Fréttablaðið - 25.10.2011, Page 6

Fréttablaðið - 25.10.2011, Page 6
25. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR6 Miðvikudagurinn 26. október kl. 12:00-13:30 Stofa 101 Lögbergi Í boði Lagadeildar Hrefna Friðriksdóttir, dósent við lagadeild HÍ. Hér verða kynntar helstu niðurstöður spurningakönnunar sem lögð var fyrir í samstarfi við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Leitast var við að kanna þekkingu fólks á réttarstöðunni í óvígðri sambúð. Fundarstjóri: Páll Sigurðsson, prófessor við lagadeild HÍ Allir velkomnir, aðgangur ókeypis Sambúð eða hjónaband - hver er munurinn? 1911-2011 FÉLAGSVÍSINDASVIÐ HÁSKÓLI ÍSLANDS Hrefna Friðriksdóttir Páll Sigurðsson LAGADEILD 1911 2011 STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun vinnur nú að úttekt á öllum bind- andi þjónustusamningum ráðu- neytanna, sem eru rúmlega 140 talsins. Búið er að kalla eftir frek- ari upplýsingum og svörum frá fimm ráðuneytum og hafa þrjú svarað: mennta- og menningar- málaráðuneyti, velferðarráðuneyti og forsætisráðuneyti. Með úttektinni er meðal annars verið að leitast við að sjá hve mikið er um að greitt sé eftir útrunnum samningum, hvernig hlutverk verkkaupa er skilgreint, hvernig ráðuneytin sinna hlutverki sínu sem verkkaupi og hvernig eftirliti þeirra með stofnunum sínum og þeim samningum sem þær gera er háttað. Í tilkynningu frá Ríkisendur- skoðun segir að stofnunin hafi oft og tíðum orðið þess áskynja að unnið hafi verið árum saman sam- kvæmt útrunnum samningum og eins hafi verið misbrestur á því að fylgt hafi verið eftir ákvæðum þeirra. Þau ráðuneyti sem hafa enn ekki svarað Ríkisendurskoðun eru iðnaðar ráðuneytið og innanríkis- ráðuneytið. - sv Ríkisendurskoðun vinnur að úttekt á þjónustusamningum ráðuneytanna: Skoðað hvort ákvæðum sé fylgt Stærstu samningar þeirra ráðuneyta sem hafa svarað Mennta- og menningarmálaráðuneyti - 63 þjónustusamningar Háskólinn í Reykjavík 2 milljarðar króna Tækniskólinn 1,6 milljarðar króna Fræðslumiðstöð atvinnulífsins 700 milljónir króna Velferðarráðuneyti - 44 þjónustusamningar Öldrunarþjónusta í Akureyrarbæ 1,4 milljarðar króna Reykjalundur 1,4 milljarðar króna Heimahjúkrun á höfuðborgarsvæði 920 milljónir króna SÁÁ 655 milljónir króna Forsætisráðuneyti - 1 þjónustusamningur Vesturfarasetrið á Hofsósi 28 milljónir króna UTANRÍKISMÁL Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, hefur ásamt átta þing- mönnum úr fjórum flokkum lagt fram tillögu um að Alþingi feli inn- anríkisráðherra að semja reglur um siglingaleiðir við norðan- og vestan- vert landið. Verkið verði unnið í samvinnu við umhverfisráðherra og utanríkisráðherra. Tillagan var tekin fyrir í umhverfis- og samgöngunefnd á dögunum. Árni Þór segir að aukn- ir flutningar á norðurslóðum, sem tengjast loftslagsbreytingum, séu hvatinn að tillög- unni. Ekki síst sé horft á opnun skipaleiða fyrir norðan Rúss- land, en þær muni hafa í för með sér aukna skipa umferð við Ísland. Settar voru reglur um sigl- ingaleiðir fyrir austan- og sunnan- vert land fyrir nokkrum árum og Árni Þór segir tillöguna nú fram- hald á þeirri vinnu. Tillagan var fyrst lögð fram í mars 2008, en fékkst ekki tekin til umræðu. „Þetta er ekki síst mikilvægt umhverfis- og öryggismál. Þetta er náttúrulega alþjóðlegt hafsvæði og ekki hægt að banna skipaumferð. En það er hægt að setja reglur og leita alþjóðlegrar viðurkenningar á þeim, eins og gert er ráð fyrir í til- lögunni.