Morgunblaðið - 11.11.2010, Qupperneq 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
Öllu lokið, mamma. Slokknað
ævi þinnar ljós.
Hjúfrar sig að barmi þínum
hvít og friðsæl rós.
Lémagna sú hönd, er þerrði
ljúfast vota kinn.
– Drjúpi hljótt og rótt mín tár
við dánarbeðinn þinn.
Blessuð sé hver tíð, er leið
á braut í fylgd með þér,
vongleðin og ástúð þín,
sem vakti yfir mér.
– Bið eg þess af hjarta nú
á bljúgri kveðjustund,
að bænir þínar leiði þig
sem barn á guðs þíns fund.
(Kristinn Reyr)
Elsku mamma. Það er með söknuði
og sting í hjarta sem ég skrifa þessi
kveðjuorð. Þú varst alltaf til staðar
fyrir mig og mína þegar við þurftum á
hjálp og stuðningi að halda. Ég man
sérstaklega eftir þegar ég ákvað með
félaga mínum að stofna mitt eigið fyr-
irtæki. Þú varst fljót að segja við mig
að skella mér í slaginn, þótt ég hafi
vitað að þú varst innst inni ekki viss
um að ég gæti staðið í þessu eftir alla
mína hrakninga fyrir þá ákvörðun. Þú
stóðst alltaf við bakið á mér og systur
minni, alveg sama hve miklu hugar-
angri og erfiðleikum við lentum í og
hve mikil vandræði við komum þér í.
Helena Gerða
Óskarsdóttir
✝ Helena GerðaÓskarsdóttir
fæddist í Ólafsvík
7. júlí 1956. Hún
lést á gjörgæslu-
deild Landspítala
við Hringbraut 16.
október síðastlið-
inn.
Útför Helenu
Gerðu fór fram frá
Hafnarfjarðar-
kirkju 22. október
2010.
Það var sérstaklega
nú á seinni tímum að ég
fór að gera mér grein
fyrir hve erfiður ég var
við þig á mínum yngri
árum, samt gafstu
aldrei upp á mér. Þú
stóðst alltaf með mér
og varst til staðar;
sama hve erfitt það var
fyrir þig að hjálpa til,
þá reyndirðu allt sem
þú gast til að láta mér
líða vel.
Ég man þegar ég til-
kynnti þér að ég ætti von á mínu
fyrsta barni, þá ljómaðir þú af gleði,
bæði fyrir mína hönd en einnig fyrir
sjálfa þig að fá fleiri barnabörn í hóp-
inn. Það sama var upp á teningnum
þegar ég tilkynnti þér um hin tvö
barnabörnin.
Þú dýrkaðir öll barnabörnin eins og
þau elskuðu þig. Alltaf þegar maður
minntist á að við færum að fara til
ömmu Helenu var öskrað „jááá, við
erum að fara til ömmu Helenu!“ Það
er mikil synd að þau eigi ekki eftir að
eiga með þér fleiri stundir. Ég mun
halda minningu þinni í huga barnanna
minna þar sem þau elskuðu þig af öllu
hjarta. Sárast finnst mér að Unnar
eigi aldrei eftir að kynnast þér betur
þar sem hann er enn svo ungur. Hann
hefur samt minningu þína alltaf hjá
sér í nýjustu afmælisgjöfinni sem þú
gafst honum í síðasta afmæli. Sú gjöf
er hans uppáhaldsbangsi, hann er
með hann alls staðar og hann víkur
varla frá honum.
Þegar þú kynntist Helga fannst
mér eins og þú hefðir fengið tækifæri
til að verða hamingjusöm aftur og síð-
ar kom svo í ljós að það var rétt. Þú
blómstraðir á þeim tíma og maður
virkilega fann hve hamingjusöm þú
varst orðin. Nokkrum árum seinna
eignuðust þið Sæbjörgu sem þú sást
svo ekki sólina fyrir. Þú gast aldrei
hætt að tala um hana og segja okkur
hve klár hún væri orðin. Hafðu ekki
áhyggjur af henni mamma mín, hún
mun ætíð hafa okkur stóru systkinin
og Helga til að líta eftir sér.
