Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 12
FRÉTTASKÝRING Egill Ólafsson egol@mbl.is Litlar líkur virðast á að tillaga um að Ísland dragi umsókn sína um að- ild að Evrópusambandinu til baka verði samþykkt á Alþingi. A.m.k. sex þingmenn stjórnarandstöðunn- ar ætla ekki að styðja tillöguna. Það þýðir að níu þingmenn Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs verða að styðja tillöguna ef hún á að ná fram að ganga. Ólíklegt er að það gangi eftir. Ögmundur Jónasson, sem hefur verið gagnrýninn á margt í stefnu Evrópusambandsins, ætlar ekki að styðja hana. Þegar greidd voru atkvæði um þingsályktunartillögu um aðild Ís- lands að Evrópusambandinu 16. júlí í fyrra sögðu 33 þingmenn já, 28 sögðu nei og tveir sátu hjá. Rétt fyr- ir þinglok í vor kom fram tillaga frá þingmönnum allra flokka nema Samfylkingar, um að umsókn Ís- lands um aðild að Evrópusamband- inu verði dregin til baka. Fyrsti flutningsmaður er Unnur Brá Kon- ráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokks. Unnur Brá er ekki búin að mæla fyrir tillögunni og hún er því ekki komin til nefndar. Mörg mál liggja fyrir haustþinginu og ekki er öruggt að tillagan komi til atkvæða. Bæði þingmenn í stjórnarflokkunum og stjórnarandstöðu hafa hins vegar lagt áherslu á að tillagan verði af- greidd. A.m.k. sex þingmenn stjórnar- andstöðu styðja umsóknina Fimm þingmenn stjórnarand- stöðunnar studdu tillögu um að Ís- land sækti um aðild að ESB. Þetta eru Ragnheiður Ríkharðsdóttir Sjálfstæðisflokki, Þráinn Bertels- son utan flokka, Birkir Jón Jónsson, Guðmundur Steingrímsson og Siv Friðleifsdóttir þingmenn Fram- sóknarflokks. Allir þessir þingmenn ætla að greiða atkvæði gegn tillögu um að hætt verði við umsóknina. Það sama ætlar Þór Saari, þingmað- ur Hreyfingarinnar, að gera en hann greiddi hins vegar atkvæði gegn umsókninni á sínum tíma. Að því er best er vitað er Þór einn um að hafa skipt um skoðun. Fimm þingmenn VG greiddu at- kvæði gegn umsókn Íslands um að- ild að ESB fyrir rúmlega einu ári. Þetta eru Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason, Jón Bjarnason, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Þur- íður Backman. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir sat hjá, en hún er núna í barneignarfríi. Varaþing- maður hennar, Ólafur Þór Gunnars- son, sagði í samtali við Morgunblað- ið að hann hefði ekki ákveðið hvort hann kæmi til með að styðja tillög- una. Hann sagðist ætla að hlusta á umræður um tillöguna áður en hann gerði upp hug sinn. Hann tók fram að honum þætti eðlilegt að tillagan kæmi til atkvæða á þinginu. Bæði Lilja Mósesdóttir og Ög- mundur Jónasson studdu tillögu um að Ísland sækti um aðild að ESB í fyrra. Ögmundur sagði í samtali við Morgunblaðið að hann stæði við þá afstöðu sína að látið yrði reyna á umsóknina og að samningurinn yrði síðan borinn undir þjóðina. „Ég hef jafnframt lýst því yfir að ég horfi með áhyggjum á það ef viðræður þróast yfir í aðlögun,“ sagði Ög- mundur. Morgunblaðið/Ómar Alþingi Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir studdu öll tillögu um að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu. Óbreytt afstaða til ESB  Flest bendir til að þingsályktunartillaga um að Ísland dragi umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka njóti ekki stuðnings meirihluta Alþingis 12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2010 Í þingsályktunartillögu Unnar Brár Konráðsdóttur, um að Ísland hætti við að sækja um aðild að ESB, seg- ir að forsendur hafi breyst frá því Alþingi samþykkti að sækja um aðild. Evrópusambandið standi frammi fyrir stærri úrlausn- armálum í efnahagsmálum en það hafi gert um langa hríð. Spenna sé á myntsvæðinu sem valdi því að fram séu komnar kröfur um frek- ari samruna. Sú skoðun stuðn- ingsmanna að- ildar hér á landi að upptaka evru tryggi efnahags- legan stöðug- leika eigi ekki við rök að styðj- ast í ljósi erfið- leika sem Grikk- land, Ítalía, Spánn, Portúgal og Írland glími við. Forsendur hafa breyst á árinu TILLAGA UM AÐ HÆTT VERÐI VIÐ UMSÓKN UM AÐILD AÐ ESB Unnur Brá Konráðsdóttir Nýtt tölvusneiðmyndatæki hefur verið tekið í notkun á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands á Selfossi. Tæk- ið var keypt fyrir gjafafé frá líknar- sjóði Harðar Þorgeirssonar og Unnar Guðmundsdóttur. Á annað þúsund Sunnlendinga fer árlega á Reykjavíkursvæðið í tölvusneiðmyndarannsóknir og af sjúkrahúsinu eru fluttir yfir hundr- að sjúklingar árlega til myndgrein- ingar með þessari tækni með til- heyrandi fyrirhöfn og kostnaði. Með þessu tæki má því spara