Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010
10 Daglegt líf
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Ég byrjaði að æfa kraft-lyftingar fyrir tveimur ár-um, 15 ára gamall,“ segirJúlían.
Hvað var til þess að þú fórst að
æfa þær?
„Ég er ekki alveg viss. Mig lang-
aði bara að verða sterkur. Ég held að
ég hafi alltaf verið sterkur en mig
langaði til að verða sterkari.“
Júlían byrjaði að lyfta í World-
class en æfir nú hjá Breiðabliki í
Kópavogi. „Þegar það var komin dá-
lítil alvara í þetta hjá mér, og ég byrj-
aði að verða stærri og sterkari, fór ég
að æfa í Breiðabliki og á fleiri stöðum
þar sem er meiri alvara í æfingunum.
Núna er ég með þjálfara sem hefur
hjálpað mér mjög mikið, Halldór
Jónhildarson heitir hann,“ segir Júl-
ían sem æfir fjórum sinnum í viku all-
an ársins hring.
Fannstu strax að þetta var við
þitt hæfi?
„Já, ég var búinn að vera í
nokkrum íþróttum áður, var í körfu-
bolta og smá í júdói og einhvern tím-
ann í fótbolta. En um leið og ég fór að
æfa lyftingar var ekkert annað sem
komst að.“
Uppskerð eins og þú sáir
Hvað er svona skemmtilegt við
kraftlyftingar?
„Þetta er svo bein íþrótt, ef þú
tekur vel á því og æfir vel sést það,
árangurinn kemur í ljós, þú uppskerð
eins og þú sáir. Það er líka gaman að
verða alltaf sterkari og sjá breyt-
inguna á sjálfum sér.“
Júlían keppti í fyrsta skipti í
„Mig langaði til að
verða sterkari“
Júlían Jóhann Karl Jóhannsson langaði að verða sterkari og stærri og hóf því að
æfa kraftlyftingar fyrir tveimur árum. Júlían er sautján ára nemandi við Mennta-
skólann við Hamrahlíð og hefur nú slegið Íslandsmetið í sínum aldurs- og þyngd-
arflokki um þrjátíu sinnum. Júlían Jóhann Karl hefur heldur betur orðið var við
að stelpurnar laðist að stórum og sterkum strákum.
Með krafta í kögglum Júlían lyftir í æfingaraðstöðu Breiðabliks.
Hin rómantíska Jenn Thorson er frá
Pittsburgh í Bandaríkjunum. Hún
heldur úti vefsíðunni Thriftshoprom-
antic.blogspot.com þar sem hún
fjallar um hvernig hægt er að halda
úti heimili í vintage-stíl. Hún fer mik-
ið á markaði og í verslanir sem selja
gamla hluti og elskar að finna hluti
sem hún hefur verið að leita að og
aðra sem hún vissi ekki að væru til.
Thorson er hrifin af antíkhlutum
og miðað við myndirnar sem hún set-
ur á bloggsíðuna kaupir hún aðallega
rómantíska hluti til heimilisins, það
má sjá mikið af rósóttum skálum og
bollum, kristal og blúndum og öðru
stelpulegu, sætu og bleiku.
Hún segir frá ferðum sínum á flóa-
markaði og hvað hún fann þar, hún
tekur myndir af því sem henni líst vel
á og segir frá hvaða tímabili það er.
Thorson er líka hrifin af gamalli tísku
og birtir myndir og umfjallanir úr
gömlum tísku- og prjónablöðum.
Thriftshopromantic.blogspot.com
er góð vefsíða fyrir þá sem hafa gam-
an af því að skreyta heimili sitt með
gömlum og góðum hlutum.
Vefsíðan www.thriftshopromantic.blogspot.com
Morgunblaðið/ÞÖK
Kaffistell Thorson yrði hrifin af þessu rómantíska kaffistelli.
