Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. S E P T E M B E R 2 0 1 0  Stofnað 1913  203. tölublað  98. árgangur  GARÐAR THÓR SYNGUR Á HÁ- DEGISTÓNLEIKUM Í FLOKKI MEÐ PINK FLOYD OG BOB DYLAN SYNGJANDI BARNI LÍÐUR YFIRLEITT VEL POLARVERÐLAUN BJARKAR 33 TÓNLISTARUPPELDI 10ÍSLENSKAR SÖNGPERLUR 28 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Verið er að leggja lokahönd á breyt- ingar á ríkisstjórn Íslands, sem m.a. fela í sér að þeir ráðherrar sem gjarnan hafa verið nefndir fagráð- herrar, þau Ragna Árnadóttir dóms- málaráðherra og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, láta af störfum. Þegar hefur verið rætt við þau um starfslok. Þetta hefur Morgunblaðið eftir áreiðanlegum heimildum. Undirbúningur þessara breytinga hefur staðið um allnokkurt skeið og búist er við því að breytingarnar verði gerðar opinberar eigi síðar en fyrir hádegi á morgun á Alþingi, en seint í gærkvöld var þó engin end- anleg niðurstaða komin í málalok. Búist er við því að efnahagsmálin verði flutt frá viðskiptaráðuneytinu til fjármálaráðuneytisins, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Álfheiður og Kristján út Jafnframt er í undirbúningi hjá ríkisstjórninni að einn ráðherra verði settur yfir sem velferðarráðherra og yrði þannig yfir félagsmála- og heil- brigðisráðuneytum, án þess að ráðu- neytin yrðu sameinuð þegar í stað, og sömuleiðis, að einn ráðherra yrði settur yfir sem innanríkisráðherra, sem fæli það í sér að einn og sami ráð- herrann yrði yfir dómsmála-, mann- réttinda- og samgönguráðuneytum, án þess að ráðuneytin yrðu þegar í stað sameinuð. Samkvæmt þessu munu þau Álf- heiður Ingadóttir heilbrigðisráð- herra og Kristján Möller samgöngu- ráðherra víkja úr ríkisstjórn, en Ögmundur Jónasson verður innan- ríkisráðherra og Guðbjartur Hann- esson velferðarráðherra, en Árni Páll Fjórir á leiðinni út úr ríkisstjórn Jóhönnu  Gylfi og Ragna hætta  Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra  Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra  Árni Páll Árnason viðskiptaráðherra Árnason tæki sæti viðskiptaráð- herra. Þá mun enn ekki liggja fyrir hve- nær ætlunin sé að stofna eitt atvinnu- vegaráðuneyti, en ljóst mun vera að það verði í fyrsta lagi einhvern tíma á næsta ári, þannig að fækkun ráðu- neyta, að því leytinu, er ekki á döfinni á vettvangi ríkisstjórnarinnar, a.m.k. ekki fyrst um sinn. Samþykkt var á þingflokksfundi Samfylkingarinnar í fyrradag, sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins, að fela formanni Samfylkingar- innar, Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, fullt umboð til þess að ganga frá því hver tekur við af Gylfa Magnússyni. Morgunblaðið/Ernir Breytingar Árni Páll á leið frá stjórnarráðinu en skv. heimildum Morgunblaðsins verður hann viðskiptaráðherra. Steinn Logi Björnsson, nýr stjórnarformaður Haga, segir að mikill kostnaður vegna undirbún- ings við skráningu Haga hafi dregið niður afkomu fyrirtækisins á síðasta ári. Rekstur Haga skilaði 44 milljón króna hagnaði á síðasta ári, en fyrirtækið er með um það bil helmingsmarkaðshlutdeild á ís- lenskum matvörumarkaði. Stjórn Haga samþykkti Greint var frá því í fyrradag að Jóhannes Jónsson myndi hætta afskiptum af rekstri Haga. Gerður var starfslokasamn- ingur við Jó- hannes, sem fól meðal annars