Morgunblaðið - 01.09.2010, Side 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2010
Morgunblaðið/Jón Pétur
Avant Vonir standa til þess að stór
hluti starfsfólks verði endurráðinn.
helstu kröfuhafa og Landsbankinn
hefur léð máls á því að stigið verði
formlegt skref til nauðasamninga
með formlegri beiðni til héraðs-
dóms sem ég er að undirbúa.“
Friðjón segir að vonir standi til
að þetta nái í gegn en miklu skipti,
hvað varðar framtíð Avant, nið-
urstaða Hæstaréttar varðandi
gengistryggðu lánin. Verður málið
flutt í Hæstarétti hinn 6. september
nk. Fjárhagsgrundvöllur Avant
ræðst af þeirri niðurstöðu.
Avant var áður í eigu Askar
Capital. Stjórn Aska samþykkti í
júlí að óska eftir slitameðferð á fé-
laginu hjá dómstólum.
Guðrún Hálfdánardóttir
guna@mbl.is
Öllu starfsfólki fjármögnunarfyr-
irtækisins Avant var sagt upp í
gær. Alls starfa 29 manns hjá fyr-
irtækinu og munu starfsmenn
vinna út uppsagnartímann sem er
þrír mánuðir. Að sögn Friðjóns
Arnar Friðjónssonar, formanns
bráðabirgðastjórnar sem Fjármála-
eftirlitið skipaði yfir Avant í síðasta
mánuði, standa vonir til þess að
stór hluti starfsmanna verði end-
urráðinn áður en uppsagnafrestur
rennur út.
Friðjón Örn segir að þrátt fyrir
að öllu starfsfólki hafi verið sagt
upp séu enn í gangi nauðasamn-
ingaumleitanir. Hann segir að það
hafi verið talið nauðsynlegt að
segja starfsmönnum upp vegna
þeirrar stöðu sem er hjá fyrirtæk-
inu. „En það er von til þess að stór
hluti starfsfólksins verði endurráð-
inn,“ segir Friðjón.
Hann segir að framtíð fyrirtæk-
isins velti á því hvort það takist að
ná fram þeim nauðasamningi sem
er í smíðum núna.
Að sögn Friðjóns ganga viðræður
við helstu kröfuhafa vel en stærstur
þeirra er Landsbankinn. „Viðræð-
urnar eru unnar í nánu samráði við
Öllum sagt upp hjá Avant
STUTTAR FRÉTTIR
● Töluverð umskipti
hafa orðið á rekstri HS
Orku á milli ára. Orku-
fyrirtækið tapaði tæp-
lega 2,5 milljörðum
króna á fyrri hluta
þessa árs, en á sama
tíma í fyrra skilaði það
hagnaði upp á rúmlega 600 milljónir.
Mikil verðlækkun á áli gerir það að verk-
um að verðmæti innbyggðra afleiða í
raforkusölusamningum lækkar töluvert,
eða um 4,1 milljarða. Þessi lækkun á
jafnframt stóran þátt í því að eignir fé-
lagsins drógust saman um tæpa tvo
milljarða króna frá áramótum, en heild-
areignir þess eru nú 40,3 milljarðar. Á
móti kemur að skuldir félagsins hafa
lækkað um 1,5 milljarða frá áramótum,
og eru nú 26,4 milljarðar, en þar af eru
skammtímaskuldir rétt tæpir 4 millj-
arðar. Eiginfjárhlutfallið í lok júní var
34,5%, miðað við 18,3% í fyrra.
Í afkomutilkynningu frá HS Orku
kemur fram að félagið líti svo á að for-
sendur fyrir raforkusölusamningi við
Norðurál, vegna fyrirhugaðs álvers í
Helguvík, séu brostnar. Þessu hefur
Norðurál hafnað. Nokkur óvissa ríki því
um framtíðartekjur af sölu orku úr nýrri
virkjun HS Orku á Reykjanesi þar til
dómstólar hafi skorið á hnútinn.
einarorn@mbl.is
Milljarða tap HS Orku á
fyrri helmingi ársins
● Fyrirséð er að hagvöxtur verður
mestur í Asíu á næstu árum, einkum í
Kína og á Indlandi. Íslendingar ættu því
að stefna að því að verða eins konar
miðstöð viðskipta milli Asíu og Evrópu.
