Fréttablaðið - 20.10.2011, Side 21

Fréttablaðið - 20.10.2011, Side 21
FIMMTUDAGUR 20. október 2011 21 Opið virka daga frá 9-18. Laugardaga frá 12-16. Nánar á www.askja.is Fjármögnun býðst fyrir allt að 10 ára gamla bíla · Allt að 60% fjármögnun Jafnar greiðslur á samningstíma · Lánstími allt að 7 ár · Engin stimpil- eða þinglýsingargjöld · Nánar á ergo.is. Kia cee’d árg. 2010, ekinn 36 þús. km 1400cc, bensín, beinsk. Verð kr. 2.260.000 Mánaðarleg afborgun kr. 29.290 miðað við 678.000 kr. útborgun og lán til 72ja mánaða Verð kr. 1.990.000 Toyota Yaris árg. 2010, ekinn 39 þús. km 1000cc, bensín, beinsk. Verð kr. 2.890.000 Toyota Avensis árg. 2006, ekinn 80 þús. km 1998cc, bensín, sjálfsk. Mánaðarleg afborgun kr. 25.890 miðað við 597.000 kr. útborgun og lán til 72ja mánaða Mánaðarleg afborgun kr. 36.990 miðað við 1.156.000 kr. útborgun og lán til 60 mánaða 6 ár e ftir af áb yrgð ! Hl aðinn auka búna ði! Aðei ns 25 .890 kr. á mánu ði Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík Sími 590 2100 · askja.is Þegar litið er til framtíðar er oft rætt um Rússland sem eitt hinna rísandi velda. Landið er með Kína, Indlandi og Brasilíu eitt svonefndra BRIC-ríkja sem tíska er að telja næstu efnahags- stórveldi heimsins. Ný staðfesting á stöðu Pútíns, samhliða dýpkandi forustukreppu á Vesturlöndum, hefur orðið tilefni til umræðna um stöðugleikann í Rússlandi og meintan styrk í ríkisstýrðu hag- módeli þar eystra. Rússland skiptir máli fyrir Íslendinga. Við teljum Rússa til vina og höfum lengi átt góð við- skipti og samskipti við þá. Þau gætu vaxið með breyttum aðstæð- um á norðurslóðum. Enn stærra er að þróun Rússlands er lykil- atriði fyrir framtíð Evrópu. Sumir óttast vaxandi styrk landsins en hér verður því haldið fram að hættur felist í veikleikum ríkisins en ekki styrk þess. Minnkandi Rússland hefur lengi verið risinn í Evrópu að stærð og fjölmenni. Rússum hefur hins vegar fækk- að í tuttugu ár og það um hátt í íbúatölu Svíþjóðar á röskum ára- tug. Færri búa nú í Rússlandi en í Bangladess að ekki sé minnst á Pakistan. Efnahagslega er Rúss- land orðið minna en Brasilía og mun minna en Indland. Landið framleiðir álíka og Spánn og aðeins nokkru meira en S-Kórea, sem er þó minna land en Ísland. Framleiðsla á mann í Rússlandi er svipuð og í Tyrklandi og lík því algenga í S-Ameríku. Litlar líkur eru á því að Rússland verði stærra hagkerfi en Ítalía næstu árin. Þrátt fyrir kreppu í Evrópu er ólíklegt að kaupmáttur Rússa nái kaupmætti Portúgala eða Pól- verja í náinni framtíð. Þrátt fyrir afar lélegt menntakerfi í Brasilíu er atvinnulíf þar syðra að komast á hærra tæknistig en það rúss- neska. Venjulegur Tyrki er að verða ríkari en venjulegur Rússi. Rússland er hvorki uppspretta efnahagslegra yfirburða né fyrir- mynda. Veikt Rússneska hagkerfið einkennist af einföldum hráefnabúskap, ójafn- vægi, ósveigjanleika, spillingu og lítilli nýsköpun. Undantekningar eru til, vaxandi hugbúnaðargeiri þar á meðal. En það er verðhækk- un á hráefnum sem hefur knúið hagvöxt landsins síðari ár. Nú sér fyrir endann á því. Innflutn- ingur hefur mætt aukinni eftir- spurn vegna hráefnagróða en iðn- aður hefur dregist aftur úr og er lítið samkeppnisfær við umheim- inn. Stoðkerfi atvinnulífsins eru í molum og lítil þróun er í tækni og vísindum. Rússar geta enn búið til flókin vopn en Brasilía smíðar nú fleiri farþegaflugvélar. Lélegir innviðir í menntun, heilbrigðis- kerfi og samgöngum hamla mjög þróun atvinnulífs og samfélags. Rússland er líka veikt á pólit- íska sviðinu. Pólitíkin einkennist síst af gagnsæi, sjálfbærni, ábyrgð og lýðræði sem eru undir- stöður heilbrigðs samfélags og sjálfbærs efnahags. Landið er varla réttarríki, spilling og ofríki ræður en réttur víkur. Draumar