Fréttablaðið - 19.11.2011, Page 86
19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR50
Skátahreyfingin hefur um árabil selt sígræn
eðaltré í hæsta gæðaflokki og prýða þau
þúsundir heimila og fyrirtækja.
Sígrænu jólatrén eru seld í Skátamiðstöðinni Hraunbæ 123
í Reykjavík, s: 550 9800 og á skátavefnum: www.skatar.is
Frábærir eiginleikar:
-eðaltré ár eftir ár!Sígræna jólatréð
10 ára ábyrgð
12 stærðir (90-500 cm)
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Veldur ekki ofnæmi
Eldtraust
Þarf ekki að vökva
Íslenskar leiðbeiningar
Við gróðursetjum lifandi tré í
skógrækt skáta að Úlfljótsvatni fyrir
hvert Sígrænt jólatré sem keypt er.
Þú prýðir híbýli þín með Sígrænu
jólatré og stuðlar að skógrækt
um leið!
M
innið er hús. Stundum
er það fullt af dúfum,
þær fljúga út og inn eins
og í dúfnahúsinu sem
var í Laugardal. Þannig
eru hugsanirnar, maður
ræður ekki við þær. Þarna eru kristalsstofur
þar sem boli gengur laus, hurðir með brotn-
um glerjum því að þeim var skellt of fast,
læstar hirslur, ófrágengið dót … maður reyn-
ir að taka til og þrífa húsið svo manni líði vel.
Þess vegna er svona minnis-bók eins konar
þerapía …
Mér finnst ég hafa átt mörg skemmtileg
líf og tel mig lánsaman mann. Þakka Birnu
Rún konu minni hvað ég náði góðri lendingu
í lífinu.
Stundum hvarflar að mér að mér fylgi ein-
hver undir-, yfir- eða hliðarvitund sem segir
mér til vegar. Stundum tekur hún stjórnina
án þess ég viti af því. Þegar ég stekk á hluti
og einhendi mér í þá er þessi ósjálfráða hvat-
vísi eða ratvísi oftlega að verki[…]
Pían flotta og píanistinn
Bakraddasöngkonan Sharon Robinson bjó
ásamt unnusta sínum í gömlu glæsihýsi í
Hollywood-hæðunum, sannkölluðu hippa-
bæli. Húsið hafði séð tímana tvenna. Laur-
ence Olivier byggði það yfir tengdamóður
sína, Gertrude Yackjee, móður hinnar ómót-
stæðilegu Vivien Leigh sem lék á móti Clark
Gable í Gone With the Wind. En hús eldast og
sjúskast eins og fólk og nú var hún Snorrabúð
pöddubæli. Samt hafði húsið enn sinn gamla
Hollywood-sjarma og stóð á besta stað, við
Beechwood Drive, Beykitröð. Gullmaurar
skriðu yfir okkur Önnu á gólfsænginni sem
við kúrðum á fyrstu næturnar okkur. Afkom-
endur mauranna sem forðum skriðu í garð-
inum á tám stjarnanna.
Þetta er rétt neðan við Hollywood-stafina
frægu á hæðinni ofan við stórborgina flötu. Í
fyrndinni var svæðið vaxið skógi er kenndur
var við runnann kristþyrni (holly) eða jólavið.
Enda stanslaus jól að vera þar staddur. Anna
skildi nú hvers vegna Hvítárbakkatríóið ílent-
ist hér í LA einu og hálfu ári áður. Það er
dásamlegt fyrir hrakinn Íslending að vakna
hvern morgun í Paradís. Ég gat leitt Önnu
um svæðið heimavanur, því að tríóið hafði
verið með æfingapláss hérna uppi í hæðun-
um. Okkur hafði þá verið boðið í partý í eitt
af nærliggjandi húsum, til reykjandi hippa og
háskólamanna sem voru að hlusta á eina af
möst plötum þessara tíma, „Kölnarkonsert“
(1975) Keiths Jarrett. Við Anna erum bæði
uppnumin, hún yfir því að vera hér fyrsta
sinni og ég að hafa náð að koma hingað aftur.
Skítt með íslenskan veruleika, enskudeild
og stjórnmálafræði, við höfðum þegar snúið
baki við honum og stigið inn í drauminn. Við
horfðum nú yfir Hollywood, sjálfa drauma-
maskínu mannkyns. Vorum eins uppnumin
og fuglaskoðari við Nakuru-vatn rauðu flam-
ingóanna í Kenía.
