Morgunblaðið - 03.08.2010, Blaðsíða 6
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Kostnaður við rekstur sendiráðs Ís-
lands á Indlandi er svipaður og verð-
mæti útflutnings Íslands til Ind-
lands. Hins vegar hefur sú þróun
orðið að íslensk fyrirtæki hafa verið
að setja upp starfsemi í landinu. Jón
Ásbergsson, framkvæmdastjóri Ís-
landsstofu, telur að þessi þróun eigi
eftir að halda áfram, en ólíklegt sé að
vöruútflutningur til Indlands verði
mikill.
Íslenskt sendiráð var opnað á Ind-
landi í ársbyrjun 2006, en það er í
sama húsi og danska sendiráðið í
Nýju-Delí. Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, fyrrverandi menntamála-
ráðherra, opnaði sendiráðið í fjar-
veru Geirs H. Haarde forsætisráð-
herra. Hún sagði við það tilefni að
opnun sendiráðs væri mikilvæg og
ætti eftir að stuðla að öflugum og
skilvirkum samskiptum þjóðanna, en
viðskiptahagsmunir Íslendinga á
Indlandi færu stöðugt vaxandi.
Fluttu út vörur fyrir 106
milljónir í fyrra
Árið 2006 fluttu Íslendingar út
vörur til Indlands fyrir 56 milljónir.
Hægt hefur gengið að auka þennan
útflutning og hann nam aðeins 106
milljónum í fyrra. Þetta er svipað og
rekstur sendiráðs Íslands í Nýju-
Delí kostar, en samkvæmt fjárlögum
þessa árs fara 96,5 milljónir til rekst-
ur sendiráðsins. Rekstur sendiráðs-
ins kostaði 90 milljónir í fyrra.
Sú spurning vaknar hvort stofnun
sendiráðs á Indlandi hafi skilað til-
ætluðum árangri með vísan til þess
að tilgangur þess var öðrum þræði
að auka viðskipti landanna.
„Útflutningur til Indlands hefur
verið lítill og raunar varla mælanleg-
ur,“ sagði Jón Ásbergsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsstofu (sem áð-
ur hét Útflutningsráð). „Viðskiptin
hafa hins vegar verið að aukast í því
formi að við erum að setja niður
starfsemi á Indlandi. Sú starfsemi
kemur hvergi fram í hagtölum hér á
landi. Actavis er með mikinn rekstur
á Indlandi og Sæplast sömuleiðis, en
síðan eru nokkur hugbúnaðarfyrir-
tæki þarna með ansi mikinn rekst-
ur.“ Jón sagði að orkufyrirtækin
hefðu einnig skoðað verkefni á þessu
svæði. Það hefði ekki skilað niður-
stöðu enn, en hann taldi líklegt að
eitthvað ætti eftir að koma út úr
þessu á næstu árum.
„Ég á ekki von á því að viðskipti
okkar við Indverja verði svo mikið í
því formi að þeir kaupi vörur af okk-
ur. Það margt sem hindrar beinan
útflutning þangað. Ég held hins veg-
ar að það séu miklir möguleikar í því
sem hefur verið að gerast, að íslensk
fyrirtæki hasli sér völl með starfsemi
á Indlandi, bæði þjónustu og vöru-
framleiðslu.“
Lítill útflutningur til Indlands
Verðmæti vöruútflutnings til Indlands rétt dugar fyrir rekstri sendiráðs Íslands í Nýju-Delí
Íslensk fyrirtæki í hugbúnaði og lyfjaframleiðslu hafa verið að setja upp starfsemi á Indlandi
Indland Forseti Indlands við Bessastaði árið 2005, ásamt Ólafi Ragnari og Dorrit.
Útflutningur til Indlands
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
71,6
56,0
79,1
146,3
106,3
0
20
40
60
80
100
120
140
160
milljónir kr. Heimild: Hagstofa Íslands
Morgunblaðið/Golli
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2010
„Það fór margt um hugann á þeim klukkustundum
sem ég beið björgunar. Sú ákvörðun að leggja út í
svellkalda ána og storka náttúruöflunum var alfarið
mín og ég sit eftir með sárt ennið. Núna er mér þó
efst í huga þakklæti til björgunarmanna sem sýndu
snarræði,“ segir Gunnar Maríusson í Keflavík.
Litlu mátti muna að illa færi þegar menn úr röð-
um Slysvarnafélagsins Landsbjargar björguðu
Gunnari úr jökulá norðan Jökulheima við Vatna-
jökul vestanverðan. Þetta var um kvöldmatarleytið
á laugardag. Liðsmenn tveggja björgunarsveita,
það er Hjálparsveitar skáta í Reykjavík og björg-
unarsveitarinnar Núpa frá Kópaskeri, fóru í björg-
unina, en þær voru á Sprengisandsleið og við Land-
mannalaugar.
Straumhörð á og djúp
Gunnar ók fjórhjóli sínu út í jökulá sem kemur úr
Sylgjujökli í Vatnajökli og festi hjólið. Ferðafélagi
hans óskaði þá aðstoðar hjá Neyðarlínunni.
„Áin er bæði straumhörð og djúp,“ segir Gunnar
Björgvinsson björgunarsveitarmaður sem var á
vettvangi. Fyrst var reynt að vaða til mannsins á
hjólinu úti í ánni. Þegar það gekk ekki var varpað
til hans líflínu sem björgunarvesti hafði verið fest á
og þannig komst maðurinn í land. Í framhaldinu óð
björgunarmaður í flotgalla að fjórhjólinu sem dreg-
ið var upp á árbakkann, talsvert skemmt.
