Fréttablaðið - 25.10.2011, Page 34
25. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR18
Móðursystir mín,
Sigríður K. Gísladóttir
Sléttuvegi 21, áður Vífilsgötu 3,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn
18. október. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
föstudaginn 28. október kl. 13.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Ólafur Gísli Jónsson.
Við viljum færa kærar þakkir öllum
þeim fjölmörgu sem hafa sýnt okkur
samúð og hlýju og stutt okkur í gegnum
þá erfiðu tíma sem fylgdu andláti og
útför okkar ástkæru
Margrétar Árnadóttur
sem andaðist 25. september sl.
Við viljum færa starfsfólki krabbameinsdeildar 11E á
Landspítalanum kærar þakkir fyrir óeigingjarnt starf
sem það vann í veikindum hennar.
Gísli Örvar Ólafsson
Steinar Freyr Gíslason Kristín Guðrún Jónsdóttir
Rúnar Bogi Gíslason
Kristín Ýr Gísladóttir
Árni V. Gíslason Guðrún Steingrímsdóttir
systkini og fjölskyldur
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar ástkæra
Herlufs Clausen
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun.
Aðstandendur
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristjana Valgerður
Jónsdóttir
Hraunvangi 3, Hafnarfirði,
áður til heimilis að Skipagötu 15,
Ísafirði,
andaðist á Landspítalanum Fossvogi fimmtudaginn
20. október síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 28. október kl. 11.00.
Sigrún Viggósdóttir Páll Gunnar Loftsson
Kristján Viggósson Erna Guðmundsdóttir
Vilberg Viggósson Ágota Joó
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku systir okkar,
Guðbjörg Kristín
Helgadóttir
frá Unaðsdal,
til heimilis að Kumbaravogi,
lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn 20. október.
Jarðarförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi
miðvikudaginn 26. október kl. 15.00.
Lilja Helgadóttir
Sigurborg Helgadóttir
Lára Helgadóttir
Sigurlína Helgadóttir
Jón Helgason
Hannibal Helgason
Matthías Helgason
Auðunn Helgason
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna fráfalls
Sveinbjarnar
Markússonar
kennara.
Anna Jónsdóttir
Bjartmar Sveinbjörnsson Halldóra Kristín
Gunnarsdóttir
Sigrún Sveinbjörnsdóttir Brynjar Ingi Skaptason
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir Davíð S. Óskarsson
Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir Sigurður Þórir Sigurðsson
Hrafn Sveinbjarnarson
Björn Ragnar Sveinbjörnsson Majken Hammer
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
Annýjar Ástráðsdóttur
Guð geymi ykkur öll.
Pálmi Friðriksson
Erla Pálmadóttir Sigurður Snævar Gunnarsson
Pálmi Pálmason Björg Jónsdóttir
Greta Marín Pálmadóttir Sigurður Sigurðsson
Auður Pálmadóttir Óskar Már Tómasson
Ómar Þorgils Pálmason Hulda Elsa Björgvinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hugheilar þakkir til allra þeirra
fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og
vináttu, styrktu okkur og studdu við
andlát okkar ástkæra eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa, bróður og mágs,
Stefáns M. Gunnarssonar
fyrrverandi bankastjóra,
Eyktarhæð 5, Garðabæ.
Þakkir til þeirra sem minntust hans á margvíslegan
hátt og sýndu honum virðingu sína og þakklæti við
útför hans frá Kópavogskirkju hinn 7. október sl.
Guð blessi ykkur öll.
Hertha W. Jónsdóttir
Jón Gunnar Stefánsson Tracey E. Stefánsson
Stefán og Ómar
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir Benjamín Gíslason
Hertha Kristín, Gísli Jón og Stefanía Agnes
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir Haraldur Ólafsson
Auðólfur Gunnarsson Unnur Ragnars
Árni Gunnarsson Guðrún Björnsdóttir
Ingvar Ekbrand
timamot@frettabladid.is
„Fólk er vant því að hlusta á lúðrasveit-
ir í vondum veðrum, en upplifunin er
allt önnur í tónleikasölum. Það heyr-
ist auðvitað alltaf hátt í lúðrablæstri,
en á sama tíma er sú áheyrn notaleg
og hljómfögur,“ segir Lárus Halldór
Grímsson, stjórnandi Lúðrasveitar
Reykjavíkur, sem í kvöld heldur tón-
leika til heiðurs tveimur af ástsælustu
tónskáldum þjóðarinnar, Oddgeiri
Kristjánssyni og Jóni Múla Árnasyni.