í sér 90 milljón króna ein- greiðslu. Steinn Logi segir að stjórn Haga hafi samþykkt samn- inginn. Arion banki hafi hins veg- ar séð um gerð samningsins. thg@mbl.is » 14 Skráningin er dýr  Starfslokasamningur gerður af Arion Lánasjóður sveitarfélaga hefur í fyrsta skipti gengið að veði í tekjum sveitarfélags vegna láns sem komið var í vanskil. Það gerð- ist á fyrri helmingi ársins, sam- kvæmt upplýsingum úr skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra með sex mánaða uppgjöri Lána- sjóðsins. Ekki fæst gefið upp hvaða sveit- arfélag á í hlut en eftir að Lána- sjóðurinn tilkynnti ráðherra sveit- arstjórnarmála um vanskilin í því skyni að ganga að greiðslum úr Jöfnunarsjóði og útsvarstekjum sem ríkið innheimtir var láninu komið í skil. Því reyndi ekki frekar á málið. Lánasjóðurinn veitir sveitar- félögum, fyrirtækjum þeirra og stofnunum lán til tiltekinna fram- kvæmda og verkefna og tekur ávallt veð í tekjum þeirra til trygg- ingar. Hafa þetta reynst trygg veð því sjóðurinn hefur aldrei tapað á útlánum sínum. Þegar vanskil hafa staðið í þrjá- tíu daga eða lengur getur sjóð- urinn gengið að veði sínu í tekjum viðkomandi sveitarfélags. »4 Gengið að veði í tekjum sveitarfélags Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætis- ráðherra ræddi við nokkra þingmenn og ráðherra Sam- fylkingarinnar um breytingar í ríkis- stjórn undir fjögur augu í stjórnar- ráðinu í gærkvöldi. Á leið sinni út úr stjórnarráðinu sagðist Katrín Júlíusdóttir ekki telja ráðherra og þingmenn Vg ósátta við breyting- arnar. „Þetta er ákveðið í stjórn- arsáttmála þannig að það er ekki yfir neina menn vaðið í því.“ Kristján Möll- er vildi ekki tjá sig um hvort hann yrði áfram ráð- herra og sagðist aldrei leggja mat á sína pólitísku stöðu í stjórn- málum. „Ég veit ekkert um þetta, við sjáum bara hvernig málin æxl- ast.“ Gylfi Magn- ússon sagði í gær- kvöldi að breyt- ingar hefðu lengi legið í loftinu. „Þetta á sér langan aðdraganda í þeim skilningi.“ Breytingar lengi legið í loftinu Katrín Júlíusdóttir Kristján Möller Gylfi Magnússon  „Reglan hjá okkur er sú að vera ekki með miklar yfirlýs- ingar nema í samráði við við- komandi ein- stakling og ekki liggur fyrir ákvörðun í þessu máli. En mér finnst þetta afar sérkennileg málsmeðferð,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisstofu, um mál Ástu H. Bragadóttur og Íbúða- lánasjóðs að undanförnu. Kristín segir vel fylgst með málinu. »6 „Afar sérkennileg málsmeðferð“ Kristín Ástgeirsdóttir Heimildir úr þing- flokki VG herma að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra, muni sitja áfram sem ráð- herra. Samfylking- unni hafi einfald- lega ekki tekist að afla áformum um að koma honum út úr ríkisstjórn nægs fylgis og ákveðnir þingmenn VG, þar á með- al Ögmundur Jónasson, hafi lýst því yfir, að þeir styddu Jón Bjarnason til áframhaldandi ráðherradóms. Áfram ráðherra Jón Bjarnason Ögmundur Jónasson verður skip- aður ráðherra dóms-, mannrétt- inda- og samgöngumála en sam- eina á þau í eitt innanríkis- ráðuneyti. Þá verður Guðbjartur Hann- esson skipaður ráðherra heil- brigðis-, félags- og tryggingamála en þau sameinast í velferðarráðu- neyti. Tveir nýir ráðherrar BREYTINGAR Í RÍKISSTJÓRNINNI Guðbjartur Hannesson Ögmundur Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.