Morgunblaðið - 04.11.2010, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
kvísl. Sú breyting varð í júní í fyrra.
En má vænta fleiri breytinga á þess-
um slóðum?
Allt í einn farveg Gígjukvíslar
„Já, ég á von á því að Súla, sem
fellur undan Skeiðarárjökli vestan-
verðum og rennur í Núpsvötn muni
einnig safnast til Gígjukvíslar áður
en langt um líður,“ sagði Oddur.
Hann vildi ekki segja fyrir hvenær sú
breyting yrði en taldi að þangað til
væru þó fremur ár en áratugir miðað
við bráðnun jökla.
Súla er mun minna vatnsfall en
Skeiðará.
Við þessa breytingu mun því allt
vatn frá Skeiðarárjökli renna í einn
farveg og styrkja Gígjukvísl sem eitt
af meginvatnsföllum landsins. Oddur
sagði að ef þetta gerðist yrði það
sennilega í fyrsta skipti frá því á mið-
öldum sem allt vatn undan Skeiðar-
árjökli fer sömu leið til sjávar. Talið
er að um landnám hafi allt vatn und-
an Skeiðarárjökli runnið um miðbik
Skeiðarársands.
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kolmórauð Gígjukvísl rann undir allt haf brúarinnar í gær. Unnið var að því að verja staurasamstæðu raflínunnar sem liggur yfir ána.
Grímsvötn
Sk
ei
ða
rá
rj
ök
ul
l
Hábunga
Þórðarhyrna
Grænalón
Öræfa-
jökull
Skaftafell
Hlaup í Gígjukvísl
G
íg
ju
kv
ís
l
S
ke
ið
ar
á
Sú
la
Morgunblaðið/RAX
Vatnamælingar Gunnar Sigurðsson vatnamælingamaður tók gruggug sýni úr ánni. Hann og Hilmar Hróðmarsson hafa mælt hlaupið undanfarna daga.
Áin sem Grímsvatnahlaupið fór í
hefur ýmist verið nefnd Gígja eða
Gígjukvísl.
Oddur Sigurðsson jarðfræðingur
sagði í samtali við Morgunblaðið að
Gígja væri eiginlega gælunafn.
Samkvæmt öllum heimildum
heimamanna, til dæmis bæði þeirra
Hannesar heitins Jónssonar, land-
pósts á Núpsstað, og Ragnars heit-
ins Stefánssonar, bónda í Skafta-
felli, héti áin Gígjukvísl og því héldi
hann sig við það heiti á þessu mikla
vatnsfalli.
Gígja eða
Gígjukvísl?