„Samanlagt hefðu þessir heiðurs-
menn orðið 190 ára í ár; Oddgeir 100
ára og Jón Múli 90 ára,“ upplýsir
Lárus. „Báðir voru miklir lúðrasveit-
armenn. Oddgeir stofnfélagi og stjórn-
andi Lúðrasveitar Vestmannaeyja frá
stofnun 1939 til dánardags 1966, og
Jón Múli trompetleikari í Lúðrasveit
Reykjavíkur, Lúðrasveit Verkalýðsins
og Sinfóníuhljómsveit Íslands, ásamt
því að vera stofnfélagi í Lúðrasveit
verkalýðsins,“ útskýrir hann.
Mörg af bestu lögum Oddgeirs og
Jóns Múla verða flutt í Neskirkju í
kvöld. „Lögin þekkir hvert mannsbarn.
Oddgeir samdi yfir 25 þjóðhátíðarlög
sem öll eru sígild. Þau samdi hann
ávallt fyrir Lúðrasveit Vestmannaeyja
sem frumflutti þau á Þjóðhátíð í stað
valdra söngvara eins og síðar varð. Við
spilum því eftir upprunalegum útsetn-
ingum tónskáldsins,“ segir Lárus.
Á lagalista kvöldsins eru valdar
perlur úr vinsælum söngleikjum
bræðranna Jóns Múla og Jónasar
Árnasona. „Tilefnið er sérstök ósk
Jóns Múla skömmu fyrir andlát hans.
Þá óskaði hann eftir að ákveðin lög
yrðu útsett sem marsar fyrir blásara-
sveit. Þórir Baldursson var fenginn til
verksins sem Félag tónskálda og texta-
höfunda kostaði.“
Yfir fimmtíu félagar Lúðrasveitar
Reykjavíkur munu sjá um að flytja lög
Jóns Múla og Oddgeirs í kvöld og segir
Lárus mikla tilhlökkun og stemningu
ríkja í hópnum, enda lögin afbragðs
blanda hressilegrar tónlistar og angur-
værra, fagurra dægurlaga.
Kynnar á tónleikunum verða Ragn-
heiður Gyða, dóttir Jóns Múla, og Haf-
steinn Guðfinnsson, tengdasonur Odd-
geirs. Tónleikarnir hefjast í Neskirkju
klukkan 20. Aðgangseyrir er 1.500
krónur. thordis@frettabladid.is
LÚÐRASVEIT REYKJAVÍKUR: LEIKUR Í DAG TIL HEIÐURS JÓNI MÚLA OG ODDGEIRI
Kátar, angurværar tónsmíðar
UPPFULLUR STOLTS Lárus Halldór Grímsson er stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur, sem í kvöld
flytur yndislegar lagasmíðar sem þjóðin elskar í Neskirkju. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PABLO PICASSO listmálari fæddist þennan dag (1881-1973).
„Öll börn eru listamenn. Vandinn er að halda áfram
að vera listamaður eftir að við verðum fullorðin.“
Japanska listakonan og ekkja Bítilsins
Johns Lennons tilkynnti heimsbyggðinni
að hún gengi með barn þeirra Lennons
þennan dag fyrir 43 árum. Í nóvember
sama ár missti hún fóstrið, sem var
drengur sem þau Lennon gáfu nafnið
John Ono Lennon II.
Þeim Yoko og John varð annars sonar
auðið þegar Sean Lennon fæddist á 35
ára afmæli föður síns 9. október 1975.
Eftir fæðingu Seans dró John Lennon
sig í hlé til að verða heimilisfaðir sem
annaðist barn sitt, og því starfi gegndi
hann allt þar til hann var myrtur í New
York í desember árið 1980. Þá höfðu þau
hjón ætlað á matsölustað eftir langan
vinnudag í upptökuveri, en sneru þess í
stað heim á leið þar sem John vildi eiga
stund með Sean áður en hann færi í
háttinn.
ÞETTA GERÐIST: 25. OKTÓBER 1968
Yoko ófrísk af John Ono
JOHN LENNON OG YOKO ONO ÁRIÐ 1980