Fréttablaðið - 20.10.2011, Side 4
20. október 2011 FIMMTUDAGUR4
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
16°
9°
9°
10°
7°
10°
10°
25°
11°
20°
19°
22°
7°
11°
21°
7°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
víða um land.
LAUGARDAGUR
Strekkingur á V-fjörð-
um og með SA-strönd,
annars hægari.
6 5
34
4
56
5 5
4
7
7
5
5
6
6
6
6
1
4
4
6
5
8
6
5
6
4
5
3
5
5
ÚRKOMA fellur um
allt land í dag en
fer minnkandi þeg-
ar á daginn líður.
Norðan og austan
til verður snjókoma
í fyrstu en síðan
slydda og rigning.
Það léttir heldur
til norðaustan-
lands á morgun
en um sunnan- og
vestanvert land
verða skúrir eða
slydduél.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun
segir ekkert hafa komið fram sem
breyti ábendingu stofnunarinnar
frá 27. september um innkaup lög-
gæslustofnana. Stofnunin standi
því við ábendingu sína.
Þetta er niðurstaða Ríkis-
endurskoðunar í kjölfar niðurstöðu
innanríkis ráðuneytisins þess efnis
að farið hafi verið að lögum við öll
þau innkaup sem stofnunin fjallaði
um í ábendingu sinni.
Ábendingar stofnunarinnar vörð-
uðu meðal annars innkaup ríkis-
lögreglustjóra í desember 2009,
þegar keyptur var búnaður af
Trademark ehf. fyrir samtals 12,6
milljónir króna. Viðskiptunum var
skipt á þrjá reikninga, en Ríkis-
endurskoðun vakti athygli á að
samkvæmt lögum um opinber inn-
kaup væri óheimilt að skipta við-
skiptum upp í því skyni að þau yrðu
undir viðmiðunarmörkum útboðs-
skyldu. Þá benti Ríkisendurskoðun
á óheppileg innkaup löggæslustofn-
ana frá fyrirtækjum tengdum lög-
reglumönnum.
Ríkisendurskoðun segir að þótt
tiltekin reglugerð framkvæmda-
stjórnar ESB hafi ekki verið í gildi
þegar umrædd innkaup á lögreglu-
búnaði fóru fram hafi aðrar efnis-
lega samsvarandi reglugerðir verið
í gildi. Stofnunin standi því við þá
niðurstöðu sína að um ein og sömu
kaup á búnaði hafi verið að ræða.
Af fyrirliggjandi gögnum sé
vandséð að hægt sé að halda því
fram að uppi hafi verið aðkallandi
neyðarástand þegar kaupin á bún-
aðinum fóru fram. Greiningar deild
ríkislögreglustjóra hafi spáð fyrir
um að áfram yrði uppi það hættu-
ástand sem ríkt hefði í heilt ár og
stæði enn að mati ríkislögreglu-
stjóra. Ríkisendurskoðun telur
ástæðu til að taka það fram að
stofnunin hafi ekki séð hættumöt
greiningardeildar Ríkislögreglu-
stjóra frá falli bankanna til dags-
ins í dag.
„… og sætir það nokkurri furðu í
ljósi alvarleika málsins,“ segir enn
fremur. Bent er á að þessar upp-
lýsingar hafi komið fram í greinar-
gerðum Ríkislögreglustjóra til inn-
anríkisráðuneytisins. Enn fremur
að tilboðsfrestur í almennum
útboðum sé fimmtán virkir dagar,
en allt að tveir og hálfur mánuður
hafi liðið frá því að ákveðið var að
kaupa búnaðinn og þar til hann var
afhentur.
Loks tiltekur Ríkisendurskoðun
að 26. ágúst hafi drög að ábend-
ingu um innkaup verið send innan-
ríkisráðuneytinu, Ríkislögreglu-
stjóra og Lögregluskóla ríkisins.
Skólinn hafi skilað athugasemd-
um innan tilskilins frests, ráðu-
neytið hefði skilað þegar ákvörðun
um útgáfu hafi verið tilkynnt því
og Ríkis lögreglustjóri hafi lagt
fram athugasemdir við drögin á
fundi með Ríkisendurskoðun. Þar
hafi ekki verið að finna athuga-
semdir sem embættið hefði gert
í nýjum greinargerðum sínum til
ráðuneytis ins og Ríkisendurskoð-
un hefði fyrst fengið nú 18. október.
jss@frettabladid.is
GENGIÐ 19.10.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,9818
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,88 115,42
181,47 182,35
158,91 159,79
21,341 21,465
20,558 20,680
17,405 17,507
1,4952 1,5040
181,20 182,28
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Ekki aðkallandi neyðarástand
Ríkisendurskoðun stendur við ábendingu sína um innkaup löggæslustofnana. Yfirlýsing innanríkisráðherra
um að lög hafi ekki verið brotin breyti engu þar um. Kaupin hafi ekki verið gerð í aðkallandi neyðarástandi.
