Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 30
Tónlistarmaðurinn Hörður Torfason heldur sína árlegu hausttónleika í Borgarleikhúsinu hinn 9. september næstkomandi. Er þetta í 34. skipti sem Hörður heldur tónleika að hausti til en í ár fagnar hann fertugsafmæli fyrstu plötu sinnar. Af því tilefni flytur hann plötuna í heild sinni með hjálp góðra vina. „Platan verður í forsæti á tónleikunum en hún var eiginlega áhugamál mitt. Það var mitt tómstundagam- an að semja lög við góð ljóð þekktra skálda. Eftir hlé snúum við okkur svo að nýrra efni,“ segir Hörður og bætir við að margt hafi gerst á síðustu fjörutíu árum og því af nógu að taka. Á tónleikunum nýtur Hörður lið- sinnis „toppfólks úr tónlistarbransanum“, þeirra Krist- jönu Stefánsdóttur söngkonu, Róberts Þórhallssonar bassaleikara, Hjartar Howser hljómborðsleikara og Matthíasar Stefánssonar gítar- og fiðluleikara. Í tilefni afmælisins verður svo geisladiskur með plöt- unni gefinn út en á henni má meðal annars finna lögin „Ég leitaði blárra blóma“, „Þú ert sjálfur Guðjón“ og „Kveðið eftir vin minn“. „Þessi plata er ólík öllu öðru sem ég geri seinna en hún hefur alltaf selst jafnóðum og hún kemur út. Það eru mörg lög á henni sem ég hef verið að taka hér og þar en sem heild hef ég ekki flutt hana síðan í Ís- lensku óperunni fyrir tíu árum.“ hugrun@mbl.is 30 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 2010 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Vilt þú gerast þjóðarleiðtogi í þrjár til fjórar klukkustundir? Ef svo er þá er hið gullna tækifæri komið því þríeykið Kviss búmm bang ætlar að gefa fólki færi á því á sýningunni The Great Group of Eight sem hefst á morgun og stendur fram á laugar- dag. Sýningin er hluti af leiklistar- hátíðinni Lókal sem hefst í dag í Reykjavík og lýkur 5. september. Í verki þríeykisins eru þátttakendur settir í hlutverk þjóðarleiðtoga og fær hver og einn ítarlegar og per- sónulegar leiðbeiningar um hvernig honum beri að hegða sér sem þjóð- arleiðtogi meðan á sýningu stendur. Þátttakendur fá viðeigandi klæðnað, þeim er ekið milli staða í glæsi- bifreið og færður matur sem hæfir þjóðhöfðingjum. Þeir fá að upplifa það að vera valdamiklir leiðtogar á fundi og taka mikilvægar ákvarð- anir sem hafa áhrif á allan heiminn. En eru þó á endanum bara venju- legar manneskjur eins og við hin. Kviss búmm bang-hópinn skipa þrjár ungar konur: Eva Björk Kaaber, Vilborg Ólafsdóttir og Eva Rún Snorradóttir. Engir áhorfendur „Það eru ekki neinir áhorfendur, fólk sem er með í sýningunni er þátttakendur, upplifendur þessa heims sem við erum búnar að strúktúrera,“ segir Eva um verkið. Sýningin vísar í G8-leiðtogafundina en þá sitja árlega leiðtogar átta stærstu iðnríkja heims. Átta manns verður boðið að taka að sér hlutverk þjóðarleiðtoga í sýningu Kviss búmm bang, í átta lotum, og verða þátttakendur því 64. – Nú virðist þetta vera e.k. ádeila á þessa fundi G8, á þann hóp? „Óhjákvæmilega erum við að skoða þessa birtingarmynd lýðræðis því þarna eru valdamiklir menn á ferð en allt karlmenn, nema undir það síðasta, þá er þarna ein kona, Angela Merkel. Það er svona karla- saumaklúbbsbragur yfir þessu, þeir hittast, það er ákveðin opinber dag- skrá og svo veit maður ekki hvað gerist bak við luktar dyr. Og þeir taka ákvarðanir um málefni sem hafa áhrif á allan heiminn.“ Eva segir ákveðnar að- stæður skapaðar og persónur fyrir sýninguna sem fólk gangi inn í, tilgangurinn sé sá að fólk setji sig í spor annarra og upplifi eigin veruleika með öðrum hætti. Þríeykið hefur skrifað 64 handrit fyrir þetta þriggja daga verk. „Það skiptist í lot- ur, þú borgar þig inn í eina lotu af átta en mátt samt koma í fleiri og borgar þá meira fyrir,“ útskýrir Eva. „Eins og í öllum okkar verkum erum við mikið að velta fyrir okkur samfélagskerfinu, það er sjaldgæft að maður setji spurningar við það sem er orðið daglegt brauð eða hefðbundið fyrir manni.