Morgunblaðið - 03.08.2010, Síða 11
Heilsukokkur Auður Ingibjörg Konráðsdóttir eldar óvenjulega og spennandi rétti úr hollu hráefni.
misvísandi upplýsingum varðandi
mataræði en það sem er svo frá-
bært við Kyle er að hann einfaldar
allar þessar upplýsingar, koll-
varpar sumu og setur þetta svo
allt fram á mannamáli þannig að
þetta liggur ljóst fyrir og setur
þetta í samræmi við hvernig
mannkynið hefur þróast,“ segir
Auður Ingibjörg.
Þau Auður Ingibjörg og Kyle
skipuleggja nú Íslandsför í sept-
ember. Þá munu þau dvelja hér á
landi í eina viku og halda nokkur
heilsunámskeið í Reykjavík, á Eg-
ilsstöðum, Selfossi og Akureyri.
Kyle er mjög vakandi yfir því að
nýta ofurfæðu sem vex í heima-
högum þannig að þau munu fjalla
um íslensk ber, fjallagrös og fleira
slíkt. „Kyle fór sérstaklega fram á
það að fara í berjamó svo ég þigg
allar ábendingar um hvar sé góð
berjaspretta. Annars ætlum við að
nýta okkur það sem fæst í heima-
högunum sem fólk horfir oft á tíð-
um fram hjá og veit ekki hvað er
mikil næring í slíkum hráefnum.
Fyrst þegar við Kyle hittumst fór
ég til að mynda heim til hans og
við sátum úti í garði. Þá tíndi
hann til alls konar blóm og jurtir
og bjó til drykk sem var mjög góð-
ur. Þetta hefði mér aldrei dottið í
hug og það sama á við heima á Ís-
landi þar sem nota má arfa, hvönn
og margt fleira. Kyle mun segja
fólki hvað hægt sé að gera við
slíkar jurtir og ég mun svo gera
rétti úr því sem eru óvenjulegir og
spennandi en mjög bragðgóðir,“
segir Auður Ingibjörg.
Allir hafa sama rétt
Auður Ingibjörg segir að þau
Kyle vilji koma þessum skila-
boðum til flestra þannig að sem
flestir fái að njóta þeirra lífsgæða
sem við höfum öll sama rétt á. Þau
hafi bæði upplifað það að vera veik
og öðlast svo vellíðan eftir að hafa
tekið mataræðið í gegn. Margir
séu í þeim sporum sem þau voru í
og þau vilji aðstoða fólk við að
taka næsta skref til vellíðunar.
Þau hefja ferð sína hér á Íslandi
en fara síðar á árinu til Indónesíu
og í byrjun næsta árs til Ástralíu
og Suður-Afríku. Frekari upplýs-
ingar um þau Auði Ingibjörgu og
Kyle má nálgast á vefsíðunum vi-
talitychef.com og kylevialli.com.
Þá má senda Auði Ingibjörgu póst
á heilsukokkur@heilsukokkur.com
Sunny
125 gr jarðarber
3 dl lífrænn kókos/ananassafi
frá Yggdrasil
safi úr 1/4 lime
Aðferð Maukið jarðarberin og
blandið síðan saman við safana.
Óáfengur heilsu-mojito
1 flaska Naturfrisk Lemonade,
frá Yggdrasil
2 þunnar sneiðar af súraldini
2 tsk súraldinkjöt
1/2 tsk hrásykur
8-10 myntulauf
mulinn ís
Aðferð Steytið mintu, limekjöt
og hrásykur í mortéli, hellið yfir
mulinn ís í tveimur glösum, hellið
límonaði yfir og skreytið með
limesneið.
Mojito Óáfengur og frískandi
heilsu-mojito.
Við ætlum að nýta
okkur það sem fæst í
heimahögunum eins og
ber, hvönn og arfa.
Ljósmynd/Hrund Jakobs
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2010
M
bl
11
82
44
1
UNDIRFÖT • SUNDFÖT
Skálastærðir A-FF
Kvenfatnaður
Stærðir 36-46
Hæðasmára 4
- Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Símar 555 7355 - www.selena.is
Útsala útsala
30-60% afsláttur af völdum vörum
Daglegt líf 11
Reykjavíkurmaraþonið fer fram hinn
21. ágúst næstkomandi og hafa helstu
hlaupagarpar landsins verið duglegir
við æfingar í sumar. Að hlaupa mara-
þon er áskorun og ekki síst gagnvart
sjálfum sér. Margir líta því á þátttöku í
hlaupinu sem tækifæri til að taka sig á
og njóta þess að geta stefnt að
ákveðnu markmiði við æfingar. Boðið
er upp á fjórar vegalengdir í ár en
hægt er að hlaupa maraþon (42,2 km),
hálfmaraþon (21,1 km), 10 km og 3 km
skemmtiskokk. Í fyrsta skipti verður
einnig boðið upp á boðhlaup en þá
geta tveir til fjórir hlauparar skipt á
milli sín maraþoni. Á vefsíðunni
hlaupastyrkur.is er hægt að heita á
ákveðna hlaupara sem hafa valið að
hlaupa í þágu góðs málefnis. Skráðir
góðgerðahlauparar á marathon.is skrá
sig til leiks á síðunni undir hnappinum
„Nýskráning“ og velja sér góðgerða-
félag. Eftir nýskráningu geta allir heit-
ið á viðkomandi hlaupara með sms-
sendingu eða kreditkortagreiðslu en
upphæð áheita er að eigin vali. Hægt
verður að heita á góðgerðahlaupara
fram að miðnætti 23. ágúst en nú þeg-
ar hafa safnast hátt í tvær milljónir
króna. Reynum öll að hlaupa eða gefa
til góðs!
Vefsíðan www.hlaupastyrkur.is
Maraþon hlaup-
ið til góðs