Morgunblaðið - 11.11.2010, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lögreglan á Akureyri hafði síðdeg-
is í gær fengið sex tilkynningar um
að grænum leysigeisla hefði verið
beint að fólki undanfarinn mánuð.
Tilkynningarnar komu í kjölfar
þess að geisla var beint að flugvél
Flugfélags Íslands á leið til lend-
ingar á Akureyri í fyrrakvöld.
Talið er að sá eða þeir sem
beindu ljósinu að flugvélinni hafi
verið staddir nálægt Vaðlahofi í
Vaðlaheiði, gegnt Akureyrarbæ.
Þar fundust ógreinileg bílför að
sögn lögreglunnar.
Þeir sem tilkynntu að þeir hefðu
orðið fyrir græna geislanum upp á
síðkastið höfðu ýmist verið á gangi,
undir stýri eða innandyra. Fyrsta
tilvikið varð fyrir um mánuði, að
sögn rannsóknarlögreglunnar.
Rannsókn málsins heldur áfram.
Árni Gunnarsson, forstjóri Flug-
félags Íslands, sagði að Fokker-
flugvél FÍ hefði verið á lokastefnu
að Akureyrarflugvelli þegar ljósinu
var beint að henni. Um borð voru
30 farþegar og þriggja manna
áhöfn en vélin getur flutt 50 far-
þega. Hún kom úr suðri í stefnu út
Eyjafjörð og lenti kl. 19.32.
Sterkur ljósgeisli
„Þeir urðu varir við þennan
geisla og það var nokkuð sterkt ljós
af þessu en varaði ekki lengi. Svo
lentu þeir og tilkynntu þetta til yf-
irvalda,“ sagði Árni. „Þetta getur
haft truflandi áhrif á vinnu flug-
mannanna.“ Hann sagði að ljósið
hefði ekki blindað flugmennina. En
gátu þeir séð hvaðan ljósið kom?
„Þeir reyndu að sjá það út um
leið og þeir reyndu að einbeita sér
að aðfluginu og gáfu lögreglu eins
nákvæma lýsingu á því og þeir
gátu,“ sagði Árni.
Tvö eldri dæmi eru um að leysi-
geislum hafi verið beint að flug-
vélum Flugfélags Íslands, að sögn
Árna. Nokkur ár eru síðan það
gerðist. Annað tilvikið var á Ak-
ureyri og hitt í Reykjavík. Söku-
dólgarnir fundust ekki.
Rannsóknarnefnd flugslysa verð-
ur tilkynnt atvikið í fyrrakvöld,
enda er skylda að tilkynna slíkar
uppákomur.
Sex til-
kynntu
leysigeisla
Geisla beint að flug-
vél með 33 um borð
Morgunblaðið/Skapti
Akureyri Vélin var á lokastefnu
þegar geislanum var beint að henni.
Sunnlendingar standa fyrir hóp-
akstri til Reykjavíkur í dag þar sem
afhenda á ráðherrum lista með undir-
skriftum sem safnað hefur verið um
allt land vegna boðaðs niðurskurðar á
framlögum til heilbrigðisstofnana.
Hollvinir heilbrigðisstofnana um allt
land taka einnig þátt í athöfninni,
sem fram fer á Austurvelli kl. 16.
Búið er að safna þúsundum undir-
skrifta og aðeins á Suðurlandi söfn-
uðust um 8.500 undirskriftir, sem er
um helmingur kosningabærra manna
á Suðurlandi.
Að sögn Elfu Daggar Þórðardótt-
ur hjá Samtökum sveitarfélaga á
Suðurlandi er búist við að 4-5 rútur
leggi af stað frá Selfossi í dag og
fjöldi einkabíla. Í fararbroddi verður
gamall sjúkrabíll í eigu Guðmundar
Tyrfingssonar, árgerð 1950, en Elfa
segir það gert í táknrænu augnamiði.
Með niðurskurði og tilfærslu verk-
efna frá sjúkrahúsinu á Selfossi sé
verið að fara aftur í tíma um 60 ár
hvað þjónustu varðar við íbúana. Á
Austurvelli verður undirskriftunum
svo safnað á gamlar sjúkrabörur og
þær afhentar heilbrigðisráðherra,
forsætisráðherra og fjármálaráð-
herra.
Fleiri hollvinir heilbrigðisstofnana
stefna suður á bóginn í dag, sem fyrr
segir. Guðrún Árný Guðmundsdóttir
á Húsavík segir erfiðara um vik fyrir
Norðlendinga og Vestfirðinga að
komast suður en vitað sé um fjöl-
marga sem ætli samt að mæta á
Austurvöll. Hún segir hollvini vera að
mótmæla niðurskurði en mæla með
því að þjónustan verði áfram á þeim
stöðum sem hún er. Frekar vilji hún
tala um meðmælastöðu á Austurvelli
en einhver hávær mótmæli. Allir
þurfi að standa saman til að verja
heilbrigðiskerfið, þar sé komið að
sársaukamörkum í niðurskurðinum.
bjb@mbl.is
Þúsundir undirskrifta afhentar
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Undirskriftir Mótmælt á Selfossi.
Ráðherrar fá undirskriftir hollvina heilbrigðisstofnana á Austurvelli í dag
Hópakstur frá Selfossi og fleiri stöðum á landinu Komið að sársaukamörkum