Fréttablaðið - 25.11.2011, Page 32
2 föstudagur 25. nóvember
núna
✽ Njótið aðventunnar
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun
Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
meðmælin
Á RAUÐA DREGLINUM Breska
leikkonan Emma Watson sótti frum-
sýningu kvikmyndarinnar My Week
With Marilyn í London síðasta
sunnudag. NORDICPHOTOS/GETTY
N ý fatalína Herrafataverzlun-ar Kormáks & Skjaldar verð-
ur frumsýnd í Þjóðleikhúskjall-
aranum á miðvikudaginn næsta.
Línan er hönnuð af Guðmundi
Jörundssyni, yfirhönnuði versl-
unarinnar.
Línan er óbeint framhald þeirr-
ar er frumsýnd var í fyrra en
inniheldur þó ný snið og önnur
efni. „Efnin eru aðeins dempaðri
og sniðin svolítið flippaðri en
báðar innihalda línurnar buxur,
vesti og jakka,“ útskýrir Guð-
mundur.
Herrafatasýningin er að sögn
Guðmundar með öðru sniði en
venjuleg tískusýning því um
eigin legt skemmtikvöld er að
ræða þar sem skemmtikraft-
ar troða upp á milli fatasýning-
anna. „Fyrirsæturnar koma inn
alls fimm sinnum yfir kvöldið
og er tískusýningin brotin upp
með ýmsum skemmtiatriðum
þess á milli. Í fyrra kom Helgi
Björnsson fram bæði sem fyrir-
sæta og skemmtikraftur og það
sama verður upp á teningnum
í ár, nema nafn poppstjörnunn-
ar er enn hernaðarleyndarmál.
Ég vil líka taka fram að þetta er
ekki sérstakt herrakvöld heldur
er konum sérstaklega boðið að
mæta,“ segir Guðmundur.
Um tíu fyrirsætur taka þátt í
sýningunni og sýna alls fimmtíu
heildarklæðnaði og má því gera
ráð fyrir að mikill undirbúning-
ur liggi að baki kvöldinu. „Við
erum á fullu þessa dagana við að
máta fötin á fyrirsæturnar, enda
þarf að klæða marga upp á. Við
byrjum á því að sýna fatnað úr
Herrafataverzluninni og endum
svo sýninguna á nýju línunni.
Í fyrra var mikið fjör baksviðs
hjá strákunum en sem betur fer
höfðum við nóg pláss og enginn
lenti í því að týna skóm eða öðru
lauslegu.“
Frítt er inn og hefst sýningin
klukkan 21.00. sara@frettabladid.is
HERRAFATAVERZLUN KORMÁKS & SKJALDAR FRUMSÝNIR NÝJA HERRALÍNU:
SKEMMTIKVÖLD FYRIR
KONUR OG KARLA
Fjör í Þjóðleikhúskjallaranum Ný
fatalína Herrafataverzlunar Kormáks &
Skjaldar verður frumsýnd næsta miðviku-
dag. Guðmundur Jörundsson hannar lín-
una og lofar góðri stemningu með undir-
spili hljómsveitarinnar Hringja.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
„Enginn hefur lent í því að týna skóm
eða öðru lauslegu.
Ilmandi opnun
Skartgripa- og gjafaverslun-
in Aurum við Bankastræti efnir til
fagnaðar í dag þar sem ilmvötn-
in frá L‘Artisan verða nú fáanleg í
versluninni. L‘Artisan-ilmvötnin eru
ein þau frægustu í heiminum og
er flaggverslun merkisins í grennd
við Louvre-safnið í París.
Ásamt því að fagna
komu L‘Artisan verða
tvær nýjar skart-
gripalínur kynnt-
ar fyrir jólin. Það
verður því sannköll-
uð jólastemn-
ing í Aurum
frá klukkan
16.00 í dag.
Aðventugleði
Verslunin GK Reykjavík fagnar jól-
unum og því að ár sé liðið frá því
að nýir eigendur tóku við búðinni
og bjóða gestum og gangandi til
að taka þátt í gleðinni
með sér. Gamanið
hefst klukkan 18.00
og verður boðið upp
á jólalegar veitingar
líkt og jólaöl, kakó og
piparkökur.
RÓSIR OG KLEMENTÍNUR Tilvalið í jólapakkann eru ilm-
vatn og húðmjólk frá L‘occitane með dásamlegum rósa- og fjólu-
ilmi sem búið er að sykurhúða fyrir hátíðarnar. Eða sturtusápa
og handáburður með ferskum sítrónu- og klementínukeimi.
A
nnað árið í röð verða listakonur heiðrað-
ar á Listakvöldi Baileys í kvöld. Þær listakon-
ur sem urðu fyrir valinu í ár voru þær Rakel
McMahon myndlistarkona, Saga Sigurðardóttir
tískuljósmyndari og Hildur Yeoman fatahönn-
uður og tískuteiknari.
Listakonurnar fá styrk upp á 100 þúsund
krónur sem á að vera hvatning til frekari af-
reka en allar þykja þær hafa sett sitt
mark á tísku og tíðaranda með heillandi
listrænni sýn.
Þessu verður fagnað í kvöld í hús-
næði gamla veitingahússins La
Primavera frá klukkan 20.30, en þar
verða í boði veitingar og hljóm-
sveitin Pascal Pinon spilar fyrir
gesti.
Í fyrra hlutu þær Harpa Ein-
arsdóttir, Una Hlín Kristjáns-
dóttir og Lína Rut viðurkenn-
inguna. - áp
Rakel, Saga og Hildur heiðraðar
Valdar lista-
konur Baileys
Fær styrk frá Baileys Hildur Yeom-
an hefur vakið athygli fyrir fallega hönn-
un en hún er ein þriggja listakvenna sem
verður heiðruð í kvöld.