Morgunblaðið - 04.11.2010, Síða 29
Við höfðum bæði dálæti á Dave
Brubeck og þá varð Take Five oft fyr-
ir valinu. Það var gott að hlusta með
þér. Ég sakna að fá þig ekki í fleiri
heimsóknir en ég geymi allar góðu
stundirnar okkar saman og þegar ég
hlusta á Brubeck eða aðra snillinga
hugsa ég til þín. Seinast þegar þú
komst varstu mikið veikur og Guðrún
þín annaðist þig af mikilli nærfærni
og yfirvegun. Ég segi bara eins og þú
sagðir oft þegar við vorum yngri og
eitthvað var að angra okkur: „Þurrk-
um bara tárin og ekkert væl!“ Bið
Guð að geyma Guðrúnu þína og alla
ykkar nánustu.
Hvíldu í friði elsku bróðir minn.
Þín systir,
Björk.
Það fyrsta sem kom upp í hugann
þegar ég frétti af andláti Hreins Hall-
dórssonar voru ótal ferðir sem við fór-
um, stuttar og langar. Árum saman
notuðum við flest tækifæri sem gáfust
til ferðalaga, lengi vel á Willys-jepp-
anum hans Hreins. Að okkar dómi
var fátt sem gat stöðvað för, hvorki
slæmt veður né mikill snjór. Þetta eru
frábærar minningar. Ávallt viðbúinn,
ekkert vesen, heiðarleiki og traust
einkenndu viðmót þessa góða drengs.
Leiðir okkar lágu fyrst saman í
Hjálparsveit skáta Reykjavík.
Hreinn tók að sér ákveðið leiðtoga-
hlutverk og leysti það frábærlega af
hendi. Hann var heldur eldri en
margir okkar félaganna, en hafði gott
lag á að nýta það í þágu sveitarinnar.
Hann átti stóran þátt í að byggja
sveitina upp fjárhagslega og gera
hana að öflugustu björgunarsveit
landsins. Á þessum árum eignaðist
sveitin Skátabúðina og í framhaldi af
því hófst flugeldasalan sem verið hef-
ur fjárhagslegur grundvöllur sveitar-
innar síðan. Smám saman byggðist
starfið upp og tækjabúnaðurinn varð
betri. Góðir hæfileikar Hreins og
þekking á viðskiptalífinu komu sér vel
og leiddu til skilnings á því að gott
starf kostaði peninga. Hann lagði líka
mikið upp úr aðhaldssemi í öllum
rekstri.
Hreinn hafði góðan húmor og átti
auðvelt með að sjá skoplegu hliðarnar
á málunum. Hann átti gott með að
umgangast fólk og laða það besta
fram í hverjum manni. Hann gat auð-
vitað reiðst en var fljótur að jafna sig.
Hann átti líka til að vera þrjóskur,
stundum úr hófi að okkur fannst.
Í stuttri minningargrein er erfitt að
segja sögur, þó að af nógu sé að taka.
Hvaða viðbrögð sýnir maður sem
kemur að jeppanum sínum sléttfull-
um af snjó eftir næturlanga norð-
lenska stórhríð? Eða uppgötvar fyrir
tilviljum að ferðafélagi hans til langs
tíma var með dýnamít í bakpokanum
sínum? Eða þegar félagar hans rugl-
uðu kveikjuþráðunum í jeppanum svo
hann fór ekki í gang? Eða þegar
hann, ásamt félögum sínum, var hálf-
villtur á ísilögðu Sandvatninu um
miðja vetrarnótt að berjast við að ná
jeppa upp úr vök á vatninu? Eða þeg-
ar hann komst áfallalaust erfiðar leið-
ir sem aldrei áður höfðu verið farnar á
neinu farartæki? Eða eftir að hafa
ásamt félögum sínum bjargað manns-
lífum, eða ekki náð að bjarga þeim
sem í nauðum voru staddir? Þetta er
aðeins lítill hluti af minningunum um
Hrein sem ávallt var skynsemin upp-
máluð, rólegur og yfirvegaður.
Við, gömlu félagarnir, eigum
Hreini Halldórssyni mikið að þakka.
Á mótunarárum í lífi okkar var hann
frábær félagi og foringi. Hann setti
hagsmuni heildarinnar ávallt ofar sín-
um eigin hagsmunum.
Fjölskyldu hans sendi ég innilegar
samúðarkveðjur. Megi minning um
góðan dreng lifa.
Tryggvi P. Friðriksson.
Við fráfall Hreins Halldórssonar
rifjast upp ótal myndbrot í huga mín-
um. Ég kynntist Hreini um 1965, þeg-
ar ég hóf störf við Verslun Sig.
Pálmasonar (VSP), þá var ég ungur
og óreyndur í viðskiptum, en Hreinn
var þá kaupmaður í Melabúðinni.
