Morgunblaðið - 13.08.2010, Síða 9

Morgunblaðið - 13.08.2010, Síða 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010 Morgunblaðinu hefur borist at- hugasemd frá Árna Tómassyni, formanni skila- nefndar Glitnis, vegna forsíðu- fréttar blaðsins í gær. Í fréttinni kemur fram að Árni telji það koma til greina að kanna kröfu á hendur ríkisins ef sannað verður að efnahags- og við- skiptaráðherra hafi haldið lögfræði- álitum leyndum um lögmæti geng- istryggingar. „Af þessu tilefni vill undirritaður taka fram að ég hef ekki reynt fjár- málaráðherra eða viðskiptaráð- herra eða starfsmenn ráðuneytanna að öðru en heilindum í samninga- viðræðum um endurfjármögnun bankanna sumarið 2009. Umræða um gengisóvissu lána kom ekki sér- staklega til umræðu eftir því sem ég man best. Ekki var í viðtalinu fjallað sérstaklega um álit mitt á því hvaða vitneskja lá fyrir í viðskiptaráðu- neytinu þegar samningar fóru fram eða þátt viðskiptaráðherra í því. Aðspurður um kröfur lánar- drottna á hendur ríkinu vegna geng- isdóms Hæstaréttar sagði ég að þetta hefði komið til umræðu, en ef dómur héraðsdóms um vaxtaþátt stæði óbreyttur teldi ég ekki sér- staka ástæðu til aðgerða af hálfu Glitnis. Öðru máli gilti ef önnur nið- urstaða fengist í Hæstarétti, sem hefði neikvæð áhrif á verðgildi lán- anna frá sjónarhóli lánardrottna bankanna. Með vísan til þess sem að framan greinir, er það álit mitt að framsetn- ing fréttar Morgunblaðsins á forsíðu með tilvísun í undirritaðan sé ekki réttmæt og ekki í samhengi við inn- tak fréttarinnar á innsíðu blaðsins.“ Athugasemd frá Árna Tómassyni Árni Tómasson Enn er hægt að gera góð kaup. Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is Opið laugard. 10-15 í Bæjarlind. ÚTSALA 60 - 85% afsláttur á útsölunni. ansararD www.jsb.is Jazzballett - Innritun fyrir haustönn stendur yfir! Sími 581 3730 Nám og kennsla Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem listdansskóli á grunn- og framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB. Kennslustaðir: l Danslistarskóli JSB í Kópavogi, Íþróttahúsi Digraness. l Danslistarskóli JSB í Reykjavík, Lágmúla 9 og Laugardalshöll. FRAMHALDSNEMENDUR OG NÝNEMAR Rafræn skráning er á www.jsb.is, upplýsingar í síma 5813730. Jazzballett l Skemmtilegt og fjölbreytt dansnám fyrir stelpur og stráka frá 7 ára aldri l Góð og uppbyggileg líkamsþjálfun sem veitir mikið frelsi til tjáningar l Dansbikarinn - Árleg danskeppni í skólanum fyrir þá sem vilja spreyta sig l Skólaárinu lýkur með glæsilegri nemendasýningu í Borgarleikhúsinu Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili að Frístundakorti Reykjavíkurborgar. Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.isEF L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Stundaskrá birtist á vefnum 20. ágúst. Kennsla hefst mánudaginn 30. ágúst. Fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair Group er nú lokið og hafa fjárfestar í heild skráð sig fyrir 5,5 milljörðum króna að markaðsvirði í nýju hlutafé sem jafngildir 2,2 millj- örðum nýrra hluta í Icelandair Gro- up. Félagið tilkynnti í júní, að Fram- takssjóður Íslands (FSÍ) og Lífeyr- issjóður verzlunarmanna (LV) hefðu gert bindandi samkomulag um að sjóðirnir myndu fjárfesta í Ice- landair Group fyrir 4 milljarða króna á genginu 2,5. Í samkomulaginu skuldbatt FSÍ sig til að leggja fram 3 milljarða króna og eignast þar með 1,2 millj- arða nýrra hluta í félaginu. LV skuldbatt sig til að fjárfesta í félag- inu fyrir 1 milljarð króna og eignast þar með 400 milljónir nýrra hluta í félaginu. Samkomulagið miðar við að stærstu lánveitendur Icelandair Group breyti skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum. Endurskipulagningu Icelandair Group lokið Morgunblaðið/Ernir Icelandair Ekki á hverjum degi sem vélar félagsins lenda í Reykjavík. Lögreglan á höf- uðborgarsvæð- inu stöðvaði öku- mann á þrítugsaldri á Breiðholtsbraut í gær. Sást þá til hans tala í far- síma undir stýri, án handfrjáls búnaðar. Í ljós kom að maðurinn hafði verið sviptur ökuleyfi, bíllinn ótryggður og óskoðaður og að auki rangt skráningarnúmer. Einn ökumaður með allt niður um sig

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.