Morgunblaðið - 04.11.2010, Qupperneq 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Í tengslum við norrænu listahátíð-
ina Ting, sem nú stendur yfir, verð-
ur staðið fyrir norrænni tónlist-
arhelgi undir heitinu Direkt, sem
verður hleypt af stokkum í kvöld.
Fram koma hin sænska Wildbirds
& Peacedrums, hin norska Dat-
arock, íslenskar mektarsveitir eins
og Hjaltalín og Retro Stefson og
hin danska Slaraffenland, sem leik-
ur í kvöld í Tjarnarbíói
Skýringar
Dönum hefur lengi verið núið því
um nasir að þeir kunni ekki að búa
til tónlist, allir hæfileikarnir fari í
kvikmyndagerð. Á undanförnum
árum hafa þó orðið miklar breyt-
ingar í þessa veru, sveitir eins og
Under Byen, Oh No Ono, Mew,
Choir Of Young Believers og Ef-
terklang hafa borið með sér ferska
og nýstárlega strauma, að ekki sé
talað um hina stórgóðu útgáfu
Crunchy Records. Slaraffenland
smellpassar í þennan hóp; búa til
tilraunakennt popp ekki ósvipað
því sem Oh No Ono og Efterklang
hafa verið að matreiða en á milli
Slaraffenland og Efterklang er
mikil og góð samvinna og slá sveit-
irnar stundum saman í tónleika.
„Það er ansi frísk neðanjarðar-
og tilraunasena í gangi hérna
núna,“ segir Christian Taagehøj,
einn af fimm meðlimum sveit-
arinnar. „Það hefur verið mikið af
áhugaverðum sveitum að koma
fram undanfarin fimm ár eða svo
og þær verða betri og betri.“
Taagehøj er sosum ekki með
skýringar á takteinum, en segir að
það sé eins og danskar sveitir hafi
verið að fá aukið sjálfstraust, hafi
þorað að vera frumlegar í stað þess
að apa erlenda strauma upp.
Internetið
„En ekki það að við sækjum okk-
ur ekki innblástur,“ heldur Taage-
høj áfram. „Björk og Sigur Rós
t.d., það er eitthvað sem maður lít-
ur til. En annars hrærum við öllu
saman, djassi, balkan, og saxafónn-
inn kemur sterkur inn hjá okkur.
Núna t.d. erum við mikið að pæla í
afrískum gítar.“
Slaraffenklang heitir sveitin
þegar búið er að hræra saman
Efterklang og Slaraffenland.
Taagehøj segir að mikill vinskapur
sé á meðal meðlima og einn úr sínu
gengi spili gjarnan á tónleikum
með Efterklang.
„Við tökum lög eftir þessar tvær
sveitir í nýjum útsetningum. Við
reynum að hjálpast að og það er
reyndar mikil og góð stemning inn-
an þessarar neðanjarðarsenu, fólk
reynir að styðja hvað annað.“
Taagehøj viðurkennir að þeir
hafi mjög gaman af því að ná fleiri
eyrum, og gerði sveitin samning
við Portland útgáfuna Hometapes
árið 2006.
„Við höfum líka spilað í Chicago,
en síðrokkið þaðan hafði mikil
áhrif á okkur. Svo er maður stein-
hissa hvað margir virðast þekkja
þessa hljómsveit. Við fengum m.a.
bón frá Spáni á dögunum um að
spila þar. Já, þetta internet mað-
ur …“
Allt er ekkert, ekkert er allt
Forvitni Formið er galopnað í tónlist Slaraffenland og reglubók poppfræð-
anna kastað út um gluggann. Óhræddir hræra þeir öllu saman.
Hin danska
Slaraffenland
opnar Norræna
tónlistarhelgi
Tónleikarnir fara fram í Tjarnarbíói
og hefjast kl. 21. Einnig koma fram
Budam frá Færeyjum og Orphic
Oxtra. Miðaverð er 1.500 kr í for-
sölu
SÍMI 564 0000 FULLKOMIN GÆÐI
16
16
L
16
16
7
12
L
L
L
SÍMI 462 3500
16
L
16
7
12
MACHETE kl.8-10
ÚTIERÆVINTÝRI2 kl.6
TAKERS kl.10.15
SOCIALNETWORK kl.8
BRIM kl. 6
SÍMI 530 1919
12
L
16
7
12
L
KIDS ARE ALLRIGHT kl.8-10.15
MEÐHANGANDIHENDI kl.6
INHALE kl.6- 8-10
SOCIALNETWORK kl.6-9
BRIM kl.6-8
EATPRAYLOVE KL. 10
MACHETE kl.5.40-8-10.20
MACHETE LÚXUS kl.10.20
ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 kl.3.40
INHALE kl.6-8-10.40
TAKERS kl.10
SOCIALNETWORK kl.5.20-8-10.35
BRIM kl.4-6
EATPRAYLOVE kl.8
AULINN ÉG2D kl. 3.40
AULINN ÉG 3D kl. 3.40
.com/smarabio
NÝTT Í BÍÓ!
ÍSLENSKT TAL
STEVE CARELL
Sýnd kl. 7:30 og 10:10
Sýnd kl. 5:50
Sýnd kl. 8 og 10:10
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
MATT DILLON PAULWALKER IDRIS ELBA
JAYHERNANDEZ MICHAEL EALY TIP “T.I! HARRIS
CHRIS BROWN HAYDEN CHRISTENSEN
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10 POWERSÝNING
POWE
RSÝN
ING
Á STÆ
RSTA
DIGIT
AL
TJALD
I LAN
DSINS
KL. 10
:10
Sýnd kl. 6 - 2D ísl. tal
-bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
www.laugarasbio.is − bara lúxus
MIÐASALA OPNAR KL. 17:00 Í DAG
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn