Morgunblaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
Það er ekki gott að vera með tóman
maga þegar matarbloggið hennar Ha-
zel Sy er skoðað. Á Tastypursuits-
.com hóf ung kona nýlega að blogga
um mat, hún segist vera að finna
jafnvægið milli bragðs og áferðar svo
hægt sé að skella í eina máltíð án
uppskriftar.
Sy byrjaði að blogga því henni
fannst hún hjálparlaus í eldhúsinu án
uppskrifta, hún fór á fjölda mat-
reiðslunámskeiða og fór að reyna að
skilja hráefnin og finna sjálf út hvað
passar saman og skapar ákveðið
bragð. Hún hóf að blogga til að skilja
betur hvers vegna sum bragðefni
passa vel saman í uppskriftum sem
hún finnur í uppskriftabókum, fær frá
vinum eða finnur á vefsíðum. Hún
gerir svo tilraunir til að skapa sínar
eigin uppskriftir byggðar á bragð-
blöndunni sem hún uppgötvaði áður.
Það eru ekki margar uppskriftir
komnar inn á síðuna, enda er bloggið
bara síðan í júlí, en þær eru allar
girnilegar, fjölbreyttar og virðast
vera einfaldar í framkvæmd.
Nýjasta færslan er frá því á þriðju-
daginn og er hún um kryddaðar kok-
teil-kjötbollur sem virðast bragðast
mjög vel. Einnig er nýleg færsla þar
sem hún gefur fimm ráð um hvernig
hægt er að takast á við allt hátíð-
arátið sem er framundan.
Vefsíðan www.tastypursuits.com
Nammi namm Krydduðu kjötbollurnar hennar Hazel Sy líta vel út.
Kryddaðar kokteil-kjötbollur
Magnús Hlynur Hreiðarsson frétta-
maður Ríkisútvarpsins á Suðurlandi
hefur sett saman mynddisk með úr-
vali af sunnlenskum sjónvarps-
fréttum frá 1998- 2010. Um er að
ræða 85 fréttir á 85 mínútum auk
þess sem það er heilmikið af auka-
efni með sunnlenskri tónlist.
Dæmi um fréttir á diskinum eru;
Taminn krummi, Syngjandi hundur,
Vindverkir hjá fólki, Þriggja vikna önd
að bera út póst, Knattspyrnuhund-
urinn Kolla og 90 ára körfuboltakona.
Mynddiskurinn kemur út á morgun
og mun fást víða á Suðurlandi og á
völdum stöðum í Reykjavík.
Endilega …
… rifjið upp
sunnlenskar
sjónvarpsfréttir
Fréttamaðurinn Magnús Hlynur.
Atli Vigfússon
laxam@simnet.is
Ég ólst upp við það aðtil væri kjöt á krukkumen þegar ískisturnarkomu hættu margir að
sjóða kjötið niður með þessum
hætti. En mér fannst spennandi
að fara að prófa þetta aftur vegna
þess að í nútímaþjóðfélagi kemur
fólkið oft seint heim og þá er fljót-
legt að grípa til krukkukjötsins.
Þetta er skyndimatur sem mörg-
um þykir góður, “ segir Sigrún
Marinósdóttir bóndi á Núpum í
Aðaldal en hún og maður hennar
Karl Sigurðsson suðu nýlega niður
kjöt á krukkur eins og gert var
fyrr á árum, áður en frystiskápar
og kistur hófu innreið sína á ís-
lensk heimili. „Það er vissulega
vinna að búa þetta til,“ segir Sig-
rún en henni finnst það gaman og
árangurinn lýsir sér í því að mat-
urinn sem borinn er á borð er
bragðgóður og nýtist mjög vel.
„Við erum að nýta ærkjötið okkar
hér heima og úr því má gera mjög
margt eins og t.d hakk og gúllash.
Við úrbeinum kjötið, en reynum
að hafa fituminni bita í krukk-
urnar. Hryggvöðvinn er mjög góð-
ur og á mínu heimili var talað um
sparigúllas úr þeim bita. Þá látum
við reykja nokkuð af kjöti, en svo
búum við til sperðla úr slögunum.
Mikilvægt að
vanda vel til verka
Sigrún steikir kjötið, sem á að
fara í krukkurnar, á pönnu og not-
ar olíu við steikinguna. Hún segir
að áður fyrr hafi afgangsfita úr
kleinupottum verið notuð til að
steikja, en það þurfi ekki nú á
dögum. Hún lætur kjötið brúnast
vel og kælir það síðan.
Krukkurnar þvær hún í upp-
þvottavél þar sem þær sótt-
hreinsast. Þetta eru krukkur með
gúmmíhring og spennu sem oft er
hægt að fá í búðunum á haustin.
Þá lætur hún kjötið á krukk-
urnar, fyllir upp með köldu vatni
en skiptir síðan afgangnum af fit-
unni á pönnunni á milli þeirra. Þá
er stráð 1 tsk. salti í hverja
krukku en það fer aðeins eftir
stærð. Að þessu loknu er krukk-
unum lokað, tekinn stór pottur
sem í er sett viskustykki í botn-
inn. Krukkurnar settar ofaní og
fyllt upp með vatni upp að spenn-
unni. Síðan er þetta látið malla við
suðu í eina og hálfa klukkustund.
Ástæðan fyrir því er að þetta er
ærkjöt og það þarf aðeins meiri
suðu.