“ Árni Þór var í Síberíu í síðustu viku og hélt erindi á ráðstefnu um samstarf Íslands og Rússlands á norðurslóðum. - kóp Formaður utanríkismálanefndar var á fundi um norðurslóðir í Síberíu: Reglur settar um siglingar við Ísland ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON TÚNIS, AP Fyrstu tölur úr kosn- ingunum í Túnis á sunnudag benda til þess að flokkur íslam- ista, Ennada, hafi unnið veru- legan sigur. Flokkurinn hefur ekki boðað harðlínustefnu heldur heitir því að virða lýðræði og mannréttindi. Reiknað er með að síðdegis í dag verði endanleg úrslit kosn- inganna orðin ljós, en þetta voru fyrstu frjálsu kosningarnar í Túnis eftir að Zine el Abidine Ben Ali forseti var hrakinn frá völdum í janúar. - gb Úrslit í Túnis ljós í dag: Sigur blasir við flokki íslamista Verður Manchester City enskur meistari í vor? Já 33,4% Nei 66,6% SPURNING DAGSINS Í DAG Ert þú hlynnt(ur) því að tekinn verði upp sykurskattur til að vinna gegn offitu? Segðu þína skoðun á vísir.is. STJÓRNSÝSLA Stjórn Bankasýslu ríkisins sendi í gær bréf til Stein- gríms J. Sigfússonar fjármála- ráðherra þar sem hún óskar eftir lausn frá störfum. Í yfirlýsingu stjórnarmannanna þriggja segja þeir að utanaðkomandi afskipti af ráðningu Páls Magnússonar í for- stjórastól stofnunarinnar hafi gert þeim ókleift að starfa áfram. Mjög hefur verið deilt um ráðn- ingu Páls í stöðuna. Þannig sagði Helgi Hjörvar, formaður efna- hags- og viðskiptanefndar Alþing- is, til dæmis á Alþingi að hún væri hneyksli og vísaði meðal annars til þess að Páll hefði, sem aðstoðar- maður Valgerðar Sverris- dóttur viðskiptaráðherra, komið að einkavæðingu bankanna á sínum tíma. Stjórnarmenn- irnir þrír ítreka í yfirlýsingu sinni að ráðningin hafi verið fagleg og að allir sem að ferl- inu hafi komið hafi verið sam- mála um að Páll hafi borið af öðrum umsækj- endum. „Stjórn Bankasýsl- unnar hefur aldrei litið svo á að ákvarð- anir hennar væru hafnar yfir gagnrýni. Í áðurnefndri umræðu hefur hins vegar verið vegið að trúverðug- leika Bankasýslunnar og friður rofinn um starfsemi hennar. Viðbrögð alþingismanna benda til þess að erfitt verði fyrir stofnun ina að starfa með eðli legum hætti að þeim mikilvægu og vanda- sömu verkefnum sem henni er ætlað að sinna og framundan eru,“ segir í yfirlýsingunni. Bankasýslan heyrir undir fjár- málaráðherra. Steingrímur J. Sig- fússon kveðst harma ákvörðun- ina. „Mér þykir miður að þau skuli telja sig þurfa að gera þetta en ég geri ekki ráð fyrir öðru en að við virðum þeirra niðurstöðu.“ Næsta skref sé að skipa Bankasýslunni nýja stjórn sem geti komið til starfa sem fyrst. Steingrímur segir að einu sam- skiptin sem hann hafi átt við stjórnina vegna málsins hafi verið þegar hann óskaði eftir rökstuðn- ingi og upplýsingum um ráðn- inguna. „Síðan hafa auðvitað verið óformleg samskipti, aðallega á milli stjórnarformanns og ráðu- neytisstjóra, en það hefur eingöngu verið til að fylgjast með því hvern- ig málið þróaðist. Ég hef engin afskipti haft af því og allra síst af þessari ákvörðun þeirra,“ segir Steingrímur. Spurður hvort hann telji að menn hafi farið yfir strikið með um- mælum sínum um ráðninguna segir Steingrímur að slíkar hugleiðing- ar hafi lítið upp á sig. „Ég get auð- vitað ekki borið ábyrgð á yfirlýs- ingum annarra eða stórum orðum sem einhverjir aðrir hafa látið falla. Þvert á móti hef ég reynt að hafa alla umfjöllun um þetta yfir- vegaða af minni hálfu til að það væri hægt að vinna úr málum.“ Ekki náðist í gær í Pál Magnús- son, sem að óbreyttu tekur fljót- lega við starfi forstjóra Banka- sýslunnar. stigur@frettabladid.is Stjórnin hætt vegna afskipta þingmanna Mikil gagnrýni á ráðningu Páls Magnússonar í forstjórastól Bankasýslu ríkisins varð til þess að stjórn stofnunarinnar sagði af sér. Tiltekur sérstaklega viðbrögð alþingismanna. Fjármálaráðherra segist ekki hafa komið nálægt ákvörðuninni. HELGI HJÖRVAR STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON EKKI ALLRA Páll Magnússon er maðurinn sem öll deilan snýst um. Hann hefur hins vegar ekkert viljað tjá sig um málið til þessa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.