Fréttablaðið - 20.10.2011, Qupperneq 2
20. október 2011 FIMMTUDAGUR2
SKÓLAMÁL „Vinnan í sumum mötu-
neytum er farin að líkjast meira
þrælabúðum en eðlilegum vinnu-
stað,“ segir í yfirlýsingu Sam-
taka faglærðra matreiðslumanna í
grunnskólum Reykjavíkur.
Gunnar Bollason, formaður sam-
taka matreiðslumannanna, segir
að starfsfólki hafi stöðugt verið
fækkað í skólamðtuneytum borg-
arinnar á síðustu árum. Sem dæmi
starfi hann sem matreiðslumaður
í Rimaskóla með tvo skólaliða sér
til aðstoðar og eldi ofan í um 550
manns. Áður hafi fjórir skólaliðar
starfað með honum í mötuneytinu.
Í yfirlýsingu sinni segjast mat-
reiðslumennirnir vara við fækkun
starfsfólks í mötuneytum margra
grunnskóla Reykjavíkur. „Gífur-
legt álag er á því starfsfólki sem
eftir er þar sem því er gert að
vinna sömu vinnu og áður. Það
virðist vera geðþóttaákvörðun
hjá hverjum og einum skólastjóra
hvort stöðu gildum í mötuneytum
er fækkað,“ segir í yfirlýsingunni.
Gunnar lýsir ástandinu sem
„fáránlegu“. Í sumum skólum ráði
starfsfólkið ekki við að matreiða
ofan í mannskapinn og að þar sé
gripið til þess að leysa málið með
aðkeyptum mat sem hitaður sé
upp í skólunum. Það sé dýrari leið
og auk þess sé sá matur ekki eins
hollur og máltíðir eldaðar á staðn-
um. Borgaryfirvöld hafi ekki léð
máls á ábendingum matreiðslu-
manna og óskum þeirra um úrbæt-
ur.
„Foreldrar eru að borga 275 krón-
ur fyrir hverja máltíð barnanna. Af
þeim eru teknar 63 krónur í laun
eins starfsmanns og viðhald. Þá eru
eftir 212 krónur. Það er mikil list að
moða þannig úr slíkum peningum
að þeir dugi í mannsæmandi mál-
tíð,“ segir Gunnar.
Matreiðslumennirnir segja þró-
unina bitna á börnunum. „Vegna
undirmönnunar er vegið að fag-
mennsku matreiðslumanna, þar
sem þeir neyðast til að kaupa
inn meira af tilbúnum mat en
áður. Þetta stríðir gegn yfirlýstri
stefnu stjórnvalda þar sem skóla-
mötuneytum er gert að fara að
stöðlum Lýðheilsustöðvar og leggja
áherslu á ferskan, hollan og nær-
ingarríkan mat,“ segir í yfirlýsingu
matreiðslumannanna, sem benda á
misræmi hvað þessa hluti snertir
milli sviða borgarkerfisins:
„Skólamötuneyti sitja ekki við
sama borð og matreiðslumenn hjá
Velferðarsviði. Gert er ráð fyrir
að þrjá matreiðslumenn og tólf
aðstoðar menn þurfi til að matreiða
ofan í um það bil eitt þúsund manns
hjá Velferðarsviði. Hjá Menntasviði
– sem sagt í skólamötuneyti – er
dæmi um að einn matreiðslumaður
og tveir skólaliðar sjái um að mat-
reiða ofan í sjö hundruð manns.
Þetta er óþolandi staða sem er búið
að koma okkur í!“ gar@frettabladid.is
Það er mikil list að
moða þannig úr
slíkum peningum að þeir
dugi í mannsæmandi máltíð.
GUNNAR BOLLASON
FORMAÐUR SAMTAKA FAGLÆRÐRA
MATREIÐSLUMANNA Í GRUNNSKÓLUM
REYKJAVÍKUR
Sigfús, er þetta bara hráka-
smíð?
„Við verðum allavega að spýta í
lófana og klára málið.“
Sigfús Ólafur Helgason er umsjónar-
maður í Íþróttahúsinu Boganum.
Iðkendur íþrótta fá sýkingar í sár sem eru
raktar til þess að hrækt er á gervigrasið,
sem hefur ekki verið þrifið.
VIÐSKIPTI Hlutabréfaverð Icelandair
Group, móðurfélags Icelandair og
fleiri fyrirtækja, hefur hækkað um
81,3 prósent það sem af er ári. Á
sama tímabili hefur hlutabréfaverð
helstu flugfélaga Evrópu lækk-
að verulega. Þetta kemur fram í
saman tekt norska dagblaðsins
Dagens Næringsliv um flug rekstur
í Evrópu.
Í umfjölluninni segir að sam-
spil hás eldsneytisverðs og minnk-
andi eftirspurnar vegna alþjóðlegu
efnahagslægðarinnar hafi leikið
evrópsk flugfélög grátt undan farið,
að Icelandair undanskildu.