Ginnkeypt fyrir glamúr og afþreyingu. Af
hverju ekki?
Út úr kú í hnausþykkum jakkafötum
Við vorum Sharon þakklát fyrir húsaskjólið.
Maður hennar, Tony Cahill, var bassaleikari
og einfari sem dundaði við að semja lög og
spekúlera, ágætismaður en hafði látið á sjá
í átökum við djöful heróíns. Hann var Ástr-
ali, langt að kominn, spilaði heimsslagarann
„Friday on My Mind“ með áströlsku sveitinni
The Easybeats 1966 og mátti því muna fífil
sinn fegurri. Sharon samdi líka lög og söng
bakraddir hér og þar. Hún var góð, samdi lög
fyrir heimsfræga listamenn, það var gaman
að fylgjast með henni þar sem hún sat við
píanóið inni í stofu. Hún spilaði línurnar
aftur og aftur, pússaði smíðina og slípaði til,
komst smám saman nær hinum rétta kjarna
– og skömmu síðar heyrði maður Diönu Ross
syngja lagið.
Sharon hafði fallega rödd og átti eftir að
túra með Leonard Cohen. Þau sömdu lög
saman eins og „Everybody Knows“ og gerðu
seinna heila plötu með lögum hennar og text-
um hans. Um hríð voru þau elskendur. Þar
með var Tony greyið Cahill bara kvaddur
Við Anna skundum kát af stað í atvinnuleit.
Hnausþykku jakkafötin mín eru hugsuð fyrir
norðlægar breiddargráður, Kanada í mars,
næsta bæ við Alaska. Þau eru flott og klæði-
leg en alveg út úr kú hér í hásumar hitanum.
Eins og ég hafi fallið niður af kvikmynda-
tjaldi vetrarríkisins, úr setti, segir maður
hér. Anna tiplar við hlið mér í blá rósóttum
antikkjól sem klæðir hana svo vel. Við erum
auralaus og bíllaus í þessari miklu bíla-
borg. Engar almenningssamgöngur eru hér
né strætóleiðir, í borg draumanna eru allir
ríkir. Vinnudýrin og húshjálpin líka. Allir eru
á hjólum nema við.
Fyrst er að finna banka og senda fyrirmæli
um að fá féð sem við eigum á enskum reikn-
ingum sent til okkar. Síðan er farið til veð-
lánara að veðsetja það eigulegasta, myndavél
og armbandsúr. Við svífum léttfættari þaðan,
lifandi ekki á loftinu einu saman. Leigubíla
blæðum við ekki í, ekki að ræða það. Bara
þrömmum með það sem við „erum“ undir
hendinni, fyrir eyru og augu. Ég með Horft í
roðann og Anna með möppuna sína. Á þessum
sama og fyrsta degi römbum við inn gullna
hliðið bæði tvö, hún hjá næstu umboðsstofu,
Nina Blanchard Modeling Agency og ég hjá
hljómplötufyrirtækinu Chrysalis Records […]
Uppismi og hippadómur
Ég þurfti að gera kynningarpakka sem
tryggði mér góðan samning, blankur og
venslalaus. Fyrsta mikilvæga sambandið sem
ég náði var við Paul Brown sem Alan Murphy
þekkti og hvatti mig til að hafa samband við.
Svo að ég bara hringdi:
Hæ, Jakob Magnússon heiti ég, Alan
Murphy gaf mér númerið, Alan, sem þú túr-
aðir með á síðasta Kanadatúr með Long John
Baldry ... ég var að ljúka túr með þeim þar ...
Þannig finnur maður bróður.
Paul Brown var á þessum tíma trommu-
leikari í sveitinni Clean. Nafnið reyndist
viðeigandi því Paul Brown og félagar voru
squeeky clean, tandurhreinir, ómengað-
ir, kornungir og frísklegir piltar af góðum
Hollywood-ættum. Flinkir hljóðfæraleikarar.
Ekkert sukk eða rugl á þeim og þeir voru eins
ólíkir kollegum sínum í Bretlandi og hugs-
ast gat. Þetta hafði Hollywood fram yfir Eng-
land á þessum tíma, sukkið þótti þar ekki par
fínt enda margir farið yfir strikið gegnum
tíðina. Í Englandi var á þessum tíma enn í
gangi nítjándu aldar rómantík hins útsukkaða
listamanns, í anda Rimbauds, Dylans Thomas
og þeirra allra.
