Fréttablaðið - 19.11.2011, Síða 42
19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR42
Konan við 1000°
eftir Hallgrím Helgason
Jafn mörgum álitsgjöfum
þykir bókarkápa Hallgríms
Helgasonar vel heppnuð og illa
heppnuð, sem gerir hana að
þeirri umdeildustu í ár.
„Mér finnst þetta töff ljósmynd
og stílisering á konunni. Mig
langar að vita meira um þennan
töffara.“
Anna Svava Knútsdóttir
„Er þetta mynd af aldraðri
konu? Ég hélt að þetta væri
mynd af Andy Warhol eða útlif-
uðum poppara. Þessa bók les
maður ÞRÁTT FYRIR kápuna.“
- Soffía Auður Birgisdóttir
„Á bakvið þessi sólgleraugu eru
sögur sem ég vil heyra. Þetta
finnst mér vel gert.“
- Halldór Högurður
„Einhver kynni kannski að telja að
Andy Warhol hafi verið ofsoðin
kona en ég veit ekki hvort það
álit kemst nógu vel til skila á
þessari kápu.“
- Brynhildur Björnsdóttir
1. SÆTI
Í nýjum heimi
eftir Jóhönnu Kristínu
Atladóttur
„Ætti að vera forvarnarplakat
gegn hugbúnaðarþjófnaði:
„Þetta getur gerst ef þú sækir
ólöglega útgáfu af Photo-
shop“.“
- Ólafur Sindri Ólafsson
„Kitch. Og það í fullri alvöru!“
- Viðar Eggertsson
„Ósmekkleg framsetning þar
sem hönnuður virðist hafa
ætlað sér að segja söguna
alla á kápunni með hjálp ný-
uppgötvaðs Photoshop.“
- Sunna Valgerðardóttir
2. SÆTI
Samhengi hlutanna
eftir Sigrúnu Davíðsdóttur
„Fyrst þegar mér varð litið
á þessa bók hélt ég að hún
■ BESTU BÓKARKÁPURNAR
■ VERSTU BÓKARKÁPURNAR
■ UMDEILDASTA BÓKARKÁPAN
1. SÆTI
Meistaraverkið og fleiri sögur
eftir Ólaf Gunnarsson
„Þessi kápa stendur undir nafni.
Frábær hugmynd og vel gerð.“
- Örn Úlfar Sævarsson
„Ótrúlega snjöll og falleg kápa. Ég
þrái að snúa bókinni við og sjá
málverkið hinum megin. Og lesa
bókina í leiðinni.“
- Stígur Helgason
„Flott hugmynd og fagmannlega
útfærð. Ég myndi líklega ekki
nenna að lesa bókina, en ég
myndi pottþétt taka hana upp og
skoða hana.“
- Ólafur Sindri Ólafsson
„Flott hugmynd. Við fáum ekki
að sjá myndina af „meistarverk-
inu“, heldur er boðið upp á að
gruna … Leturgerðir í fullkomnu
samræmi við myndina og hug-
myndina.“
- Viðar Eggertsson
„Sjaldséð hlið á fletinum. Hress-
andi, jafnvel þó að eilítið vanti
upp á leturmeðferð í sögulista.“
- Arnór Bogason
2. SÆTI
Jarðnæði
eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur
„Einstaklega falleg bók bæði fyrir
augu og hendur.“
- Brynhildur Björnsdóttir
„Afar vönduð kápa með vönd-
uðum teikningum sem eru ekki
aðalatriði en ná samt að fylla
forsíðuna.“
- Arnór Bogason
„Heillandi og örlítið dularfull
framsetning þar sem titill og kápa
spila vel saman!“
- Sunna Valgerðardóttir
„Falleg kápa, gaman að rýna í
mynstrið.“
- Soffía Auður Birgisdóttir
3. SÆTI
Myrknætti
eftir Ragnar Jónasson
„Retró-bragur yfir þessari sem
ég fíla.“
- Anna Svava Knútsdóttir
„Vel heppnuð eftirlíking af klass-
ískum kvikmyndaplakötum.
