Morgunblaðið - 01.09.2010, Síða 16

Morgunblaðið - 01.09.2010, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þrír mánuðireru liðnir fráþví kosið var til sveitarstjórna í landinu. Nýr meiri- hluti í Reykjavík tók við skömmu síðar og því má segja að hveitibrauðsdagarnir séu að baki. Þegar Reykvíkingar skoða störf nýja meirihlutans þessa fyrstu mánuði hljóta þeir að verða hugsi yfir því sem gengið hefur á, því sem gert hefur verið og því sem ekki hefur verið gert. Besti flokkurinn fékk mikinn stuðning þó að fólk vissi lítið fyrir hvað hann stæði, enda gaf hann ekki út neina stefnu sem hann sjálfur tók mark á, hvað þá að aðrir gætu gert það. Þrátt fyrir þetta töldu margir kjós- endur að flokkurinn væri boðberi nýrra tíma og ekki síst nýrra vinnubragða í stjórnmálum. Vafalítið hafa kjósendur flokks- ins talið að hin nýju vinnubrögð yrðu ekki aðeins ný, heldur einn- ig betri en hin eldri og hefð- bundnari. Af þessum sökum hafa ein- hverjir sennilega orðið fyrir von- brigðum með að meirihluta- viðræðurnar eftir kosningar væru lítið annað en leikrit og að tal fyrir kosningar um samvinnu var ekkert annað en einmitt það, tal. Aðrir hafa væntanlega líka orðið fyrir vonbrigðum með að þetta nýja afl í borgarstjórn Reykjavíkur ákvað nánast um- ræðulaust að leiða þann flokk sem mestu tapaði til mestra valda í borginni. Þrátt fyrir þetta er líklegt að fólk hafi gert sér vonir um að nýr meirihluti tæki til hendinni og kynnti loks allar þær hugmyndir sem nýja fólkið sagðist hafa til að bæta borgina og stjórn henn- ar. Þessar hugmyndir láta á sér standa og helsta áþreifanlega breytingin sem borgaryfirvöld hafa staðið fyrir er gríð- arlega mikil hækk- un á orkuverði til borgarbúa. Í stað nýju hugmyndanna sem ýmsir hafa beðið eftir hefur stjórn borgarinnar, fyrir utan gjaldskrárhækkun, aðallega ein- kennst af tvennu. Annars vegar lagðist óvenjulega mikill doði yfir borgina í sumar, ekki síst í ljósi þess að nýr meirihluti var að koma sér fyrir. Segja má að tónninn hafi verið gefinn þegar borgarstjóri hóf störf með því að fara í sumarleyfi og í kjölfarið lá að miklu leyti niðri starf borgar- fulltrúa um fjármál borgarinnar og fleira. Hins vegar hefur stjórn borg- arinnar einkennst af ýmsum furðulegum uppákomum sem flestar tengjast borgarstjór- anum. Hann íhugaði að hætta við flugeldasýningu á menningar- nótt en fékk svo einkafyrirtæki til að styrkja sýninguna. Hann þáði bíl að láni frá einkafyrirtæki og telur það samræmast fyllilega siðareglum borgarinnar. Einnig má nefna að hann kvartaði á dög- unum undan minnihlutaflokki fyrir að taka sér ekki nægilega vel en sagði svo skömmu síðar að sú kvörtun stafaði aðallega af pirringi vegna fráhvarfs- einkenna af nikótíntyggjói. Meirihlutinn í borgarstjórn telur ef til vill að furðulegar uppákomur séu sniðugar, en hætt er við að þær verði þreyt- andi til lengdar og geri þar að auki lítið til að hjálpa trúverðug- leika borgarinnar og fyrirtækja hennar. Það getur orðið dýr- keypt fyrir Reykvíkinga ef við- skiptavinir og lánardrottnar borgarinnar telja að henni sé stjórnað af uppákomum en ekki ábyrgð. Uppákomur og doði hafa einkennt stjórn borgarinnar í sumar } Hveitibrauðsdagar að baki í borginni Fámennið hérgerir frægðina eftirsóknarverða og snertur af heims- frægð er næstum ómótstæðilegur. Einstaka Íslendingur hefur verið allþekktur um skeið, ekki síst á sínu sviði. Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður, söngvararnir Stefán Íslandi, Kristinn Sig- mundsson og Kristján Jóhanns- son, dansarinn Helgi Tómasson, vísindamaðurinn Kári Stefáns- son, rithöfundarnir Halldór Lax- ness, Gunnar Gunnarsson og nú síðast Arnaldur Indriðason. Myndlistarmennirnir Ólafur Elí- asson og Erró, aflraunamað- urinn Jón Páll Sigmarsson og löngu áður Snorri Sturluson svo nokkrir séu nefndir. Þótt útrás- arvíkingar séu nú horfnir af öll- um þekktum vinsældalistum kitl- aði það einnig frægðartaug landans þegar „við“ höfðum eignast þekkt fyrirtæki í ná- lægum löndum. Stimpill Nóbels gef- ur Halldóri Laxness nokkurt forskot í þessum fríða hópi. Enda var um hann sagt að hann hefði verið lifandi stórveldisdraumur fámennrar þjóðar. En sennilega væri ofsagt að hann hafi verið heimsfrægur maður. Eini Íslendingurinn sem náð hefur því er Björk. Hún var á dögunum að taka á móti enn einni verðskuldaðri viðurkenn- ingu fyrir list sína og tilþrif í Sví- þjóð. Ástæða er til að samgleðj- ast henni. Björk segir stundum skoðun sína á lands- og heims- málum. Um þau veit hún sjálf- sagt ekki miklu meira en við hin, þrátt fyrir heimsfrægð. En í Magmamálinu hefur hún verið á réttu róli. Enn fær Björk verðskuldaða viðurkenningu } Björk S léttan er gul og teygir sig út að sjón- deildarhringnum. Endalaus flat- neskja og fátt sem minnir á Ísland ef ekki væri fyrir blá skilti sem hvert á fætur öðru vísa inn heim- reiðina að kunnuglegum bæjarnöfnum: Að- alból, Grund, Húsavík, Drangey. Ummerkin eftir íslenskt landnám er alls staðar að finna við þennan enda Winnipeg-vatns og það gerir mann einhvern veginn kjánalega uppveðraðan. Í ágústbyrjun fór ég um Íslendingaslóðir í Manitoba í Kanada, 135 árum eftir að fyrstu Ís- lendingunum skolaði á land á Víðinesi sunnan við Gimli. Ég neitaði að trúa því fyrr en ég tæki á því að íslenskan gengi ennþá mann fram af manni þarna, eftir allar þessar kynslóðir. Það reyndist líka rétt, að mestu, því það virðist vera fyrst og fremst gamla fólkið, það sem ólst upp við íslensku sem fyrsta mál á æskuheimilinu, sem talar hana. En það er nú svo að þótt við Íslendingar hér heima einblínum gjarnan á tungumálið sem grundvöll þjóðernis okkar þá er fleira sem sameinar mannfólkið og ég fann fljótt fyrir því að þarna voru margir sem úthlutuðu Ís- landi stóran sess í hjarta sínu þótt þeir kynnu aðeins að tjá það á ensku. Einn daginn fórum við amma, minn ágæti ferðafélagi, í siglingu á Rauðánni. Íslendingar höfðu talsvert af ánni að segja í kringum landnámið, ekki síst íslenskir „sjantabú- ar“ í sollinum í Winnipeg. Þegar við komum aftur í land kom ung kona með son sinn hlaupandi á eftir okkur og spurði hvort við værum frá Íslandi. Sjálf var hún það ekki, en maðurinn hennar var hinsvegar þriðju kynslóðar Íslendingur og sonur hennar þar með af íslenskum ættum. Hún vildi því endilega heilsa og óska okkur velfarnaðar. Á rölti um Gimli næsta dag mættum við amma konu sem ýtti á undan sér tveimur barnakerr- um með skellihlæjandi, ljóshærðum syst- kinum. Við stöldruðum aðeins við og hlógum að þeim og með þeim. „Ég er amma,“ sagði kon- an þá allt í einu til útskýringar. „Ég er amma. Hann er þrjú ár. Hún er eitt ár.“ Svo brosti hún afsakandi og útskýrði á ensku að þau hjónin væru bæði af fjórðu kynslóð íslenskra innflytjenda og ljóshærðu barnabörnin því fimmtu kynslóðar Íslendingar. Það sem kom mér því ánægjulega á óvart á þessum slóðum er að þótt íslensk tunga haldi líklega ekki sessi sínum þar mikið lengur mætir manni ótrúleg velvild og hlýja, áhugi og kærleikur meðal þessa fólks sem lítur ennþá á Ísland sem hluta af sínu „heima“ jafnvel þótt það hafi aldrei komið hingað. Ég minnist þess ekki að í minni skólaskyldutíð hafi ein einasta kennslustund verið tileinkuð vesturferðum Ís- lendinga. Samt er þetta saga sem tekur á svo mörgum hliðum samfélagsins og setur okkur í samhengi við um- heiminn. Það er hollt fyrir svona litla og einangraða þjóð sem sjálf hefur stundum sýnt landnemum takmarkaðan skilning. Saga þessa fólks á kannski ekki síst erindi nú þegar landflótti er aftur orðinn raunveruleiki á þessu síð- ari tíma „nýja Íslandi“. una@mbl.is Una Sighvatsdóttir Pistill Heima og heiman STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon HB Grandi með 9,83% af heildaraflamarki FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is H B Grandi er með mest aflamark á fiskveiði- árinu sem byrjar í dag, en samtals er fyrirtækið með 26.578 þorskígildistonn eða 9,83% af úthlutuðu aflamarki. Brim