Morgunblaðið - 13.08.2010, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
FRÁBÆR GRÍNMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA!
HHHH
„BRÁÐFYNDIN OG HJARTNÆM
FRÁ BYRJUN TIL ENDA, LANG
BESTA SHREK MYNDIN OG
ÞAÐ ERU ENGAR ÝKJUR.“
BOXOFFICE MAGATZINE
HHHH
„MEÐ LOKAKAFLANUM
AF SHREK TEKST ÞEIM
AÐ FINNA TÖFRANA AF-
TUR.“
EMPIRE
HHHH
„ÞRÍVÍDDIN ER
ÓTRÚLEGA
MÖGNUГ
NEW YORK DAILY NEWS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
SPARBÍÓ 950 krkr á allar sýningar merktar með grænu
SALT kl.5:50-8-10:10 14 SHREK: SÆLL ALLA DAGA m. ísl. tali kl.1:303D -3:403D -5:503D L
THE SORCERERS APPRENTICE kl.1 -3:20-5:40-8-10:20 7 SHREK: SÆLL ALLA DAGA m. ísl. tali kl.1:30 - 3:40 L
INCEPTION kl.4 -7-8-10:10-11 L SHREK: FOREVER AFTER m. ensku tali kl.5:50 L
INCEPTION kl.2 -5-8-11 VIP-LÚXUS SEX AND THE CITY 2 kl. 8 12
LEIKFANGASAGA 3 m. ísl. tali kl. 1 - 1:50 - 3:20 L TWILIGHT SAGA : ECLIPSE kl.10:50 12
/ ÁLFABAKKA /
THE LAST AIRBENDER kl. 5:503D -83D -10:503D 10
THE SORCERERS APPRENTICE kl. 3:20- 5:40-8-10:20 7
INCEPTION kl. 8 -10:20 12
LEIKFANGASAGA 3 3D m. ísl. tali kl. 3:203D L
OG SELFOSSI
HHH
„Jolie stendur sig vel sem kvenkyns
útgáfan af Jason Bourne og myndin er
hugsanlega ein sú hraðskreiðasta sem
ég hef séð í allt sumar.”
T.V. - Kvikmyndir.is
Dagurinn í dag vekur
eflaust óhug hjá
mörgum og því ekki
sjálfgefið að menn
setji hryllingsmynd í
tækið þegar rökkva
tekur. Fyrir þá fífl-
djörfu er hér listi yfir
ódauðlegar kvik-
myndir sem fá hárin
til að rísa og hjartað
til að slá örlítið hrað-
ar.
Psycho (1960)
Meistaraverk Alf-
reds Hitchcock er ein
þekktasta hryllingsmynd sögunnar.
Í henni er að finna eitt frægasta at-
riði kvikmyndasögunnar, „sturtuat-
riðið“, með tilheyrandi öskrum og
blóði.
The Exorcist (1973)
Alvöru hrollvekja sem vakti mikl-
ar deilur innan kaþólsku kirkjunnar
er hún kom út. Þeir allra hörðustu
ættu að koma höndum yfir The Ex-
orcis,t Director’s Cut þar sem ódauð-
legu köngulóaratriði bregður fyrir.
Halloween (1978)
Hinum snargeðveika hrotta
myndarinnar Halloween, Michael
Myers, gleyma menn seint. Hann
hræddi líftóruna úr fólki á áttunda
áratugnum og er að enn þann dag í
dag.
Alien (1979)
„Það heyrir þig enginn öskra í
geimnum, en það heyra allir öskrin í
þér er þú horfir á þessa mynd.“ Svo
er myndinni Alien líst. Þarf að segja
meira?
The Shining (1980)
Skáldsaga Stephens King var gerð
að meistarastykki á níunda áratugn-
um. Tónlist myndarinnar ein og sér
gefur áhorfandanum gæsahúð. Jack
Nicholson hefur sjaldan verið betri:
„Here’s Johnny.“
FÖSTUDAGURINN 13.: KVIKMYNDIRNAR»
Alls ekki fyrir viðkvæma
Það þarf kannski ekki að koma á
óvart en föstudagurinn 13. hefur
verið hljómlistarmönnum innblástur
í gegnum tíðina og hundruð laga
hafa verið samin sem bera þennan
einfalda titil, „Friday the 13th“. Hér
eru nokkur dæmi
„Friday the 13th“ með Atomic
Rooster
Þetta sæmilega áhrifaríka rokk-
band frá Bretlandi (Carl Palmer var
trymbill) gaf út samnefnda plötu ár-
ið 1970. Kannski til að storka örlög-
unum opnuðu þeir plötuna með
þessu lagi.
„Friday the 13th“ með Dec-
ember Wolves
Eins og nafnið gefur til kynna er á
ferðinni rokk í þyngri kantinum.
Lagið er af hinni smekklega titluðu
Completely Dehumanized. Það kem-
ur samt á óvart hversu fáar þunga-
rokksveitir hafa verið að tappa inn í
föstudags 13. stemmarann.
„Friday the 13th“ með Thelon-
ius Monk
Meistarinn tók lagið upp í nóv-
ember 1953, föstudaginn 13. Á leið-
inni í hljóðverið lentu Monk og
Sonny Rollins í árekstri, en þeir
deildu leigubíl, og var lagið samið af
þessu tilefni. Það lag með þessum
titli sem hefur oftast verið endur-
flutt af öðrum.
„Friday the 13th“ með Alvin
Lee
Lee var meðlimur í Ten Years Af-
ter en þegar þetta lag kom út, árið
1978, hafði frægðarsólin hnigið veru-
lega. Lagið ber því líklega nafn með
rentu.
„Friday the 13th“ með Cortex
Bomb
55 sekúndna lag af plötunni Need
to Scream Have No Mouth frá 1999.
Tilraunasveit frá Tucson, í anda
John Zorn og Boredoms. Þar hafið
þið það …
December Wolves Eldhressir að
vanda, enda föstudagurinn 13.
genginn í garð.
Thelonious Monk Óhapp á leið í
hljóðver varð til þess að hann gaf
lagasmíð nafnið „Friday the 13th“.
FÖSTUDAGURINN 13.: TÓNLISTIN»
Hjátrúarsöngvar