Gamaldags og rómantísk
Karl Lagerfeld lét fyrirsætur sínar klæðast
loðnum stígvélum þegar hann kynnti haust-
og vetrarlínu Chanel 2010/11 í París í vor.
Þetta voru mjög loðin stígvél úr gæru eða
feldi sem náðu alveg upp að hnjám. Þessi
skóbúnaður átti vel við á tískusýningunni
þar sem sýningarpallurinn var eins og klaka-
borg og fyrirsæturnar eins og eskimóar.
Ekki halda að þótt loðin stígvél hafi sést
hjá Chanel séu þau að komast í tísku og ef
þau gera það, ekki fá þér ein slík. Mundu eft-
ir Ugg Boots-skótískunni. Loðin stígvél eru
ekki flott á neinum nema þá kannski 190 cm
fyrirsætu með spóaleggi. Aðrar styttast og
líta út eins og lítil tröllabörn í svona skóbún-
aði. Fáðu þér frekar flott leðurstígvél sem
gera eitthvað fyrir leggina eða gúmmístíg-
vél, bara ekkert loðið.
Endilega …
… ekki fá ykkur
loðin stígvél
Chanel Flottur kjóll en ljótir skór.
Megrunarkúrar eru jafn ólíkir og þeir
eru margir. Sumir teljast heilsu-
samlegir á meðan aðrir eru hreinlega
hættulegir heilsunni. Margir skrýtnir
kúrar hafa náð miklum vinsældum á
þessu ári. Þar má meðal annars
nefna hinn svokallaða smáköku-
kúr, en samkvæmt honum er
einungis leyfilegt að borða sex
smákökur auk
einnar hollrar
máltíðar á dag
þar til mark-
miðsþyngd er
náð.
Á síðustu mán-
uðum hafa margar
stjörnur fylgt
barnamatark-
úrnum, en sam-
kvæmt slúð-
urpressunni
vestanhafs var
leikkonan
Jennifer Aniston ein af
þeim. Líkt og nafnið gefur
til kynna samanstendur
kúrinn af nokkrum
skömmtum af barnamat.
Þá hefur skyndibita-
staðurinn Taco Bell í
Bandaríkjunum auglýst
matarkúr sem nefnist
bílalúgukúrinn. Þó svo
að hann hljómi ekki trú-
verðuglega reynir stað-
urinn að sannfæra fólk
og vísar máli sínu til
stuðnings til við-
skiptavinar sem segist hafa misst ein
25 kg með því einu að fylgja honum.
„Í hvert einasta skipti sem nýr
megrunarkúr kemur á markaðinn þá
vill fólk prófa. Það er bandaríska leið-
in. Við viljum að hlutirnir gerist
hratt. Við viljum þá núna og
við viljum ekki þurfa að hafa
mikið fyrir þeim,“ segir Dav-
id Edelson, stofnandi fyrir-
tækisins HealthBridge sem
sérhæfir sig í megrunar-
ráðgjöf.
Samkvæmt bandarísk-
um heilbrigðisyfir-
völdum eyða Banda-
ríkjamenn mörgum
milljörðum í megr-
unarvörur. Konur kaupa
ívið meira af vörunum
en karlar, enda er talið
að 45% kvenna séu í
megrun á degi hverjum.
Að sögn Mary Gocke,
bandarísks sérfræðings í
megrunarráðgjöf, eru
konur 10 sinnum líklegri
til að ganga of langt í
megrunarkúrum.
„Margir kúrar sem konur
reyna ganga út á það að
borða sem fæstar kaloríur.
Þessir kúrar geta hreinlega
verið lífshættulegir.“
Heilsa
Vafasamir megrunarkúrar
Megrun Jennifer Aniston
er sögð borða barnamat til
að halda línunum í lagi.