Fíletta.“
- Ólafur Sindri Ólafsson
„Þessi nær mér, skemmtilegt
retró-bíópóster sem kveikir í mér
forvitnina. Þessu hefði verið hægt
að klúðra en þarna finnst mér
hafa tekist vel til. Þetta er kápa
sem selur.“
- Halldór Högurður
4. SÆTI
Glæsir
eftir Ármann Jakobsson
„Eins og mynd á grísku leirkeri
af Mínótárusi, afar vel heppnuð
tenging. Mynd sem kallar á augað
þar sem hún er innan um aðrar.“
- Brynhildur Björnsdóttir
„Klassískur blær yfir hönnuninni,
gott samræmi í myndinni og
hæfir vel innihaldinu. Glæsi-leg
kápa.“
- Soffía Auður Birgisdóttir
„Sterk mynd af aðalpersónunni
í magnaðri teikningu, aðeins
í tveim litum sem gerir hana
bæði dulúðuga og áhrifaríka.“
- Viðar Eggertsson
5. SÆTI
Götumálarinn
eftir Þórarin Leifsson
„Grófkornótt bláleit kápa af götu-
málararanum við iðju sína og svo
er titillinn þrykktur á, skínandi
gull. Sex stuttar línur á forsíðu um
flakkþörfina sem kveikir í manni
löngun til að lesa. Pirrar mig hve
stórt letrið á baksíðunni er, en
framhliðin er alveg skotheld.“
- Halldór Högurður
„Þessi bjagaði Bogart dregur
mann til sín, litir jafnsmekklegir
og letrið, og textinn sem fylgir er
spennandi.“
- Stígur Helgason
Meistaraverkið besta bókarkápan
Endalaust má velta fyrir sér kostum og göllum umbúða af ýmsu tagi og eru bækur engin undantekning. Jólabókaflóðið var hvati
þess að Fréttablaðið leitaði álits valinkunns andans fólks á bestu og verstu bókakápum ársins, án tillits til gæða innihaldsins.
Anna Svava Knútsdóttir leikkona
Arnór Bogason, grafískur hönnuður
Brynhildur Björnsdóttir dagskrárgerðarmaður
Dröfn Ösp Snorradóttir pistlahöfundur
Gréta V. Guðmundsdóttir, grafískur hönnuður
Halldór Högurður
Ólafur Sindri Ólafsson þýðandi
Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur
Stígur Helgason, blaðamaður á Fréttablaðinu
Sunna Valgerðardóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu
Viðar Eggertsson leikhússtjóri
Örn Úlfar Sævarsson íslenskufræðingur
ÁLITSGJAFAR FRÉTTABLAÐSINS
héti Sigrún. Það er þekkt
bragð að hafa nafn frægs
höfundar stærra en titilinn
á bókarkápu, en öllu má nú
ofgera. Sérstaklega þegar
höfundurinn er ekki stærra
nafn en þetta. Gerir ekki
annað en að magna þá
tilfinningu að Sigrún sé að
skrifa hetjusögu um sjálfa
sig.“
- Stígur Helgason
„Dæmi um það þegar reynt
er að láta slæma ljósmynd
bera uppi bókakápu. Kloss-
aðri leturgerð lyft upp úr
grunninum með ljósum
„skugga“ sem gerir kápuna
enn moðslegri. Kápan
getur ekki endurspeglað,
að mínu mati, annars
skeleggan og spennandi
höfund.“
- Gréta V. Guðmundsdóttir
3. SÆTI
Einvígið
eftir Arnald Indriðason
„Vonbrigði! Mér finnst kápan ekki
hæfa metsölu-sagnameistara.
Myndefni kápunnar finnst mér
klisjukennt og ofnotað. Til dæmis er
nýútkomin bók, Dögun eftir Steph-
anie Meyer, sem er ótrúlega lík.“
- Gréta V. Guðmundsdóttir
„Sorglega groddaleg og ljót,
sérstaklega vegna þess að efnið
býður upp á svo skemmtilegar
hugmyndir og úrvinnslu.“
- Örn Úlfar Sævarsson
4. SÆTI
Feigð
eftir Stefán Mána
„Hallærisleg kápa sem minnir í
senn á endurútgefinn Stephen
King og myndskreytingu í
barnabók frá 9. áratugnum.“
- Sunna Valgerðardóttir
„Þetta er eins og eitthvað sem
unglingur mundi senda inn í
myndasögusamkeppni hjá Nexus.“
- Stígur Helgason
5. SÆTI
Ég drepst þar sem mér sýnist
eftir Gísla Rúnar Jónsson
„Gísli Rúnar Jónsson sem færði
Íslendingum Kexvexmiðjuna nú í
haust hefur stigið fram á ritvöllinn.
Af kápunni að dæma er svellhált á
þeim velli.“
- Arnór Bogason
„Einkennileg teikning af Gísla
Rúnari að skemmta fyrir tómu
húsi. Veikt og ljótt letur. Ég mundi
ekki láta sjá mig með þessa bók í
mannlausu húsi.“
- Örn Úlfar Sævarsson