Fréttablaðið - 25.11.2011, Page 40
10 föstudagur 25. nóvember
V
insældir tískublogga hafa vaxið síðustu ár
og nú fylla bloggarar fremstu sætin á tísku-
sýningum stóru tískuhúsanna þar sem áður
mátti sjá ritstjóra og leikara. Mörg fyrirtæki
hafa greint gróðavon í þessum bloggsíðum og má nú
velta fyrir sér hlutleysi þeirra er halda síðunum úti.
Vefmiðlarnir WWD.com og Fashionista.com hafa
fjallað um málið og komust að því að vinsælustu
bloggararnir græða stórkostlega á keyptum umfjöll-
unum auk þess sem þeir hljóta ýmsar hönnunar-
vörur að gjöf gegn því skilyrði að fjallað sé um þær.
Ónefndur bloggari sagði í viðtali við Fashionista.com
að flest tískuhúsin sendi bloggurum vörur gegn um-
fjöllun. „Þetta er endalaus hringekja af mútum,“ sagði
bloggarinn.
Lesendur bloggsíðna treysta gjarnan á að verið sé
að fjalla um tiltekna vöru á hlutlausan hátt en ekki
gegn gjaldi og má því deila um hvort bloggarar hafi
fallið í þá gryfju að selja ástríðu sína fyrir vörur eða
peninga.
BLOGGARAR GRÆÐA Á TÁ OG FINGRI:
STÓRGRÆÐA Á
AUGLÝSINGUM
ELIN KLING: Elin hefur unnið náið með H&M og var að auki
fyrsti bloggarinn sem tískumerkið fékk til að hanna línu fyrir
sig. Elin rekur eigið veftímarit auk bloggsins og fjallar gjarnan
um vörur sem hún hefur fengið að gjöf en tekur oftast fram
að um gjafavöru sé að ræða.
SUSIE BUBBLE: Susie Bubble er þekktasti bloggari Breta
og starfaði áður sem ritstýra Dazed Digital sem er vefút-
gáfa tímaritsins Dazed & Confused. Hennar tekjur koma frá
auglýsingum og samstarfi við tískumerki á borð við Gap,
Selfridges, Topshop og Benetton.
BRIAN BOY: Brian Boy hefur haldið úti bloggi frá árinu 2004 og dag hvern heim-
sækja um fjórar milljónir manna síðuna hans og er bloggið hans eina tekjulind. „Ég
græði mest af auglýsingum en svo fæ ég einnig greitt fyrir að sækja ýmsa tískuvið-
burði og önnur tilfallandi verkefni eins og að stílisera fyrir H&M.“
GLAMOURAI: Kelly Framel heldur úti bloggsíðunni The
Glamourai og segist vinna eftir ströngum siðareglum er hún
hefur sjálf sett sér. Hún merki til að mynda vel allar keyptar
umfjallanir. „Ég vil algjört ritfrelsi og hafnaði nýverið samningi
þar sem fyrirtækið vildi ákveða orðaval og framsetningu vör-
unnar á síðunni minni. Fyrirtækið hélt að það gæti átt í sömu
samskiptum við mig og sölufólk þegar keypt er umfjöllun.“
HANNELI MUSTAPARTA: Hanneli er einn helsti tískublogg-
ari Noregs en þar gilda strangar reglur um óbeinar auglýs-
ingar á bloggsíðum. Bloggurum hefur verið gert að merkja
vel allar færslur sem teljast til óbeinna auglýsinga. Hanneli er
þó búsett í Bandaríkjunum og óvíst hvort hún fari eftir norsku
reglunum.
N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
S
/G
E
TT
Y
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
HAFÐU ÞAÐ NOTALEGT
Í FRÉTTABLAÐINU
Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu
því það tryggir að auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar
blaðið er opnað.
Meira en 80% blaðalesenda á höfuðborgarsvæðinu lesa
Fréttablaðið daglega.
Kannaðu dreifileiðir í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi orn@365.is
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
*S
am
kv
æ
m
t p
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t G
al
lu
p
jú
lí-
se
pt
. 2
01
1