Fréttablaðið - 20.10.2011, Page 21
FIMMTUDAGUR 20. október 2011 21
Opið virka daga frá 9-18.
Laugardaga frá 12-16.
Nánar á www.askja.is
Fjármögnun býðst fyrir allt að 10 ára gamla bíla · Allt að 60% fjármögnun
Jafnar greiðslur á samningstíma · Lánstími allt að 7 ár · Engin stimpil- eða
þinglýsingargjöld · Nánar á ergo.is.
Kia cee’d
árg. 2010, ekinn 36 þús. km
1400cc, bensín, beinsk.
Verð kr. 2.260.000
Mánaðarleg afborgun kr. 29.290
miðað við 678.000 kr. útborgun og lán til 72ja mánaða
Verð kr. 1.990.000
Toyota Yaris
árg. 2010, ekinn 39 þús. km
1000cc, bensín, beinsk.
Verð kr. 2.890.000
Toyota Avensis
árg. 2006, ekinn 80 þús. km
1998cc, bensín, sjálfsk.
Mánaðarleg afborgun kr. 25.890
miðað við 597.000 kr. útborgun og lán til 72ja mánaða
Mánaðarleg afborgun kr. 36.990
miðað við 1.156.000 kr. útborgun og lán til 60 mánaða
6 ár e
ftir
af áb
yrgð
! Hl
aðinn
auka
búna
ði!
Aðei
ns 25
.890
kr. á
mánu
ði
Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík
Sími 590 2100 · askja.is
Þegar litið er til framtíðar er oft rætt um Rússland sem eitt
hinna rísandi velda. Landið er
með Kína, Indlandi og Brasilíu
eitt svonefndra BRIC-ríkja sem
tíska er að telja næstu efnahags-
stórveldi heimsins. Ný staðfesting
á stöðu Pútíns, samhliða dýpkandi
forustukreppu á Vesturlöndum,
hefur orðið tilefni til umræðna
um stöðugleikann í Rússlandi og
meintan styrk í ríkisstýrðu hag-
módeli þar eystra.
Rússland skiptir máli fyrir
Íslendinga. Við teljum Rússa til
vina og höfum lengi átt góð við-
skipti og samskipti við þá. Þau
gætu vaxið með breyttum aðstæð-
um á norðurslóðum. Enn stærra
er að þróun Rússlands er lykil-
atriði fyrir framtíð Evrópu. Sumir
óttast vaxandi styrk landsins en
hér verður því haldið fram að
hættur felist í veikleikum ríkisins
en ekki styrk þess.
Minnkandi
Rússland hefur lengi verið risinn
í Evrópu að stærð og fjölmenni.
Rússum hefur hins vegar fækk-
að í tuttugu ár og það um hátt í
íbúatölu Svíþjóðar á röskum ára-
tug. Færri búa nú í Rússlandi en
í Bangladess að ekki sé minnst á
Pakistan. Efnahagslega er Rúss-
land orðið minna en Brasilía og
mun minna en Indland. Landið
framleiðir álíka og Spánn og
aðeins nokkru meira en S-Kórea,
sem er þó minna land en Ísland.
Framleiðsla á mann í Rússlandi
er svipuð og í Tyrklandi og lík
því algenga í S-Ameríku. Litlar
líkur eru á því að Rússland verði
stærra hagkerfi en Ítalía næstu
árin. Þrátt fyrir kreppu í Evrópu
er ólíklegt að kaupmáttur Rússa
nái kaupmætti Portúgala eða Pól-
verja í náinni framtíð. Þrátt fyrir
afar lélegt menntakerfi í Brasilíu
er atvinnulíf þar syðra að komast
á hærra tæknistig en það rúss-
neska. Venjulegur Tyrki er að
verða ríkari en venjulegur Rússi.
Rússland er hvorki uppspretta
efnahagslegra yfirburða né fyrir-
mynda.
Veikt
Rússneska hagkerfið einkennist af
einföldum hráefnabúskap, ójafn-
vægi, ósveigjanleika, spillingu og
lítilli nýsköpun. Undantekningar
eru til, vaxandi hugbúnaðargeiri
þar á meðal. En það er verðhækk-
un á hráefnum sem hefur knúið
hagvöxt landsins síðari ár. Nú
sér fyrir endann á því. Innflutn-
ingur hefur mætt aukinni eftir-
spurn vegna hráefnagróða en iðn-
aður hefur dregist aftur úr og er
lítið samkeppnisfær við umheim-
inn. Stoðkerfi atvinnulífsins eru í
molum og lítil þróun er í tækni og
vísindum. Rússar geta enn búið
til flókin vopn en Brasilía smíðar
nú fleiri farþegaflugvélar. Lélegir
innviðir í menntun, heilbrigðis-
kerfi og samgöngum hamla mjög
þróun atvinnulífs og samfélags.