„Við metum það þannig að þetta
sé klárlega staðfesting á því að við
séum að gera eitthvað rétt,“ segir
Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri
Icelandair Group. „Við teljum að
okkar rekstrarmódel hafi sann-
að sig síðustu misseri. Þá hefur
leiðarkerfi Icelandair og okkar
nýju leiðir, svo sem Seattle, komið
mjög vel út.“ Bogi segir að hluta
af hækkuninni megi án efa rekja
til fjölgunar erlendra ferðamanna
á Íslandi en bendir á að ferðir frá
Íslandi hafi einnig aukist talsvert.
Icelandair Group gekk á síðasta ári
í gegnum fjárhagslega endurskipu-
lagningu og var í kjölfarið ráðist í
hlutafjárútboð. Þar voru hlutir
seldir á genginu 2,5 en það stóð í
5,7 síðasta miðvikudag. - mþl
Markaðsvirði Icelandair Group hefur hækkað um ríflega 80 prósent á árinu:
Icelandair sker sig úr meðal flugfélaga
Þróun hlutabréfaverðs evrópskra flugfélaga
Félag Hlutabréfaverð* Þróun í ár Markaðsvirði**
Ryanair Holding 3,3 -13,4% 768.828,8
Deutsche Lufthansa-reg 9,8 -37,7% 721.642,0
Intl Consolidated Airline-di 165,7 -39,2% 565.186,7
Easyjet Plc 368,9 -16,2% 291.889,3
Air France - KLM 5,6 -58,8% 271.587,5
Sas ab 9,5 -51,7% 64.079,1
Finnair Oyj 2,9 -42,9% 59.402,1
Aer Lingus 0,6 -39,9% 55.324,8
Norwegian Air Shuttle as 62 -47,2 44.321,1
Air Berlin Plc 2,6 -30,2% 35.531,7
Icelandair Group 5,7 81,3% 28.896,8
Veuling Airlines sa 5,5 -43,7% 26.374,3
Aegan Airlines sa 1,6 -25,1% 18.507,1
Cimber Sterling Group a/s 1,5 -58,6% 1.426,6
Meðaltal -30,2% 210.928,4
* Skráning 12. október í gjaldmiðli kauphallar hvers félags. ** Í milljónum króna.
VESTMANNAEYJAR Ferjan Baldur
verður einungis skammtímalausn
til siglinga á milli Vestmanna-
eyja og Landeyjahafnar, að mati
Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í
Vestmannaeyjum.
Elliði ræðir um samgöngumál
á vefsíðu sinni þar sem hann
segir meðal annars að í ljósi þess
að breytingar á Baldri séu kostn-
aðarsamar sé hann, jafnvel sem
vetrarlausn, vart í boði nema
leit að heppilegra skipi skili ekki
árangri. Baldur hefur siglt til og
frá Vestmannaeyjum undan farið,
þar sem aðstæður í Landeyjahöfn
hafa verið óhagstæðar fyrir
Herjólf. - sv
Bæjarstjóri um Baldur:
Aðeins lausn til
skamms tíma
NÁTTÚRA Aldrei hafa verið fleiri
frjókorn í lofti yfir Reykjavík en
í sumar og á Akureyri mældust
frjókorn yfir meðallagi. Niður-
stöður frjómælinga hafa verið
birtar á vef Náttúrufræðistofnun-
ar Íslands.
Júní var aðalfrjómánuðurinn í
Reykjavík. Þá var birkið í blóma
en frjó þess urðu sex sinnum fleiri
en í meðalári og hafa aldrei verið
fleiri. Asparfrjó urðu einnig ríf-
lega sex sinnum fleiri en í meðal-
ári. Þá fóru grasfrjó og súrufrjó
líka yfir meðaltalið. Á Akureyri
mældust birki- og asparfrjó yfir
meðallagi en gras- og súrufrjó í
tæpu meðallagi. Ágúst var aðal-
frjómánuðurinn en þá var sem
mest af grasfrjóum. - shá
Sexföldun í Reykjavík í júní:
Frjókorn aldrei
mælst fleiri
ASPARFRJÓ Oft er hvítt yfir að líta vegna
asparfrjóa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Íslenska hugbúnaðar-
fyrirtækið Betware hefur skrif-
að undir stóran samning við Cirsa
Gaming Corporation frá Spáni. Í
samningnum felst að Cirsa mun
nýta sér leikja- og hugbúnaðarlausn
Betware fyrir internet- og snjall-
símavefi fyrirtækisins á Spáni og
í fleiri löndum.
Cirsa, sem er með höfuðstöðv-
ar á Spáni, rekur 32 spilasali, 83
rafræna spilasali, yfir 32 þúsund
spilakassa, 88 bingósali og 139
íþróttaspilasali á Spáni, Ítalíu og í
Mið- og Suður-Ameríku.
