Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 19
Lönd eins og Eistland, Írland, Lettland, Malta, Holland og Svíþjóð eru sjálfum sér næg. Ástandið er al- varlegt í Austurríki, Belgíu, Búlg- aríu, Kýpur, Tékklandi, Frakklandi, Þýskalandi, Grikklandi, Ungverja- landi, Ítalíu, Litháen, Póllandi, Portúgal, Rúmeníu, Slóvakíu, Slóv- eníu og Spáni. Hjá flestum þessum löndum minnkar framleiðslugetan stöðugt. Í heild eru ESB-löndin 27 í slæmum málum, þau hætta að geta séð fyrir fiskneyslu sinni á miðju ári og eru alfarið háð fiskimiðum ann- arra landa það sem eftir er árs (sjá töfluna Lokadagur fiskframleiðslu innan aðildarríkja ESB). ESB, sem stundar ofveiðar á fisk- stofnum með hættu á útrýmingu þriðjungs fiskstofna sinna, ætti að fara sér hægar í sakirnar og læra af fiskveiðum Íslendinga í stað botn- lauss yfirgangs með viðskiptahót- unum, ef Íslendingar fallast ekki umsvifalaust á kröfur sambandsins varðandi makrílveiðar. LÍÚ hefur á greinargóðan hátt lýst alþjóðlegum fiskveiðisamn- ingum, sem ESB fer á svig við. Það er með eindæmum að sjá fiskkomm- issar ESB, Maríu Damanaki, hóta Íslendingum og Færeyingum öllu illu, ef ekki verði tafarlaust fallist á kröfur ESB og Norðmanna varðandi makrílveiðar. Engu er líkari en hún hafi aldrei heyrt talað um frjálsa verslun, samninga EFTA, GATT, EES eða Hafréttarsáttmála Sam- einuðu þjóðanna, sem bæði ESB og Íslendingar eru aðilar að. ESB setur sér veiðiheimildir á makríl langt um- fram ráðleggingar Alþjóðahafrann- sóknarstofnunarinnar. Heldur María Damanaki kannski, að titillinn „kommissjóner“ gefi henni réttinn til að leiða útþenslu ESB og ofveiðar á fiskstofnum, sem brjóta í bága við alþjóðasamninga? Höfundur er fv. ritari Evrópusam- taka smáfyrirtækjarekenda. 19MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2010 Í störfum mín- um fyrir stéttarfélag sjó- manna hef ég margoft fengið upphringingar vegna lasburða og sjúkra aldr- aðra sjómanna sem hafa fengið neitun vist- unarmats- nefndar um dvöl á vist- eða hjúkr- unarheimili. Ástæðan: Fengu aðstoð ættingja eða stóðu einir án utanaðkomandi aðstoðar, voru vanir að standa sína plikt en gátu nú ekki meir. Margar fjölskyldur eru í þeirri stöðu að sinna öldr- uðum ættingja sem fær ekki vist- unarmat vegna þess að ekki hefur verið leitað til heimaþjónustu eða heimahjúkrunar. Ef öldruðum er sinnt af ættingjum er sá aðili ekki gjaldgengur á vist- eða hjúkrunarheimili. Fjölmörg önnur dæmi eru til. Aldraður tengdafað- ir minn lá í 8 vikur á Borgarspít- alanum, var með öndunarerf- iðleika, óstyrkur til göngu og réð ekki við það sem frá honum fór. Í sjöundu viku var ákveðið að hann skyldi sendur heim en ættingjar mótmæltu harðlega og hik kom á lækna um heimsendingu. Á þess- um tímapunkti barst bréf frá vist- unarmatsnefnd höfuðborgar- svæðisins um höfnun á dvöl á hjúkrunarheimili. Hann væri hæf- ur til að sjá um sig sjálfur með aðstoð heimaþjónustu. Í lok 8 vikna dvalar á Borg- arspítalanum var hann sendur á Landakot þar sem hann lést tveim dögum síðar. Vinnubrögð vistunarmats- nefndar eru forkastanleg og ól- íðandi. Starfar þessi nefnd til heilla heilbrigðis- og félagsmála- ráðherra svo þeir geti skreytt sig og baðað í nafnlausum biðlistum á vist- og hjúkrunarheimilum? Eru þessi vinnubrögð þakklæti ráð- herra og afdankaðra embættis- manna til aldraðra Íslendinga sem hafa í brauðstriti æviáranna skil- að þjóðinni góðu búi? Ég veit að það eiga margir í erfiðleikum vegna vanmats vistunarmats- nefndar og skora ég á alla þá að láta nú í sér heyra. Ástandið er óviðunandi og því verður að breyta. BIRGIR H. BJÖRGVINSSON, Sjómannafélagi Íslands. Vanmat vistunar- matsnefndar höfuð- borgarsvæðisins Frá Birgi H. Björgvinssyni Birgir Hólm Björgvinsson BRÉF TIL BLAÐSINS Strætóskýli á Ak- ureyri verða iðulega að glerbrotahrúgu eftir athafnir unga fólksins að næturlagi. Íþróttasinnuð ung- menni eru trúi ég ekki í þessum fram- kvæmdum, það er frekar fólk sem finn- ur ekki réttar leiðir í tilverunni. Fé- lagsmiðstöð er lokað kl. 22 og þá er farið heim, en þar taka hugsanlega við athugasemdir foreldra þessa saklausa