Rússland er líka veikt á pólit-
íska sviðinu. Pólitíkin einkennist
síst af gagnsæi, sjálfbærni,
ábyrgð og lýðræði sem eru undir-
stöður heilbrigðs samfélags og
sjálfbærs efnahags. Landið er
varla réttarríki, spilling og ofríki
ræður en réttur víkur. Draumar
valdamanna í utanríkispólitík eru
líka oft martraðir fyrir nágranna
landsins. Völd Rússa í heims-
málum byggjast mest á afli þeirra
til að hræða nágranna sína.
Greipar fortíðar
Leiðtogar Rússa eru sem fangar
fortíðar. Hrun Sovétríkjanna var
þeim hvorki fagnaðarefni né lexía
um gildi lýðræðis og opins sam-
félags heldur stórkostlegt áfall sem
þeir vilja helst bæta úr með því að
gera Rússland að heimsveldi. Þeir
vilja að Rússland sé mótvægi við
Vesturlönd og að Rússar ráði sem
mestu í löndum hinna föllnu Sovét-
ríkja.
Slík endurreisn byggir ekki
á annarri sýn á mannfélagið en
pólit ískri valdahyggju og þjóð-
rembu. Hún er því dæmd til að
valda vandræðum og mest fyrir
Rússa sjálfa. Stjórn Pútíns hefur
ekki efnahagslegar eða pólitískar
fyrirmyndir að bjóða. Heimsveldi
eru líka dýr og verða ekki rekin
á grunni hagkerfis sem snýst um
að koma gróða af hráefnum í vasa
pólit ískrar yfirstéttar. Þessi staða
er ekki aðeins sorgleg fyrir Rússa
heldur einnig fyrir Evrópu sem
yrði stórum ríkari á öllum sviðum
ef Rússar vildu vera með í opnu
samfélagi álfunnar.
Vestrið er ekki vandinn
Sumir í kringum Pútín vita vel að
Vestrið er ekki vandi Rússa og að
þjóðremba er heimskulegt svar
við öllum spurningum. Fátt bendir
þó til nýrrar stefnu innanlands
eða gagnvart jöðrum Rússlands
og nágrönnum. Margir ráðamenn
vita að bæði efnahagslegum og
pólitískum vanda landsins má í
mikilvægum greinum lýsa sem
skorti á þróun til evrópskra siða í
efnahagslífi og pólitík. Þeir vita að
Evrópa þarfnast Rússlands en líka
að Rússland þarfnast Evrópu þó
enn meira.
Vonir um breytingar hafa hins
vegar brugðist að undanförnu.
Hættan er að því lengur sem
dregst að opna stjórnmál, hagkerfi
og hugarheim Rússlands, því sterk-
ari verði þeir og fleiri sem eiga sín
forréttindi undir áframhaldandi
lokun lands, hugarheims og stjórn-
mála. Staðreyndin er hins vegar sú
að Pútín nýtur raunverulegra vin-
sælda í Rússlandi og næði líklega
kjöri hvernig sem kosið væri. Það
segir sína sögu um vanda þessarar
miklu menningarþjóðar.
Reynsla heimsins sýnir hins
vegar líka að vinsældir spilltra
valdstjórna geta horfið býsna
hratt. Líklega jafnsnemma þar
eystra og Rússar fá loksins trú á
pólitík. Og vaxa upp úr því að láta
hræða sig með því útlenda.
Rússland skiptir máli fyrir Íslendinga. Við
teljum Rússa til vina og höfum lengi átt
góð viðskipti og samskipti við þá.
Rússland og framtíðin
Í DAG
Jón Ormur
Halldórsson
dósent
AF NETINU
Kanntu annan?
Nú segir hinn nýi
samráðsaðall,
að „svigrúmið“
til afskrifta á
skuldum
heimilanna sé
fullnýtt og ætlast
til að við trúum því. Stað-
reyndin er hins vegar sú að lítið
sem ekkert hefur í raun verið
afskrifað. Það er ekki einu sinni
búið að skila því illa fengna fé,
sem bankarnir eignuðu sér í
gengistryggðu lánunum.
Endurútreikningur þeirra sýnir
það svart á hvítu. Ég hef nýlega
séð dæmi um 9 milljón króna
lán, sem tekið var í árslok 2005.
Skilvíslega hefur verið greitt af
því láni í næstum sex ár. Eftir
endurútreikning Íslandsbanka
stendur lánið í 11,5 milljónum
þrátt fyrir að búið sé að greiða
af því 4,7 milljónir. Þetta er
ekkert annað en rán!
Nú verðum við að passa að
þrjótarnir komist ekki undan
með ránsfenginn eins og þeir
eru að reyna að gera með því
að tekjufæra innistæðulaust
endurmat á lánasöfnum sínum
í stað þess að láta afsláttinn
ganga til skuldara eins og
neyðarlögin ætlast til.
Það verður að passa að
bankarnir fái ekki að greiða út
þennan pappírshagnað í arð til
hrægammanna á Wall Street.
Það þarf nefnilega að nota
hann í afskriftir hér á Íslandi.
Þegar samráðsaðallinn segir
allt „svigrúm“ til afskrifta fullnýtt
segjum við: Kanntu annan?
pressan.is/pressupennar/
LesaOlafArnarson
Ólafur Arnarson