Morgunblaðið - 11.11.2010, Síða 8
BAKSVIÐ
Una Sighvatsdóttir
una@mbl.is
„Það hefur tekist að opna umræðuna
þannig að sjálfsvíg eru ekki eins
mikið tabú og þau voru áður,“ segir
sr. Halldór Reynisson. Hann er for-
maður Nýrrar dögunar, samtaka um
sorg og sorgarviðbrögð, sem í kvöld
standa fyrir fræðslufundi um sorg
eftir sjálfsvíg.
Í hverjum mánuði svipta að með-
altali þrír til fjórir einstaklingar sig
lífi á Íslandi, skv. upplýsingum frá
Landlæknisembættinu. Halldór
bendir á að almennt látist fleiri
vegna sjálfsvíga á Íslandi en vegna
umferðarslysa. Árið 2009 sem dæmi
létust 17 manns í banaslysum í um-
ferðinni, en 36 sviptu sig lífi.
„Ég leyfi mér að setja fram þenn-
an samanburð vegna þess að menn
taka ekki alltaf eftir því hvað þetta
er í raun stórt vandamál,“ segir Hall-
dór. „Þetta er falið og það er hluti af
því sem Ný dögun vinnur að, ásamt
heilbrigðiskerfinu öllu, að hafa um-
ræðuna um sjálfsvíg opnari og hjálpa
fólki út úr þessari stimplun sem hef-
ur svo lengi fylgt sjálfsvígum.“
„Smitáhrif“ frægra sjálfsvíga
Áður fyrr var það stundum við-
horfið að ekki væri rétt að fjalla um
sjálfsvíg vegna þess að þá skapaðist
sú áhætta að fólk í svipuðum hugleið-
ingum myndi fylgja fordæminu
Það er ekki nýtt af nálinni að
bylgja sjálfsvígstilrauna fylgi sjálfs-
vígi frægs einstaklings. Hefur stund-
um verið vísað í fyrirbærið sem
„Werther-heilkennið“ eftir skáld-
sögu Goethe, Raunir Werthers unga.
Halldór segir að menn tali stund-
um um „smitáhrif“ sjálfsvíga en
flestir þeir sem vinni í því að takast á
við þennan vanda séu þó á þeirri
skoðun að umræðan verði að vera
opin. „En getur verið vandasamt
hvernig á að ræða þau og það sem
menn vilja fyrst og fremst forðast er
að sjálfsvíg séu rómantíseruð.“
Halldór segir að þörfin sé sann-
arlega til staðar fyrir stuðningshóp
fyrir aðstandendur fólks sem sviptir
sig lífi. Að missa einhvern nákominn
skyndilega eða ótímabært sé alltaf
gríðarlegt áfall og þegar um er að
ræða sjálfsvíg verði oft enn erfiðara
fyrir fólk að vinna úr sorginni.
„Þá bætast við sektarkennd, reiði
og jafnvel skömm. Sjálfsásakan-
ir, sem eru mjög erfiðar tilfinn-
ingar.“ Vegna þess hve við-
kvæm sjálfsvíg eru, og hve
lengu þau hafi verið tabú,
segir Halldór að svo virðist
líka vera sem umhverfið eigi
erfiðara með að nálgast syrgj-
andann. Fundur Nýrrar dög-
unar er í Háteigskirkju í kvöld
kl. 20.30. Skráð verð-
ur í stuðningshóp að-
standenda.
Sjálfsvíg eru samfélagsmein
sem nauðsyn er að ræða
Fleiri deyja vegna sjálfsvíga en bílslysa Sorg vegna sjálfsvíga rædd í kvöld
Morgunblaðið/Golli
Þunglyndi Sjálfsvígum ungra karla hefur fjölgað undanfarna áratugi. Sjálfsskaðandi hegðun og dauðahugsanir eru
þó algengari hjá konum. Tíðni sjálfsvíga er þó í lægri kantinum hér m.v. annars staðar á Norðurlöndum.