Þegar ég var í menntaskóla sat ég valáfangaþar sem fjallað var um leikhús í víðum skiln-ingi. Í einum tímanum kom virt leikskáld íheimsókn og hvatti okkur til að skrifa hand-
rit. Gott væri að byrja á einhverju einföldu til að æfa
sig og styðjast við formúlu, þótt það hljómaði ef til
vill ekki listrænt væri það ágætis byrjun.
Ein slík leið væri að sjá fyrir sér handahófskenndar
aðstæður og planta þar inn skemmtilegum persónum.
Það er lykilatriði að persónurnar séu afar ólíklegar til
að lenda í aðstæðunum. Þær þurfa líka að hafa ákveð-
inn karakter sem allir þekkja. Með þetta að leiðarljósi
mætti hugsa sér tónlistarmanninn geðþekka Júlí
Heiðar taka viðtal við Sigurð Líndal lagaprófessor um
birtingarmynd umhverfisfemínisma í ljóðum Ein-
ars Benediktssonar fyrir bókmenntaþáttinn Kilj-
una. Sömuleiðis mætti sjá fyrir sér Halldór Ás-
grímsson, fyrrverandi forsætisráðherra,
stjórna lífsstíls- og hönnunarþáttunum Innlit-
útlit í félagi við tanaða ofurmanninn Ásgeir
Kolbeins. Þarna myndu skapast ansi áhuga-
verðar aðstæður sem ég fullyrði að myndu í
það minnsta fá mikið áhorf í sjónvarpi.
Vinsælir sjónvarpsþættir byggjast nú
oftar en ekki á svona fáránlegum
aðstæðum. Nær allir grínþættir
fjalla um feita menn, vel undir
meðalgreind, sem gera lítið ann-
að en að drekka bjór og horfa á
sjónvarp. Samt eiga þeir gull-
fallegar eiginkonur, vel gefin
börn og búa í risastórum hús-
um.
Það virðist kannski fáránlegt
en jafnvel hinar undarlegustu
aðstæður eru alls ekki svo fá-
ránlegar þegar á hólminn er
komið. Jón Gnarr er borg-
arstjóri í Reykjavík eins og
ekkert sé eðlilegra. Einhvern
tíma hefði það verið efni í grínskets að láta Jón Gnarr
sitja við hlið forseta Íslands við hátíðarhöldin 17. júní.
Þvert á móti þótti mér ekkert athugavert þegar ég sá
Jón Gnarr klæddan jakkafötum taka í höndina á
Dorrit Moussaieff forsetafrú fyrir utan dómkirkjuna
á þjóðhátíðardaginn. Það var eins og maðurinn hefði
alltaf verið borgarstjóri.
Ég má til með að nefna, í þessum samhengi, að fyr-
ir nokkru var ég spurður til vegar. Það væri ekki frá-
sögur færandi nema vegna þess að ég var staddur í
Kaupmannahöfn og sá sem spurði mig gerði það á
sænsku. „I vilken riktning är Kongens Nytorv,“ sagði
þessi glaðbeitti svarthærði Svíi. Hann hét
Muhammad og var ekki einn á ferð því
með honum var öll stórfjölskyldan.
Konan hans var klædd búrku frá
toppi til táar að íslömskum sið og
börnin voru klædd í treyjur
enskra knattspyrnuliða. Þetta
finnst mér skemmtilegt en um
leið mjög súrrealískt. Mér fannst
samt ekkert eðlilegra. Það var
ekki fyrr eftir að samtali okkar
var lokið að ég fór að hugsa um
grínhliðina á þessari uppákomu.
Sænskur Muhammad spyr ís-
lenskan Hjalta Geir til vegar, á
sænsku, í Kaupmannahöfn.
Gleðilega ramödu!
Hjalti Geir Erlendsson | hjalti-
geir@mbl.is
»Með þetta að leiðarljósi mættihugsa sér tónlistarmannin geð-
þekka Júlí Heiðar taka viðtal við Sig-
urð Líndal lagaprófessor um birting-
armynd umhverfisfemínisma.
HeimurHjalta Geirs