Þetta er á meðal þess sem fram kom í
máli dr. Seiichiro Yonekura, forstöðu-
manns rannsóknarmiðstöðvar í nýsköp-
unarfræðum við Hitotsubashi-háskóla í
Tokyo, á fundi á vegum Viðskiptaráðs
og samstarfsaðila sem fram fór í gær.
Yonekura sagði Japana hafa lært
það, í því uppbyggingarstarfi sem þar
fór í hönd eftir síðari heimsstyrjöld, að
hið opinbera ætti ekki að „velja sig-
urvegara,“ en að ekki væri heldur hægt
að gera öllum geirum atvinnulífsins
jafnhátt undir höfði. Leggja yrði á það
áherslu að gera atvinnulífið samkeppn-
ishæft á alþjóðavettvangi. einarorn-
@mbl.is
Ísland verði brú á milli
Asíu og Evrópu
Ívar Páll Jónsson
ivarpall@mbl.is
Erlendar skuldir þjóðarbúsins voru
5.711 milljörðum hærri en erlendar
eignir í lok annars ársfjórðungs. Síð-
ast þegar Seðlabankinn birti tölur
um erlenda stöðu kom fram að stað-
an hefði verið neikvæð um 5.273
milljarða króna í lok fyrsta fjórð-
ungs, þannig að staðan í lok þess
annars er 437 milljörðum krónum
lakari. Tekið skal fram að um bráða-
birgðatölur er að ræða.
Í nýjasta skjalinu er staðan í lok
fyrsta fjórðungs hins vegar sögð
hafa verið nei-
kvæð um 5.900
milljarða króna.
Miðað við það
batnaði staðan á
öðrum fjórðungi.
Ef frá eru
teknar innláns-
stofnanir í slita-
meðferð, þ.e.
gömlu bankarnir, er staðan neikvæð
um 561 milljarð króna. Það er 100
milljörðum lakari staða en í lok
fyrsta fjórðungs samkvæmt tölunum
sem síðast voru birtar, en 57 millj-
örðum betri staða en í lok fyrsta
fjórðungs samkvæmt nýja skjalinu.
Erlendar eignir þjóðarbúsins eru
samkvæmt nýju tölunum 885 millj-
örðum minni en í lok síðasta fjórð-
ungs samkvæmt gömlu tölunum og
skuldir 448 milljörðum minni.
Eignir og skuldir gömlu bank-
anna minnka
Erlendar eignir gömlu bankanna
minnka um 806 milljarða króna og
skuldir lækka um 468 milljarða
króna. Sem fyrr segir er um bráða-
birgðatölur að ræða og kann að vera
að bankanum berist nákvæmari upp-
lýsingar seinna meir.
Tölur sýna verri erlenda
stöðu þjóðarbúsins
Staðan versnar um 437 milljarða frá síðustu birtingu
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Steinn Logi Björnsson, nýr stjórn-
arformaður Haga, segir að talsverð-
ur einskiptiskostnaður hafi verið fyr-
ir hendi hjá fyrirtækinu á síðasta ári
vegna undirbúnings við skráningu
þess. Steinn segir hins vegar að ljóst
sé að undirliggjandi arðsemi fyrir-
tækisins sé mun meiri. Afkoman
muni batna á ný eftir að vinnu við
skráninguna sé lokið.
Vörusala Haga á síðasta ári nam
tæplega 69 milljörðum króna, en
kostnaðarverð seldra vara var rúm-
lega 51,3 milljarðar. Hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði var rúm-
lega fjórir milljarðar. Vaxtaberandi
skuldir fyrirtækisins nema um 15
milljörðum eða tæplega fjórföldum
hagnaði félagsins fyrir fjármagns-
gjöld og afskriftir.