Sunn- lendingum á annað þúsund ferðir til höfuðborgarinnar árlega. Tækið er með því fullkomnasta sem völ er á og það fullkomnasta á lands- byggðinni. Framför Tækið er nú til reiðu. Sneiðmyndatæki Uppskeruhátíð býflugnabænda verður haldin í veitingatjaldi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins nk. laugardag milli kl. 14 og 16. Býflugnabændur af sunnanverðu landinu kynna býflugnarækt og koma með sýnishorn af uppskeru sumarsins. Þeir munu gefa gestum að smakka eigin framleiðslu af hun- angi sem verður slengt beint úr búinu á staðnum. Einnig verður takmarkað magn af íslensku hun- angi til sölu. Sýndar verða lifandi býflugur í sýningarbúri og að auki gefst gestum tækifæri á að skoða og fræðast um býflugnabúið í garð- inum. Kynnt verður efnið bývax og hvað hægt er að vinna úr því svo sem krem og kerti. Einnig verður ýmis útbúnaður tengdur bý- flugnarækt sýndur. Kvenfélagasamband Íslands verður með sultukynningu á sama tíma. Að þessu sinni munu Eygló Guðjónsdóttir og Ása Atladóttir frá Leiðbeiningarstöð heimilanna gefa góð ráð um sultugerð. Þá er þetta síðasta helgin sem tækin eru opin í ár. Vetraropnunar- tími hefur tekið gildi og verður op- ið alla daga kl. 10-17. Í tilefni þess er tilboð á dagpössum helgina 4. og 5. september 2010, 1.000 krónur stykkið í stað 1.700 króna. Smakkað á íslensku hunangi og sultum Gerðar hafa ver- ið endurbætur á umferðarljós- unum á gatna- mótum Miklu- brautar og Grensásvegar. Meginmarkmið breytinganna er að draga úr hættu með því að aðskilja gagn- stæða umferð. Fösum eða þrepum í stýringu umferðarljósanna er fjölg- að úr þremur í fjögur. Eftir breyt- ingu á stýribúnaði ljósanna verður vinstribeygjuumferð af Grensás- vegi aðskilin frá umferð úr gagn- stæðri átt. Einnig voru settir upp snertihnappar fyrir gönguljós með titringi og hljóði og gagnast það einkum blindum og sjónskertum, sem og heyrnarlausum. Endurbætur á umferðarljósum STUTT Umferðin á þjóðvegum landsins um síðustu helgi var mun minni en um helgina þar á undan eða sem nemur 4,4 prósentum. „Óhætt er að lýsa því yfir að hinni eiginlegu sumarhelg- arumferð er lokið,“ segir á vef Vega- gerðarinnar, sem annast umferðar- mælingarnar, enda er helgarum- ferðin nú komin undir það sem hún var í upphafi júní. Talið er á 16 völd- um stöðum á hringveginum. Mesta umferðarhelgi sumarsins 2010 var 16.-18. júlí. Umferðin var þá um þremur prósentum meiri en helgina sem næst kom, sem að þessu sinni var verslunarmannahelgin. Í heild var helgarumferðin í ár heldur minni en hún var í fyrra eða sem nemur 2,3 prósentum. Vegagerðin segir að athygli veki hversu jafnar og stórar síðasta helgin í júní og tvær næstu helgar þar á eftir voru. Eru þessar helgar mjög svipaðar og verslunarmanna- helgin. Sé horft til áranna 2008 og 2009 sést að umferð um verslunar- mannahelgina var óvenjumikil þetta árið, borið saman við aðrar helgar sumarsins. „Fróðlegt verður að sjá hvernig næsta ár kemur út og svo hvort sum- arumferðin sé í auknum mæli að færast á einn og sama mánuðinn, þ.e.a.s. júlímánuð. Þetta mun einnig sjást betur þegar umferðin í ágúst- mánuði liggur fyrir á 16 völdum talningarstöðum nú í vikulokin,“ segir á vef Vegagerðarinnar. Miðað við sömu helgi árið 2009 var umferðin nýliðna helgi 6,7% minni nú í ár. 7,8% samdráttur varð austur fyrir fjall en 5% í norður. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Umferðin Landsmenn voru dugleg- astir að ferðast um miðjan júlí. Hinni eiginlegu sumar- helgarumferð lokið  Helgin 16. til 18. júlí mesta ferðahelgi sumarsins Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í iðnaðarnefnd Alþingis, Jón Gunn- arsson og Tryggvi Þór Herberts- son, hafa óskað eftir því að nefnd- in komi saman og ræði málefni álvers í Helguvík. „Framkvæmdir vegna fyrirhug- aðs álvers í Helguvík eru einn mikilvægasti þáttur í eflingu ís- lensks atvinnulífs á næstu mán- uðum. Margt hefur orðið til að tefja þetta mikilvæga mál og nauðsynlegt að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að greiða fyrir jákvæðum lyktum málsins. Í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem málið er nú komið í óska und- irritaðir eftir að boðað verði sem fyrst til fundar um það í iðnaðar- nefnd Alþingis. Við óskum eftir að fulltrúar sveitarfélaga á svæðinu, þ.e. Garði, Grindavík, Reykjanes- bæ, Sandgerði og Vogum, verði boðaðir til fundarins auk fulltrúa Hs orku, Magma, Norðuráls, Landsvirkjunar og Orkuveitunar,“ segir í tilkynningu frá þeim Jóni og Tryggva Þór til fjölmiðla. Vilja fund um Helgu- vík í iðnaðarnefnd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.