unga fólks: Foreldrar sem þá jafnvel taka til við orrustu hvort upp í annað, stundum með hjálp áfeng- is, við að kenna hvort öðru um slæmt uppeldi unglingsins á heim- ilinu og finnst það vera hlutverk skólakerfis/tómstundastöðva að sjá um uppeldið. Hinn ungi með- limur fjölskyldunnar fer auðvitað í vörn og yfirgefur veisluna í tor- tryggni og fer út aftur til félaga sinna sem í hefnigirni brjóta rúðu. Unga fólkið fer síðan ekki heim fyrr en ölsyfja hefur tekið foreldr- ana inn í draumalandið. Í Noregi eru strætóskýlin látin í friði því að eftir heimildum mínum þá hef- ur ungt listafólk fengið að skreyta skýlin og þar með líður öllum vel og skýlin fá frið og njóta virð- ingar/aðdáunar. Ég hef ekki séð þessi myndskreyttu skýli úti í Norgi, en ég hef fulla trú á unga fólkinu. Eitt sinn var ég búsettur í minni bæ en Akureyri og þar voru ungmenni fastagestir hjá mér og leið vel þar og fóru ósjálfrátt að myndskreyta mína veggi. Mér var einnig vel við gestina og verk þeirra. Listmenning verður ótrú- lega oft útundan í fjölmiðlum, ef einhverjir hafa ekki tekið eftir því! Íþróttapakki er fastur liður kvöldfréttatíma stóru stöðvanna, auk sportstöðvar á stöð 2. Sjónvarp er sterkur miðill, – það má ekki gleymast hvað það er áríðandi að fjöllistarás sé til staðar, sem t.d. vísar ungu, ráðvilltu fólki inn á svið sköpunar í listum; handverk, myndlist, matargerð- arlist, hljóðfæraleik, listdans, leikhús. Þetta gleymist allt í sportdýrkun fjölmiðla, að t.d. tónskólar séu uppeld- isstofnanir, hvað þá myndlist, leiklist. Það þarf tíðari umfjöllun um listir og menningu, hvort sem það er fyrir 5-15, eða 75 ára ung- menni. Ég er fæddur og uppalinn í sveit og hef því meðfædda hæfni til að vera „rolla“ – ég meina for- ystukind. forystukind@simnet.is. Förum með leikskólabörnin og unga fólkið á tómstundastöðv- unum í heimsóknir til dagvistunar aldraðra og finnum sameiginlega lausn á málum okkar með áfeng- isfríum málefnafundum án kyn- slóðabils. Stafræna flokkunin okk- ar dró okkur í dilka eins og rollur í réttum. En nú er einmitt bráð- um að koma sá tími þar sem allar kynsóðir sameinast sameinast hvort sem er með rollum í réttum. Ungmennabrot uppalenda Eftir Atla Viðar Engilbertsson Atli Viðar Engilbertsson » Í Noregi eru strætóskýlin látin í friði því að eftir heim- ildum mínum þá hefur ungt listafólk fengið að skreyta skýlin og þar með líður öllum vel og skýlin fá frið og njóta virðingar/aðdáunar. Höfundur er fjöllistamaður. ir, Stefanía Arnardóttir hjúkr- unarfræðingur hjá Þróunarstofu heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Valgerður Snæland Jónsdóttir náms- og starfsráðgjafi, með BA í sérkennslufræðum og M.Phil. í skólanámskrárgerð og mennt- unarstjórnun, auk dr. Gauta Krist- mannssonar fyrrverandi forstöðu- manns Þýðingarseturs Háskóla Íslands. Leiðbeinendur á námskeið- unum eru löggiltir Gottman- leiðbeinendur. Þeir sérfræðingar sem hafa kynnt sér námsefni „Barnið komið heim“ hérlendis telja vísindalegan bakgrunn þess ótvíræðan. Jafnréttisráð er þeirrar skoðunar að með námskeiðinu sé unnið að auknu jafnrétti, jafnari ábyrgð foreldra í millum og aukinni gagnkvæmri virðingu beggja kynja. Slíkt stuðli jafnframt að farsæld barnsins og fjölskyldunnar í heild. Dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf, hefur bent á mik- ilvægi þess að unnið sé útfrá vitn- eskjunni um viðkvæmni parsam- bandsins og mikilvægi fræðslu og tilfinningalegs stuðnings við fæð- ingu fyrsta barns. Úttekt velferð- arsviðs Reykjavíkurborgar bendir til þess að þátttakendur á nám- skeiðinu séu almennt ánægðir með námskeiðið en þeir gáfu því með- aleinkunnina 4,4 af 5 mögulegum. Sama niðurstaða kemur fram í loka- verkefni félagsráðgjafanemanna Dagbjartar Rúnar Guðmunds- dóttur og Daggar Guðnadóttur í BA-námi í félagsráðgjöf nú í vor. Í þeim darraðardansi sem fylgir efnahagshruninu á Íslandi er mik- ilvægt að huga að parsambandinu og fjölskyldunni. Nú eiga betur við en oft áður orð dr. Johns Gottman: „Stærsta gjöfin sem þið getið gefið barninu ykkar er sterkt samband milli ykkra sjálfra“. » Þegar tveir verða