Gaman að nýta
eigin afurðir
Sigrún er alin upp á Þórshöfn
en foreldrar hennar eru bæði úr
sveit og mjög vön mat sem þess-
um enda hjálpuðu þau henni og
Karli þegar byrjað var á þessu á
Núpum. Sigrún segir að fjöl-
skyldan sé búin að prófa afrakst-
Kjöt á krukkum
eins og í gamla daga
„Mér fannst spennandi að fara að prófa þetta aftur vegna þess að í nútímaþjóð-
félagi kemur fólkið oft seint heim og þá er fljótlegt að grípa til krukkukjötsins.
Þetta er skyndimatur sem mörgum þykir góður, “ segir Sigrún Marinósdóttir
bóndi á Núpum í Aðaldal en hún og maður hennar Karl Sigurðsson suðu nýlega
niður kjöt á krukkur eins og gert var fyrr á árum.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Krukkukjöt Kjötið er soðið niður í
krukkurnar og lítur vel út.
Núpar í Aðaldal
» Bærinn Núpar í Aðaldal
stendur austan Laxár um 1
kílómetra norðan brúarinnar
við Núpafoss.
» Á Núpum búa Sigrún Mar-
inósdóttir og Karl Sigurðsson
ásamt þremur börnum sínum
og móður Karls. Þau reka
sauðfjárbú en vinna bæði utan
heimilis stóran hluta úr árinu.
» Sauðféð hefur sumarhaga
á Hvammsheiði, sem er ein af
þingeysku lyngheiðunum, og
gefur sú beit kjötinu góðan
keim.
Bónus
Gildir 11. - 14. nóvember verð
nú
áður mælie. verð
Nóa konfekt, 650 g ................. 1.498 1.798 2.304 kr. kg
Ferskt pitsadeig, 400 g............ 259 295 647 kr. kg
KF pitsaskinka, 125 g.............. 98 129 784 kr. kg
Myllu heimilisbrauð, 770 g ...... 229 287 297 kr. kg
Os heimilisostur ...................... 890 1.127 890 kr. kg
Búrfell hamborgarhryggur ......... 898 1.169 898 kr. kg
Ferskar grísakótilettur .............. 898 998 898 kr. kg
Ferskt blandað hakk ................ 798 898 798 kr. kg
Mh smjörlíki, 500 g................. 149 179 298 kr. kg
Gk suðusúkkulaði, 300 g ......... 259 298 863 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 11. - 13. nóvember verð
nú
áður mælie. verð
Lambainnralæri úr kjötborði ..... 2.498 2.999 2.498 kr. kg
Folaldainnralæri úr kjötborði..... 1.998 2.245 1.998 kr. kg
Svínasíða m/puru úr kjötborði .. 589 745 589 kr. kg
Hamborgarar, 4x80 g m/brauði 496 596 496 kr. pk.
Kjúklingastrimlar frá Matfugl..... 1.986 2.483 1.986 kr. kg
Ali lasagne frosið, 900 g ......... 998 1.221 998 kr. pk.
Ali kjötbollur frosnar ................ 1.198 1.498 1.198 kr. pk.
Ali grísasnitsel ........................1.198 1.498 1.198 kr. pk.
FK súkkulaði ís, 2 ltr ............... 398 488 199 kr. ltr
Hagkaup
Gildir 11. - 14. nóvember verð
nú
áður mælie. verð
Íslandsnaut hamb., 2x140 g .... 374 498 374 kr. pk.
Íslandsnaut hamb., 2x175 g .... 509 679 509 kr. pk.
SS rifsberja lambal. án/rófub... 1.784 2.378 1.784 kr. kg
Holta kjúklingalundir................ 1.946 2.595 1.946 kr. kg
Chicaco Town pitsa, 3 teg. ....... 449 649 449 kr. stk.
Kjörís, 4 teg............................ 449 739 449 kr. stk.
Myllu sveitabrauð .................... 259 499 259 kr. stk.
Myllu ostaslaufur..................... 199 329 199 kr. stk.
Amerískir kleinuhringir, 2 í pk. .. 259 378 259 kr. pk.
Myllu kryddkaka ...................... 299 519 299 kr. stk.
Helgartilboðin
Þín Verslun
Gildir 11. - 14. nóv verð
nú
áður mælie. verð
Ísfugls kjúklingur heill .............. 749 1.072 749 kr. kg
Ísfugls kjúklingalæri og -leggir .. 698 998 698 kr. kg
Mozzarella rifinn, 200 g ........... 285 318 1.425 kr. kg
Casa Fiesta Taco skelj., 135 g.. 319 399 2.363 kr. kg
Casa F. Tortillas, 8 stk.............. 308 385 39 kr. stk.
Casa Fiesta Taco sósa, 225 g .. 249 315 1.107 kr. kg
Champ. sveskjur steinl., 340 g. 398 459 1.171 kr. kg
Daim kúlur, 100 g................... 298 439 2.980 kr. kg
Toblerone, 100 g..................... 239 298 2.390 kr. kg
Morgunblaðið/Ásdís
Brauðmeti Er á tilboði um helgina ásamt öðru.
Kjólar
Áður: 14.990
Nú: 9.990
Úlpur
Áður: 19.990
Nú: 13.990
Vetrarútsala
30-50% afsláttur
af öllum vörum
Fleiri myndir á facebook
Vertu vinur
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Peysur
Áður: 9.990
Nú: 4.990
Gallabuxur
háar í mittið
Áður: 9.990
Nú: 6.990