Morgunblaðið - 01.09.2010, Page 26

Morgunblaðið - 01.09.2010, Page 26
26 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2010 Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.) Víkverji veltir því oft fyrir sér þeg-ar hann sér vörur á afslætti í verslunum hvort þær hafi nokkurn tímann verið seldar fullu verði. Það er ávallt nóg af tilboðum, en hvað er ver- ið að bjóða? Víkverji tók til dæmis eftir því um daginn að lítrafernur af kókómjólk voru á tilboði. Það tilboð virðist ekki hugsað til skamms tíma, í það minnsta er prentað á fernuna með svörtum stöfum á gulum grunni: „Tilboð.“ Verðið er þó ekki prentað á fernuna og í raun stendur ekkert um um hvað tilboðið snýst. En ekki á að fara á milli mála að varan er á varan- legu tilboði. Og þá vaknar spurningin hvenær tilboð hættir að vera tilboð – nema þá að allt, sem er til sölu, sé á tilboði; sé boðið til sölu. En þá er nátt- úrlega óþarfi að prenta orðið tilboð á pakkninguna – og Víkverji enn einu sinni kominn í hring og orðinn rugl- aðri í ríminu en þegar hann byrjaði að skrifa. x x x Stundum er sagt að óþarfi sé aðlaga það, sem ekki er bilað. Nú hefur Útlendingastofnun ákveðið að þeir, sem hyggist sækja um dvalar- leyfi hér eftir að hafa búið fimm ár eða lengur í Bandaríkjunum, þurfi að skila inn sakavottorði frá bandarísku alríkislögreglunni í stað þess að fá það hjá staðbundnum stofnunum þeirra ríkja, sem viðkomandi ein- staklingar koma frá. Í frétt Morgun- blaðsins á laugardag kom fram að þetta gæti tekið átta til 12 vikur og gæti biðtíminn haft í för með sér að íslensk körfuknattleikslið gætu ekki fengið til sín leikmenn frá Bandaríkj- unum. Þarna er kerfi, sem hefur verið sveigjanlegt, gert ósveigjanlegt með einu pennastriki. Staðreyndin er að frambærilegir körfuknattleiksmenn líta ekki á Ísland sem fyrsta kost og ólíklegt að þeir séu tilbúnir að binda sig að vori á þeim kjörum, sem hér bjóðast, og loka þannig á að þeir kom- ist að annars staðar eins og Kristján Jónsson blaðamaður bendir á í grein- inni. Víkverji telur þetta dæmi um það hvernig kappsamir embættis- menn geta sett strik í reikninginn þegar þeir fara að laga það, sem er ekki bilað. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 snjódyngja, 4 fjall, 7 krúsar, 8 kvíslin, 9 guð, 11 heimili, 13 bylur, 14 gyðja, 15 ekki margt, 17 borðar, 20 op, 22 slitna, 23 glerið, 24 ákveð, 25 kveð- skapur. Lóðrétt | 1 brotlegur, 2 eng- an undanskilinn, 3 dæld, 4 ósoðinn, 5 náðhús, 6 hitt, 10 fiskinn, 12 óþrif, 13 liður, 15 láta af hendi, 16 skollar, 18 oft, 19 gyðju, 20 vegg, 21 tryggur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kotungana, 8 fágað, 9 syfja, 10 aki, 11 túlar, 13 neita, 15 lítil, 18 hrósa, 21 aur, 22 skarn, 23 arinn, 24 strákling. Lóðrétt: 2 orgel, 3 urðar, 4 gisin, 5 nefni, 6 eflt, 7 gata, 12 api, 14 err, 15 losa, 16 trant, 17 Langá, 18 hrafl, 19 ósinn, 20 agns. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 1. september 1910 Kveikt var á gasljósum í fyrsta sinn á götum bæjarins. „Marg- ir bæjarbúar þustu út á götu með blað og bók í hendi. Þeir vildu reyna hvort lesbjart yrði við ljóskerin,“ segir í end- urminningum Knud Zimsen borgarstjóra. 1. september 1930 Kvikmyndahúsin í Reykjavík hófu sýningar talmynda. Gamla bíó sýndi Hollywood- revíuna og Nýja bíó Sonny Boy (The Singing Fool). Í Morgunblaðinu var sagt að mikil eftirvænting hefði ríkt en „fæstir hafi skilið hvað sagt var“. 1. september 1958 Fiskveiðilögsagan var færð úr fjórum sjómílum í tólf. Bretar virtu ekki útfærsluna og land- helgisdeilum við þá lauk ekki fyrr en vorið 1961. 