Fréttablaðið - 25.11.2011, Qupperneq 48
25. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR32
Elskuleg móðir okkar,
Auður Eyvinds
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtu-
daginn 24. nóvember. Útförin verður auglýst síðar.
Sigurgeir Ingi Þorkelsson
Elísabet Sól Þorkelsdóttir
Ísak Dagur Þorkelsson
Okkar ástkæri
Ragnar Ragnarsson
Goðatúni 12, Garðabæ,
sem lést 9. nóvember, verður jarðsettur frá Garðakirkju
föstudaginn 25. nóvember kl. 15.00.
Alfreð R. Jónsson
Sigurjón Kristinsson Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Arnleif M. Kristinsdóttir Reynir Stefánsson
Hrefna Kristinsdóttir Eiríkur Þ. Sigurjónsson
Bjarni Kristinsson Oddný K. Jósefsdóttir
Júlíana Magnúsdóttir
Jóhanna Magnúsdóttir
Sveinn Magnússon Guðrún Hinriksdóttir
Kristján Magnússon Snjólaug Brjánsdóttir
Ingibjörg Magnúsdóttir Sigurður Guðmundsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
heiðruðu minningu og sýndu samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, sonar,
tengdaföður og afa,
Gísla Pálssonar
aðstoðaryfirlögregluþjóns.
Sérstakar þakkir viljum við færa lögreglukórnum og
starfsfélögum í lögreglunni.
Kolbrún Gísladóttir
Arnþrúður Anna Gísladóttir Jónas Reynir Gunnarsson
Hafþór Gíslason
Svanfríður Gísladóttir
Aldís Anna og Maríanna Hlíf Jónasdætur
Móðir okkar og tengdamóðir,
Sigríður Kristinsdóttir
sem lést á dvalarheimilinu Hornbrekku Ólafsfirði
16. nóvember, verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju
þriðjudaginn 29. nóvember kl. 14. Þeim sem vildu
minnast Sigríðar er bent á dvalarheimilið Hornbrekku
í Ólafsfirði.
Magnús Magnússon
Sigursveinn Magnússon
Örn Magnússon
Þorgeir Gunnarsson og fjölskyldur.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
„Ég fæ nánustu fjölskyldu heim í mat.
Pabbi ætlar að elda eitthvert gott
nautakjöt, en hann er algjör meistara-
kokkur,“ segir Inga María Valdimars-
dóttir leikkona, sem er fertug í dag.
Hún segist þó ekki mikið afmælisbarn
og ekki hafa haldið upp á daginn frá
því hún var unglingur.
„Ég er ekki mikil fjölmennismann-
eskja en fannst þó alltaf mjög gaman
að fara í afmælisveislur þegar ég var
lítil. Þetta verður fámennt og notalegt
í kvöld. Við erum fjögur systkinin
og svo á ég litla þriggja ára frænku,
hana Sölku mína, sem kemur líka. Ég
er búin að skreyta jólatréð sérstak-
lega fyrir hana. Þetta verður æðis-
lega gaman.“
Inga María ólst upp í Breiðholti
fram á unglingsár. Hún flutti svo í
Kópavoginn og kallar sig Kópavogs-
búa. Hún segir leiklistarbakteríuna
alltaf hafa blundað í sér þó að fleiri
starfsgreinar hafi heillað. „Mig lang-
aði til að verða leikskólakennari eða
þroskaþjálfi. Ég vann á sumrin í sum-
arbúðum í Reykjadal fyrir lömuð og
fötluð börn og passaði líka mikið börn.
Mér fannst það alltaf mjög skemmti-
legt en leiklistin varð ofan á,“ segir
Inga María, sem útskrifaðist úr Leik-
listarskólanum árið 1997. Eftir útskrift
tók við leikur á sviði og í sjónvarpi og
kvikmyndum. „Síðustu tvö verkefnin
mín í sjónvarpi og bíó vann ég fyrir
Friðrik Þór og fannst það ofboðslega
skemmtilegt,“ rifjar Inga María upp,
en hún lék meðal annars í mynd Frið-
riks, Mamma Gógó, sem kom út árið
2010.
En hvað er hún að fást við í dag? „Í
dag er ég að talsetja barnaefni fyrir
Ríkissjónvarpið og Stöð tvö og sitthvað
sem fellur til. Svo spila ég mikið golf.