Þetta er stór áfangi í markaðs-
og sölustarfi Betware, en Cirsa er
fjórði erlendi viðskiptavinur fyrir-
tækisins auk danska og spænska
ríkislóttósins og fylkislottósins í
Bresku Kólumbíu í Kanada. Auk
stórra erlendra viðskiptavina er
Íslensk getspá viðskiptavinur
Betware.
Starfsmenn Betware eru rúm-
lega hundrað á Íslandi, í Danmörku,
á Spáni og í Kanada. Í tilkynningu
kemur fram að Betware hafi á
undan förnum misserum verið að
fjölga starfsmönnum og að samn-
ingurinn við Circa, ásamt fleiri
samningnum sem eru í vinnslu,
muni styðja frekar við uppbygg-
ingu á starfsemi fyrirtækisins inn-
anlands. - shá
Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki með stóran áfanga í markaðs- og sölustarfi:
Betware landar stórum samningi
HEIMASÍÐA Cirsa er risafyrirtæki en
ekkert hefur verið gefið upp um virði
samningsins fyrir Betware.
NOREGUR Lögreglan í Noregi gerði
sér strax grein fyrir því, aðeins
fáeinum mínútum eftir sprengju-
árásina í Ósló í sumar, að þar væri
Anders Behring Breivik að verki.
Lögreglan gerði sér einnig grein
fyrir því á hvaða bifreið hann var
og hvert var tilefni árásarinnar.
Þeir sem stjórnuðu aðgerðum
lögreglunnar fengu þó ekki þess-
ar upplýsingar fyrr en rúmlega
klukkustund síðar, þegar Brei-
vik var á leiðinni til Úteyjar að
fremja fjöldamorð á unglingum.
Það er norska fréttasíðan ABC
Nyheter sem skýrði frá þessu í
gær og sagðist hafa upplýsing-
arnar úr leynilegum lögreglu-
skýrslum. - gb
Lögreglan í Noregi:
Vissi strax hver
morðinginn var
BRETLAND, AP Heillegt báts-
kuml hefur fundist í Skotlandi,
á afskekktum skaga sem nefnist
Ardnamurchan.
Talið er að víkingahöfðingi
hafi verið grafinn þar ásamt
báti sínum, exi, sverði og spjóti.
Kumlið er líklega meira en þús-
und ára gamalt, en þetta er fyrsta
heillega víkingakumlið sem
finnst í Bretlandi og þykir þessi
fornleifafundur því afar merki-
legur. Reynt er að afla vitneskju
um samfélagsþróun á þessum
slóðum frá víkingatímanum. - gb
Víkingakuml fannst í Skotlandi:
Gröf með báti
og vopnum
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á
höfuð borgarsvæðinu hefur ákært
tæplega tvítuga konu fyrir að stela
rándýrum úlpum úr fatahengi í
Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi í
nóvember í fyrra.
Konan er sökuð um að hafa í tví-
gang farið í skólann, stolið fyrst
fimm úlpum og síðan einni. Í
seinna skiptið var þrítug kona með
í för og er hún ákærð fyrir hlut-
deild í brotinu. Þá brugðust börn
í skólanum skjótt við og hlupu þá
yngri uppi. Hún er einnig ákærð
fyrir að hafa kýlt aðra konu á Café
Oliver og að aka undir áhrifum og
ökuréttindalaus. - jss
Var hlaupin uppi af börnum:
Ákærð fyrir
úlpuþjófnað
Carla Bruni ól stúlkubarn
Carla Bruni, eiginkona Nicolas Sar-
kozy Frakklandsforseta, ól stúlkubarn
klukkan sex í gær að íslenskum tíma.
Margmenni kom saman fyrir utan
fæðingardeildina þegar fregnaðist að
hún væri þar. Bruni á fyrir einn son
og Sarkozy þrjá.
FRAKKLAND
Smurostar
við öll tækifæri
ms.is
...tvær nýjar
bragðtegundir
Ný bragðtegund
með
papriku
Ný bragðtegund
Texmex
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
-
11
-0
50
9
SPURNING DAGSINS
Mötuneyti skólanna
sögð sem þrælabúðir
Samtök matreiðslumanna í grunnskólum segja að einum matreiðslumanni með
aðstoð tveggja skólaliða sé gert að elda fyrir sjö hundruð manns. Með mikilli
fækkun starfsfólks í skólamötuneytum versni máltíðirnar sem börn fái.
MATEIÐSLUMENN Á FARALDSFÆTI Sextán af um þrjátíu félögum í Samtökum
faglærðra matreiðslumanna í grunnskólum Reykjavíkur fóru saman til Finnlands í
sumar og kynntu sér skólamötuneyti þar. Gunnar Bollason er yst til hægri.
MYND/ÚR EINKASAFNI