valdamanna í utanríkispólitík eru líka oft martraðir fyrir nágranna landsins. Völd Rússa í heims- málum byggjast mest á afli þeirra til að hræða nágranna sína. Greipar fortíðar Leiðtogar Rússa eru sem fangar fortíðar. Hrun Sovétríkjanna var þeim hvorki fagnaðarefni né lexía um gildi lýðræðis og opins sam- félags heldur stórkostlegt áfall sem þeir vilja helst bæta úr með því að gera Rússland að heimsveldi. Þeir vilja að Rússland sé mótvægi við Vesturlönd og að Rússar ráði sem mestu í löndum hinna föllnu Sovét- ríkja. Slík endurreisn byggir ekki á annarri sýn á mannfélagið en pólit ískri valdahyggju og þjóð- rembu. Hún er því dæmd til að valda vandræðum og mest fyrir Rússa sjálfa. Stjórn Pútíns hefur ekki efnahagslegar eða pólitískar fyrirmyndir að bjóða. Heimsveldi eru líka dýr og verða ekki rekin á grunni hagkerfis sem snýst um að koma gróða af hráefnum í vasa pólit ískrar yfirstéttar. Þessi staða er ekki aðeins sorgleg fyrir Rússa heldur einnig fyrir Evrópu sem yrði stórum ríkari á öllum sviðum ef Rússar vildu vera með í opnu samfélagi álfunnar. Vestrið er ekki vandinn Sumir í kringum Pútín vita vel að Vestrið er ekki vandi Rússa og að þjóðremba er heimskulegt svar við öllum spurningum. Fátt bendir þó til nýrrar stefnu innanlands eða gagnvart jöðrum Rússlands og nágrönnum. Margir ráðamenn vita að bæði efnahagslegum og pólitískum vanda landsins má í mikilvægum greinum lýsa sem skorti á þróun til evrópskra siða í efnahagslífi og pólitík. Þeir vita að Evrópa þarfnast Rússlands en líka að Rússland þarfnast Evrópu þó enn meira. Vonir um breytingar hafa hins vegar brugðist að undanförnu. Hættan er að því lengur sem dregst að opna stjórnmál, hagkerfi og hugarheim Rússlands, því sterk- ari verði þeir og fleiri sem eiga sín forréttindi undir áframhaldandi lokun lands, hugarheims og stjórn- mála. Staðreyndin er hins vegar sú að Pútín nýtur raunverulegra vin- sælda í Rússlandi og næði líklega kjöri hvernig sem kosið væri. Það segir sína sögu um vanda þessarar miklu menningarþjóðar. Reynsla heimsins sýnir hins vegar líka að vinsældir spilltra valdstjórna geta horfið býsna hratt. Líklega jafnsnemma þar eystra og Rússar fá loksins trú á pólitík. Og vaxa upp úr því að láta hræða sig með því útlenda. Rússland skiptir máli fyrir Íslendinga. Við teljum Rússa til vina og höfum lengi átt góð viðskipti og samskipti við þá. Rússland og framtíðin Í DAG Jón Ormur Halldórsson dósent AF NETINU Kanntu annan? Nú segir hinn nýi samráðsaðall, að „svigrúmið“ til afskrifta á skuldum heimilanna sé fullnýtt og ætlast til að við trúum því. Stað- reyndin er hins vegar sú að lítið sem ekkert hefur í raun verið afskrifað. Það er ekki einu sinni búið að skila því illa fengna fé, sem bankarnir eignuðu sér í gengistryggðu lánunum. Endurútreikningur þeirra sýnir það svart á hvítu. Ég hef nýlega séð dæmi um 9 milljón króna lán, sem tekið var í árslok 2005. Skilvíslega hefur verið greitt af því láni í næstum sex ár. Eftir endurútreikning Íslandsbanka stendur lánið í 11,5 milljónum þrátt fyrir að búið sé að greiða af því 4,7 milljónir. Þetta er ekkert annað en rán! Nú verðum við að passa að þrjótarnir komist ekki undan með ránsfenginn eins og þeir eru að reyna að gera með því að tekjufæra innistæðulaust endurmat á lánasöfnum sínum í stað þess að láta afsláttinn ganga til skuldara eins og neyðarlögin ætlast til. Það verður að passa að bankarnir fái ekki að greiða út þennan pappírshagnað í arð til hrægammanna á Wall Street. Það þarf nefnilega að nota hann í afskriftir hér á Íslandi. Þegar samráðsaðallinn segir allt „svigrúm“ til afskrifta fullnýtt segjum við: Kanntu annan? pressan.is/pressupennar/ LesaOlafArnarson Ólafur Arnarson

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.