Hann var mjög áhugasamur um
rekstur VSP og keypti þar kjöt og
aðrar afurðir. Stuttu fyrir 1970 hófum
við handvinnslu á rækju í sláturhúsi
VSP, og var sú starfsemi í tvo vetur.
Fljótt kom í ljós að mikil tækifæri fól-
ust í rækjuiðnaði og var þá afráðið að
stofna félag um slíkan rekstur á
Hvammstanga, hlaut það heitið Me-
leyri og varð mikil lyftistöng í at-
vinnumálum héraðsins. Fyrstu árin
var aðeins unnin rækja á vetrum,
veidd á smáum bátum á innfjörðum
Húnaflóa, en fljótlega urðu umsvif
meiri og skipakaup og úthafsveiðar að
veruleika.
Árið 1978 flutti Hreinn með konu
sinni Þorbjörgu og fjölskyldu til
Hvammstanga og varð framkvæmda-
stjóri Meleyrar. Félagið óx og dafnaði
og byggð voru hús fyrir reksturinn og
fyrirtækið vélvætt. Hann lét síðar af
þessu starfi og sneri sér að öðrum
áhugamálum.
Þegar VSP hætti rekstri árið 1988
voru miklir erfiðleikar hjá mér og
fjölskyldunni og ljóst að næstu jól og
áramót yrðu svipur hjá sjón. Þá höfðu
Hreinn og Guðrún seinni kona hans
frumkvæði að ferð okkar hjóna í
skíðaferð til Austurríkis. Lagt var
upp á Þorláksmessu og dvalið ytra yf-
ir hátíðarnar, jólin fluttum við með
okkur í formi hangikjöts og tilheyr-
andi. Þá, og í mörgum öðrum tilfell-
um, sýndi hann næman skilning á
högum samborgara sinna. Leiðir okk-
ar lágu oft saman í félagsstarfi og fjöl-
skyldusamböndum, en Hreinn og
Anne Mary voru systkinabörn, afa-
börn Sigurðar Pálmasonar kaup-
manns. Hann sýndi mér m.a. hálendi
landsins, sunnan jökla, og var mikill
náttúruunnandi.
Hreini var annt um samfélag sitt og
kom mörgu í verk, ekki skorti hug-
myndirnar. Nefna má skíðaferðir
með krökkum á staðnum til Akureyr-
ar, eins mörgum og hægt var að troða
í jeppann, skíðatogbraut í Hvammin-
um, vélsleðaferðir, sjóferðir og margt
fleira. Hann átti til að vera nokkuð
harður í gagnrýni á samfélagið og lét
stjórnendur sveitarfélagsins stundum
fá erindi inn á borð sitt um það sem
betur mætti fara. Hann fékk því hlut-
verk hjá skemmtinefnd þorrablótsins
um árabil, síðast kallaður „rödd skyn-
seminnar“.
Óvænt veikindi hafa orðið til þess
að þessi gamli og góði félagi er horf-
inn á braut úr lífi okkar. Minning
hans sem framkvæmdamanns, orku-
bolta og grallara, en umfram allt góðs
drengs, lifir með okkur vinum hans.
Hann verður kvaddur frá Hvamms-
tangakirkju og jarðsettur í Kirkju-
hvammi. Hér voru hans rætur og hér
mun hann hvíla. Innilegar samúðar-
kveðjur til fjölskyldu Hreins frá okk-
ur hjónum, einnig frá Geir og Val,
sonum okkar, sem dveljast nú erlend-
is.
Guð blessi minningu Hreins Hall-
dórssonar.
Karl og Anne Mary.
Kæri vinur, ég vil minnast þín með
nokkrum orðum bæði við leik og
störf. Þú varst alltaf mjög hugmynda-
ríkur og með áhugaverðar hugmynd-
ir um samfélag okkar, hvað betur
mætti fara.
Samstarf okkar við ýmis fyrirtæki
hér á Hvammstanga var ánægjulegt.
Margar ferðir fórum við á snjósleð-
um að skoða fallega landið okkar.
Það var Víðidalstunguheiði, Holta-
vörðuheiði, Langjökull til Hveravalla,
Steingrímsfjarðarheiði á Drangajök-
ul og á Snæfjallaströnd ef fært var.
Arnarvatnsheiðin var ekki út und-
an en þú varst aldrei hrifin af henni.
Fyrir utan þetta var Vatnsnesfjall-
ið þrætt þvert og endilangt.
Við Brynja áttum þess kost að
ferðast erlendis með þér og eru þær
ferðir okkur ógleymanlegar.
Við hjónin kveðjum núna þennan
heiðursmann og vottum Guðrúnu og
ættingjum Hreins okkar dýpstu sam-
úð.
Dökkur skuggi á daginn fellur,
dimmir yfir landsbyggðina.