8 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
Lengi hefur verið bærileg sáttum Ríkisútvarp, þótt tækni-
framfarir hafi auðveldað einkafyr-
irtækjum slíkan rekstur. Rök um
öryggishlutverk og hlutleysi hafa
ráðið mestu um þetta. En Ríkis-
útvarpið hefur því miður hvað eftir
annað brugðist öryggishlutverkinu,
og eru jarðskjálftarnir fyrir ára-
tug, Eyjafjallajökulsgosið og fram-
gangan við „búsáhaldabyltinguna“
glögg dæmi af mörgum. Frétta-
stofa RÚV er að auki mjög höll und-
ir einn stjórnmálaflokk landsins.
Um það er varla deilt. Gagnrýn-
islaus stuðningur hennar við ESB
aðild er sjálfsagt hluti af þeim
vanda.
Evrópuvaktin nefnir nýlega eittlítið dæmi til sögunnar: „Það
var beinlínis hlægilegt að hlusta á
umfjöllun Spegilsins í RÚV í gær-
kvöldi um framvinduskýrslu fram-
kvæmdastjórnar ESB um Ísland.
Svo virðist sem orðið „aðlögun“ sé
nánast bannorð á RÚV!
RÚV hafði fengið fræðimann til
þess að fjalla um skýrsluna, að því
er virtist ekki fyrst og fremst til að
leggja mat á skýrsluna heldur til
þess að rekja efni hennar. Er það
ekki verkefni fréttamanna RÚV að
rekja efni slíkrar skýrslu?! En
kannski er búið að útvista slíkri
vinnu.
Það bögglaðist hins vegar bæði
fyrir brjósti fréttamannsins og
fræðimannsins að nota orðið aðlög-
un svo að þeir reyndu að nota orðin
„breytingu“ eða „styrkingu“ í stað-
inn fyrir aðlögun. Hvernig væri nú
að fréttastofa RÚV kíkti í orðabók?
Annars gæti hún átt á hættu að
vera sökuð (með fullum rökum) um
beina fölsun í frásögnum af þessu
tagi.“
RÚV vinnur að því að eyða öllumrökum fyrir sinni ríkisreknu
tilveru.
RÚV í vandræðum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.11., kl. 18.00
Reykjavík -3 heiðskírt
Bolungarvík 0 snjókoma
Akureyri -3 snjókoma
Egilsstaðir 0 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 0 alskýjað
Nuuk -1 snjóél
Þórshöfn 5 skúrir
Ósló -2 skýjað
Kaupmannahöfn 6 skúrir
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki 5 skýjað
Lúxemborg 5 skýjað
Brussel 6 léttskýjað
Dublin 6 léttskýjað
Glasgow 3 léttskýjað
London 7 heiðskírt
París 7 léttskýjað
Amsterdam 6 skúrir
Hamborg 6 súld
Berlín 10 skýjað
Vín 8 skýjað
Moskva 13 léttskýjað
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 21 skýjað
Winnipeg 8 alskýjað
Montreal 5 léttskýjað
New York 10 skýjað
Chicago 13 skýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:44 16:41
ÍSAFJÖRÐUR 10:06 16:28
SIGLUFJÖRÐUR 9:50 16:11
DJÚPIVOGUR 9:18 16:06
„Við finnum fyrir aukningu og sérstaklega með haustinu, þá varð alveg hol-
skefla,“ segir Karen H. Theodórsdóttir, verkefnastjóri hjálparsíma
Rauða krossins, 1717. Það sem af er ári hafa borist 248 símtöl sem
tengjast á einhvern hátt sjálfsvígum eða sjálfsvígshugleiðingum.
Sr. Halldór vekur athygli á því að ungir karlmenn virðist í sér-
stökum áhættuhóp. „Margir spyrja sig hvort það sé eitthvað í
lífsstíl okkar hér á Vesturlöndum sem sé á einhvern hátt lífs-
fjandsamlegt ungum karlmönnum. Það virðist fylgja því meiri
tilvistarkreppa að vera ungur karlmaður í dag en ung kona.“
Eins og áður segir sviptu 36 Íslendingar sig lífi árið 2009. Þar
af voru 7 konur og 29 karlar. Halldór segir að í þessu samhengi
sé stundum talað um „kostnað karlmennskunnar“. Margir vilji
beina frekari sjónum að því að efla enn forvarnir gegn þessari
vá.
„Kostnaður karlmennskunn-
ar“ getur verið sjálfsvíg
SÍMTÖLUM Í HJÁLPARSÍMA VEGNA SJÁLFSVÍGA FJÖLGAR
Halldór
Reynisson