Morgunblaðið - 04.11.2010, Síða 36
AF LISTUM
Bergþóra Njála
Guðmundsdóttir
ben@mbl.is
Spennustigið í stóra sal Borg-arleikhússins er sjaldnasteins hátt og á keppnis-
kvöldum Skrekks en undirrituð átti
því láni að fagna að vera viðstödd
undanúrslitakeppnina síðastliðinn
þriðjudag. Þar kepptu sjö skólar
um að komast í úrslitakeppnina
sem fram fer í næstu viku.
Stemningin var ólýsanleg –
upptendruð stuðningsmannalið
skólanna skipuð skólafélögum lista-
mannanna hvöttu sitt fólk áfram
með ráðum og dáð og var ekki laust
við nokkurn taugatitring meðal
áhorfenda. Kom þar vel í ljós sá
gríðarlegi munur sem er á stærð
skólanna; á meðan Hagaskóli t.d.
hafði hundraða manna áhorf-
endalið sér til fulltingis var vel-
flesta nemendur annarra skóla að
finna í atriðinu sjálfu en ekki í
áhorfendasalnum og því ekki laust
við að hvatningarkór þeirra væri
dálítið þunnskipaður.
Þessi ójöfnuður endurspegl-
aðist þó engan veginn í frammistöð-
unni á sviðinu því maður varð eig-
inlega orðlaus yfir framúrskarandi
hæfileikum krakkanna sem þar
tróðu upp, án nokkurs hiks, fáts eða
fums. Þarna voru frábærir leik-
arar, dansarar, söngvarar og tón-
listarmenn, að ekki sé talað um þá
sem áttu heiðurinn af búningum,
förðun, leikmynd, handritasmíð og
hugmyndunum að baki atriðunum.
Íslenskt listalíf þarf litlu að kvíða í
framtíðinni gefi krakkarnir sem
komu fram í Borgarleikhúsinu á
þriðjudag þversnið af þeim hæfi-
leikum sem æska landsins býr yfir.
Það þarf þó ekki bara hæfi-leika heldur líka dug og þor til
að standa fyrir sínu á stóra sviði
Borgarleikhússins fyrir fullu húsi
kappsfullra áhorfenda án þess að
kikna í hnjánum. Þá þrekraun stóð-
ust krakkarnir undantekningar-
laust, og höfðu að auki töluverðan
húmor fyrir sjálfum sér sem skilaði
sér beint til gestanna. Það var líka
fallegt að upplifa boðskapinn í
verkum krakkanna og það sem
liggur þeim á hjarta. Þar voru ekki
lítil mál á ferð, heldur tekist á við
klassískar spurningar um lífið,
dauðann, mannleg samskipti,
listina og ástina. Þannig voru fjög-
ur brúðkaup sett á svið þetta kvöld,
jarðarför og tónlistarsaga síðustu
áratuga auk þess sem tekist var á
við eilífðarsannleik eins og þann að
maðurinn uppskeri eins og hann sá-
ir og að ekki þurfi allir að falla í
sama mót.
Að baki atriðunum liggurmargra vikna þrotlaus vinna
krakkanna enda var ekki laust við
spennufall þegar úrslitin voru
kunngjörð með tilheyrandi gleði
eða vonbrigðum. Í því felst líka dýr-
mætur lærdómur fyrir óharðnaða
unglinga.
Aðstandendur Skrekks eiga
margfalt hrós skilið fyrir að veita
þessum krökkum farveg fyrir tján-
ingarþörf sína og hæfileika því með
þátttöku sinni fá þeir reynslu sem á
eftir að nýtast þeim um alla fram-
tíð.
Fjögur brúðkaup og jarðarför
» Þar voru ekki lítilmál á ferð, heldur
tekist á við klassískar
spurningar um lífið,
dauðann, mannleg sam-
skipti, listina og ástina.
Ljósmynd/Helga Björnsdóttir.
Eilífðin Krökkunum í Vogaskóla var lífið eftir dauðann hugleikið og hvernig ein kynslóð tekur við af annarri.
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2010
Píanóleikarinn og söngvasmiðurinn
Jón Ólafsson mun í kvöld bjóða til sín
gítarleikaranum og tónskáldinu
Gunnari Þórðarsyni, fara yfir feril
hans og þekktustu lagasmíðar. Yf-
irskrift tónleikanna er Af fingrum
fram en Jón gerði þætti með því nafni
fyrir Sjónvarpið í þrjá vetur og eru
þættirnir fyrirmynd tónleikanna.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu í tón-
leikaröð og mun Jón fá marga góða
gesti til sín á næstu mánuðum: Ragn-
ar Bjarnason, Pál Óskar Hjálmtýs-
son, Egil Ólafsson, Björgvin Hall-
dórsson og Guðrúnu Gunnarsdóttur.
Um tónleikana segir í tilkynningu
að þessi framsetning skili sér ein-
staklega vel í Salnum þar sem yfir-
gripsmikil þekking Jóns á viðfangs-
efninu, látlaus framkoma og
skemmtileg kímnigáfa skili sér í
heimilislegri stemningu sem sé ein-
stök í Salnum.
