Fréttablaðið - 25.10.2011, Side 42

Fréttablaðið - 25.10.2011, Side 42
25. október 2011 ÞRIÐJUDAGUR26 sport@frettabladid.is ARON EINAR GUNNARSSON segist vilja fylgja í fótspor manna eins og Eiðs Smára Guðjohnsen og Grétars Rafns Steinssonar sem hafa spilað í ensku úrvalsdeildinni. „Það er mikil virðing borin fyrir manni heima á Íslandi ef maður spilar í ensku úrvalsdeildinni. Íslendingar eru aðeins 300 þúsund talsins og ef maður spilar í stærstu deild heims þekkja mann allir,“ sagði Aron Einar við Daily Mail. FÓTBOLTI Áður en keppnistímabilið hófst í spænska fótboltanum var Levante spáð falli af flestum sér- fræðingum. Enginn átti von á því að smáliðið frá borginni Valencia næði að veita Barcelona og Real Madrid einhverja keppni. Levante er í efsta sæti spænsku deildar- innar þegar átta umferðum er lokið. Á Spáni bíða allir eftir því að Levante-„bólan“ springi en liðið hefur m.a. unnið Real Madrid 1-0 á heimaveli. Ekkert lið í spænsku deild- inni eyðir minna fé en Levante. Heildar velta liðsins er um 350 milljónir króna á ári. Til saman- burðar er veltan hjá Barcelona um 80 milljarðar og norska meistara- liðið Rosenborg er með ársveltu upp á rúmlega 420 milljónir króna. Eftir 3-0 sigur Levante um helgina gegn Villareal er smá- liðið á toppnum með 20 stig, Real Madrid er þar næst með 19 stig og spænska meistaraliðið Barcelona er í þriðja sæti með 18 stig. Levante er nú þegar búið að inn- byrða fleiri stig en eftir 21 umferð á síðustu leiktíð og allt bendir til þess að félagið nái markmiðum sínum – sem var að ná að hanga í deild þeirra bestu. Og fyrir þá sem hafa áhuga þá er næsti leik- ur Levante gegn Real Sociedad á miðvikudag. Sá leikmaður sem hefur vakið mesta athygli í Levante er fyrir- liðinn Sergio Ballesteros. Hann er alls ekki á óskalista stórklúbba í Evrópu enda er Ballesteros 36 ára gamall og að margra mati akfeitur. Baðvigtin lýgur ekki og Ballesteros er 100 kíló og með „aukahluti“ á kviðnum sem flest- ir fótboltamenn vilja vera án. Varnarmaðurinn hefur leikið um 300 leiki í efstu deild á Spáni og er þaulreyndur þrátt fyrir slæmt líkamsástand. Fyrirliðinn er eini leikmaður- inn þar sem „síðasti söludagur“ er rétt handan við hornið. Meðal- aldur liðsins í leik gegn Malaga á dögunum var rétt um 32 ár. Frá- bær varnarleikur hefur einkennt Levante það sem af er tímabilinu. Liðið hefur aðeins fengið á sig þrjú mörk í átta leikjum. Levante hefur unnið sex leiki og gert tvívegis jafntefli og er taplaust. Aðeins Barcelona og Sevilla eru í þeim hópi á Spáni þessa stundina. Árið 2008 var Levante bjarg- að frá gjaldþroti og félagið hefur aðeins efni á að kaupa ódýrustu leikmennina á markaðnum. For- ráðamenn liðsins hafa notað um 63 milljónir króna í kaup á sam- tals 50 leikmönnum á undanförn- um árum. Það gerir rétt um 1,2 milljónir króna að meðaltali. - seth Levante óvænt á toppnum á Spáni. Fyrirliðinn er 36 ára gamall og akfeitur. Ekkert lið eyðir minni peningum: Smáliðið sem skákar Barcelona og Real Madrid KOMINN AF LÉTTASTA SKEIÐI Fyrirliðinn Sergio Ballesteros er orðinn 36 og með léttan björgunarhring. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Þorsteinn Gunnars- son hefur ákveðið að láta af for- mennsku í knattspyrnudeild Grindavíkur í kjölfar þess að stjórn knattspyrnudeildar ákvað að fara í samningaviðræður við Guðjón Þórðarson. Þorsteinn var sá eini í stjórninni sem vildi ekki ræða við Guðjón og þar sem hann er ekki sáttur við stefnu deildarinnar ákvað hann að stíga til hliðar. „Ég tel Guðjón ekki vera rétt- an mann í starfið. Því finnst mér rétt að aðrir aðilar móti starfið með Guðjóni. Mér finnst að það sé heiðarlegt af minni hálfu að stíga til hliðar,“ sagði Þorsteinn, en hann telur aðra þjálfara sem voru í myndinni hafa verið hæfari en Guðjón. „Það voru Lárus Orri Sigurðs- son og David McCreery. Sá síðar- nefndi er fyrrverandi leik maður Man. Utd og sótti um starfið. Hann hefur komið víða við á ferlinum og var í tíu ár hjá Boca Juniors í Argent ínu að vinna þar. Svo var hann kominn til Mjanmar á síðasta ári. Hann var svo á leið til Malasíu að þjálfa þar.“ Jónas Þórhallsson, vara- formaður og fyrrverandi for- maður, hefur boðist til þess að taka aftur við stjórn knattspyrnu- deildar í stað Þorsteins. „Þorsteinn var sjálfum sér sam- kvæmur og þess vegna fór þetta svona. Ég er til í að taka við en er samt ekki að sækjast eftir starfinu og ef einhver annar býður sig fram þá væri það frábært,“ sagði Jónas, sem hefur lengi verið í forsvari hjá Grindvíkingum. Jónas hefur marga fjöruna sopið á sínum ferli og honum líst vel á að starfa með Guðjóni, fari svo að Guðjón verði ráðinn líkt og flest bendir til. „Það er vilji af beggja hálfu að ná samningum. Við teljum okkur þurfa stuðtæki til að lyfta okkur upp og Guðjón er það stuðtæki að okkar mati. Ég hef mikla reynslu úr sjávarútvegi og það er margt líkt með honum og boltanum. Það eru allir kappsamir – skipstjórar sem og hásetar. Við vitum alveg hvað við erum að fá með Guðjóni og það verður eflaust ekki allt- af logn,“ sagði Jónas og bætti við að það truflaði stjórnina ekkert hversu stutt Guðjón hefði staldrað við hjá félögum á þessari öld. „Það er því áskorun fyrir okkur. Við höfum haft orð á okkur fyrir að vera sterkir saman og stefnum að því að byggja sterka liðsheild með Guðjóni.“ Jónas segir að það verði eðli- lega einhverjar breytingar á leik- mannahópnum milli ára og liðið þurfi að styrkja sig. „Útlending- arnir sem voru í sumar voru farn- ir. Við þurfum að finna nýja menn og 2-3 gæðaleikmenn væru vel þegnir.“ Á þeim tíma sem Jónas hefur starfað fyrir Grindavík hefur mikið breyst. Meðal annars risið glæsileg stúka og svo knattspyrnu- hús. Jónas segir að kominn sé tími á næstu skref. „Það þarf að bæta áhorfenda- aðstöðuna. Áhorfendur eru enn að pissa utan í stúkuna og það þarf að bæta alla aðstöðu bak við stúk- una. Við munum leggjast á bæjar- yfirvöld að þau hjálpi okkur við að bæta þessa aðstöðu. Það er búið að teikna upp þessa aðstöðu og ég mun berjast fyrir henni. Ég vil að það verði almennilega búið að áhorfendum og það sé almennileg aðstaða fyrir fjölskyldufólk.“ henry@frettabladid.is Ekki réttur maður fyrir Grindavík Þorsteinn Gunnarsson sagði af sér formennsku hjá knattspyrnudeild Grindavíkur þar sem félagið ætlar að ráða Guðjón Þórðarson. Þorsteinn vildi frekar fá Lárus Orra Sigurðsson eða David McCreery. Jónas Þór- hallsson tekur líklega aftur við formennsku. Hann á ekki von á að það verði alltaf logn í kringum Guðjón. UMDEILDUR Grindavík ætlar að reyna að semja við Guðjón Þórðarson, sem kemur heim frá Flórída um mánaðamótin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ferill Guðjóns síðan hann hætti með landsliðið Það hefur ýmislegt gengið á hjá Guðjóni síðan hann hætti með íslenska lands- liðið á sínum tíma. Athygli vekur hversu illa honum gengur að tolla í starfi. 1999-2002: Guðjón tekur við Stoke City. Hann náði góðum árangri með liðið, kom því B-deildina. Guðjón státar af einna bestum árangri allra stjóra í sögu Stoke með 1,7 stig að meðaltali í leik. Þrátt fyrir það ákvað Stoke City að reka Guðjón. 2002: Guðjón stýrði norska liðinu Start í nokkrum leikjum. Hann átti að reyna að bjarga liðinu frá falli en það tókst ekki. 2003-2004: Enska liðið Barnsley ræður Guðjón til starfa. Hann er rekinn frá félaginu eftir að Peter Ridsdale nær völdum hjá því. 2004-2005: Guðjón velur að semja við Keflavík frekar en Grindavík. Guðjón yfirgefur félagið þrem dögum fyrir fyrsta leik í Íslandsmóti til þess að taka við Notts County. 