Köldum hljómi klukkan gellur,
kveðjustund er milli vina.
Fallinn dómur æðri anda,
aðstandendur setur hljóða.
Kunningjarnir klökkir standa,
komið skarð í hópinn góða.
Gangan með þér æviárin
okkur líður seint úr minni.
Við sem fellum tregatárin
trúum varla brottför þinni.
Þína leið til ljóssins bjarta
lýsi drottins verndarkraftur.
Með kærleiksorð í klökku hjarta
kveðjumst núna, sjáumst aftur.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Blessuð sé minning Hreins Hall-
dórssonar.
Brynja og Brynjólfur
Sveinbergsson.
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi.
Takk fyrir allar yndislegu
samverustundirnar með okkur
í gegnum tíðina.
Minning þín mun lifa með
okkur.
Jóhann, Agla og börn.
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Tangarhöfði 5, 204-3133, Reykjavík, þingl. eig. JE fasteignir ehf., gerð-
arbeiðendur Reykjavíkurborg ogTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn
8. nóvember 2010 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
3. nóvember 2010.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Aðalgata 8, fastanr. 213-1111, Skagafirði, þingl. eig. Hilmar Sverrisson
og Jenný Karólína Ragnarsdóttir, gerðarbeiðandi AFL-sparisjóður og
sveitarfélagið Skagafjörður, þriðjudaginn 9. nóvember 2009 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
3. nóvember 2010.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Ránarbraut
1, Vík í Mýrdal, miðvikudaginn 10. nóvember 2010 kl. 13.30, á
eftirtöldum eignum:
Teygingalækur/Hruni I, Skaftárhrepp, fnr. 225-5519, þingl. eig. Glæðir
ehf. Gerðarbeiðendur eru Skaftárhreppur og Arion banki hf.
Nýi-Bær, lóð, Skaftárhrepp, fnr. 225-5520, þingl. eig. Glæðir ehf.
Gerðarbeiðandi er Skaftárhreppur.
Klausturvegur 3-5, Skaftárhrepp, fnr. 219-0846, þingl. eig. Glæðir ehf.
Gerðarbeiðandi er Skaftárhreppur og Arion banki hf.
Sýslumaðurinn í Vík.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Hörðuvöllum
1, Selfossi, sem hér segir, á eftirfarandi eignum:
Austurey, lóð 167683, Bláskógabyggð, fnr. 220-6123, þingl. eig. Sig-
urður IngiTómasson, gerðarbeiðandiTollstjóri, fimmtudaginn 11. nóv-
ember 2010 kl. 10:00.
Breiðanes 166542, Skeiða- og Gnúpverjahr., fnr. 166542, ehl. gþ.,
þingl. eig. Sesselja Loftsdóttir, gerðarbeiðandi Lýsing hf, fimmtudag-
inn 11. nóvember 2010 kl. 10:00.
Lindarskógur 6-8, Bláskógarbyggð, fnr. 221-9163, þingl. eig. Ásvélar
ehf, gerðarbeiðendur Bláskógabyggð og Söfnunarsjóður lífeyrisrétt-
inda, fimmtudaginn 11. nóvember 2010 kl. 10:00.
Miðheiðarvegur 2, Grímsnes- og Grafningshr., fnr. 220-8110, ehl. gþ.,
þingl. eig.Tekk vöruhús ehf, gerðarbeiðandiTollstjóri, fimmtudaginn
11. nóvember 2010 kl. 10:00.
Smiðjustígur 17C, Hrunamannahr. fnr. 224-8410, þingl. eig. Sólveig
Hallgrímsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 11.
nóvember 2010 kl. 10:00.
Þórisstaðir, lóð nr. 10, fnr. 220-8455, Grímsnes- og Grafningshr.,
ehl.gþ., þingl. eig. Skúli Óskarsson, gerðarbeiðandi Grímsnes- og
Grafningshreppur, fimmtudaginn 11. nóvember 2010 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
3. nóvember 2010.
Ólafur Helgi Kjartansson.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir, á eftirfarandi eignum:
Aðalstræti 9, 200-2647, Reykjavík, þingl. eig. Fermeter ehf., gerðar-
beiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 8. nóvember 2010
kl. 10:00.
Aðalstræti 9, 229-6383, Reykjavík, þingl. eig. Gunnarsfell ehf., gerðar-
beiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 8. nóvember 2010
kl. 10:00.
Aðalstræti 9, 229-6384, Reykjavík, þingl. eig. Fermeter ehf., gerðar-
beiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 8. nóvember 2010
kl. 10:00.
Aðalstræti 9, 229-6388, Reykjavík, þingl. eig. Fermeter ehf., gerðar-
beiðandiTryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 8. nóvember 2010
kl. 10:00.
