Fréttablaðið - 14.10.2011, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 14. október 2011
Það hver verði biskup eftir ár er ekki mjög áhugaverð spurning.
Það er heldur ekki það sem kirkj-
an ætti að hafa áhyggjur af eða við
ættum að vera að spyrja okkur.
Þess í stað ættum við að velta því
fyrir okkur hvort þjóðkirkjan, eða
önnur trúfélög, séu öfl sem mark
er á takandi þegar kemur að því að
vísa veginn í siðferðismálum. Trú-
leysingjanum finnst það ekki, en
hver verður að fá að svara þessu
fyrir sig.
Trúarbrögð heimsins deila flest
nokkrum sameiginlegum einkenn-
um. Flest þeirra gefa til dæmis
rangar skýringar á upphafi heims-
ins og tilurð mannsins. Vísind-
unum hefur tekist að gefa mun
líklegri skýringar á hvoru tveggja
þótt öfgamenn í mörgum löndum
reyni gjarnan að halda hinum
röngu skýringum til streitu og fá
þær jafnvel kenndar í skólum. Sem
betur fer eru slík afskipti trúar-
leiðtoga þó fremur fátíð hérlendis.
En þegar kemur að siðferðis-
málum hafa kristnar kirkjur þó að
einhverju leyti haldið velli sem afl
sem hlustað er á. Ekki er víst að
sú staða sé verðskulduð. Framfar-
ir í siðferðismálum verða sjaldan
fyrir tilstuðlan trúfélaga. Þvert
á móti virðist að ekki sé hægt að
finna þá bábilju sem eitthvert aft-
urhald með söfnuð sér að baki geti
ekki léð máls á. Hatursburður for-
stöðumanna sumra trúarsöfnuða í
garð samkynhneigðra er bara eitt
dæmi.
Jafnvel þjóðkirkjan íslenska,
sem samanborið við marga aðra
söfnuði er vissulega fremur frjáls-
lynd, eltir miklu fremur sam-
félagslegar breytingar en að leiða
þær. Ekki er lengra en fjögur ár
frá því að Kirkjuþing lagði áherslu
á að „frelsi presta væri virt“ þegar
kæmi að hjónavígslum fólks af
sama kyni. Fallist var á þetta í
nýjum hjúskaparlögum.
Nokkrar spurningar vakna: Er
það eðlilegt að þeir sem fram-
kvæma opinberar athafnir hafi
slíkt sjálfsvald? Lýsa óskir um
slíkt nútímalegri siðferðiskennd?
Hvað þætti okkur um að íþrótta-
félag sem fengi opinbera styrki
færi sérstaklega fram á að geta
valið í liðið á forsendum kynþátt-
ar eða ætternis? Hugsum okkur
svo einkarekinn grunnskóla þar
sem skólastjórinn reynist vera
kynferðisafbrotamaður. Jafnvel
ef stjórn skólans gerði allt rétt
ætti hún að hafa miklar áhyggj-
ur af framtíð skólans. En hvað ef
stjórnin hefði hunsað ábendingar
um kynferðisbrotin? Hvaða fram-
tíð ætti slíkur skóli fyrir sér?
Trúarsöfnuðir virðast auð vitað
fylgja einhverjum öðrum lög-
málum en önnur félög. Er það til
dæmis ekki magnað að fórnar-
lömb ofbeldis starfsmanna trú-
félaga leiti hvað eftir annað til
trúfélaganna sjálfra til að fá
úrlausn mála sinna? Það hafa
þau gert hérlendis, sömu sögu
er að segja frá öðrum löndum.
Reynslan ætti að kenna fólki að
leita annað. Það hafa verið blaða-
menn, sálfræðingar, lögfræðing-
ar og læknar, sem sagt „verald-
legir menn“, sem gjarnan hafa ýtt
málum fórnarlambanna áfram.
Ekki prestar eða biskupar. Enda
ætti ekki að koma fram við trú-
félög sem sérstök ríki í ríkinu. Ef
ráðist er á konu á skemmtistað, þá
er eðlilegast að leita til lögreglu,
en ekki leita til skemmtistaðar-
ins og bíða eftir að nefnd á hans
vegum skili af sér skýrslu.
Nú er ekki þar með sagt að í
kirkjum landsins starfi eintómir
siðleysingjar. En það má spyrja
sig hvort siðferðislegur árangur
kirkjunnar seinustu áratugi gefi
mikla ástæðu til að til hennar sé
litið sem góðrar fyrirmyndar á
því sviði. Um það má efast.
Trúfélög stæra sig gjarnan af
því að þau fylli ákveðið skarð í
lífi fólks. Þau gefi svör um tilgang
lífsins, varði áfanga á lífsleið þess
og leitist við að svara spurning-
um um rétt og rangt. Önnur hug-
myndakerfi geta auðvitað hæg-
lega fyllt þau meintu skörð sem
hér eru nefnd. Tilgang lífsins má
finna án loforðs um himnaríki.
Fagna má nýfæddu án vísunar í
yfirnáttúrleg öfl. Loks má svara
siðferðislegum spurningum ansi
vel án þess að þurfa að grípa til
hugtaka á borð við „Guð“, „synd“
og „helvíti“. Og þau svör verða
sjaldnast síðri.
Framfarir í siðferðismálum verða sjaldan
fyrir tilstuðlan trúfélaga. Þvert á móti
virðist að ekki sé hægt að finna þá bá-
bilju sem eitthvert afturhald með söfnuð sér að baki
geti ekki léð máls á.
Máttlitlir
siðferðisvitar
Steingrímur J. Sigfússon fjár-málaráðherra.
Sem fyrrum skólameistari
þinn skora ég á þig að hætta við
að leggja niður líknardeildina við
Landakotsspítala. Sparnaður upp
á 50 milljónir íslenskra króna rétt-
lætir það ekki. Síðustu stundir
okkar í þessu jarðlífi eru mörgum
þungbærar. Mikilsvert er að létta
fólki þessar stundir.
Allir hugsandi menn skilja hins
vegar nauðsyn þess að draga úr
útgjöldum hins opinbera. Það verð-
ur að gera með umhugsun og fyr-
irhyggju og má ekki rasa um ráð
fram. Draga má úr útgjöldum án
þess að skera niður – með því að
endurskipuleggja og breyta.
Með því að endurskipuleggja
utanríkisþjónustuna má til að
mynda spara milljarða, með því
að endurskipuleggja skólakerfi
landsins má spara milljarðatugi
og með því að endurskipuleggja
og einfalda sveitarfélög má spara
enn milljarða á milljarða ofan –
svo dæmi séu tekin. En ekki líkn-
ardeild Landakots fyrir 50 skitnar
milljónir. Flýttu þér hægt, Stein-
grímur – flas er ekki til fagnaðar.
Opið bréf til
fjármálaráðherra
Heilbrigðismál
Tryggvi
Gíslason
fyrrverandi
skólameistari MA
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
Ódýru
vetrardekkin
eru komin í BYKO!
Með hverjum dekkjaumgangi
fylgir ávísun að verðmæti 4.000 kr.
á dekkjaskipti hjá Max-1.
Það margborgar sig að kaupa dekkin í BYKO!
Vnr. 49980470
175/65R14 MLIS-W 11.590
Vnr. 49980485
185/65R14GENERAL 11.990
Vnr. 49980476
185/70R14 MLIS-W 11.590
Vnr. 49980488
195/65R15 JINYU 13.490
Vnr. 49980496
215/65R16ME WINT 18.990
Vnr. 49980479
205/55R16 MLIS-W 15.990