Fréttablaðið - 14.10.2011, Blaðsíða 34
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 14. OKTÓBER 2011
YFIRHEYRSLAN
Hallgerður Hallgrímsdótt-
ir ljósmyndari, með gráðu í
fatahönnun en vinnur fyrir
sér með skrifum.
Ertu A eða B manneskja? Ég trúi
ekki á A manneskjur, ég held að fólk
sem segist vera A sé bara betri leik-
arar en við hin. Þau eru ekkert í alvör-
unni búin að fara í sund. Verst að við
B fólkið munum aldrei vakna nógu
snemma til að komast að hinu sanna.
Hvaða bók er á náttborðinu?
IKEA-bæklingurinn, Snow eftir
Orhan Pamuk, Úrvalið eftir Einar Fal
Ingólfsson og styrkumsókn frá mann-
inum mínum.
Uppáhaldslitur? Hvítur af því að nú
er að koma vetur.
Nýjustu kaupin? Bestu kaup lífs
míns: 6 mánaða áskrift að Orðabók.
is. Ef ég myndi reikna þetta út eins
og maður gerir með fötin sín þá er
ég örugglega komin niður í 10 krónur
fyrir skiptið sem hún er notuð. Annars
er ég bara enn þá að reyna að slíta
út 2007 hælaskónum og sparka í mig
fyrir að hafa ekki keypt fleiri pör þá.
Hvað dreymir þig um
að eignast? Flug-
miða til Víet-
nam, helst í
febrúar þegar
skammdegið er farið
að smjúga inn í merg og bein. Mig
dreymir reyndar líka um stað til að
búa á en leigusalar mega leita mig
uppi á Facebook.
Uppáhaldshönnuður? Á bak við
EYGLO er mjög hæfileikarík kona
með efnisvalið og hlutföllin á hreinu,
þótt fólkið með alla pen-
ingana sé ekki búið
að átta sig á því. Er
ekki einhver sem
getur gefið henni
nokkrar milljón-
ir? Svo finnst mér
gaman hvað stelp-
urnar í Volka eru
fjölhæfar og litríkar.
Uppáhalds-
drykkur? Pouilly-
Fuissé en það
er sjaldséður
hvítvínshrafn.
Tíska, fegurð, hönnun,
lífið, fólkið, menning
og allt um helgina framundan
Fylgstu meðAuglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Sigríður Dagný í síma 512 5462 eða sigridurdagny@365.is
föstudagur