1. september 1972 Fiskveiðilögsagan var færð út í 50 sjómílur. Bretar féllust ekki á útfærsluna fyrr en haustið 1973. 1. september 1972 Bobby Fischer, 29 ára Banda- ríkjamaður, sigraði Rússann Boris Spassky í heimsmeist- araeinvíginu í skák í Reykja- vík með 12½ vinningi gegn 8½. „Einvígi aldarinnar“ hafði þá staðið í sjö vikur. 1. september 2001 Landslið Íslands í knattspyrnu vann Tékka, eitt sterkasta lið heims, á Laugardalsvelli með þremur mörkum gegn einu. „Þetta er stærsti sigur lands- liðsins til þessa,“ sagði í frétt- um Stöðvar 2. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … „Ég er nú staddur þessa stundina á Spáni, ég ákvað að vera að heiman á afmælinu. Sömu sögu er að segja af fimmtugsafmælinu mínu en þá var ég í Hollandi. Ég hélt hins vegar upp á fertugs- afmælið mitt á sínum tíma með því að gifta mig en þess utan hef ég eiginlega ekki haldið upp á af- mælið mitt svo heitið geti,“ segir Þröstur Haralds- son blaðamaður, en hann er sextugur í dag. Þröstur kom til Spánar á laugardaginn og dvel- ur þar í litlum bæ sunnan við Sevilla ásamt eigin- konu sinni, systur og mági og dóttur þeirra. Ætl- unin er að vera þar næstu tvær vikurnar. Afmælisdeginum verður eytt í Sevilla þar sem margt áhugavert er að skoða, ekki síst frá þeim tíma er Márar réðu ríkjum á stórum hluta Spánar áður en þeir voru hraktir þaðan endanlega í lok 15. aldar. Þá var Sevilla um aldir ein helsta hafnarborg Spánverja og þaðan sigldi Kristófer Kólumbus áleiðis til Ameríku árið 1492. „Mágur minn er sagnfræðingur og mikill áhugamaður um menn- ingu Máranna og vill m.a. meina að trúbadorarnir eigi uppruna sinn að rekja til tíma þeirra á Spáni. Og þetta ætlum við allt saman að skoða núna,“ segir Þröstur. hjorturjg@mbl.is Þröstur Haraldsson er sextugur í dag Afmælinu fagnað í Sevilla Reykjavík Leon Bjartur fæddist hinn 12. mars kl. 01.01. Hann vó 4.210 g og var 55 cm langur. Foreldrar hans eru Ásta Sól Kristjánsdóttir og Arngrímur Baldursson. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Hæfileikar þínir til að fylgja leiðbein- ingum nákvæmlega gera lífið betra. Þú ert á réttum stað í lífinu. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú átt ekki gott með að hafa stjórn á tilfinningum þínum í dag. Þú þarft að leggja töluvert á þig til að sannfæra aðra um ágæti hugmyndar þinnar. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Innsæi þitt er þér dýrmætara en margt annað. Óvænt útgjöld skjóta upp koll- inum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Reyndu að standast allar út- gjaldafreistingar, því þú þarft á öllu þínu að halda sem stendur. Að reyna að réttlæta gjörðir þínar mun bara veikja stöðu þína. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú ert í skapi til að láta ljós þitt skína en þarft þó ekki að ganga fram af fólki. Ein- hvers konar endurnýjun er nauðsynleg þótt engar stórbreytingar eigi sér stað. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er mikilvægt að þú gerir þér grein fyrir því að ekki er allt sjálfgefið í þessum heimi. Notaðu viljastyrk þinn ekki bara fyrir sjálfa/n þig heldur líka í annarra þágu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú heldur ró þinni. Segðu fólki að þú þurfir að fá að hugsa málin um stund. Óvænt heimsókn gleður þig. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú átt þýðingarmikið samtal við vin í dag. Leggðu þitt af mörkum með því að sýna skilning og umburðarlyndi. