Fréttablaðið - 25.10.2011, Page 16

Fréttablaðið - 25.10.2011, Page 16
16 25. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is Dýraspítalinn í Garðabæ er í viðskiptum hjá okkur Hanna, Jakobína og félagar á Dýraspítalanum í Garðabæ taka á móti yfir þúsund dýrum í hverjum mánuði, stórum sem smáum. Þau eru sérfræðingar á sínu sviði og sinna fjölbreyttum þörfum viðskiptavinanna. Það gerum við líka. Þess vegna er Dýraspítalinn í Garðabæ í viðskiptum hjá okkur. F í t o n / S Í A Í grein sem Fbl. birti 7. okt. sl. lagði ég áherslu á nauðsyn þess að merkja erfðabreytt mat- væli. Ég vísaði í kanadíska rann- sókn sem enn eina vísbendingu um að erfðabreytt matvæli kunni að valda fólki heilsutjóni. Hinn 20. okt. svarar Jón Hallsson dós- ent grein minni, reynir að varpa rýrð á kanad ísku rannsóknina og umfjöllun mína um hana, og sakar mig um „hræðsluáróður“. Jafnan má deila um orðalag í túlkun rann- sókna en mig undrar að kjarni rannsóknarinnar skuli reynast háskólakennara svo léttvægur sem grein hans ber vott um. Kanadíska rannsóknin sem ég vísaði í fann Bt-eitur í blóði þung- aðra kvenna og fóstra sem þær gengu með. Þótt rannsóknin sjálf kannaði ekki uppruna eitursins var niðurstaða þeirra sem gerðu hana sú að það hlyti að hafa borist úr erfðabreyttum matvælum. Kon- urnar sem þátt tóku í rannsókninni neyttu venjulegs kanadísks matar sem að drjúgum hluta inniheldur ómerkt erfðabreytt matvæli, ekki síst úr erfðabreyttum Bt-maís. Rannsóknin er einkar mikilvæg fyrir þá sök að þetta eitur fannst í blóðinu. Líftækniiðnaðurinn hefur lengi haldið því fram að erfða- breytt matvæli og fóður ógni ekki heilsu manna og búfjár þar sem meltingar kerfi spendýra sundri öllu DNA úr slíkum afurðum. Margar rannsóknir hafa afsannað þetta: DNA úr erfðabreyttum mat og fóðri eyðist ekki við meltingu og getur borist í meltingarörverur og þaðan í blóðið. Þetta hefur verið nefnt flöt genatilfærsla (horizontal gene transfer). Hafi Bt-eitrið í blóði kanadísku kvennanna borist úr erfðabreytt- um matvælum – eins og höfundar rannsóknarinnar telja – er rann- sóknin staðfesting þess að slík flöt genatilfærsla á sér stað í þeim sem neyta erfðabreyttra matvæla. Hið sama kom fram í rannsókn New- castle-háskóla (ritrýnd 2004) þar sem DNA úr erfðabreyttu soja fannst í meltingarörverum þriggja af sjö þátttakendum sem neyttu erfðabreyttrar sojamáltíðar. Jón Hallsson telur að ekki hafi verið sýnt fram á að Bt-eitur sem fannst í blóði kanadísku kvennanna sé skaðlegt spen- dýrum. Hann mætti gjarnan kynna sér þrjár rannsóknir sem Vazquez o.fl. gerðu um aldamót- in og sýndu að náttúrulegt Bt- eitur framkallaði sterk ónæmis- viðbrögð í músum sem aftur olli auknum ónæmisviðbrögðum mús- anna við öðrum efnum. Þetta gefur vísbendingar um að neysla erfða- breyttra matvæla sem innihalda Bt-eitur kunni að valda ofnæmis- viðbrögðum og viðkvæmni gagn- vart öðrum matvælum. Á undanförnum árum hafa a.m.k. 14 ritrýndar rannsóknir sýnt fram á að mörg helstu líffæri tilraunadýra – músa, rottna, kan- ína og hamstra – urðu fyrir alvar- legu tjóni eftir að þau voru fóðruð á erfðabreyttum afurðum, í nokkr- um tilvikum Bt-maís. Áhrif á þróaðri spendýr hafa einnig verið könnuð. Rannsókn Trabalza-Marinucci o.fl. (2008) leiddi í ljós truflun á starfsemi meltingarkerfis í kindum sem fóðraðar voru á Bt-maís í þrjár kynslóðir og á starfsemi lifrar og briss í lömbum þeirra. Rann- sókn Duggan o.fl. (2003) á sauðfé sýndi fram á að erfðabreytt DNA úr Bt-maís þoldi meltingarvökva og gat þrátt fyrir meltingu gert meltingar örverur ónæmar (super- bugs) fyrir sýklalyfjum. Bt (Bacillus thuringiensis) er jarðvegsbaktería sem notuð er í landbúnaði til að eyða skordýrum. Reglur um lífræna ræktun heim- ila aðeins notkun náttúrulegra varnar efna og ef brýn nauðsyn ber til. Bt er því sjaldan notað í lífrænni ræktun en mikið í hefð- bundnum landbúnaði og stundum ítrekað á sömu plönturnar. Bt sem úðað er á plöntur leysist upp með veðri og brotnar niður við sólar- ljós sem dregur úr magni eiturs sem eftir verður á uppskerunni. Eins og opinberlega er ráðlagt má hreinsa það af grænmeti og ávöxt- um með vatni eða flysjun. Bt er hins vegar notað í erfða- breyttum plöntum með allt öðrum hætti. Maís er t.d. erfðabreytt þannig að Bt-eitrið er í plöntunni sjálfri; geni er splæst í maísplönt- una svo að eitrið er sífellt til stað- ar í allri plöntunni. Það tryggir að hvar og hvenær sem skordýr ráð- ast á plöntuna innbyrði þau eitrið og drepist. Þetta kann að gagnast bændum (þar til skordýrin mynda ónæmi fyrir eitrinu og breytast í ofurskordýr) en það er vandamál fyrir neytendur. Ef við neytum matvæla sem innihalda Bt-maís er óumflýjanlegt að við innbyrð- um Bt-eitrið. Bt-maís er ræktaður í miklum mæli í N-Ameríku til vinnslu á vinsælum matvælum, s.s. morgun- korni (kornflexi), brauði, kexi, mjöli, mexíkönskum vörum (tor- tillas, tacochips), o.fl. Olíur úr Bt-maís er að finna í aragrúa matvæla, t.d. í tómat-, chili- og grillsósum. Meirihluti unninna bandarískra matvæla, þ.m.t. fryst- ir réttir, tilbúnar pitsur o.fl., inni- halda efni úr Bt-maís. Sömu matvælin og konurnar í kanadísku rannsókninni neyttu eru flutt inn til Íslands frá Banda- ríkjunum og Kanada og er að finna í flestum íslenskum stórmörkuð- um – án merkinga sem tilgreina að þau innihaldi erfðabreytt efni. Stöðugt bætist í safn vísinda- rannsókna sem gefa vísbending- ar um heilsufarstjón sem neysla erfðabreyttra matvæla kann að valda. Stjórnvöldum þessa lands ber skylda til að vernda okkur gegn mögulegri heilsufarsáhættu með því að innleiða – án frekari tafa – reglugerð um merkingar erfðabreyttra matvæla. Erfðabreytt matvæli og kanadísku mæðurnar Hátíðin Norrænir músíkdagar var stofnsett árið 1888 og er því er ein elsta tónlistarhátíð heims á sínu sviði. Hátíðin var að þessu sinni haldin í einu nýjasta tónlistar- húsi Evrópu – Hörpunni í Reykjavík – en skipuleggjandi var Tónskálda- félag Íslands. Orðspor Hörpunnar hefur nú þegar borist víða um heim og af því tilefni lagði fjöldi erlendra gesta leið sína til Íslands til að hlýða á framsækna nútímatónlist í tónlistar húsinu nýja. Að auki kom fjöldi fulltrúa erlendra fjölmiðla til landsins til að kynna sér nýja nor- ræna tónlist „í einu besta tónlistar- húsi