Asparfell 12, 205-1971, Reykjavík, þingl. eig. Harpa Hrönn Gestsdóttir
og Runólfur Hjalti Eggertsson, gerðarbeiðendur Asparfell 2-12, hús-
félag og Íslandsbanki hf., mánudaginn 8. nóvember 2010 kl. 10:00.
Álfaborgir 15, 223-3220, Reykjavík, þingl. eig. Vignir Már Sigurðsson,
gerðarbeiðendur Álfaborgir 15,húsfélag, NBI hf., Reykjavíkurborg og
Vörður tryggingar hf., mánudaginn 8. nóvember 2010 kl. 10:00.
Ármúli 38, 221-3259, Reykjavík, þingl. eig. Markaðsmenn ehf., gerðar-
beiðendur Eftirlaunasj atvinnuflugmanna ogTollstjóri, mánudaginn
8. nóvember 2010 kl. 10:00.
Ástu-Sólliljugata 1, 231-5108, Mosfellsbæ, þingl. eig. Byggingafélagið
Bjarghús ehf., gerðarbeiðandi Steypustöðin ehf., mánudaginn 8. nóv-
ember 2010 kl. 10:00.
Ástu-Sólliljugata 1, 231-5109, Mosfellsbæ, þingl. eig. Byggingafélagið
Bjarghús ehf., gerðarbeiðandi Steypustöðin ehf., mánudaginn 8. nóv-
ember 2010 kl. 10:00.
Ástu-Sólliljugata 3, 231-5131, Mosfellsbæ, þingl. eig. Byggingafélagið
Bjarghús ehf., gerðarbeiðandi Steypustöðin ehf., mánudaginn 8. nóv-
ember 2010 kl. 10:00.
Ástu-Sólliljugata 5, 231-5133, Mosfellsbæ, þingl. eig. Byggingafélagið
Bjarghús ehf., gerðarbeiðandi Steypustöðin ehf., mánudaginn 8. nóv-
ember 2010 kl. 10:00.
Ástu-Sólliljugata 7, 231-5135, Mosfellsbæ, þingl. eig. Byggingafélagið
Bjarghús ehf., gerðarbeiðandi Steypustöðin ehf., mánudaginn 8. nóv-
ember 2010 kl. 10:00.
Ástu-Sólliljugata 7, 231-5136, Mosfellsbæ, þingl. eig. Byggingafélagið
Bjarghús ehf., gerðarbeiðandi Steypustöðin ehf., mánudaginn 8. nóv-
ember 2010 kl. 10:00.
Barðastaðir 1-5, 224-6057, Reykjavík, þingl. eig. Hafræna ehf., gerðar-
beiðendur Lífeyrissjóður verslunarmanna og Sparisjóðurinn í Kefla-
vík, mánudaginn 8. nóvember 2010 kl. 10:00.
Barmahlíð 23, 224-1121, Reykjavík, þingl. eig. Valdimar Páll Halldórs-
son og Laurie Anne Berg, gerðarbeiðendurTollstjóri og Vátrygginga-
félag Íslands hf., mánudaginn 8. nóvember 2010 kl. 10:00.
Bárugata 34, 200-1438, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Björk Kristjáns-
dóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. ogTollstjóri, mánudaginn
8. nóvember 2010 kl. 10:00.
Bergstaðastræti 25, 200-7066, Reykjavík, þingl. eig. ÞK verk ehf., gerð-
arbeiðandi Sameinaði lífeyrissjóðurinn, mánudaginn 8. nóvember
2010 kl. 10:00.
Bíldshöfði 14, 221-9294, Reykjavík, þingl. eig. Viking Fish ehf., gerðar-
beiðandi Vörður tryggingar hf., mánudaginn 8. nóvember 2010
kl. 10:00.
Brekkuhús 1, 223-7892, Reykjavík, þingl. eig. Fermeter ehf., gerðar-
beiðendur Húsfélagið Brekkuhúsum 1 ogTryggingamiðstöðin hf.,
mánudaginn 8. nóvember 2010 kl. 10:00.
Byggðarholt 9, 208-2924, Mosfellsbæ, þingl. eig. Elva Ösp Ólafsdóttir
og Örn Sölvi Halldórsson, gerðarbeiðendur Gluggar & Klæðning ehf.
og Lífeyrissj.starfsm.rík. A-deild, mánudaginn 8. nóvember 2010
kl. 10:00.
Esjugrund 92A, 208-5660, Reykjavík, þingl. eig. Þórður Daníel Þórðar-
son og Erla Bogadóttir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn
hf., SP Fjármögnun hf. ogTollstjóri, mánudaginn 8. nóvember 2010
kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
3. nóvember 2010.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt
á reitinn Senda inn efni á forsíðu
mbl.is og viðeigandi efnisliður val-
inn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birt-
ingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birt-
ast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda
lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt
að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um fæddist, hvar og hve-
nær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn.
Minningargreinar