Fréttablaðið - 26.11.2011, Blaðsíða 16
16 26. nóvember 2011 LAUGARDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
SPOTTIÐ
Samráðsvettvangur trúfélaga, lífs-skoðunarfélaga um trúarleg efni og
samstarfsaðila þeirra var stofnaður 24.
nóvember 2006 og fagnar því fimm ára
afmæli um þessar mundir. Markmið vett-
vangsins er að stuðla að umburðarlyndi og
virðingu milli fólks með ólík lífsviðhorf,
úr ólíkum trúarhópum og trúarbrögðum
og standa vörð um trúfrelsi og önnur
mannréttindi.
Samráðsvettvangur trúfélaga, eins og
hann er jafnan kallaður, er opinn öllum
skráðum trúfélögum. Stofnfélög voru
þrettán en fleiri hafa bæst við og telur
vettvangurinn nú sextán félög. Að auki
starfaði Alþjóðahús með samráðsvett-
vanginum fyrstu árin. Hvert félag hefur
fulltrúa í stjórn og hittist hún reglulega.
Samráðsvettvangurinn hefur unnið
að markmiðum sínum með ráðstefnu,
málþingum og útgáfu. Meðal verkefna
má nefna ráðstefnu um siði og hefðir í
tengslum við andlát og útför í ólíkum
trúarbrögðum og bæklinginn „Virðing“.
Þar má finna upplýsingar í stuttu máli
um mikilvæg atriði í ólíkum trúarhefðum
við andlát og greftranir, sem og upplýs-
ingar um það hverja hafa skuli samband
við í þessum aðstæðum hjá mismunandi
trúfélögum. Upplýsingarnar voru ætl-
aðar fólki í löggæslu, heilbrigðisstéttum,
sjúkraflutningum og á útfararstofum og
þessir hópar sóttu einnig ráðstefnuna.
Þetta verkefni var styrkt af þróunarsjóði
innflytjendamála.
Samráðsvettvangur trúfélaga hefur að
auki haldið tvö málþing. Hið fyrra fjallaði
um fordóma gagnvart trúarbrögðum og
var hluti af svokölluðu Progress-verk-
efni Evrópuráðsins sem fjölmörg félög og
stofnanir tóku þátt í. Hið síðara fjallaði
um trúarlegar byggingar. Ráðstefnan og
málþingin hafa verið byggð upp á þann
hátt að auk fyrirlesara eru stutt innlegg
frá ólíkum trúarhópum þar sem málið er
reifað frá þeirra hlið og fást þannig ýmis
sjónarhorn.
Auk þessara málþinga tók Samráðs-
vettvangurinn þátt í ráðstefnu á vegum
Menntasviðs Reykjavíkurborgar og kynnti
starf sitt. Þá má einnig nefna útgáfu
dagatals með hátíðardögum ólíkra trúar-
bragða, sem vettvangurinn vann að í sam-
vinnu við félagsmálaráðuneytið.
Samráðsvettvangurinn er vettvangur
samvinnu og samráðs. Hann er ekki vett-
vangur ályktana eða sameiginlegs helgi-
halds, en vilji einhver trúfélaganna taka
sig saman um slíkt auðvelda góð kynni
alla samvinnu. Þá vill vettvangurinn vera
samtalsaðili við ríki og sveitarfélög um
málefni er snerta trúfélög.
Samstarf, umburðarlyndi og virðing
Trúmál
Bridget
McEvoy
Bahá´í
samfélaginu á
Íslandi
Steinunn A.
Björnsdóttir
Þjóðkirkjunni
Þorsteinn Pálsson er í tímabundnu leyfi frá Kögunarhólsskrifum.
Hleðslumaðurinn
Mikið hefur verið rætt og ritað
um ákvörðun Ögmundar Jónas-
sonar varðandi Grímsstaði á Fjöllum.
Kínverski fjárfestirinn Nubo fær ekki
að kaupa jörðina eftir ákvörðun ráð-
herrans. Þingmenn Samfylkingarinnar
hafa borið brigður á hæfi Ögmundar
í málinu, vegna fyrri yfirlýsinga
hans. Fáir ættu þó að vera hæfari
í málinu, enda þekkir hann
Grímsstaði á Fjöllum vel. Það
má sjá á ummælum Ævars
Kjartanssonar, en hann sagði
í Fréttablaðinu 2010 að
hann mundi eyða
sextugsafmæli sínu
í „torfbæ sem hann
hlóð með hjálp Ögmundar Jónas-
sonar, þingmanns, á Hólsfjöllum“.
Ögmundur þekkir því vel til á
svæðinu og veit hvaða áhrif hótel þar
hefði á torfkofann sem hann hlóð.
