Morgunblaðið - 03.08.2010, Síða 15

Morgunblaðið - 03.08.2010, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 2010 Prinsessa Crown Princess er stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur til Reykjavíkur í sumar. Það er engu líkara en að hér sé gríðarstórt fjölbýlishús á siglingu með íbúa sína innanborðs. Árni Sæberg Föstudaginn 23. júlí 2010 komst Héraðs- dómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að vextir í gengistryggð- um lánasamningi sem var undir í málinu, myndu miðast við lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabanka Ís- lands á hverjum tíma. Það sem truflaði mig örlítið fyrst við dóminn er að talað er um rangar forsendur í bland við brostnar forsendur í upphafi IV. kafla dómsins. Sagt er að forsenda stefnanda (Lýsingar) hafi verið röng og því brostið. Í II. kafla dómsins eru reifuð lagarök stefn- anda (Lýsingar) og þar eru nefndar rangar forsendur. Þar sem for- sendur stefnanda (Lýsingar) voru rangar frá upphafi, þ.e. við gerð lánasamningsins, og ekkert kom upp sem breytti atvikum, annað en að rangur skilningur stefnanda á lögum var staðfestur fór ég að velta fyrir mér hvernig málið liti út frá sjónarhóli rangra forsendna sem koma fram í 32. gr. l. nr. 7/ 1936: Löggerningur, sem vegna misrit- unar eða annarra mistaka af hálfu þess er gerði hann hefur orðið ann- ars efnis en til var ætlast, er ekki skuld- bindandi fyrir þann sem gerði hann ef sá maður, sem löggern- ingnum var beint til, vissi eða mátti vita að mistök hefðu átt sér stað. Þetta ákvæði rímar ágætlega við atvik þessa máls, þar sem annar aðili semur samninginn einhliða án samráðs við gagn- aðila. Í þessu ákvæði er talað um mistök af hálfu þess sem samning- inn gerði. Lántakinn hafði eins og héraðsdómur nefnir, eingöngu möguleika á því að velja milli teg- unda lána (eða sleppa því alfarið að taka lán). Lánasamningurinn varð því fyrir mistök lánveitanda annars efnis en upphaflega var stefnt að, vegna þess að lánveitandi taldi ranglega að sér væri heimilt að lána með tilteknum hætti. Það er skilyrði fyrir því að hægt sé að beita 32. gr. smnl. að gagnaðilinn (lántakandinn) vissi eða mátti vita að sá sem gerði samninginn (lán- veitandi) væri í villu um efni hans. Í þessu felst að lántakinn þurfti að vita af því að ólögmætt væri að gengistryggja lán í erlendri mynt eða það væri svo augljóst fyrir við- komandi að hann gæti ekki haldið því fram að hann vissi það ekki (hann væri grandsamur). Það er ekki líklegt að lántakinn yrði talinn grandsamur þar sem þessi lán voru veitt athugasemdalaust frá 2001 og þar til Björn Þorri Viktorsson hrl. og fleiri fóru að benda á að þetta kynni að vera ólögleg aðferð við lánveitingu. Það kann að vera eðli- legt að ætla, að lögfræðimennt- uðum aðilum sem skoðuðu lögin um vexti og verðtryggingu hafi mátt vera þetta ljóst eftir lestur frum- varps þeirra laga. Það er þó ekki einhlítt því lögfræðingar eru ekki sammála og sumir telja að geng- istryggingin sé lögmæt en réttar- farslegar aðstæður hafi bundið hendur Hæstaréttar. Því hefur ver- ið haldið fram að lánasamningurinn hafi verið hagstæðari fyrir skuld- ara þegar hann var gerður og því væru ákvæði hans undanþegin 13. og 14. gr. vaxtalaga sbr. 2. gr. sömu laga og gengistryggingin því ekki ólögmæt. Af þessu má vera ljóst að meira að segja lögfræði- menntaðir aðilar þurfa að skoða málið rækilega og jafnvel eftir skoðun málsins eru þeir ekki endi- lega sammála. Því er ólíklegt að uppfyllt séu skilyrði rangra for- sendna um grandsemi gagnaðila (lántakanda). Þó er í undantekning- artilfellum hægt að víkja frá þessu skilyrði. Héraðsdómur byggir niðurstöðu sína á brostnum forsendum, telja verður, ef á annað borð er fallist á brostnar forsendur, að skilyrði um verulega ákvörðunarforsendu og grandsemi aðila um mikilvægi for- sendu séu uppfyllt. Þó er ekki eins óumdeilt að sjónarmið um að nið- urstaða sé ekki ósanngjörn fyrir gagnaðila sé uppfyllt. Ekki ber að miða við stöðu lántakanda þegar samningurinn var ólögmætur, því hann var aldrei gildur sem slíkur. Heldur ber að miða við samning eins og hann er, þegar hann upp- fyllir skilyrði laga. Einnig má líta til þess að lántakinn tók sér geng- istryggt lán sem er ekki það sama og verðtryggt lán. Því verðtrygg- ingin er hugsuð til að tryggja verð- gildi greiðslna til lánveitanda og vernda hann frá því að verðbólga eyðileggi hagnað sem hann annars hefði af láninu. Gengistrygging virkar þannig að lán breytist í sam- ræmi við breytingar á gengi ákveð- ins gjaldmiðils, t.d. evru, banda- ríkjadollars eða jena, allt eftir því hvernig samið var. Það er mik- ilvægur munur á þessu tvennu. Lántaki sem tók gengistryggt lán gerði það í flestum tilfellum til að sleppa við verðtrygginguna og fá sambærileg kjör og er víða erlend- is. Gengistryggingin tengist ekki verðgildi greiðslnanna og því ekki líklegt að lántaki hafi viljað ein- hvers konar verðvísitölu. Hann vildi lága vexti, svipaða og hægt er að fá víða erlendis og taldi að gengissveiflur yrðu sér hag- kvæmar. Því er allt eins líklegt að hann hefði hafnað því að taka verð- tryggt lán hefði hann ekki fengið gengistryggt lán. Þá er einnig erf- itt að ímynda sér að skuldari hefði viljað taka óverðtryggt lán með allt að 20,9% vöxtum. Þar sem geng- istryggða lánið var með lága vexti, má ætla að lántaki hafi haft það sem forsendu af sinni hálfu að vextir væru sem lægstir. Það verð- ur fróðlegt að sjá hver niðurstaða Hæstaréttar verður og hvort hann byggir á brostnum eða röngum for- sendum. Eftir Ólaf Egil Jónsson »Héraðsdómur byggir niðurstöðu sína á brostnum forsendum, telja verður, ef á annað borð er fallist á brostnar forsendur, að skilyrði um verulega ákvörð- unarforsendu og grand- semi aðila um mikilvægi forsendu séu uppfyllt. Ólafur Egill Jónsson Höfundur er lögfræðingur (með BA- gráðu). Telja dómstólar útilokað að lántakendur fái lán með 2-4% vöxtum?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.