Morgunblaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010 Einar Örn Gíslason Björn Jóhann Björnsson Forstjóri Landhelgisgæslunnar (LHG), Georg Kr. Lárusson, segir að flutningur á starfsemi Gæslunnar til Suðurnesja geti mögulega orðið skynsamleg ráðstöfun til lengri tíma litið en samt sem áður kostnaðar- söm. Einnig geti verið skynsamlegt að kanna flutning með hliðsjón af þeim verkefnum sem ekki verða lögð af með niðurlagningu Varnarmála- stofnunar. Hugmyndir um flutning LHG til Suðurnesja komu fram á blaða- mannafundi sem ríkisstjórnin hélt í Reykjanesbæ á þriðjudag, sem hluti af aðgerðum í atvinnumálum á Suð- urnesjum. Georg segir dómsmála- ráðherra hafa verið búinn að láta sig vita að búast mætti við tillögu um könnun á hagkvæmni þess að flytja Gæsluna til Suðurnesja. „Við teljum það bara hið besta mál að það sé kannað. Ef það er starfseminni til framdráttar að fara til Suðurnesja erum við því að sjálfsögðu fylgjandi,“ segir Georg en telur jafnframt að flutningur muni ekki skila miklu nema að Gæslan fái ný og aukin verkefni. Þau geti vissulega fylgt Varnarmálastofnun sem til stendur að leggja niður. En hvað með útkallstíma ef þyrlur og flugvél LGH flytjast líka til Kefla- víkur? Samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni er þá möguleiki á föstum vöktum í Keflavík sem gæti þá um leið stytt útkallstíma frá því sem nú er. Gömul hugmynd Tillögur um flutning á höfuðstöðv- um Landhelgisgæslunnar til Kefla- víkurflugvallar hafa áður komið fram, m.a. í skýrslu nefndar árið 1993 sem skoðaði flutning opinberra stofnana út á land. Þá komu hug- myndir upp árið 2006, í tengslum við brotthvarf Varnarliðsins, að flytja þyrlubjörgunarsveit Gæslunnar til Keflavíkurflugvallar en þær voru síðan slegnar af í tillögum þáverandi dómsmálaráðherra að framtíðar- skipulagi sveitarinnar. Sigurður Ásgrímsson, yfirmaður sprengjudeildar og trúnaðarmaður starfsmanna SFR hjá Gæslunni, segist hafa heyrt þessar hugmyndir oft áður. Fyrir sitt leyti leggist þetta ekki illa í sig og geti verið jákvætt fyrir Gæsluna. Þetta fari einnig eftir því við hvaða aðstæður stofnunin og starfsmenn hennar muni búa. Sigurður bendir á að hluti af starfsaðstöðu sprengjudeildar sé nú þegar á Keflavíkurflugvelli, eftir brotthvarf Varnarliðsins. Tvöföldun Reykjanesbrautar hafi gert það auð- veldara að sinna verkefnum þar. Starfsemi LHG í Reykjavík sé einn- ig dreifð, eða á Reykjavíkurflugvelli og á þremur hæðum í Skógarhlíð- inni, á sitt hvorum stað í húsinu. „Helst vildum við sjá okkur á einum stað og á sama gólfinu,“ segir Sig- urður en bætir við að vissulega séu skoðanir skiptar meðal starfsmanna um þetta. Skynsamlegt en kostnaðarsamt  Forstjóri Gæslunnar vill fá verkefni frá niðurlagðri Varnarmálastofnun Morgunblaðið/Árni Sæberg Gæslan Georg Kr. Lárusson er hlynntur könnun á flutningi. Vickram Bedi, sem grunaður er ásamt Helgu Ingvarsdóttur, ís- lenskri unnustu sinni, um að hafa haft milljónir dala út úr bandarísk- um auðkýfingi, segir í viðtali við héraðsfréttablað í New York-ríki, að auðmaðurinn hafi gefið þeim féð. Þau Bedi og Helga hittu Bandaríkjaforseta á samkomu í vor eftir að hafa gefið í kosningasjóð demókrata. Á vefnum lohud.com var í gær haft eftir Bedi að Roger Davidson hefði gefið þeim stórfé fyrir vernd gegn afleiðingum þess að hann flutti 400 milljónir dala af fé fjöl- skyldu sinnar úr evrópsku skatta- skjóli. „Roger Davidson var ekki neyddur til þess undir neinum kringumstæðum að gera það sem hann gerði,“ er haft eftir Bedi. Tónsmíðar og klám Viðtalið var tekið í fangelsi þar sem Bedi og Helga eru í haldi. Saksóknarar í Westchester í New York