-
grunni og heildargjöld 524 millj-
arðar króna. Áætlað er að heildar-
jöfnuður ársins verði neikvæður
um 41,3 milljarða en frumjöfn-
uður jákvæður um 4,5 milljarða.
Reiknað er með að handbært fé frá
rekstri verði neikvætt um tæpa 52
milljarða króna og hreinn láns-
fjárjöfnuður neikvæður um 46
milljarða. - kóp
Innheimta tekna ríkisins tæpum fjórum prósentum betri fyrstu átta mánuði ársins en áætlað var:
Fjárheimildir hækka um 14 milljarða
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Steingrímur J.
Sigfússon mælti fyrir frumvarpi til fjár-
aukalaga í gær. Útgjöld aukast töluvert
vegna kjarasamninga.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
17°
11°
11°
14°
11°
11°
11°
25°
16°
27°
22°
29°
9°
16°
27°
8°
Á MORGUN
5-10 m/s.
SUNNUDAGUR
Vaxandi NA-átt,
fyrst NV-til.
7
7
7
7
8
8
8
6
6
2
9
12
10
11
9
9
9
7
7
5
6
6
6
6
6
7
8 6
5
0
2
4
HELGARVEÐRIÐ
verður ekkert
rosalega spenn-
andi, mjög líkt því
sem verður í dag
en von er á breyt-
ingum í lok helgar.
Suðaustanátt og
skúrir sunnan og
vestan til á morgun,
hægari framan af á
sunnudag en síðan
tekur við stíf norð-
austanátt.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
VINNUMARKAÐUR Atvinnulausum
fækkaði um 0,1 prósentustig í sept-
ember frá fyrra mánuði. Alls voru
að meðaltali 10.759 atvinnulausir
í september og hafði þeim fækkað
um 535 frá ágúst. Atvinnuleysi er
hið sama og það var í júlí, eða 6,6
prósent.
Fjöldi atvinnulausra er kominn
niður í það sem hann var í janúar
2009. Þá snarjókst atvinnuleysið
þegar áhrifa uppsagna eftir hrun
fór að gæta. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Vinnumálastofnun þarf
að leita aftur til ársins 1995 til að
sjá jafn mikið atvinnuleysi fyrir
hrun, en þá mældist það 6,8 pró-
sent í janúar og 6,5 prósent í mars.
Atvinnuleysi er jafnan meira á
fyrstu mánuðum ársins. - kóp
Atvinnuleysi í september:
Svipað og í
janúar 2009
Hjálpsemi ókunnugs
manns snart Lilju Rós
Ung, einstæð móðir sem var rukkuð um of há leikskólagjöld hefur loks fengið
endurgreitt eftir ítrekaðar óskir um það. Sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg harm-
ar að mistök hafi átt sér stað og segir að verklag verði endurskoðað.
LILJA RÓS ÁSAMT
SYNI SÍNUM
REYKJAVÍKURBORG Sviðsstjóri Skóla- og frístundasviðs harmar þau mistök sem áttu
sér stað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt íslenska ríkið
til að greiða 18 ára pilti tæplega
31 milljón króna vegna mistaka í
meðhöndlun sem leiddu til veru-
legs heilaskaða. Pilturinn er nú
með skerta heyrn og sjón, spast-
ískur og bundinn við hjólastól.
Pilturinn var í nóvember 2004
fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri með kviðverki, smá hita
og uppköst. Við aðgerð reyndist
hann vera með sýkingu í kviðar-
holi og garnastíflu. Pilturinn fór
seinna í öndunar- og hjartastopp,
sem leiddi svo til örorku hans.
Dómurinn áleit að viðbrögð
starfsfólks hefðu verið of sein og
ámælisvert að skýrsla um endur-
lífgun hefði ekki verið fyllt út
með fullnægjandi hætti. Þrettán
mínútna töf hefði orðið á réttri
meðferð piltsins og hann hefði
verið hafður í óæskilegri stellingu
miðað við ástandið. - jss
31 milljón króna í bætur:
Handvömm og
stórfellt gáleysi
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
S
FG
4
20
40
0
4.
20
08
GENGIÐ 13.10.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,7009
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,52 116,08
181,42 182,30
158,51 159,39
21,287 21,411
20,421 20,541
17,361 17,463
1,5013 1,51010
181,53 182,61
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Franski ofurhuginn Matthias Giraud
stökk fram af brún fossins Drífanda
sem er í Eyjafjöllunum vestanverðum
en ekki Drífanda í Fljótshlíðinni eins
og sagði í myndatexta á forsíðu
Fréttablaðsins í gær.
LEIÐRÉTT
ANDERS BEHRING BREIVIK Áfram í
einangrun af öryggisástæðum.
NORDICPHOTOS/AFP
NOREGUR, AP Norska lögreglan
telur ekki lengur þörf á að
fjöldamorðingjanum Anders
Behring Breivik verði haldið í
einangrun í fangelsi. Rannsókn-
arhagsmunir kalli ekki lengur
á það.
Aftur á móti breytir þetta
litlu fyrir Breivik, því fangelsis-
yfirvöld munu áfram vilja halda
honum frá öðrum föngum af
öryggisástæðum.
Christian Hatlo, saksóknari
lögreglunnar, segir engar stað-
festingar hafa fundist á þeim
fullyrðingum Breiviks, að hann
sé partur af samtökum sem hafi
fleiri árásir í undirbúningi. - gb
Breivik líklega einn að verki:
Einangrun ekki
lengur nauðsyn