Fréttablaðið - 19.11.2011, Side 90
19. nóvember 2011 LAUGARDAGUR54
Nú er tími til að gefa
...og líka þiggja.
Skráðu þig á americanexpress.is og fáðu tvöfalda
Vildarpunkta Icelandair af allri veltu til 15. desember!
Jólabónus Icelandair
American Express®
Krossgáta
Lárétt
1. Góður gæi sýnir ónóga viðreynslu (8)
4. Leiftursókn í sælgæti (6)
10. Mistök gestgjafa gengu fram af þeim sem urðu frá að
hverfa (6)
12. Finn unaðinn í kjölfar upplýsingar um sindrandi
dásemdina (12)
14. Flakk milli Lesotho, Namibíu og S-Afríku
kostar þetta (4)
15. Skyrtuhlutinn sem kom upp um aumingjana var
merktur bensínstöð (7)
16. Veggjakrot víkinga (10)
17. Vímulaus Valhöll? Það dytti Óðni aldrei í hug, en
kannski Heimdalli (7)
19. Röktu garnirnar aftur úr Nirði (5)
21. Ruglaðir ræflarnir þykjast gjarnan heilagir en eru bara
huglausir (10)
23. Ágæt hreyfing gerir mér gott (6)
25. Gengi kemur til aðstoðar (9)
27. Færeyingi líst vel á íslenskan barlóm (3)
28. Annie og Aretha sungu það þótt óskyldar séu (9)
29. Flýtir sér austur (8)
30. Hvíldist hvorki í röngu rúmi né skökku (7)
32. Skjólflík í blíðu er náttúrulega margra
meina bót (9)
33. Stúlkan og ranglætið leikin á
svarthvítum nótum (10)
34. Gengur hratt á línuna þrátt fyrir fjölmennið (9)
35. Egni línu í táldembu (9)
36. Aum og ær sýnir miskunn (7)
Lóðrétt
2. Kraftaklækir segja til um veiði (9)
3. Flýja mjólkurafurð (10)
5. Hrynur einfaldlega þegar þær
ríða yfir (6)
6. Finnum þá sem drápu örn,
þeir eru að austan (7)
7. Hveitilengjur fyrir krakkakvikindi (9)
8. Ekkert púður í þessu lengur, hann
skemmir það (13)
9. Læknar og auðgast (6)
11. Vil þú komir skikki á þessa hlið, venjur
mæla svo fyrir (9)
13. Ericsson og félagar samkjafta ekki á
þessum slóðum (9)
18. Hefurðu kippst við á biðstöð? (7)
20. Féflettu strípað og ferkantað möppu-
dýr? (11)
21. Baugsdrengur hefur mannsaugu þótt
lítill sé (10)
22. Sterkar taugar liggja milli polla
og báta (10)
23. „Fuglafætur“ segir hann, næstum
orðrétt (10)
24. Ókostur við orkuna eða öflug skjólflík?
Framburður ræður því (10)
26. Þar nyrðra finna skip í skoru skjól (10)
27. Blaut enda á Ramsar-svæði (8)
31. Míg í dal til að pissa örugglega ekki
útfyrir (6)
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8.
9. 10. 11.
12. 13.
14.
15.
16.
.17
18.
19. 20. 21. 22.
23. 24. 25. 26. 27.
28. 29.
30. 31.
32.
33. 34.
35. 36.
B Ú Ð A H R A U N
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist öflugt
atvinnutæki. Sendið lausnarorðið fyrir 23. nóvember næstkomandi á
krossgata@frettabladid.is merkt „19. nóvember“.
Lausnarorð síðustu viku var
Búðahraun.
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum
og fær vinningshafi
gjafakörfu frá Te og
kaffi að verðmæti 5.000
kr.. Vinningshafi síðustu
viku var Davíð Hjálmar
Haraldsson, Akureyri.
M Á L B A N D S P Í K U S K R Æ K I R
A E A P E U L Á I O
R S S P O R N A R A L P A R Ó S
B Ú T A N A T S L P A K A
E R V T I A P Ð J B
N A Æ A L Ó Ð A L E I G U N A
D Ú R I N N K L A E R S U
L H G L O R Í U R I S T I G
A E A R N K S A U
R Æ S I N G I N S P A R I S J Ó Ð U R
T D A U Ó U
M U Æ R L E G U M S T Ó R Y R Ð I
O R F N E L O N
R H A F G Ú A Y F K S N
Ð B R R E F I L S T I G A V
Ó Ð A M Á L A Ö Æ O J L O
Ð U N G Ð K Ó N Ý T I R
U K M A N N V I R K I N A T
R A D N U I R I
H R A F N A Þ I N G R Á Ð A L A U S
Á þessum degi fyrir réttum 148 árum, hinn 19. nóvember árið 1863, flutti Abraham Lincoln eina eftirminnilegustu ræðu í sögu
Bandaríkjanna. Tilefnið var vígsla grafreits þar sem 7.500 hermenn
Norðurríkja hersins, sem höfðu fallið í orrustunni við Gettysburg í
Penn sylvaníuríki, voru jarðsettir.
Borgarastyrjöldin, oft kölluð þrælastríðið, hafði þá staðið í rúm tvö
ár eftir að Suðurríkin höfðu sagt sig úr lögum við stjórnvöld Washing-
ton. Helstu deilumál snerust um sjálfsákvörðunarrétt einstakra ríkja,
aðallega afnám þrælahalds, en Suðurríkin voru afar andsnúin þeim
hugmyndum.
Orrustan við Gettysburg var hin mannskæðasta í allri borgara-
styrjöldinni, enda féllu þar eða særðust 45.000 manns. Hún markaði
ákveðin tímamót þar sem sigur norðanmanna sneri gangi stríðsins
algerlega við.
Suðurríkin, undir stjórn Roberts E. Lee hershöfðingja, hörfuðu eftir
tapið og var þetta síðasta herför þeirra inn í Norðurríkin. Næsta árið
sóttu norðanmenn langt suður á bóginn og lögðu hvert uppreisnarríkið
á fætur öðru. Svo var stefnan tekin norður á ný og stjórn Suður-
ríkjanna varð innikróuð í Virginíuríki áður en samið var um uppgjöf í
júní 1865.
Ræða Lincolns, sem gengur undir nafninu Gettysburg-ávarpið,
var knallstutt þar sem forsetinn talaði aðeins í tvær mínútur. Á þeim
stutta tíma og þeim 272 orðum sem ræðan er náði Lincoln að setja
stríðið og fórnir hermannanna sem báru beinin við Gettysburg í sam-
hengi við grundvallarhugsjónir Bandaríkjanna; frelsi, jafnrétti og lýð-
ræði.
Mikilvægt væri að halda fórn hinna látnu á lofti og klára verkefnið
sem þeir gáfu líf sitt.
Ræðan vakti blendin viðbrögð á sínum tíma en fljótlega ávann hún
sér sess sem ein kjarnyrtasta útlistun á lýðræðishugsjóninni um vald
almennings. - þj
Heimildir: Brittanica, History.com og Wikipedia
Örstutt ávarp forseta undir-
strikaði fórnir hinna föllnu
Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti flutti ræðu við grafreitinn í Gettysburg.
Sagði mikilvægt að ljúka baráttunni sem hermenn gáfu líf sitt fyrir.
Í GETTYSBURG Lincoln sést hér fyrir miðri mynd við vígslu grafreitsins við Gettysburg.
Ræða hans þar, þó stutt hafi verið, er ein sú eftirminnilegasta í sögu Bandaríkjanna.