Hægt að bregðast skjótt við
Yfir sumarið eru björgunarsveitarmenn á hálend-
isvakt á fjölförnustu slóðum hálendisins, það er á
Kili, Sprengisandi, Fjallabaki og í Öskju. Kristinn
Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, segir atvikið á laugardag og fleiri
sanna hversu miklu skipti að hafa öryggissveitir á
hálendinu á sumrin enda sé með því hægt að bregð-
ast skjótt við þegar óhöpp hendi. Hve víða GSM-
kerfið virki á fjöllum hafi einnig sannað gildi sitt.
„Mér finnst einstakt og sýna mikla fórnarlund af
björgunarsveitarmönnum að vera í sjálfboðaliða-
starfi og til þjónustu reiðubúnir ef vá steðjar að.
Gefa sig alla í þetta og vera fjarri fólkinu sínu til
dæmis nú um verslunarmannahelgina, sem er tími
samveru fjölskyldna,“ segir Gunnar Maríusson,
þakklátur fyrir hjálpina. sbs@mbl.is
„Storkaði náttúruöflum og
sit eftir með sárt ennið“
Bjargað eftir langa bið úr svellkaldri á við Jökulheima
Fórnarlund björgunarmanna sem eru á hálendisvakt
Björgun Líflínu kastað til Gunnars sem var á fjórhjóli sínu úti í miðri svellkaldri jökulánni og beið björgunar.
Ljósmynd/Landsbjörg
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Matfugl innkallaði ferska kjúklinga
á laugardag vegna salmonellusmits.
Þetta er í fjórða skiptið sem þetta er
gert hjá Matfugli á þessu ári og hef-
ur salmonellusmitum farið fjölgandi
að undanförnu, en á árabilinu 2005 til
2007 komu þau alls ekkert upp á
kjúklingabúum landsins.
Að sögn Sigurðar Arnar Hanssonar,
forstöðumanns hjá Matvælastofnun,
er líklegt að krosssmit hafi komið
upp á milli sláturhópa, því önnur
svona tilkynning kom upp fyrir
helgina. Þá hefur smitið komið upp í
sláturhúsinu en ekki á kjúklinga-
búinu sjálfu. Þannig hefur salmon-
ellusmitið getað lifað frá fyrri sýkta
hópnum sem kom í sláturhúsið, á
meðan verið var að rækta upp sýnin
úr honum og komist í seinni hópinn.
Sigurður Örn vill þó engu slá föstu
um þetta. Ekki er talið þurfa að fara
í sérstakar aðgerðir vegna tíðs salm-
onellusmits, heldur þurfi bara að
halda áfram að hreinsa sláturhúsið
vel eftir að svona lagað kemur upp
og innkalla hina sýktu vöru.
Hún er þó hættulaus ef hún er vel
soðin eða steikt alveg í gegn og blóð-
vökvi ekki látinn komast í aðrar
vörur. Þeir sem eiga kjúkling með
rekjanleikanúmerum 126-10-25-2-
51, 126-10-25-4-53 og 126-10-25-3-52
eru beðnir að skila þeim í verslun eða
beint til Matfugls.
Morgunblaðið/Sverrir
Kjúklingar Salmonellusmit kem-
ur reglulega upp á kjúklingabúum.
Enn inn-
kallað hjá
Matfugli
Salmonellusmit í
fjórða skipti á árinu
TF-LÍF, þyrla
Landhelgisgæsl-
unnar, sótti í
fyrrinótt sjúk-
ling um borð í
rússneskan tog-
ara djúpt suð-
vestur af Reykja-
nesi. Þyrlan
flaug 160 sjómíl-
ur út á haf til
móts við togar-
ann. Sjúkraflugið tók um þrjár
klukkustundir, að sögn stjórn-
stöðvar Landhelgisgæslunnar.
Sjúkraflug svo langt út í haf var
gerlegt því önnur þyrla var tiltæk
til vara. Sjúkraflugið gekk að ósk-
um enda gott veður í fyrrinótt.
Langt sjúkraflug í
rússneskan togara
Björgun TF-LÍF fór í
langt sjúkraflug.
Ökumaður, sem grunaður er um að
hafa verið undir áhrifum áfengis og
fíkniefna, ók á átta kyrrstæða bíla í
Landeyjahöfn aðfaranótt sunnu-
dagsins. Fjórir bílar, auk bílsins
sem maðurinn ók, voru óökufærir
eftir uppákomuna. Ökumaðurinn,
sem er á þrítugsaldri, var handtek-
inn og reyndist hann að auki vera
ökuréttindalaus; hafði verið sviptur
þeim áður. Manninum var sleppt
eftir yfirheyrslur.
Bílar skemmdir við
Landeyjahöfn
Skemmdir Bílarnir við Landeyjahöfn.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók tvo menn í gær, grunaða
um að hafa framið tvö innbrot í fyr-
irtæki í austurborginni í fyrrinótt.
Ekki lá fyrir í gær hvort einhverju
hefði verið stolið, en mennirnir
voru vistaðir í fangageymslu áður
en þeir voru færðir til yfirheyrslu.
Nóttin var að öðru leyti róleg, að
sögn lögreglu, þó var eitthvað um
minniháttar pústra kringum
skemmtanahald í miðborginni. Þá
voru tveir ökumenn teknir undir
áhrifum áfengis, annar án ökurétt-
inda og hinn ók of greitt um aust-
urborgina. Einn ökumaður var tek-
inn grunaður um akstur undir
áhrifum fíkniefna.
Tveir handteknir
vegna innbrota