ÞJÓÐKIRKJAN Um 150 manns tóku þátt í nám-
skeiði á vegum þjóðkirkjunnar í Neskirkju í
gær. Dr. Marie M. Fortune fræddi viðstadda um
kynferðislegt ofbeldi í samhengi kirkju og trú-
félaga og rétt viðbrögð við því.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hélt
erindi og fór með bæn í byrjun námskeiðsins,
þar sem hann lýsti djúpri sorg vegna mistaka
sem voru gerð innan kirkjunnar við meðferð
mála tengdum Ólafi Skúlasyni og sagðist biðja
þess að allir lærðu af þeim.
Þá sagði Karl að þjóðkirkjan væri í lærdóms-
ferli sem miðaði að því að setja skýrari regl-
ur um meðferð kynferðisbrota, efla fræðslu
og skapa meðvitund um afleiðingar þess og
forvarnir gegn því. Árni Svanur Daníelsson,
upplýsingafulltrúi Biskupsstofu, segir mikla
ánægju ríkja innan kirkjunnar með að dr. For-
tune sé komin hingað til lands að miðla reynslu
sinni.
„Biskup fagnar þessari heimsókn og tekur
þetta mjög alvarlega,“ segir Árni Svanur. „Hann
mun hitta Fortune tvisvar í þessari viku og fara
yfir málin, eins og hann sagði í morgun [í gær].
Hann er mjög þakklátur fyrir hennar framlag
til vinnu þjóðkirkjunnar í þessum málum.“
Karl mun hitta Fortune í dag ásamt fagráði
þjóðkirkjunnar um kynferðisbrot.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir var meðal gesta
námskeiðsins og stjórnandi þess var sr. Gunnar
Rúnar Matthíasson, formaður fagráðs þjóðkirkj-
unnar. - sv
Karl Sigurbjörnsson biskup hélt erindi á námskeiði dr. Marie Fortune um kynferðisofbeldi:
Biskup lýsti djúpri sorg vegna mistaka
BISKUP Á NÁMSKEIÐI Í NESKIRKJU Karl Sigurbjörns-
son biskup mun hitta dr. Marie Fortune og fagráð
þjóðkirkjunnar á formlegum fundi í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Karlmaður um þrí-
tugt hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 2. nóvember
að kröfu lögreglunnar á höfuð-
borgar svæðinu vegna gruns um
fíkniefnamisferli.
Maðurinn er erlendur ríkis-
borgari og hefur áður komið við
sögu hjá lögreglu. Hann var hand-
tekinn í fyrradag og samhliða var
lagt hald á umtalsvert magn af
sterkum fíkniefnum. Maðurinn er
grunaður um að vera stórtækur í
sölu og dreifingu fíkniefna. Hann
hefur búið hér á landi um skeið.
Málið er í rannsókn, en það hefur
verið unnið í samvinnu við toll-
yfirvöld. -jss
Maður í gæsluvarðhaldi:
Grunaður dóp-
sali handtekinn
Ríkisendurskoðandi fer fram á það í bréfi sínu að ráðuneytið afhendi sér
afrit af samþykkt ráðherra fyrir kaupunum á grundvelli þess að neyðar-
ástand hafi skapast.
Þetta telur hann nauðsynlegt, þar sem ósamræmi sé á milli tveggja
atvikalýsinga frá Ríkislögreglustjóra. Í greinargerð Ríkislögreglustjóra til
Ríkisendurskoðunar segi frá fundum með fulltrúum dómsmálaráðuneytisins
þar sem fram hafi komið að litlar líkur væru á að fjárveitingartillagan hlyti
brautargengi. Hins vegar hafi Ríkislögreglustjóri sent innanríkisráðuneytinu
greinargerð þar sem segi að ráðherra hafi samþykkt að fjármunum yrði ráð-
stafað í þessa veru „vegna hættuástands í þjóðfélaginu“. - sh
Vill sönnun fyrir samþykki ráðherra
DÓMSMÁL Sigurður Jónsson,
fyrrverandi landsliðsmaður í
knattspyrnu, var í Héraðsdómi
Stokkhólms í gær dæmdur í skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að
ofsækja fyrrverandi kærustu sína
og beita hana ofbeldi.
Það er miðillinn Nyheter24 sem
greinir frá dómnum, en þar kemur
ekki fram hve langt skilorðið er.
Sigurður gekkst við því að hafa
sent konunni 468 SMS-skilaboð og
tölvuskeyti sem mörg hver inni-
héldu fúkyrði. Þá var hann einnig
sakfelldur fyrir að hafa gefið
henni olnbogaskot í flugvél á leið
frá Mallorca til Stokkhólms.
Hann var jafnframt sektaður
um sem nemur tæpum 300 þúsund
krónum.
Sigurður, sem þjálfar nú lið
Enköping í sænsku fyrstu deild-
inni, var sýknaður af alvar legustu
ákæruliðunum, sem sneru að
grófu líkamlegu ofbeldi. - sh
Sigurður Jónsson í Svíþjóð:
Dæmdur fyrir
að ofsækja sína
fyrrverandi
MÓTMÆLT VIÐ ALÞINGI Ríkislögreglustjóri segir kaupin eðlileg, enda hafi ríkt hættuástand á Íslandi þegar þau hafi verið gerð og
slíkt ástand ríki raunar enn. FRÉTTABALÐIÐ/ANTON