Fréttablaðið - 14.10.2011, Page 17

Fréttablaðið - 14.10.2011, Page 17
FÖSTUDAGUR 14. október 2011 Það hver verði biskup eftir ár er ekki mjög áhugaverð spurning. Það er heldur ekki það sem kirkj- an ætti að hafa áhyggjur af eða við ættum að vera að spyrja okkur. Þess í stað ættum við að velta því fyrir okkur hvort þjóðkirkjan, eða önnur trúfélög, séu öfl sem mark er á takandi þegar kemur að því að vísa veginn í siðferðismálum. Trú- leysingjanum finnst það ekki, en hver verður að fá að svara þessu fyrir sig. Trúarbrögð heimsins deila flest nokkrum sameiginlegum einkenn- um. Flest þeirra gefa til dæmis rangar skýringar á upphafi heims- ins og tilurð mannsins. Vísind- unum hefur tekist að gefa mun líklegri skýringar á hvoru tveggja þótt öfgamenn í mörgum löndum reyni gjarnan að halda hinum röngu skýringum til streitu og fá þær jafnvel kenndar í skólum. Sem betur fer eru slík afskipti trúar- leiðtoga þó fremur fátíð hérlendis. En þegar kemur að siðferðis- málum hafa kristnar kirkjur þó að einhverju leyti haldið velli sem afl sem hlustað er á. Ekki er víst að sú staða sé verðskulduð. Framfar- ir í siðferðismálum verða sjaldan fyrir tilstuðlan trúfélaga. Þvert á móti virðist að ekki sé hægt að finna þá bábilju sem eitthvert aft- urhald með söfnuð sér að baki geti ekki léð máls á. Hatursburður for- stöðumanna sumra trúarsöfnuða í garð samkynhneigðra er bara eitt dæmi. Jafnvel þjóðkirkjan íslenska, sem samanborið við marga aðra söfnuði er vissulega fremur frjáls- lynd, eltir miklu fremur sam- félagslegar breytingar en að leiða þær. Ekki er lengra en fjögur ár frá því að Kirkjuþing lagði áherslu á að „frelsi presta væri virt“ þegar kæmi að hjónavígslum fólks af sama kyni. Fallist var á þetta í nýjum hjúskaparlögum. Nokkrar spurningar vakna: Er það eðlilegt að þeir sem fram- kvæma opinberar athafnir hafi slíkt sjálfsvald? Lýsa óskir um slíkt nútímalegri siðferðiskennd? Hvað þætti okkur um að íþrótta- félag sem fengi opinbera styrki færi sérstaklega fram á að geta valið í liðið á forsendum kynþátt- ar eða ætternis? Hugsum okkur svo einkarekinn grunnskóla þar sem skólastjórinn reynist vera kynferðisafbrotamaður. Jafnvel ef stjórn skólans gerði allt rétt ætti hún að hafa miklar áhyggj- ur af framtíð skólans. En hvað ef stjórnin hefði hunsað ábendingar um kynferðisbrotin? Hvaða fram- tíð ætti slíkur skóli fyrir sér? Trúarsöfnuðir virðast auð vitað fylgja einhverjum öðrum lög- málum en önnur félög. Er það til dæmis ekki magnað að fórnar- lömb ofbeldis starfsmanna trú- félaga leiti hvað eftir annað til trúfélaganna sjálfra til að fá úrlausn mála sinna? Það hafa þau gert hérlendis, sömu sögu er að segja frá öðrum löndum. Reynslan ætti að kenna fólki að leita annað. Það hafa verið blaða- menn, sálfræðingar, lögfræðing- ar og læknar, sem sagt „verald- legir menn“, sem gjarnan hafa ýtt málum fórnarlambanna áfram. Ekki prestar eða biskupar. Enda ætti ekki að koma fram við trú- félög sem sérstök ríki í ríkinu. Ef ráðist er á konu á skemmtistað, þá er eðlilegast að leita til lögreglu, en ekki leita til skemmtistaðar- ins og bíða eftir að nefnd á hans vegum skili af sér skýrslu. Nú er ekki þar með sagt að í kirkjum landsins starfi eintómir siðleysingjar. En það má spyrja sig hvort siðferðislegur árangur kirkjunnar seinustu áratugi gefi mikla ástæðu til að til hennar sé litið sem góðrar fyrirmyndar á því sviði. Um það má efast. Trúfélög stæra sig gjarnan af því að þau fylli ákveðið skarð í lífi fólks. Þau gefi svör um tilgang lífsins, varði áfanga á lífsleið þess og leitist við að svara spurning- um um rétt og rangt. Önnur hug- myndakerfi geta auðvitað hæg- lega fyllt þau meintu skörð sem hér eru nefnd. Tilgang lífsins má finna án loforðs um himnaríki. Fagna má nýfæddu án vísunar í yfirnáttúrleg öfl. Loks má svara siðferðislegum spurningum ansi vel án þess að þurfa að grípa til hugtaka á borð við „Guð“, „synd“ og „helvíti“. Og þau svör verða sjaldnast síðri. Framfarir í siðferðismálum verða sjaldan fyrir tilstuðlan trúfélaga. Þvert á móti virðist að ekki sé hægt að finna þá bá- bilju sem eitthvert afturhald með söfnuð sér að baki geti ekki léð máls á. Máttlitlir siðferðisvitar Steingrímur J. Sigfússon fjár-málaráðherra. Sem fyrrum skólameistari þinn skora ég á þig að hætta við að leggja niður líknardeildina við Landakotsspítala. Sparnaður upp á 50 milljónir íslenskra króna rétt- lætir það ekki. Síðustu stundir okkar í þessu jarðlífi eru mörgum þungbærar. Mikilsvert er að létta fólki þessar stundir. Allir hugsandi menn skilja hins vegar nauðsyn þess að draga úr útgjöldum hins opinbera. Það verð- ur að gera með umhugsun og fyr- irhyggju og má ekki rasa um ráð fram. Draga má úr útgjöldum án þess að skera niður – með því að endurskipuleggja og breyta. Með því að endurskipuleggja utanríkisþjónustuna má til að mynda spara milljarða, með því að endurskipuleggja skólakerfi landsins má spara milljarðatugi og með því að endurskipuleggja og einfalda sveitarfélög má spara enn milljarða á milljarða ofan – svo dæmi séu tekin. En ekki líkn- ardeild Landakots fyrir 50 skitnar milljónir. Flýttu þér hægt, Stein- grímur – flas er ekki til fagnaðar. Opið bréf til fjármálaráðherra Heilbrigðismál Tryggvi Gíslason fyrrverandi skólameistari MA Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í DAG Ódýru vetrardekkin eru komin í BYKO! Með hverjum dekkjaumgangi fylgir ávísun að verðmæti 4.000 kr. á dekkjaskipti hjá Max-1. Það margborgar sig að kaupa dekkin í BYKO! Vnr. 49980470 175/65R14 MLIS-W 11.590 Vnr. 49980485 185/65R14GENERAL 11.990 Vnr. 49980476 185/70R14 MLIS-W 11.590 Vnr. 49980488 195/65R15 JINYU 13.490 Vnr. 49980496 215/65R16ME WINT 18.990 Vnr. 49980479 205/55R16 MLIS-W 15.990

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.