heims“ – eins og einn hinna erlendu gesta orðaði það. Þeir voru allir sem einn stórhrifnir af hljóm- burði og töfrum hússins og áttu stundum erfitt með að útskýra fyrir sjálfum sér hvers vegna slíkt hús væri ekki til í þeirra heimalandi, þrátt fyrir að allar forsendur væru þar fyrir hendi. Aðsókn að Norrænum músík- dögum á Íslandi náði nýjum hæðum – þúsundir gesta hlustuðu agndofa þegar fjölbreytt nútíma tónlistin hljómaði í sérhönnuðum sölum Hörpunnar í flutningi fremstu tón- listarmanna landsins. Tónlistarhúsið Harpa er án efa eitt besta heppnaða tónlistarhús heims í dag. Salirnir fjórir, hver með sinni sérstöðu, skiluðu tónlist- inni á besta veg og þannig náði hin margbreytilega samsetning nútíma- tónlistarinnar að njóta sín í smæstu atriðum – nokkuð sem aldrei hefur áður gerst á Íslandi. Á upphafstónleikum Norrænna músíkdaga 2011 lék Sinfóníuhljóm- sveit Íslands í Eldborg verk eftir norræn tónskáld af yngri kynslóð- inni. Stílbrigði tónverkanna náðu fullkomlega að njóta sín í salnum og var upplifun áheyrenda eftir því. Ljóst var að Harpan náði að njóta sín til hins ítrasta í fjölbreyttri efnis skrá hátíðarinnar. Hvert smá- atriði í hönnun hússins skilaði sér í enn meiri hljómgæðum. Tónlist sem nær að hljóma í góðum tónlistarsöl- um lifir ekki aðeins í augnablikinu heldur nær að hljóma áfram inn í framtíðina – í hugum áheyrenda. Tónlistarhúsið Harpa er hannað þannig að allar tegundir tónlistar frá öllum tímum tónlistar sögunnar eiga að geta fengið að njóta sín. Lífæð hússins eru listamennirn- ir sem þar starfa hverju sinni en ekki síður starfsfólk hússins sem á örskömmum tíma hefur náð færni í skipulagningu og framkvæmd ólíkra tónleikaforma eins og finna má á þéttskipaðri tónlistarhátíð sem þessari. Flóknar skiptingar milli tónleika voru frábærlega leystar af hendi og með ósérhlífni, kurteisi og mikilli fagmennsku stuðluðu þau að því að tónlistin náði að njóta sín með mun betri hætti en nokkru sinni hefur þekkst hér á landi. Harpa er þegar orðin einn helsti sendiherra íslenskrar tónlistar á erlendum vettvangi. Jákvætt orð- spor hússins hefur orðið til þess að nú þegar hafa borist fjölmargar fyrirspurnir erlendis frá um næstu tónlistarhátíð nútímatónlistar hér á landi, Myrka músíkdaga, sem fara mun fram þar í húsi í lok janúar á næsta ári. Það er von okkar að tónlistar- húsið Harpa verði áfram lifandi umgjörð um fjölbreytt tónlistarlíf samtímans, öllu íslensku tónlistar- fólki verði gert kleift að starfa þar að sinni listsköpun og að tónlistin fái þannig að lifa þar og hljóma – inn í framtíðina. Töfrar í tónlistarhúsi Menning Kjartan Ólafsson formaður Tónskáldafélags Íslands Erfðabreytt matvæli Sandra B. Jónsdóttir sjálfstæður ráðgjafi Salirnir fjórir, hver með sinni sérstöðu, skiluðu tónlist- inni á besta veg og þannig náði hin margbreytilega samsetning nútímatón- listarinnar að njóta sín í smæstu atriðum – nokkuð sem aldrei hefur áður gerst á Íslandi. Stöðugt bætist í safn vísindarann- sókna sem gefa vísbend- ingar um heilsufarstjón sem neysla erfðabreyttra matvæla kann að valda.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.