segja, að þau Bedi og Helga hafi talið Davidson trú um að líf hans væri í hættu en þau gætu veitt honum vernd gegn greiðslu. Vefurinn hefur eftir Bedi, að Davidson, sem er tónskáld og píanóleikari og tengist bandaríska stórfyrirtækinu Schlumberger Ltd., hafi í ágúst 2004 komið inn í versl- unina Datalink Computer Products, sem Bedi og Helga reka í Mt. Kisco í New York. „Hann var með tölvuna með sér og var mjög áhyggjufullur,“ hefur vefurinn eftir Bedi. Veira hafði komist í tölvuna og Davidson óttaðist að gögn lægju undir skemmdum. Bedi segir að í tölvunni hafi verið tónsmíðar, mikið magn af klámi og tölvupóstar sem gengið höfðu milli fjölskyldu David- sons og lögmanna hennar um færslur á fé frá Liechtenstein til Bandaríkjanna. „Þau voru að flytja yfir 400 milljónir til landsins og höfðu af því áhyggjur vegna þess að engir skattar höfðu verið greiddir af þessu fé í 60 ár,“ segir Bedi. Á flótta undan leynireglu Hann segir að ýmsar veirur hafi verið í tölvunni og að Davidson hafi talið að bandarísk og frönsk yfir- völd hefðu komið þeim þar fyrir til að komast yfir gögn um fjármagns- flutningana. Þá segir Bedi, að Dav- idson hafi einnig grunað að kaþ- ólska leynireglan Opus Dei væri á eftir honum vegna þess að frændi hans einn hefði gengið í regluna og væri að reyna að refsa fjölskyld- unni fyrir að svíkja undan skatti. Hafi Davidson reynt að fá Datalink til að vernda sig fyrir þessu. Lögreglan segir að Bedi og Helga hafi byrjað árið 2004 að taka 160.000 dali mánaðarlega út af kreditkorti Davidsons og að auki fengið aðrar greiðslur. Davidson skipaði Bedi einnig í stjórn fjár- festingarsjóðs sem rekinn var í nafni hans og barna hans. Bedi segist aldrei hafa beðið um að vera í stjórn sjóðsins heldur gert það fyrir beiðni Davidsons. „Við vildum halda honum rólegum.“ Þá segir Bedi, að Davidson hafi gefið þeim Helgu samtals nærri 13 milljónir dala, jafnvirði um 1,4 milljarða króna, vegna þess að þau hefðu bjargað 30 ára tónsmíðasafni Davidsons í tölvunni. „Hann var ör- látur við okkur,“ hefur blaðið eftir Bedi. Gerðist ástleitinn við Helgu Bedi segir, að árið 2006 hafi Davidson orðið æ tortryggnari. Saksóknarar segja, að Bedi hafi tjáð Davidson að hann hefði rakið slóð tölvuveirunnar til afskekkts þorps í Hondúras og sent indversk- an frænda sinn þangað til að sækja tölvuna þar sem veiruna væri að finna. Bedi segir að þetta hafi aldr- ei gerst heldur hafi Davidson hald- ið að frændi hans væri í Hondúras og stundum kallað eina af tölvum sínum „harða diskinn í Hondúras“. Þá segir Bedi, að Davidson hafi á tímabili gerst ástleitinn við Helgu og jafnvel lýst því yfir að hann vildi kvænast henni. „Við sögðum hon- um að hann gæti ekki hagað sér svona,“ hefur blaðið eftir Bedi, „en hann sagðist vera yfirstéttarmaður og gæti gert það sem hann vildi.“ Segist hafa fengið peningana gefins Í góðum félagsskap Þau Helga Ingvarsdóttir og Vickram Bedi hittu Bar- ack Obama fyrr á þessu ári. Vefurinn lohud.com birtir af þeim myndina.  Auðmaður gaf sjálfviljugur íslenskri konu og manni hennar allt að 20 milljónir dala ef marka má frásögn mannsins  Keypti sér vernd þeirra gegn ríkisstjórnum og kaþólsku leynireglunni Opus Dei Til góðgerðarmála » Bedi og Helga gáfu að sögn lohud.com 20.000 dali í kosn- ingasjóð Demókrataflokksins og fengu boð á samkomu þar sem þau hittu Barack Obama. » Haft er eftir talsmanni Hvíta hússins að féð verði nú gefið til góðgerðarmála í ljósi þess að Bedi og Helga hafi verið kærð fyrir stórfelld fjársvik. » Saksóknarar segja að Bedi hafi grunað síðsumars að spilaborgin væri að hrynja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.