Minning þín mun lifa í hjörtum
okkar allra.
Kveðja, þinn sonur,
Kristinn (Kiddi).
Elsku Helena. Það er á tímum sem
þessum sem það er erfitt að skilja til-
ganginn í hlutunum. Það er erfitt að
skilja að þú sért farin og það er svo
sárt að þurfa að kveðja þig svona allt-
of snemma. Ég á ekki til nógu stór orð
til að lýsa öllum þessum tilfinningum
sem hlaupa um í mér núna. Hver
hefði haldið það þegar við hittumst
um þarsíðustu helgi, að það væri í síð-
asta sinn? Mikið er ég þakklát fyrir þá
stund núna. Líka fyrir stundina sem
við áttum saman þegar við héldum
upp á afmælið hans Unnars í lok sept-
ember. Hann Unnar Freyr hefur ekki
sleppt Bubba-bangsanum sem þú
gafst honum í afmælisgjöf síðan hann
fékk hann. Hann fer með honum út
um allt og mér þykir ofsalega vænt
um það. Hann er alltof ungur til að
skilja allt saman núna, en hann mun
alltaf hafa hlut af þér með sér á með-
an hann hefur Bubbann sinn. Þú varst
yndisleg kona. Gestrisin, hlý og elsku-
leg. Ég man okkar fyrstu kynni, en
það var á sjálfan aðfangadag þegar
við Kiddi vorum fyrst að slá okkur
saman. Þú bauðst okkur að halda jólin
með ykkur án þess að hafa nokkurn
tímann hitt mig og tókst svo á móti
mér með opnum örmum. Ég var strax
orðin partur af fjölskyldunni, og fjöl-
skyldan var þér allt. Þú elskaðir börn-
in þín og sást ekki sólina fyrir barna-
börnunum. Þú gast endalaust montað
þig yfir þeim og þau gátu alltaf stólað
á þig. Ég syrgi það að synir mínir fá
ekki að kynnast þér eins og þau eldri,
en ég mun gera mitt besta til að halda
minningu þinni lifandi hjá þeim. Þú
helgaðir líf þitt fjölskyldunni og varst
límið sem hélst öllu saman. Þú studdir
við börnin þín með öllu hjarta, vildir
öllum vel og varst alltaf tilbúin að
rétta fram hjálparhönd ef einhver
þurfti.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Elsku tengdamamma, það er með
mikilli sorg sem ég kveð þig í dag. Ég
syrgi það hvernig þú varst tekin frá
okkur og ég syrgi allar þær stundir
sem við áttum eftir. En eitt máttu
vita, við erum ætíð hjá þér eins og þú
hjá okkur, hvar og hvenær sem er.
Minning þín er ljós í lífi okkar.
Litla vina, lífið kallar,
leiðir okkar skilja í dag.
Góðar vættir vaki allar,
verndi og blessi æ þinn hag.
(Höf. ókunnur)
Kveðja,
þín tengdadóttir,
Svava Guðbjörg.
Elsku Helena. Ég trúi því varla að
ég sé að kveðja þig. Bara nokkrir dag-
ar síðan ég kom í heimsókn til þín síð-
ast og prófaði nýja Lazyboy-sófann
þinn sem þú varst svo ánægð með.
Ég kom inn á heimilið þitt fyrst
þegar ég var um 10 ára gömul, þú
hafðir verið að passa Björgu fyrir
mömmu og pabba og ég kom með að
sækja hana. Þá kynntist ég Evu og
við urðum vinkonur fyrir lífstíð. Eftir
þetta var ég eins og grár köttur inni á
heimilinu þínu enda leið mér alltaf svo
vel hjá ykkur. Mínar kærustu minn-
ingar eru frá Hringbrautinni þar sem
við sátum stundum og spiluðum langt
fram á nótt og drukkum kók úr gleri.