Erlendu yfirráðin
Orðalag rökstuðnings ráðherra er
nokkuð athyglisvert. Þar segir að
engin fordæmi séu fyrir því að
jafnstórt landsvæði á Íslandi
hafi „verið fært undir erlend
yfirráð“. Þetta orðalag ætti
frekar heima í vopna-
hléssamningum
stríðandi ríkja en
ákvörðun um
landakaup.
Aðlögun hjá Jóni?
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, hefur
skipað samráðshóp sérfræðinga
varðandi innflutningsbann á hráum
dýraafurðum og lifandi dýrum. Verk-
efni hópsins snýr að því að „Ísland
geti gripið til nauðsynlegra
ráðstafana til verndar
íslensku búfé með
takmörkun innflutnings
á hráum búfjárafurðum
og lifandi dýrum, komi
til aðildar að Evrópu-
sambandinu“. Er Jón
kominn í aðlögun að
ESB?
kolbeinn@frettabladid.is
M
eð ákvörðun sinni um að synja félagi Huangs Nubo
um leyfi til að kaupa meirihluta í Grímsstöðum á
Fjöllum sendir Ögmundur Jónasson innanríkisráð-
herra alþjóðlegum fjárfestum enn ein bandvitlaus
skilaboð af stjórnarheimilinu. Ísland er lokað og
athafnamenn með áform um atvinnuuppbyggingu eru óvelkomnir.
Þegar þetta bætist við hótanir um ógildingu löglegra samninga
og þjóðnýtingu í Magma-málinu, andstöðu við fyrirtæki sem
hyggjast stunda rekstur sem fellur ekki að vinstri grænni hug-
myndafræði og hringlandann í
skattamálum atvinnulífsins er
ekki að furða að hinir frjáls-
lyndari í þingliði Samfylking-
arinnar séu farnir að ókyrrast
í ríkisstjórn sem hafði í upphafi
að markmiði að auka erlenda
fjárfestingu.
Rökstuðningurinn fyrir því
að veita Huang ekki undanþágu fyrir kaupunum er ekki merki-
legur. Í tilkynningu innanríkisráðuneytisins er tíundað að félag
Huangs uppfylli ekki skilyrði um íslenzkt eignarhald, stjórnar-
menn og þar fram eftir götunum. Náttúrlega ekki. Þess vegna er
beðið um undanþágu frá lögunum. Hana hafa að minnsta kosti 25
önnur fyrirtæki og einstaklingar fengið á síðustu árum.
Eini rökstuðningurinn er í raun að landið sem Huang vill kaupa
sé svo stórt. Ráðuneytið segir að „engin fordæmi [séu] fyrir því
að jafnstórt landsvæði á Íslandi hafi verið fært undir erlend
yfirráð“. Vísað er til þess að bannið við fjárfestingum útlendinga
eigi að „standa vörð um sjálfstæði eða fullveldi landsins og mögu-
leika Íslendinga til að njóta sjálfir arðs af auðlindum sínum“.
Ef Huang Nubo væri til dæmis rúmenskur eða grískur ríkis-
borgari mætti hann kaupa Grímsstaðalandið umyrðalaust og
málið hefði ekki einu sinni lent á borði Ögmundar Jónassonar.
Sennilega gæti Huang farið þá leið að stofna fyrirtæki í ein-
hverju aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins til að halda utan
um kaupin. Undir þann leka vill Ögmundur Jónasson setja; hann
segir í Fréttablaðinu í dag að hann vilji þrengja heimildir EES-
borgara til að eignast hér fasteignir! En Huang er sjálfsagt orðinn
leiður á þessu bulli og fer með peningana sína annað – eins og
fleiri fjárfestar.
Setningin um „erlend yfirráð“ í rökstuðningi ráðuneytisins
er kostuleg. Auðvitað fara öræfin á Fjöllum ekki undir erlend
yfirráð þótt útlendur maður eignist þau. Um Grímsstaðalandið
myndu áfram gilda íslenzk lög og skipulagsreglur. Ríkið yrði
meðeigandi Huangs að jörðinni og yrði að gefa samþykki sitt
fyrir því sem þar væri gert. Huang hefur engan áhuga á vatns-
réttindum (sem Ögmundur hafði í upphafi áhyggjur af að hann
ásældist) og er reiðubúinn að semja þau af sér. Hver er hættan
fyrir sjálfstæði, fullveldi og auðlindir Íslands?
Það er í raun sorglegt að stjórnmálamenn hafi ekki meiri trú
á íslenzkri löggjöf og stjórnsýslu en þetta. Ákvörðun Ögmundar
endurspeglar vanmetakennd og útlendingaótta. Það er vont vega-
nesti þegar verið er að reyna að endurbyggja íslenzkt efnahags-
líf, meðal annars með erlendum fjárfestingum í atvinnurekstri.
Synjun á beiðni Huangs Nubo sendir enn ein
kolröng skilaboð til alþjóðlegra fjárfesta.
Erlend yfirráð?
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
...ég sá það á Vísi
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!