og Sam- herji eru með 6,87% og 6,07% af aflamarkinu, samkvæmt upplýs- ingum frá Fiskistofu. Alls hafa 644 skip fengið úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið og þau sem minnsta hlutdeild hafa eru aðeins með nokk- ur kíló. Skipin voru 678 í upphafi síð- asta fiskveiðiárs. Mestur kvóti er vistaður í höf- uðborginni, en Reykjavík er með 38.700 þorskígildistonn eða 14,3% aflamarksins. Vestmannaeyjar eru með 10,6% aflamarksins og Grinda- vík er heimahöfn 9,6% aflamarksins. Fiskveiðiárið sem nú er að hefj- ast er heimilt að veiða 160 þúsund tonn af þorski og er það í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Heimildir í þorski aukast um tíu þúsund tonn, en samdráttur verður í tegundum eins og ýsu og karfa. Makrílkvóta hefur ekki verið úthlutað fyrir næsta ár, en á þessu ári mega íslensk fiskiskip veiða 130 þúsund tonn. Þorskurinn að braggast Fram kemur í formála Jóhanns Sigurjónssonar, forstjóra Hafrann- sóknastofnunar, með ráðgjöf næsta árs að stofnstærð þorsks er talin hafa verið um 850 þúsund tonn í byrjun þessa árs sem er nokkuð meira en áður var áætlað. Hluta þessa mismunar má rekja til göngu frá Grænlandi sem væntingar hafa verið um. Þetta eru jákvæð teikn og vonandi fyrirboði þess að Græn- landsgöngur verði mikilvægari í ný- liðun þorsks við Ísland líkt og var á hlýskeiði á fyrri hluta síðustu aldar þegar hagstæð skilyrði voru fyrir uppvaxandi þorsk við strendur Grænlands, segir í formála Jóhanns. Jafnframt gefa árgangar frá árunum 2008 og 2009, sem metnir eru vera rétt um meðalstórir og koma í veiðistofninn á árunum 2012 og 2013, fyrirheit um að stofninn muni braggast enn frekar ef nýting stofnsins verður með sama hætti og nú er. Þegar Jón Bjarnason sjáv- arútvegsráðherra kynnti ákvörðun um heildaraflamark á fiskveiðiárinu, sem byrjar í dag, minnti hann á að ákvörðun heildaraflamarks yrði að skoða í ljósi þess að í gangi væri vinna við endurskoðun á fisk- veiðistjórnuninni. Búist er við að starfshópurinn skili skýrslu til ráð- herra í vikulokin. Komið geti til lagabreytinga í vetur sem kveði á um breytta fram- kvæmd úthlutunar, verði um að ræða aukningu á magni í einstökum teg- undum á fiskveiðiárinu. Hátt í þrír milljarðar til greiðslu veiðigjalds Í tilkynningu ráðherra í sumar var rifjað upp að útgerð fiskiskipa greiðir svokallað veiðigjald í rík- issjóð. Gjaldið er lagt á úthlutaðar aflaheimildir eða landaðan afla ein- stakra tegunda. Gjaldið tekur mið af afkomu greinarinnar hverju sinni. Áætlanir gera ráð fyrir að veiðigjald skili 2.700-2.900 m.kr. í ríkissjóð á fiskveiðiárinu 2010/11 og hafi þá hækkað um helming, en á yfirstand- andi fiskveiðiári er áætlað að gjaldið skili um 1.400 m.kr. í ríkissjóð, segir í frétt ráðuneytisins. Heildarafli íslenska flotans fyrstu ellefu mánuði fiskveiðiársins var 948.918 tonn. Það var nokkru minni afli en á sama tíma í fyrra er hann var orðinn 1.133.931 tonn. Aflamark (tonn) eftir fyrirtækjum Eigandi Þorskígildi Hlutfall HB Grandi hf 26.577.800 9,83% Brim hf 18.588.109 6,87% Samherji hf 16.418.206 6,07% Þorbjörn hf 15.013.651 5,55% FISK-Seafood hf 12.877.431 4,76% Vísir hf 11.570.805 4,28% Rammi hf 11.510.433 4,26% Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf 8.969.026 3,32% Vinnslustöðin hf 8.760.937 3,24% Nesfiskur ehf 7.156.756 2,65% Skinney-Þinganes hf 6.194.487 2,29% Ögurvík hf 5.057.430 1,87% Bergur-Huginn ehf 4.629.570 1,71% Síldarvinnslan hf 4.531.313 1,68% ÍsfélagVestmannaeyja hf 4.460.252 1,65% JakobValgeir ehf 3.967.619 1,47% Eskja hf 3.564.586 1,32% Stálskip ehf 3.245.966 1,20% KG fiskverkun ehf 3.114.554 1,15% Stakkavík ehf 3.073.443 1,14% Aflamark skipa -tíu hæstu (í tonnum) 1 Guðmundur í NesiRE 6.393 2 BrimnesRE 5.596 3 Júlíus Geirmundsson ÍS 5.265 4ArnarHU 5.155 5 Björgúlfur EA 4.974 6 Björgvin EA 4.503 7 Höfrungur III AK 4.174 8 ÞerneyRE 3.881 9 Ottó N. ÞorlákssonRE 3.835 10 ÁsbjörnRE 3.742 Þorskígildi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.