Hagar hafa um það bil helmings-
markaðshlutdeild á innlendum mat-
vörumarkaði, en meðal verslana sem
fyrirtækið rekur eru Hagkaup, Bón-
us, 10-11, Útilíf og Debenhams. Fær-
eyska verslanakeðjan SMS er hlut-
deildarfélag Haga, en greint var frá
því í gær að Jóhannes Jónsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður, fengi að
kaupa þann rekstur ásamt þremur
tískuvöruverslunum út úr Högum.
Kaupverðið er samkvæmt tilkynn-
ingu frá Arion banka tæplega 1,3
milljarðar, en bankinn hefur ekki
gefið upp hvort einhver tímamörk
séu á greiðslu þeirrar fjárhæðar.
Arion hannaði samninginn
Greint var frá því í gær að leiðir
Jóhannesar Jónssonar og Haga
myndu skilja. Gerður var starfsloka-
samningur við Jóhannes, sem fól
meðal annars í sér 90 milljón króna
eingreiðslu. Steinn Logi segir að
stjórn Haga hafi samþykkt samning-
inn, sem hafi þó verið útbúinn innan
veggja Arion banka. Almennt séð
hafi samningurinn þó verið gerður í
samráði við stjórn Haga.
Kostnaður við
skráninguna
vegur þungt
Morgunblaðið/Heiddi
Bónus Eitt af vörumerkjum Haga. Jóhannes Jónsson, jafnan kenndur við
fyrirtækið, hefur sagst ætla sér að eignast fyrirtækið á ný í söluferli Arion.
Segir starfslokasamning við Jóhannes
Jónsson hafa verið gerðan af Arion
Uppgjör Haga 2009
» Rekstur Haga skilaði 44
milljóna króna hagnaði á síð-
asta reikningsári.
» Stjórnarformaður segir mik-
inn einskiptiskostnað vegna
undirbúnings fyrir skráningu
draga niður afkomuna.
» Hagar eru með um það bil
helmingsmarkaðshlutdeild á
íslenskum matvörumarkaði.
● Afgangur á vöruskiptum nam 68,5
milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum
ársins, samkvæmt tölum frá Hagstof-
unni. Á sama tíma árið áður voru þau
hagstæð um 41,3 milljarða á sama
gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því
27,2 milljörðum króna hagstæðari en á
sama tíma árið áður.
Vöruskiptin í júlí voru hagstæð um
4,6 milljarða króna, en fluttar voru út
vörur fyrir tæpa 44 milljarða króna og
inn fyrir 39,3 milljarða í mánuðinum. Í
júlí 2009 voru vöruskiptin hagstæð um
tæpar 400 milljónir króna á sama
gengi.
68,5 milljarða afgangur
fyrstu sjö mánuðina
Íslandssjóðir högnuðust um 124
milljónir króna eftir skatta fyrstu
sex mánuði ársins, samanborið við
164 milljónir króna fyrir sama
tímabil árið áður. Eigið fé 30. júní
2010 nam 1.424 milljónum króna,
en var 1.300 milljónir í ársbyrjun.
Íslandssjóðir hf. sjá um stýringu og
rekstur á 17 sjóðum, en einnig sér
félagið um stýringu á einum verð-
bréfasjóði í Glitnir Asset Manage-
ment S.A. í Lúxemborg.
Rekstrargjöld námu 328 millj-
ónum, samanborið við 386 milljónir
króna sama tímabil árið áður, og
lækkuðu um 14,9%. Hreinar rekstr-
artekjur námu 479 milljónir króna.
Hagnaður
hjá Íslands-
sjóðum
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+1/.1
++0./2
,-./01
+3.-40
+2.0+1
++1.-,
+.5,2+
+1+.10
+/,.3,
+,-.1,
+12.,/
++0.13
,-./31
+3.+,3
+2.022
++1.0/
+.50-0
+1,.04
+/0.0/
,-1.+22+
+,+.++
+12.4
++5.,,
,-.2/1
+3.+1/
+2.5+5
++1.21
+.505/
+1,.3+
+/0.41