“ Aldrei já eða nei Fyrsta lotan í Great Group of Eight hefst á morgun kl. 11 með innsetningarathöfn á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins. Þar verður rætt við hvern og einn þátttakanda, hann settur í hlutverkið og þátttak- endur horfa á myndband um hvaða eiginleikum góður þjóðarleiðtogi þurfi að búa yfir. „Hann tekur fast í höndina á fólki, svarar aldrei ját- andi eða neitandi, er alltaf öruggur þótt hjartað slái hratt og hann titri að innan, sýnir það ekki því fólk þarf að geta treyst á hann. Og hann svarar spurningu með spurningu,“ nefnir Eva sem dæmi um hegðun þjóðarleiðtoga. „Þessu er öllu stýrt þannig að fólk þarf ekki að vera hrætt við að þurfa að vera æðislega flippað eða þurfa að spinna. Feimnir eru vel settir hjá okkur.“ Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt eru hvattir til að hringja í síma 898-3412 og skrá sig eða á vef Lókal. Almennt miðaverð er 2.700 krónur og 2.200 fyrir nema, öryrkja og eldri borgara. Þjóðarleiðtogar um stund Átta Veggspjald sýningarinnar The Great Group of Eight sýnir átta leiðtoga höfuðlausa. Þátttakendur munu bregða sér í hlutverk þeirra. Tríó Vilborg, Eva Björk og Eva Rún.  Á sýningu Kviss búmm bang, The Great Group of Eight, bregða þátttakendur sér í hlutverk þjóðarleiðtoga  Vísun í leiðtogafundi átta stærstu iðnríkjanna, G8 Manifesto Kviss búmm bang er svohljóðandi: „Hið eðlilega, og þar af leið- andi hið óeðlilega, er meginrann- sóknarefni okkar. Við teljum að setja megi spurningarmerki við allt. Það gerum við með því að skapa heim, samfélagslegan strúktúr sem þátttakendur fara inn í og upplifa. Við viljum rýna í hvað liggur að baki merkingum sem við gef- um hlutum, athöfnum og orðum. Í stað þess að skoða málin úr öruggri fjarlægð viljum fara inn í aðstæður sem okkur finnast for- vitnilegar og rannsaka þær innan frá. Við viljum færa leiklistina út í líf fólks með því að fá það til að skuldbinda sig til þátttöku í lengri tíma. Með því viljum við gera verkin hluta af hversdagslegri rútínu þátttakenda, að eins konar framlengingu á lífi þeirra, og þar með vekja með þeim spurn- ingar um þeirra eigin raunveru- leika.“ Spurningar- merki við allt MANIFESTO Angela Merkel  Umbrotsmann Morgunblaðsins rak í rogastans í fyrradag er hann hitti sjálfan Damon gamla Albarn í Hagkaupum, Grafarvogi, þar sem hann var að kaupa mjólk og brauð ásamt konu sinni. Albarn á sem kunnugt er einbýlishús í Grafar- voginum. Enginn kannaðist við Al- barn í Spönginni sem kláraði inn- kaupin áreitnilaust með bros á vör og glóð í geði. Damon Albarn í inn- kaupatúr í Grafarvogi!  Hljómsveitirnar Draumhvörf, Mikado og Two Tickets to Japan halda tónleika á Faktorý annað kvöld, fimmtudagskvöldið 2. sept- ember. Húsið opnað kl. 21, tón- leikar byrja kl. 22 og frítt er inn. Draumhvörf spilar einskonar progressive rokk undir áhrifum frá ýmsum mismunandi tónlistar- stefnum Mikado er progressive rokksveit og leggur mikinn metnað í flóknar og flottar lagasmíðar. Two Tickets To Japan spilar fram- úrstefnulega rokktónlist með áhrif- um frá ýmsum tónlistarstefnum. Draumhvörf, Mikado og Two Tickets to Japan  Stuðbandið Í svörtum fötum efnir til stórdansleiks á Hvíta húsinu Sel- fossi næsta laugardag, 4. sept- ember. Langt er síðan Jónsi og fé- lagar stigu á stokk á Selfossi þannig að stuðþyrstir Sunnlend- ingar geta hugsað sér gott til glóð- arinnar. Friðrik Dór treður upp ásamt svartstökkum. Í svörtum fötum með stuðball á Selfossi  Kvikmyndavefurinn Empire greinir frá því að kvikmyndaleik- stjórinn Darren Aronofsky hafi hug á því að leikstýra Wolverine 2, eða Jarfa 2. Jarfi er teiknimyndahetja úr röðum X-manna og hefur til þessa verið leikinn af Hugh Jackman. Empire segir þetta heldur ólíklegt verkefni fyrir leikstjóra á borð við Aronofsky, en hann á að baki mynd- ir á borð við The Wrestler, Requiem for a Dream og Pi. Skýringarinnar megi e.t.v. leita í því að þeir Jack- man séu vinir. Aronofsky spáir í Jarfa 2 Fólk www.lokal.is www.wix.com/vilgborgo/ kvissbummbang Hausttónleikar Harðar Torfa og vina Miðasala á tónleikana er hafin á Midi.is og í Borgarleikhúsinu í síma 568-8000. Nán- ari upplýsingar um Hörð má finna á hordurtorfa.com. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tónleikar Hörður kemur fram í september.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.