Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 17

Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta eru ástaratlot til jarðarinnar. Þessir gripir eiga að auka virðingu okkar fyrir henni,“ segir Snorri Guð- mundsson, hraunlistamaður í Hraunverksmiðjunni (www.hraun- verksmiðjan.is), og fer mjúkum höndum um listmuni sem hann hefur smíðað úr hrjúfum hraunmolum. Hraunverksmiðjan lætur lítið yfir sér þar sem hún kúrir á bökkum Hólmsár í útjaðri Reykjavíkur- borgar. Þar smíðar Snorri klukkur og gerir skúlptúra, skartgripi og lyklakippur úr hrauni. „Ég byrjaði að vinna úr Heklu- hrauni eftir gosið 1991. Nú vinn ég úr hrauni úr Heklu og hrauni úr Eyjafjallajökli sem ég sótti í Hruna- gil,“ segir Snorri. Hann sagar hraunið úr Heklu í þynnur og smíðar úr þeim. Hraunklukkurnar kallar hann „Tímabært“ (About Time). Snorri segir að klukkurnar séu tákn- ræn áminning um virðingu fyrir náttúrunni og að tíminn líði hratt í þeim efnum sem snúa að náttúru- vernd. Eldgosið í Eyjafjallajökli varð heimsfrægt á einni nóttu þegar flug- umferð stöðvaðist víða um heim vegna gossins. Snorri sá björtu hlið- ina á gosinu og ákvað að nýta það til góðs. Hann útbjó minjagrip sem hann kallar á ensku: „One Lava – One Tree – One World“ (Eitt hraun – eitt tré – einn heimur). Minjagrip- urinn er handmáluð askja sem inni- heldur hraunmola úr Eyjafjallajökli og hugleiðingu. Þar segir m.a. frá sambandi eldvirkni og lífs á jörðu, hvernig frumstæðar lífverur nýttu sér lofttegundir sem sluppu úr iðr- um jarðar í árdaga. „Hraunið er mjög framandi efni fyrir flesta jarðarbúa,“ segir Snorri. „Þessum minjagripum var tekið mjög vel, sérstaklega í vor sem leið. Það eru alls konar glitrandi agnir í hraunmolunum úr Eyjafjallajökli. Þær eru alveg frá því að vera glærar og út í gull.“ Birkið varð fyrir valinu Snorri segir að hraunmolarnir séu táknmynd átaka jurtaríkisins og jarðeldanna. Hann heitir því að fyrir hvern seldan mola verði plantað tré í Hekluskógum við rætur Heklu. Hekluskógar hafa annast gróður- setningu plantnanna m.a. með að- stoð sumarstarfsmanna Landsvirkj- unar. Búið er að planta um 5.000 birkiplöntum við Hald fyrir framlag Hraunverksmiðjunnar. Birkið varð fyrir valinu með vísan í orð Ara fróða um að landið hafi verið skógi vaxi milli fjalls og fjöru við landnám. Birkið þykir líklegast til að standa af sér öskuregn eldgosa. Snorri sagði að hraunmolunum úr Eyjafjallajökli hefði verið vel tek- ið. Hann telur þá einkar hentuga fyrir þá sem vilja kynna Ísland með eftirminnilegum hætti á erlendri grund. Meðal annars keypti ferða- skrifstofa marga mola og sendi víða um heim. Snorri kvaðst hafa heyrt að sumir molarnir hefðu farið langt, meðal annars alla leið til Kína. Birkitré spretta af hraunmolum  Hraunverksmiðjan gefur birkiplöntu fyrir hvern seldan hraunminjagrip  Hekluskógar hafa plantað um 5.000 trjám við Hald í nágrenni Heklu fyrir framlag Hraunverksmiðjunnar Morgunblaðið/RAX Hraunlist Snorri Guðmundsson hraunlistamaður með gróðurvænan minjagrip – hraunmola úr Eyjafjallajökli. Fjölbreytt Í höndum Snorra verða til klukkur, skart- gripir, lyklakippur, skúlptúrar og margt fleira. Tengsl Hraunið er framandi flestum jarðarbúum. Steinarnir minna á náttúruna og tengsl við lífið. n o a t u n . i s H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t Ö ll ve rð er u bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill u og /e ða m yn da br en gl VEISLUMAT URÓDÝ R 10 KLEINUR TOPPUR 2 L., 3 TEG. 179 KR./STK. MERRILD KAFFIPÚÐAR 4 TEGUNDIR 419 KR./PK. ALLRA KLEINUR 349KR./PK. Við gerum meira fyrir þig 20% afsláttur 25% afsláttur LAMBAFRAM- HRYGGJASNEIÐAR KR./KG GRÍSALUNDIR KR./KG 1499 1998 1598 BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI BBESTIR Í KJÖTI ÚRKJÖTBOR ÐI ÚR KJÖTBORÐI 1998

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.