Kalifornía hefur verið í fararbroddi
heilsuferðalags mannkyns síðustu hálfa öld-
ina, haft forystu um að stöðva reykingar og
annan ósóma. Bindindishreyfingin hin nýja
hefur risið hæst þar og smitast um heim,
með útskotum yfir í heilsuát í nýaldarstíl og
heilbrigðan lifnað með mismiklum slettum
af trúarhugmyndum ólíkra heimshluta. Þar
mætast uppismi og hippadómur, upparnir
meira í tækjunum en hippar í jóga.
Kærleikur í Kaliforníu
Paul Brown tekur mér höndum tveim,
nýlentum í LA, súkkulaðisætur, hávaxinn
og myndar legur. Hann býður okkur Önnu
strax heim í hús foreldra sinna þar sem hann
býr. Bill og Sue Brown búa í höll í Tarzana,
við hliðina á Encino-hverfinu í San Fern-
ando-dalnum, þar sem höfundur Tarsans,
Edgar Rice Burroughs, átti búgarð forð-
um. Þau hjónin eru söngvarar eins og dótt-
ir þeirra Cathy. Bill hafði verið fremstur í
flokki radd útsetjara í Hollywood, hafði unnið
mikið fyrir hina þekktu djasssöngsveit Hi-
Lo´s sem Beach Boys höfðu sem fyrirmynd
í sínum fjölradda söng. Öll fjölskyldan var
stúdíósöngvarar af Guðs náð og átti eftir að
radda fyrir mig í laginu „Passion Fruit“ á
Jack Magnet-plötunni minni.
Paul Brown reyndist mér alveg frábær-
lega. Í gegnum þennan væna pilt komst ég
í heilmikil sambönd. Paul varð vinur minn,
velunnari og hjálparhella, opnaði mér allar
gáttir sem hann þekkti og sá í sjónmáli.
Brown-fjölskyldan átti æfingaaðstöðu í húsi
sínu og þar hjálpaði Paul mér að gera fyrstu
prufutökurnar. Við Anna vorum svo innilega
velkomin á þessu heimili, öll fjölskyldan tók
okkur ákaflega vel. Anna átti ekki lítinn þátt
í því. Hún var heillastjarnan mín. Töfradís
sem heillaði alla upp úr skónum. Fegurðin er
alls staðar velkomin, kallar fram samræmi
og vellíðan, en Anna var svo miklu meira en
falleg því að gleðin sem geislaði af henni var
smitandi, frá henni streymdi ást og fegurð.
Allir opnuðu hjartað við þá blessun að sjá feg-
urð hennar og þá streymdi meiri kærleikur
úr henni uns hann fyllti rýmið eins og reyk-
elsi og ljós. Allar dyr ruku upp.
Þetta er lífið, sólríka Kalifornía.
Millifyrirsagnir eru blaðsins.
Blankur og venslalaus í Hollywood
Jakob Frímann Magnússon, skemmtikraftur og djassari, stjórnmálamaður, diplómat, athafnaskáld og embættismaður: Hann
á sér mörg andlit og mörg gervi og kringum hann er alltaf líf og fjör. Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir hefur skráð ævi Jakobs og
Fréttablaðið grípur hér niður í frásögn af ævintýrum Jakobs í Kaliforníu á áttunda áratugnum.
Í bókinni Með sumt
á hreinu rekur Jakob
Frímann Magnússon
ævi sína. „Það vantar
ekki góðar sögur. Ljúfar
stundir hjá afa og ömmu
á Akureyri kvikna og upp-
vöxturinn hjá „músíkölsku
pari“ í Hlíðunum meðan
allt lék í lyndi, mennta-
skólaárin í MH þar sem til
varð skrýtin skólahljóm-
sveit – Stuðmenn – sól-
skinsstundir í LA, sveiflan
í London,“ eins og segir á
baksíðu bókarinnar sem
Þórunn Erlu-Valdimars-
dóttir skráir og JPV-útgáfa
gefur út.
MEÐ SUMT Á HREINU
JAKOB FRÍMANN Jakob hafði að lokum betur eftir áralangt hárstríð við móður sína eins og sjá má á myndinni til vinstri. Á hinni má sjá Stuðmenn á níunda áratugnum.