Morgunblaðið - 14.09.2010, Síða 28
28 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2010
16. september
1936 strandaði
rannsókn-
arskipið Pour-
quoi-Pas? á
skerinu Hnokka í
Borgarfirði og
með því fórst
franski heim-
skautafarinn og
leiðangursstjór-
inn Jean Baptiste
Charcot ásamt allri áhöfn utan ein-
um. Til minningar um þennan at-
burð hafa Alliance Française í
Reykjavik og Háskóli Íslands und-
anfarin ár boðið upp á erindi þann
16. september þar sem sögulegt og
vísindalegt gildi þessara leiðangra
fyrr og nú er reifað.
Í ár flytur dótturdóttir Charcots,
Anne-Marie Charcot, erindi um
daglegt líf í heimskautaleiðöngrum
og fjallar um ferð Pourquoi-Pas? til
Suðurskautsins 1908-1910. Í er-
indinu, sem flutt verður í Alliance
Française á Tryggvagötu 8 kl.
20:00 fimmtudagskvöld, sýnir
Anne-Marie Charcot áður óbirtar
myndir úr eigu fjölskyldunnar.
Leiðangurs
Charcot
minnst
Jean Baptiste
Charcot
Vestan hafs er
enn deilt um það
hversu nýrri bók
Jonathan Fran-
zen, Freedom,
var hampað.
Franzen hefur
ekki blandað sér
í deilurnar en í
útvarpsviðtali
nýverið á NPR
sagði hann að sér
sýndist sem ekki væri verið að veit-
ast að honum persónulega:
„Ég hef ekki fylgst náið með um-
ræðunum, en það litla sem ég hef
heyrt bendir ekki til þess að þetta
snúist um mína persónu. Þetta virð-
ist gagnrýni á annað, þetta er fem-
ínísk gagnrýni og hún snýr að því
magni umfjöllunar sem bækur
kvenna fá samanborið við magn
umfjöllunar sem bækur karla fá.
Og ég er er í raun sammála þessu
og hef verið í mörg ár.“
Femínísk
umræða um
Franzen
Jonathan
Franzen
Bjartur hefur gefið út reyf-
arann Þríforkinn eftir frönsku
skáldkonuna Fred Vargas.
Bókin segir frá glæpamáli sem
yfirlögregluforinginn Jean-
Baptiste Adamsberg glímir
við, en níu hafa verið stungin til
bana með óvenjulegu vopni,
þríforki, á sextíu ára tímabili. Í
öll skiptin var einhver grun-
aður um verknaðinn, handtek-
inn, og dæmdur í ævilangt
fangelsi. Morðingjarnir áttu annað en þríforkinn
sameiginlegt: Allir þjáðust af minnisleysi þegar
glæpurinn var framinn. Sagan endurtekur sig
þegar Adamsberg er sakaður um að hafa myrt
unga stúlku á skelfilegan hátt.
Bókmenntir
Bjartur gefur út
Þrífork Vargas
Kápa
Þríforksins.
Eins og áður hefur komið fram
fékk Einar Már Guðmundsson
heiðursverðlaun, sem kennd
eru við Bjørnstjerne Bjørnson,
fyrir stuttu. Hann veitti verð-
laununum viðtöku 30. ágúst sl.
við hátíðlega athöfn í Noregi. Í
rökstuðningi akademíunnar
kom meðal annars fram að
Einar væri meðal fremstu rit-
höfunda Norðurlanda, alvar-
legur og nútímalegur höfundur
með skínandi góðan húmor.
Talsverð umfjöllun var um verðlaunin í norsk-
um fjölmiðlum og ræddi Einar til að mynda við
fréttastofuna NTB um þau reikningsskil sem
óhjákvæmilega væru framundan á Íslandi.
Bókmenntir
Einar Már tekur
við verðlaunum
Einar Már
Guðmundsson
Síðastliðinn vetur var boðið
upp hádegistónleika í Frí-
kirkjunni í Reykjavík og þótti
takast vel. Hádegistónleik-
arnir hefjast að nýju á morgun
kl. 12:15 á sama stað og standa
í allan vetur.
Tónleikaröðin ber sem fyrr
heitið Ljáðu okkur eyra, en
listrænn stjórnandi og gest-
gjafi hennar er píanóleikarinn
og hljómsveitarstjórinn Gerrit
Schuil. Tónleikarnir hefjast ævinlega kl. 12:15 og
standa í hálftíma. Í upphafi þeirra býður gest-
gjafinn fólk velkomið og kynnir verkin sem flutt
verða. Aðgangur er ókeypis. Dagskrá hverra tón-
leika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur.
Tónlist
Ljáðu okkur eyra í
Fríkirkjunni
Gerrit
Schuil
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Íslensk-danski djasskvintettinn The
Vallekillers heldur tónleika í Risinu,
Tryggvagötu 20, á fimmtudags-
kvöld. Kvintettinn rekur uppruna
sinn til þess er þeir Snorri Sigurð-
arson trompetleikari og Sigurður
Flosason saxófónleikari héldu til
Danmerkur að taka þátt í náskeiði
fyrir atvinnudjassara.