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú átt það svo sannarlega inni að líta upp úr dagsins önn og gleðjast með vinum og vandamönnum. Leitaðu leiða til að breyta þessu með hjálp góðra manna. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þér líður eins og þú syndir á móti straumnum í dag. Leyfðu því að gerast. Sinntu skyldum þínum án þess að hafa áhyggjur af kostnaði. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Óreiða á heimili er líkleg vegna flutninga, endurbóta eða ættingja sem kom- ið hafa í heimsókn. Farðu í gönguferð til að róa hugann. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þegar þú ert viðkvæm/ur fyrir við- brögðum skaltu athuga hvaðan þau koma. Þú vekur athygli fyrir hreinskilni þína. Stjörnuspá Sudoku Frumstig 2 1 3 6 3 7 9 4 8 1 2 4 6 1 6 8 4 3 9 2 9 2 6 3 9 7 5 2 7 8 6 8 9 3 6 5 9 6 3 7 2 3 5 4 9 3 6 8 2 4 9 3 7 3 5 1 6 4 2 2 5 1 1 6 8 7 9 3 4 4 8 6 5 1 2 3 6 9 7 8 4 7 8 3 4 2 5 6 9 1 4 6 9 1 8 7 2 5 3 6 9 4 7 5 3 1 2 8 3 5 1 8 4 2 9 6 7 8 2 7 6 9 1 3 4 5 2 7 5 9 3 8 4 1 6 9 3 6 5 1 4 8 7 2 1 4 8 2 7 6 5 3 9 3 9 8 5 4 6 2 7 1 7 2 4 9 3 1 6 8 5 1 5 6 2 7 8 3 4 9 4 1 9 6 5 7 8 2 3 8 6 3 1 9 2 4 5 7 5 7 2 4 8 3 9 1 6 6 4 1 7 2 9 5 3 8 2 3 7 8 6 5 1 9 4 9 8 5 3 1 4 7 6 2 8 4 2 1 3 7 5 9 6 1 3 9 6 2 5 4 8 7 7 6 5 8 9 4 2 1 3 2 9 3 5 1 6 8 7 4 6 1 8 4 7 3 9 2 5 4 5 7 9 8 2 3 6 1 3 2 1 7 5 9 6 4 8 5 7 6 2 4 8 1 3 9 9 8 4 3 6 1 7 5 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 1. september, 244. dagur ársins 2010 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 d6 4. Be3 a6 5. Dd2 Rd7 6. 0-0-0 b5 7. f3 Bb7 8. h4 h5 9. g4 hxg4 10. Bg2 Rgf6 11. Hf1 c5 12. dxc5 dxc5 13. f4 b4 14. Rd5 Rxd5 15. exd5 Rb6 16. Bxc5 Staðan kom upp á Politiken Cup, al- þjóðlegu móti í Kaupmannahöfn. Ís- lenski stórmeistarinn Henrik Dani- elsen (2.514) hafði svart gegn Dananum Erlend Kyrkjebø (1.922). 16. … Bxb2+! 17. Kb1 Bc3 18. De2 Rxd5 19. Hd1 e6 og hvítur gafst upp. Henrik fékk 7½ vinning af 10 mögu- legum og lenti í 5.-16. sæti af 292 kepp- endum. Hann tapaði engri skák í mótinu og vegna frammistöðu sinnar mun hann hækka um sex elóskákstig. Fyrir utan Henrik tefldu Íslending- arnir Guðmundur Gíslason (2.351), Bragi Halldórsson (2.253) og Bjarni Jens Kristinsson (2.044) á mótinu. Svartur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Uglan Meyer. Norður ♠DG1065 ♥– ♦DG954 ♣KD5 Vestur Austur ♠92 ♠43 ♥10872 ♥KDG943 ♦K102 ♦83 ♣10864 ♣973 Suður ♠ÁK87 ♥Á65 ♦Á76 ♣ÁG2 Suður spilar 6♠. Jean-Paul Meyer, ritstjóri franska bridsblaðsins, sat sem oft áður að baki félaga sinna í franska landsliðinu í leit að efni. Í þetta sinn horfði hann yfir axlir Michels Perrons í norður. Makk- er Perrons og nafni, Michel Lebel, vakti á 2G (20-22). Perron yfirfærði í spaða með 3♥ og austur doblaði út- spilsvísandi. Lebel stökk í 4♠ til að sýna hámarksmóttöku og slemmu- áhuga. Hvað á norður nú að gera? Meyer bjóst við fyrirstöðusögn á borð við 5♣ eða 5♥, en Perron kom honum á óvart með því að segja 5♦. Þannig vildi hann fá hjartastöðuna á hreint. Án fyrirstöðu í hjarta yrði suð- ur að segja 5♠. Þá var ætlun Perrons að skjóta á 7♠ í þeirri trú að suður ætti öll lykilspilin: ♠ÁK, ♦ÁK og ♣Á. Í reynd sagði Lebel 5♥ og Perron lét 6♠ duga. Nýirborgarar Flóðogfjara 1. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 4.28 1,2 10.49 3,2 17.06 1,4 23.15 2,9 6.11 20.46 Ísafjörður 6.34 0,6 12.46 1,7 19.10 0,8 6.08 20.58 Siglufjörður 3.05 1,1 8.53 0,5 15.13 1,2 21.33 0,5 5.51 20.41 Djúpivogur 1.27 0,6 7.42 1,8 14.05 0,8 19.52 1,6 5.38 20.17 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.