2005-2006: Guðjón stýrir elsta liði heims, Notts County. Hann fékk flugstart með liðið og kom því á toppinn. Liðið missti síðan algjörlega flugið og endaði í 21. sæti D-deildar- innar, sem var lélegasti árangurinn í langri sögu félagsins. Guðjón hætti með liðið. 2006-2008: Guðjón tekur við uppeldisfélagi sínu, ÍA. Nær þriðja sæti á fyrra árinu með liðið. Allt fer á versta veg sumarið 2008 og Guðjón er rekinn frá félaginu, sem síðar fellur úr efstu deild. 2008-2009: Ráðinn stjóri hjá Crewe Alexandra í desember. Byrjaði vel og var valinn stjóri mánaðarins í febrúar. Síðan fór að halla undan fæti og liðið féll. Guðjón hélt áfram að þjálfa liðið en var rekinn í október þar sem hvorki gekk né rak hjá liðinu. 2010-2011: Guðjón er ráðinn stjóri BÍ/Bolungarvíkur. Undir stjórn Guðjóns náði liðið 6. sæti í B-deildinni. Guðjón var síðan rekinn eftir tímabilið. FÓTBOLTI Þorsteinn Gunnarsson, fráfarandi formaður knatt- spyrnudeildar Grindavíkur, á von á því að Ólafur Örn Bjarnason verði áfram í herbúðum Grinda- víkur sem leikmaður. Ólafur Örn hætti sem þjálfari liðsins eftir tímabilið en hann hefur bæði stýrt liðinu og leikið með því síðan hann sneri aftur heim úr atvinnumennsku í Noregi sumarið 2010. Hann hefur sjálfur sagt að hann ætli að skoða sín mál og bíða þess að sjá hver verði næsti þjálfari liðsins áður en hann ákveði framtíð sína sem leik- maður. „Ólafur Örn er með leikmanna- samning við Grindavík til 2013 og því verður hann áfram hjá okkur. Hann er ekki á leiðinni neitt,“ sagði Þorsteinn en Ólafur Örn hefur áður sagt að hann telji sig lausan allra mála þar sem þjálfarasamningi hans hafi verið sagt upp. Þorsteinn sagði enn fremur að uppsögn hans sem þjálfari hefði engin áhrif á leikmannasamn- inginn. Ólafur lék alla 25 leiki Grinda- víkur í deild og bikar nú í sumar og skoraði í þeim eitt mark, fyrra markið í 2-0 sigri liðsins á ÍBV í lokaumferðinni en með sigrinum bjargaði Grindavík sér frá falli á ævintýralegan máta. - esá Samningamál Ólafs Arnar: Ólafur Örn fer ekki neitt ÓLAFUR ÖRN Telur sig vera lausan allra mála en Grindvíkingar segja hann samnings bundinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Lengjubikar karla Skallagrímur-KR 82-97 Skallagrímur: Dominique Holmes 24/6 fráköst, Lloyd Harrison 17, Birgir Sverrisson 12, Sigurður Þórarinsson 9, Hörður Hreiðars. 8, Davíð Guð- munds. 8, Hilmar Guðjóns. 2, Davíð Ásgeirs. 2. KR: Finnur Atli Magnusson 27, Jón Orri Kristjáns- son 16/11 fráköst, Kristófer Acox 14, David Tairu 11, Skarphéðinn Ingason 11, Martin Hermanns- son 5, Emil Þór Jóhannsson 5, Edward Lee Horton Jr. 4, Páll Helgason 2, Björn Kristjánsson 2 Þór Þ.-ÍR 90-76 Þór Þorlákshöfn: Darrin Govens 19, Darri Hilmarsson 17, Grétar Ingi Erlendsson 14, Michael Ringgold 10/11 fráköst, Guðmundur Jónsson 9, Baldur Ragnarsson 7, Marko Latinovic 6, Emil Einarsson 5, Þorsteinn Ragnarsson 3. ÍR: Hjalti Friðriksson 22, Nemanja Sovic 17, Eiríkur Önundarson 11, Kristinn Jónasson 9, Níels Dungal 7, Ellert Arnarson 6, Williard Johnson 4. Fjölnir-Haukar 74-75 Fjölnir: Calvin O’Neal 18, Árni Ragnarsson 14, Nathan Walkup 13, Ægir Þór Steinarsson 13/9 stoðs., Jón Sverrisson 8, Arnþór Guðmundsson 6. Haukar: Jovanni Shuler 20, Örn Sigurðarson 13, Davíð Hermannsson 10 Haukur Óskarsson 9, Sævar Ingi Haraldsson 8, Emil Barja 8/10 fráköst, Helgi Björn Einarsson 7. Valur-Njarðvík 85-96 Valur: Darnell Hugee 15, Þorri Arnarson 14, Birgir Björn Pétursson 14, Igor Tratnik 12/13 fráköst, Alexander Dungal 11, Curry Collins 10, Austin Magnus Bracey 6, Elvar Steinn Traustason 2. Njarðvík: Cameron Echols 30/12 fráköst, Travis Holmes 25, Rúnar Ingi Erlingsson 11, Maciej Stanislav Baginski 10, Ólafur Helgi Jónsson 9, Elvar Már Friðriksson 7, Hjörtur Hrafn Einarsson 4. ÚRSLIT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.