Fréttablaðið - 25.11.2011, Qupperneq 50
25. nóvember 2011 FÖSTUDAGUR34
Meðal annars efnis:
Nói verður ástarbréf til Íslands
Darren Aronofsky leikstjóri um væntanlega
kvikmynd sína og kvikmyndalandið Ísland
Útrásin til Mars
Curiosity leggur í rannsóknaferð
til plánetunnar rauðu í dag.
Athvarf fyrir asna
Asnar eiga öruggt skjól í bænum
Nerja í Andalúsíu.
Kepptu við kónginn
Ásgeir Sigurvinsson og Arnór Guðjohnsen upplifðu það
báðir að spila við Maradona.
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars-
dóttur
Það var yfir hrímköldum bjór sem eigin-maðurinn sagði mér sögu af afa sínum
sem mér þótti bæði í senn fyndin og grát-
leg. Afi hans heitinn, Geir Hallgrímsson,
var í forsætisráðherratíð sinni eitt sinn
staddur í útlöndum ásamt hópi íslenskra
pólitíkusa. Er þeir sátu á hótelbarnum að
kvöldi dags, hver með sína forboðna bjór-
kolluna í lúkunum, bað Geir alla þá að
rétta upp hönd sem styddu áframhaldandi
bjórbann löndum þeirra til handa. Teyg-
andi gullið ölið ráku þeir allir fumlaust upp
arminn að undanskildum Geir sjálfum.
Í DAG er það að hafa verið á móti bjórnum
pólitískum ferli eins og æskuafglöp – pínu
vandræðalegt uppátæki sem afskrifað
er sem ungæðisháttur og tákn tímanna.
Svona eins og sítt að aftan. Því fer þó
fjarri að liðin sé sú tíð að geðþótta-
ákvarðanir stjórnmálamanna stýri því
hvað Íslendingar fá að setja ofan í sig.
Nýverið heimsótti bróðir minn mig í
Lundúnum þar sem ég dvel. Fyrir
utan skylduheimsókn í H&M
var aðeins eitt á dagskránni.
Rúmum 20 árum fyrr, á tímum
bjórbannsins, hefði það verið
að marinera lifrina í eins
miklum bjór og er mögulegt á
einni helgi. Nú voru það hins
vegar önnur höft sem stýrðu
neyslu Íslendingsins í útlönd-
um. Markmið ferðarinnar var
að innbyrða geitaost eins og
um keppnisíþrótt væri að ræða en forðast
bráða kransæðastíflu.
UNDANFARNA mánuði hefur umræðan
um réttmæti þess að vernda innlendan
landbúnað með tollum og innflutningshöft-
um farið hátt. Í grein sem birtist í Morgun-
blaðinu í vikunni ítrekar Jón Bjarnason,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
afstöðu sína um að standa beri vörð um
þessa hagsmuni sem hann færir í dular-
gervi „fæðuöryggis“. Jón leggur og til að
íslenskir bændur hefji framleiðslu á eigin
eldsneyti til að nota á vélar sínar.
Í DAG hlæjum við vandræðaleg að bjór-
banninu. En á sama tíma sættum við okkur
við að matvælaúrval á Íslandi sé takmark-
að af lobbíistum landbúnaðar. Til að vernda
hagsmuni fárra framleiðenda fá íslenskir
neytendur sjaldan að borða kræsingar á
borð við franskan geitaost og grískan feta.
Innflutningur á sælgæti var takmarkaður
allt til 1981. Dettur okkur í hug að taka upp
nammitolla á ný til að verja íslenska sæl-
gætisframleiðendur?
JÓN BJARNASON hefur á réttu að standa.
Það er alveg hægt að lifa bara á íslensku
kjöti og spenvolgri mjólk. Við gætum alveg
framleitt okkar eigið eldsneyti úr hrein-
ræktuðum íslenskum flór. Það má vel flytja
aftur inn í moldarkofana og hefja sjálfs-
þurftarbúskap. Spurningin er hins vegar
þessi: Viljum við það?
Jón Bjarna hefur rétt fyrir sér
Alla daga kl. 19.00 og 01.00
CNN er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR
PIERS
MORGAN
tonight
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. blaðra, 6. úr hófi, 8. starfsgrein, 9.
matjurt, 11. í röð, 12. þvílíkt, 14. enn
lengur, 16. berist til, 17. árkvíslir, 18.
for, 20. ætíð, 21. krukka.
LÓÐRÉTT
1. á endanum, 3. frá, 4. alls, 5. tál, 7.
þögull, 10. tilvist, 13. knæpa, 15. korn,
16. hryggur, 19. óreiða.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. masa, 6. of, 8. fag, 9. kál,
11. mn, 12. slíkt, 14. áfram, 16. bt, 17.
ála, 18. aur, 20. sí, 21. krús.
LÓÐRÉTT: 1. loks, 3. af, 4. samtals,
5. agn, 7. fálátur, 10. líf, 13. krá, 15.
maís, 16. bak, 19. rú.
Ég rann og sneri
á mér ökklann.
Fljót, náðu í klaka
handa mér!
Svo er það
svanurinn.
Eftir 30 ár í bolt-
anum án þess að
teygja fer hann
beint í krákuna.
Svaninn!
Svaninn,
fyrirgefðu.
Ég er með góða
hugmynd.
Ef þið byrjið að blogga
gætuð þið skrifað
allar leiðinlegu sögurnar
sem þið segið vanalega
yfir kvöldmatnum.
Þá gæti ég lesið þær
þegar ég hef tíma og
við gætum borðað í
ró og næði.
Ef við
tölum ekki
saman, til
hvers þá
að borða
saman?
Þarna ertu
með aðra
góða hug-
mynd.
Mamma!
Hannes
er að horfa
á mig!