Hjá þér lærði ég að bakaðar baunir og
rauðkál passa með nánast öllum mat.
Skemmtilegast fannst okkur Evu
þegar við fengum að leika okkur í föt-
unum þínum og setja á okkur skart-
gripina þína, ég þekkti engan sem átti
eins mikið af hálsfestum og nælum og
þú. Svo málaðir þú okkur Evu að
sjálfsögðu með bleikum varalit,
bláum augnblýanti og skærbláum
maskara og við hlustuðum á Stjórnina
og Whitney Houston.
Ekki var maður nú alltaf sammála
þér en þú varst afar skoðanasterk og
skiptir helst ekki um skoðun. En mað-
ur vissi það bara að svona væri Hel-
ena og ekkert við því að gera. Alltaf
var samt gott að koma til þín og þú
gerðir alltaf vel við gestina þína.
Þegar ég settist niður til að skrifa
þetta þá voru nokkrir hlutir sem
skaut upp í kollinum á mér, eins og
Wine Gums-hlaup, krembrauð, lakkr-
ís, kók í gleri, Winston Long, kaffi,
svikinn héri, djúpsteiktur fiskur, bak-
aðar baunir, rauðkál og súrar gúrkur.
Ég man ekki eftir því að hafa nokkurn
tíma komið til þín á kvöldmatartíma
og ekki hafi verið heitur matur í boði
því það klikkaði aldrei hjá þér að
börnin þyrftu að nærast.
Þú komst til að kveðja í gær.
Þú kvaddir og allt varð svo hljótt.
Á glugganum frostrósin grær.
Ég gat ekkert sofið í nótt.
Hvert andvarp frá einmana sál.
Hvert orð sem var myndað án hljóms,
nú greindist sem gaddfreðið mál
í gervi hins lífvana blóms.
(Freymóður Jóhannsson)
Nú er komið að kveðjustund, svo
alltof, alltof snemma.
Elsku Helgi, Eva, Kiddi, Sæbjörg
og fjölskyldur. Ég sendi ykkur mínar
innilegustu samúðarkveðjur á þess-
um erfiða tíma.
Ykkar vinkona,
Oddrún.
HINSTA KVEÐJA
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Elsku amma. Okkur mun
vanta þig.
Kveðja,
Benedikt Elí og Unnar Freyr.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður, ömmu og langömmu okkar,
BRYNDÍSAR VON ANCKEN.
Sérstakar þakkir fá heimahjúkrun og Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja fyrir góða umönnun.
Diana Von Ancken, Grétar Þorgeirsson,
Bryndís Gwenhywfar Grétarsdóttir,
John Friðrik Grétarsson,
Sigurboði Grétarsson,
Bjartur Lúkas Grétarsson,
Grétar Anton Gunnarsson.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samhug
og hlýju við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
EYBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR,
Hagamel 30.
Þorvaldur Geirsson,
Helga Guðjónsdóttir,
Lovísa Geirsdóttir,
Valgerður Geirsdóttir, Viktor Arnar Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Margs er að minnast
og margs er að sakna
nú þegar Pálmar móð-
urbróðir minn er farinn í ferðina
löngu. Bernskuminningarnar koma
upp í hugann hver af annarri. Það má
segja að þrjár fjölskyldur hafi búið á
sömu torfunni, tvær systur og amma.
Tel ég að við höfum öll notið góðs af
því. Sérstaklega var Palli sá trausti og
hjálpsami.
Einnig hafði hann svo skemmtilegt
skopskyn, sá spaugilegu hliðarnar á
málunum, sagði sögur með viðeigandi
málróm. Það kom okkur alltaf í gott
skap.
Alltaf á aðfangadagskvöld kom
Pálmar Þórarinn Eyjólfsson
✝ Pálmar ÞórarinnEyjólfsson var
fæddur í Skipagerði á
Stokkseyri 3. júlí
1921. Hann lést á
dvalar- og hjúkrunar-
heimilinu Kumbara-
vogi 6. október 2010.