Ég byrjaði fyrir tveimur árum og geng-
ur bara nokkuð vel,“ segir Inga María
kankvís og blaðamaður fær togað upp
úr henni að hún sé með 22 í forgjöf, sem
þyki nokkuð gott. Hún segist þó ekki
vera farin að keppa í íþróttinni.
„Nei, ég er jafn lítil keppnismann-
eskja eins og ég er fjölmennismann-
eskja, þetta er bara fyrir mig sjálfa.
Ég spila mest með Bolla, kærastan-
um mínum, en við förum mikið í golf
á Hamri í Borgarnesi á sumrin,“ segir
hún og viðurkennir með semingi að
kærastinn sé ívið betri en hún í golf-
inu. „En það verður ekki lengi,“ segir
hún hlæjandi. heida@frettabladid.is
INGA MARÍA VALDIMARSDÓTTIR LEIKKONA: FAGNAR FERTUGU Í DAG
Skreytir jólatréð fyrir kvöldið
EKKI MIKIÐ FYRIR AFMÆLISHALD Inga María Valdimarsdóttir leikkona ætlar að halda fámennt en góðmennt matarboð í tilefni fertugsafmælis
síns. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hópur breskra og írskra tónlistarmanna kom
saman í hljóðveri undir nafninu Band Aid þennan
dag árið 1984 og tók upp lagið Do They Know
It’s Christmas? Tilgangurinn var fjáröflun vegna
hungursneyðar í Eþíópíu, en allir tónlistarmenn-
irnir gáfu vinnu sína. Frumkvæðið að uppátækinu
áttu tónlistarmennirnir Bob Geldof og Midge Ure
en þeir hóuðu saman nöfnum eins og Bono, Boy
George, Sting og George Michael.
Lagið kom út fjórum dögum síðar og rauk strax
upp í fyrsta sæti breska smáskífulistans. Milljón
eintök seldust strax í fyrstu vikunni, en lagið sat í
fyrsta sætinu samfleytt í fimm vikur.
Verkefnið vatt upp á sig og hinn 13. júlí árið 1985
voru haldnir fjáröflunartónleikar í London og
í Fíladelfíu samtímis, undir stjórn þeirra félaga
Geldofs og Ure. Tónleikarnir voru kallaðir Live Aid
og var sjónvarpað beint um allan heim.
Smáskífan Do They Know It’s Christmas? hefur
síðan verið endurútgefin, árið 1989 og árið 2004.
ÞETTA GERÐIST: 25. NÓVEMBER ÁRIÐ 1984
Band Aid verður til
ÞÓRÐUR HALLDÓRSSON frá Dagverðará, refaskytta og skáld
(1905-2003), fæddist þennan dag.
„Sterkasta aflið er andans ró, sem allt getur fyrirgefið.“
Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna flytur fyrstu sin-
fóníu Mozarts á tónleik-
um í Seltjarnarneskirkju
á sunnudag klukkan 17.
Sinfóníuna samdi Mozart
þegar hann var aðeins
átta ára.
Hljómsveitin fær góða
gesti til liðs við sig, þá
Dean Ferrell kontrabassa-
leikara og Gissur Pál
Gissurarson tenór. Þeir
munu flytja aríur og ein-
leiksstykki eftir Mozart,
Sperger, Rossini, Hoff-
meister og Müller, annað
hvort saman eða hvor í
sínu lagi.
Á tónleikunum verður
leitast við að svara spurn-
ingunni sem tónlistar-
fræðingar hafa velt fyrir
sér um aldir: Hvað gekk
Mozart til þegar hann
samdi aríuna Per questa
bella mano?
Oliver Kentish er
stjórnandi á tónleikunum.
Aðgangseyrir er 2.000
krónur, afsláttarverð er
1.000 krónur fyrir nem-
endur og eldri borgara og
frítt er fyrir börn. - rve
Flytja fyrstu sin-
fóníu Mozarts
TÖFRANDI TÓNAR Á tónleikunum verður
leitast við að svara því hvað Mozart
hafi gengið til þegar hann samdi
aríuna Per questa bella mano.
GESTUR Gissur Páll Gissurarson
tenór kemur fram ásamt Sin-
fóníuhljómsveit áhugamanna á
tónleikum í Seltjarnaneskirkju
á sunnudag.