Fréttablaðið - 20.10.2011, Qupperneq 53
FIMMTUDAGUR 20. október 2011 45
uppþvottalögur
glerhreinsirbaðherbergishreinsir sturtuhreinsiryfirborðshreinsirblettahreinsir
uppþvottaefni þvottaefnimýkingarefni þvottaefni og mýkingarefni
Allt sem þú þarft er smá
umhverfisvæn og húðvæn hreinsiefni sem virka
HÚÐVÆNT
án ertandi ilm- og litarefna
UMHVERFISVÆNT
framleitt samkvæmt
ströngustu umhverfisstöðlum
án kemískra efna
ÖFLUG VIRKNI
NÁTTÚRULEGAR
ILMOLÍUR
ferskur ilmur
Hagkaup Víðir Þín Verslun Seljabraut Fjarðarkaup
fyrstu hæð
Sími 511 2020
Erum á
Whooo
Leikaraparið Javier Bardem og
Pénelope Cruz vakti athygli veg-
farenda í Sarajevo um daginn
þegar þau voru í göngutúr ásamt
níu mánaða syni þeirra, Leo Enc-
incas. Litla fjölskyldan er stödd í
Bosníu þar sem Cruz er við tökur
á myndinni Venuto al Mondo en
þar leikur Cruz einstæða móður
sem ferðast til Bosníu ásamt 16
ára syni sínum til að sýna honum
hvar faðir hans lést í stríðinu.
Leo litli skoðaði mannlíf
Sarajevo-borgar úr magapoka
framan á föður sínum á meðan
Cruz gæddi sér á ís.
Tóku soninn
á næturrölt
HAMINGJUSÖM Javier Bardem og
Pénelope Cruz eru stödd í Sarajevo
ásamt syni sínum Leo. Hér eru þau á
góðri stundu þegar Cruz var ennþá ólétt.
NORDICPHOTOS/GETTY
Rihanna hefur komist að sam-
komulagi við tískuljósmyndar-
ann David LaChapelle utan dóm-
stóla. Hann hélt því fram að
myndir sem hann tók af söngkon-
unni hefðu verið notaðar án hans
leyfis í myndbandi við lag hennar
S&M. LaChapelle krafðist um
115 milljóna króna í skaðabætur.
„Mér líkar vel við RiRi. Þetta er
ekkert persónulegt heldur snýst
þetta eingöngu um viðskipti,“
sagði ljósmyndarinn þegar hann
höfðaði málið. „Tónlistarmenn
borga fyrir að nota lagabúta frá
öðrum og því ætti það sama að
gilda um myndefni listamanna.“
Sættir nást í
dómsmáli
SAMKOMULAG Rihanna hefur komist að
samkomulagi við ljósmyndarann David
LaChapelle.
Á meðan allt leikur í lyndi milli Baltasars Kormáks og
Marks Wahlberg og þeir tveir farnir að leggja drög að
sinni næstu mynd, 2 Guns, hefur heldur betur kastast í
kekki milli leikarans og leikstjórans Davids O. Russell.
Vinslitin voru aðalmálið á bandarískum kvikmynda-
vefmiðlum í gær. Vináttan hangir á bláþræði eftir að
Russell ákvað að sniðganga Wahlberg við valið í kvik-
myndina The Silver Linings Playbook og fá í staðinn
Bradley Cooper. „Hann kostaði minna,“ hefur vefmið-
illinn The Wrap eftir heimildarmanni sínum. Wahlberg
dró Russell upp úr miklu drullusvaði þegar hann fékk
leikstjórann til liðs við sig í kvikmyndinni The Fighter,
Russell hafði þá ekki fengið eitt einasta verkefni eftir
kvikmyndina I Heart Huckabees og til að bæta gráu ofan
á svart lak myndband á netið þar sem leikstjórinn sást
öskra á leikkonuna Lily Tomlin. Skapofsi Russells hefur
áður komið honum í bobba því hann hnakkreifst við
George Clooney á tökustað Three Kings.
Það þykir ekki gott að verða „óvinur“ Wahlbergs um
þessar mundir því leikarinn hefur á undanförnum árum
komist til mikilla metorða í Hollywood, hann bæði leikur
í og framleiðir bíómyndir og hefur þar að auki haslað
sér völl í sjónvarpsgeiranum með sjónvarpsþáttaröð-
inni Entourage. Svo skemmtilega vill til að Russell
þessi átti að leikstýra 2 Guns og hafði fengið
Vince Vaughn til að leika aðalhlutverkið en
Wahlberg og Baltasar hafa nú yfirtekið
verkefnið og ætla að skila því til byggða
árið 2013. - fgg
Í SKOTLÍNU Baltasar Kormákur hefur tekið verkefninu
2 Guns sem David Russell, besti vinur Mark Wahlberg,
átti að leikstýra. Samkvæmt fjölmiðlum þar vestra
eru Russell og Wahlberg hættir að tala saman eftir að
Russell sniðgekk leikarann fyrir sína nýjustu mynd.
Kastast í kekki milli stjarna í Hollywood