Pálmar var jarð-
sunginn frá Stokks-
eyrarkirkju 16. októ-
ber 2010.
hann með ömmu til
okkar. Kvöldið var ekki
fullkomnað fyrr en þau
voru mætt.
Ýmislegt var það
sem ég lærði af honum
og bý að enn í dag. Ég
lærði hjá honum á org-
el, að áeggjan pabba
míns. Ung að árum
labbaði ég heim að
Skipagerði til hans með
gamla þýska skólann.
Hann var mjög góður,
en strangur kennari.
Ekki komst maður
undan því að gera allt rétt.
Gaman var þegar hann tók sig til og
kenndi okkur stelpunum að dansa á
litlum gólffleti í gamla húsinu. Þá var
nú heldur betur líf í tuskunum.
Einu sinni kenndi hann mér undir-
stöðuatriði í skrautskrift, því hann var
listaskrifari, eins og sést á Söngva-
safninu hans, sem Árnesingafélagið í
Reykjavík gaf út árið 1980, en þar er
allt handskrifað, bæði texti og nótur.
Stundum kom hann heim til okkar,
settist við orgelið og vildi leyfa okkur
að heyra nýtt lag sem hann hafði
skrifað um leið og hann hlustaði á út-
varpsleikritið. Það þótti okkur furðu-
legt afrek, því alltaf voru lögin hans
svo falleg. Og sjaldan komum við að
Skipagerði án þess að heyra nýtt lag.
Eitt þótti okkur skrýtið; að næst-
um aldrei heyrðum við hann syngja. Á
kóræfingum spilaði hann raddirnar,
eða jafnvel flautaði. Þess vegna höfð-
um við svo gaman af því krakkarnir
að sitja fyrir utan gluggann ef við
vissum að hann var einn við orgelið.
Þá söng hann við raust, því auðvitað
hafði hann góða söngrödd.
Hann fékk mig 13 ára gamla til
þess að syngja hjá sér í kirkjukórn-
um. Það var mjög skemmtilegt og
lærdómsríkt. Gerði ég það alveg
þangað til ég flutti í burtu.
Svo leið að því að við veittum því
eftirtekt, að ung kona úr næsta
hreppi kom oft til þess að læra hjá
honum. Höfðu þau kynnst á kirkju-
loftinu í Gaulverjabæ og síðar gengu
þau í hjónaband. Hefur kona hans
ætíð verið honum til halds og trausts í
hans mikla tónlistarstarfi, bæði sem
organista í tveimur kirkjum, stjórn-
anda karlakóra í lengri eða skemmri
tíma á Stokkseyri, Selfossi og Vest-
mannaeyjum, kvartetts í Gaul-
verjabæ í mörg ár, svo eitthvað sé
nefnt. Fyrir utan öll þau verk sem
hann samdi.
Fyrir sitt eigið brúðkaup samdi
hann brúðkaupsmars. Og margt af
unga fólkinu okkar hefur látið hann
spila við sitt brúðkaup. Oftar en ekki
hefur hann þó komið sjálfur og spilað.
Við höfum öll verið svo stolt af honum
og glaðst yfir því að heyra lögin hans
á tónleikum eða í útvarpi. Já, þessar
perlur hafa gefið okkur og allri þjóð-
inni svo mikið.
En nú er hann kallaður til starfa
Guðs um geim.
Elsku Gunna, Andrés, Helga og
Eyjólfur; – Guð styrki ykkur.
Kristín María Waage.
Elsku afi.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
Sæmundur Kristinn
Klemensson
✝ Sæmundur Krist-inn Klemensson
fæddist í Grænuborg
á Vatnsleysuströnd
29. júlí 1941. Hann
lést á gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut 28. okt.
2010.
Útför Sæmundar
var gerð frá Útskála-
kirkju 4. nóvember
2010.
þú laus ert úr veikinda
viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég
átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að
minnast
svo margt sem um hug
minn fer,
þó þú sért horfinn úr
heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem
lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hvíl í friði,
Elín Óla, Soffía og Þóra Kristín
Klemenzdætur.