Undanfarin ár hefur verið haldið í
Vallekilde á Sjálandi námskeið fyrir
atvinnudjassara, framan af aðallega
fyrir danska tónlistarmenn en síð-
ustu ár hefur tónlistarmönnum frá
hinum Norðurlandanna verið boðið
að vera með, þar á meðal frá Íslandi.
Að þessu sinni fóru þeir utan Snorri
og Sigurður, en Snorri segir að það
sé Sigurði að þakka að hann hafi far-
ið utan: „Siggi bauð mér að vera með
og ég kýldi á það.“
Snorri segir að námskeiðið sé ætl-
að fyrir starfandi tónlistarmenn, at-
vinnumenn í faginu, og fyrir vikið sé
öll spilamennska í hæsta gæðaflokki,
án þess hann vilji þó hampa sjálfum
sér í því sambandi. „Ég lærði heil-
mikið á því að fá að spila með þess-
um mönnum og að fá að djamma
með þeim fram eftir nóttu á hverju
kvöldi,“ segir Snorri og bætir við að
samburðurinn hafi líka sýnt honum
að íslenskir djassspilarar standi nor-
rænum starfsbræðrum lítt að baki,
„Án þess þó að ég sé endilega að
taka sjálfan mig með,“ segir hann og
hlær við.
Í kvintettinum spilar Snorri á
trompet og Sigurður á saxófón, Ey-
þór Gunnarsson leikur á píanó, Mor-
ten Ankerfeldt á kontrabassa og
Janus Templeton á trommur, en
þeir Ankerfeldt og Templeton eru í
fremstu röð ungra djasstónlist-
armanna í Kaupmannahöfn.
Flutt verður frumsamið efni eftir
þá Sigurð og Snorra í bland við
djassstandarda; „það kemur í ljós
hvað við spilum þegar þeir lenda“,
segir Snorri, en þeir Ankerfeldt og
Templeton koma hingað frá upp-
tökum í New York. „Námskeiðið var
ekki síst gott í því að mynda tengsla-
net og þeir höfðu til dæmis samband
við okkur til að geta tekið eitt gigg
hér á leiðinni heim til Danmerkur og
vonandi fær maður líka tækifæri til
að spila úti.“
Tónleikarnir á fimmtudagskvöld
hefjast kl. 21:00.
Íslensk-danskur djasskvin-
tett heldur tónleika í Risinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Atvinnumennska Snorri Sigurðarson trompetleikari er í íslensk-danska djasskvintettinum The Vallekillers.
Afrakstur nám-
skeiðs fyrir atvinnu-
menn í djassspila-
mennsku
Næstkomandi fimmudag verður opnuð í Grugli-
asco skammt utan við Tórínó á Ítalíu sýning á
verkum evrópskra myndhöggvara, en sýning-
unni er ætlað að sýna fjölbreytni og þróun í
höggmyndalist síðustu áratugi. Alls eru á sýn-
ingunni um 150 verk ríflega þrjátíu myndlist-
armanna, þar á meðal Guðrúnar Nielsen. Sýn-
ingin stendur til 6. nóvember.
Verk Guðrúnar á sýningunni heitir Labyrinth
og er sérstök útgáfa af samnefndu verki hennar
sem er nú í Harold Martin grasagarðinum í
Leicester á Englandi. „Á Ítalíu sýni ég fjóra
veggi verksins af sjö og restin af verkinu eru
krítarlínur á gólfi sem endurspegla verkið. Ég
smíðaði verkið hér á Íslandi og sendi það síðan
út, en þar er trégrind með strekktum striga sem
ég mála með ójöfnum lit þannig að þegar gengið
er í kringum það sést í gegnum strigann.“
Þegar Guðrún hefur unnið með form hingað til
hefur hún jafnan hulið þau, en þetta mun í
fyrsta sinn sem hægt er að sjá í gegnum þau, en
það vísar í upprunalega verkið í grasagarðinum.
„Í grasagarðinum gengur fólk í kringum verkið
og inn í það og sér þá gróðurinn og liti blómanna
í gegnum það,“ segir Guðrún, en verkið er um
það bil 2,70 m á hæð og spannar 4 x 5 m gólf-
plan.
Sýnendur í Grugliasco eru um þrjátíu talsins
eins og nefnt er, allt félagar í skúlptúrfélagi í
Þýskalandi að sögn Guðrúnar. „Listamenn sendu
inn umsóknir og síðan var valið úr þeim, en
þetta er í fyrsta sinn sem ég sýni með þessum
hópi. Þetta er svolítið öðruvísi skúlptúr en þegar
ég hef tekið þátt í samsýningum á Englandi,
ekki eins fígúratívur og mér finnst ég tengjast
þessum þýsku og ítölsku listamönnum betur.“
Guðrún verður ekki viðstödd opnunina, því
hún þarf að vera við aðra opnun, á verkinu
Changes sem sett hefur verið upp á Greenham
Common í Berksskíri á Englandi.
Völundarhús í Grugliasco
Þróun Labyrinth eftir Guðrúnu Nielsen en sér-
stök útgáfa þess er á sýningu á Ítalíu.
Guðrún Nielsen tekur
þátt í samsýningu evr-
ópskra listamanna á Ítalíu
Að einhverju leyti
kynni mín af þessum
sálarrannsóknarheimi á Ís-
landi 30
»