þrír reynir með öðr- um hætti á samskiptin Hera Ósk er félagsráðgjafi og verk- efnastjóri forvarna og þróunar hjá Reykjanesbæ og Ólafur Grétar er fjölskylduráðgjafi hjá ÓB-ráðgjöf. Vegna mistaka við vinnslu blaðsins í gær er eftirfarandi grein birt aftur. Að- standendur eru beðnir velvirðingar á mistökunum. Móðir okkar er nú laus úr viðj- um veikinda. Við kveðjum hana með söknuði og minningar um það sem einu sinn var leita á hugann. Æskuheimili okkar var á Strönd við Miðstræti. Pabbi var á sjó fyrstu árin og kom það því mest í hlut mömmu að ala okkur upp og sjá um heimilið og fórst henni það vel úr hendi. Hún prjónaði margar peysurnar og saumaði flest okkar föt fram á unglingsár. Hún var ein- staklega góður kokkur og bakari, enda urðu eldamennska og bakstur hennar starfsvettvangur alla tíð. Mamma var glaðlynd og mjög fé- lagslynd. Hún hafði yndi af söng og ekkert fannst henni skemmtilegra en að syngja í góðra vina hópi. Hún var dugleg kona, hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og hvatti hún okkur til að gera slíkt hið sama. Líf hennar var þó ekki alltaf dans á rósum en hún gafst aldrei upp og hélt ótrauð áfram. Sveitin, Álftaverið, skipti hana ávallt miklu máli. Þó hún byggi alla sína tíð í Eyjum þá var hún dugleg að rækta samband við systkini sín og sterkar rætur voru alltaf á bernskuslóðir. Hún fór þangað ár- Pálína Jónsdóttir ✝ Pálína Jónsdóttirfæddist í Norð- urhjáleigu, Álftaveri, Vestur-Skaftafells- sýslu, 23. janúar 1923. Hún lést á Dval- arheimilinu Hraun- búðum 7. ágúst 2010. Pálína var jarð- sungin frá Landa- kirkju í Vest- mannaeyjum 31. ágúst 2010. lega ef hún mögulega komst og dvaldi þar um lengri eða skemmri tíma. Mamma var góð amma og skiptu barnabörnin hana miklu máli. Þau eldri eiga um hana góðar minningar en þau yngri verða að láta sér nægja sögur og myndir. Hún vildi hafa okkur sem mest hjá sér og kvaddi svo þetta líf umkringd öllum þeim afkomendum sem sáu sér fært að koma. Móðir okkar dvaldi á Hraunbúð- um í Vestmannaeyjum síðustu níu árin. Heilsu hennar hrakaði stöð- ugt og það var vissulega sársauka- fullt að fylgjast með henni hverfa smám saman. Það var mikil hugg- un að starfsfólk Hraunbúða sýndi henni mikla umhyggju og góðvild. Fyrir það verður seint fullþakkað. Við trúum því að nú líði henni vel og hún hafi átt góða heimkomu. Elsku mamma, við kveðjum þig með þessum ljóðlínum: Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þínar dætur, Þórunn og Sigríður. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, mánudaginn 30. ágúst. Spilað var á 10 borðum. Með- alskor: 216 stig. Árangur N-S: Rafn Kristjánss. – Júlíus Guðmundss. 275 Óskar Karlsson – Björn E. Pétursson 262 Auðunn Guðmundss. – Björn Árnason 246 Árangur A-V: Ólafur B. Theodórs – Haukur Leósson 258 Kári Jónsson – Haukur Guðbjartss. 246 Magnús Jónsson – Gunnar Jónsson 244 Komnir í startholurnar í Gullsmáranum Spilamennska í Gullsmára þetta haustið hefst fimmtudaginn 2. sept- ember. Spilamennska hefst stund- víslega kl. 13. Allt spilaáhugafólk velkomið. Stjórnandi er Ólafur Lár- usson. ✝ Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur kærleik og hlýju vegna andláts föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og langalangafa, JÓNS EINARSSONAR frá Siglufirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sjúkrahúsi Akraness og dvalarheimilinu Höfða fyrir alla um- hyggju og góðvild honum og okkur öllum til handa. Svana Jónsdóttir, Örn Ó. Helgason, Halldór Fr. Jónsson, Kristín G. Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Páll Jónatan Pálsson, Þórelfur Jónsdóttir, Gunnar Þór Jónsson, Ingunn Sveinsdóttir, Lovísa Jónsdóttir, Gísli Þorsteinsson, Ólöf Jónsdóttir, Gylfi Lárusson, Einar Jónsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Svanborg R. Jónsdóttir, Valdimar Jóhannsson, Svanfríður Jónsdóttir, Kristófer Oliversson og fjölskyldur. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á for- síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður grein- in að hafa borist eigi síðar en á há- degi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.