Fréttablaðið - 26.11.2011, Page 55
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Mikið úrval af
fallegum skóm
og töskum
www.gabor. is
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Fallegar og vandaðar
Ullarkápur
DÚNÚLPUR
HETTUKÁPUR
MOKKAJAKKAR
LOÐHÚFUR OG
LOÐKRAGAR
Ratleikur með tónlistarhúsamúsinni
Maxímús Músíkús verður haldinn í
Hörpu á sunnudaginn. Ratleikurinn
hefst klukkan 13.30 og 14.30. Maxi
verður líka á vappi um Hörpu milli 13
og 14 á laugardaginn en Tónsprota-
tónleikar Sinfó hefjast klukkan 14.
G
rafíski hönnuðurinn
Þórdís Claessen, sem
er nýflutt heim frá New
York, segir ekki alfarið
skilið við vinnuna um helgina en
ætlar þó að reyna að láta líða úr
sér í sundi og efla andann. Hún
opnaði sýningu á sjö samsettum
klippimyndum í Kirsuberjatrénu
á fimmtudag sem stendur opin
fram á mánudag og verður eitthvað
viðloðandi hana.
„Ég er síðan með ýmis smáverk-
efni í vinnslu sem ég verð að sinna
og er til dæmis að hanna grafík og
kynningarefni fyrir endurvinnslu-
fyrirtæki í Stokkhólmi sem er að
koma fram með nýjar hugmyndir
auk þess sem ég vinn fyrir ferða-
skrifstofu í Taílandi og nokkra
aðila í New York og hér heima.“
Þórdís ætlar þó að reyna að kom-
ast í sund og mauka sig svolítið í
pottinum, eins og hún kemst sjálf
að orði. „Þá er sænskur rithöfund-
ur að nafni Hermann Lindkvist
með fyrirlestur í Þjóðmenningar-
húsinu sem ég ætla ekki að missa
af. Hann er nýbúinn að gefa út bók
um Napóleon, en ég hef lesið mikið
eftir hann og finnst hann verulega
fyndinn og skemmtilegur.“
Sýning Þórdísar í Kirsuberja-
trénu er með svipuðu sniði og sýn-
ing sem hún hélt á Mokka í haust.
„Kveikjan var að grafa í göml-
um albúmum nokkrar kynslóðir
aftur í tímann, en á myndunum
má sjá forfeður mína sem marg-
ir hverjir eru löngu liðnir. Suma
hef ég hitt, aðra ekki. Í baksýn er
oftar en ekki íslenskt landslag og
yfir þessu sveitablær. Myndirnar
endurspegla íslenskt samfélag á
árum áður. Til að undirstrika tím-
ann sem um ræðir eru inni á þeim
myndir af gömlum umbúðum sem
margir kannast við.“
vera@frettabladid.is
Maukar sig í pottinum
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þórdís Claessen heldur klippimyndasýningu um helgina. Hún mun einnig leggja rækt við líkama og anda.
„Kveikjan var að grafa í gömlum albúmum nokkrar kynslóðir aftur
í tímann en á myndunum má sjá forfeður mína sem margir
hverjir eru lönguliðnir.”