Gunnar þarf vart að kynna enda
einn vinsælasti og þekktasti lagahöf-
undur Íslands. Af þekktum lögum
eftir Gunnar má nefna „Fyrsta koss-
inn“, „Bláu augun þín“, „Þú og ég“ og
„Þitt fyrsta bros“. Gunnar mun að
sjálfsögðu mæta með gítarinn og
flytja lög sín með Jóni og á milli laga
munu þeir ræða saman um feril
Gunnars, hljómsveitirnar sem hann
hefur verið í og plöturnar sem hann
hefur gefið út. Tónleikarnir hefjast kl.
20.30 og fer miðasala fram á midi.is.
Jón og Gunnar leika af fingrum fram
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gesturinn Gunnar Þórðarson er fyrsti gestur Jóns í tónleikaröðinni Af
fingrum fram. Hér sést hann á Vísnaplatnatónleikum í Hofi á Akureyri.
Jón Ólafsson fer yfir feril Gunnars
Þórðarsonar í Salnum Fyrstu tón-
leikar raðarinnar Af fingrum fram
Breski tónlistarmaðurinn Damon
Albarn hefur stofnað hljómsveit
með trommaranum Tony Allen og
bassaleikara Red Hot Chili Pep-
pers, Flea. Hljómsveitin er ónefnd
enn en hefur þó lokið þremur
fjórðu hlutum fyrstu plötu sinnar,
að sögn Albarn. Albarn segir tónlist
hljómsveitarinnar byggjast á því
sem Allen hefur áður gert, og á þar
við afróbít. Allen og Albarn hafa
áður unnið saman, að plötunni The
Good, The Bad & The Queen.
Albarn vinn-
ur með Flea
Fjölhæfur Albarn hefur m.a. unnið
með sveitunum Blur og Gorillaz.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
- SJÁÐU/STÖÐ 2
HHHH
- H.S. MBL
HHHH
„FRAMVINDAN SVO
ÁREYNSLULAUS OG
SKEMMTILEG AÐ
ÁHORFANDINN
GLEYMIR SÉR.“
- R.E. FBL
HHHH
„BESTA MYND SINNAR
TEGUNDAR Á KLAKANUM
OG HIKLAUST EIN AF BETRI
ÍSLENSKUM MYNDUM SEM
ÉG HEF SÉÐ.“
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
- Ó.H.T. – RÁS2
7
BYGGÐ Á METSÖLUBÓKUNUM UM UGLURNAR AF GA‘HOOLE
LANGFLOTTASTA ÞRÍVÍDDAR MYNDIN
SÍÐAN AVATAR
FRÁ ZACK SNYDER, LEIKSTJÓRANUM SEM
FÆRÐI OKKUR 300 OG WATCHMEN
HHHH
„SKEMMTIR FULLORÐNUM
JAFNT SEM BÖRNUM“
- USA - TODAY
HHHH
„SJÓNRÆN VEISLA Í
ÞRÍVÍDD“
- ENTERTAINMENT WEEKLY
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HHHH
- JOBLO.COM
HHHH
„A HAUNTING,
TOUCHING AND
UNFORGETTABLE
THRILLER.“
- BOXOFFICEMAGAZINE
100/100
„ONE OF THE YEAR’S MOST
POWERFUL THRILLERS.“
- HOLLYWOOD REPORTER
100/100
- VARIETY
Stephen King segir:
„Það gildir einu hvort
að þú sért unglingur
eða kvikmyndaáhuga-
maður á fimmtugs-
aldri, þú verður
dolfallinn.”. KODI
SMIT-MCPHEE
CHLOE GRACE
MORETZ
RICHARD
JENKINS
Frá leikstjóra Cloverfield
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
12.000gestir
BESTA SKEMMTUNIN
LET ME IN kl.8 -10:30 16 ÓRÓI kl.5:50-8-10:20 10
THE SWITCH kl.6 -8:10-10:20 10 FURRY VENGEANCE kl.6 L
KONUNGSRÍKI UGLANNA - 3D m. ísl. tali kl.5:503D 7 DINNER FOR SCHMUCKS kl.8 -10:30 7
THE TOWN kl.8 -10:30 16 ALGJÖR SVEPPI OG DULARFULLA... kl.63D L
THE TOWN kl.6 -9:15 VIP-LÚXUS
/ ÁLFABAKKA
LET ME IN kl. 8 - 10:30 16
THE SWITCH kl. 8 10
KONUNGSRÍKI UGLANNA 3D m. ísl. tali kl. 5:503D 7
LEGEND OF THE GUARDIANS 3D m. ensku tali ótextuð kl. 5:503D 7
ÓRÓI kl. 10:10 10
THE TOWN kl. 8 - 10:30 16
FURRY VENGEANCE kl. 5:50 L
/ KRINGLUNNI