Morgunblaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 35
DAGBÓK 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAÐA
KORT MYNDI
KÆTA HUND?
ÉG ÞVOÐI BÍLINN MINN MEÐ
GÖMLUM STUTTERMABOL SEM ÉG HÉLT
MIKIÐ UPPÁ ÞEGAR ÉG VAR UNGUR
MÉR FINNST
EINS OG HANN SÉ
MÓÐGAÐUR ÚT Í MIG
HVERNIG BIÐUR MAÐUR
STUTTERMABOL AFSÖKUNAR?
OFTAST Í
NÁVIST
GEÐLÆKNIS
AF HVERJU ÞARFTU
SVONA MIKIÐ AF VOPNUM?
ÉG ÞARF
AÐ GETA VARIÐ
MIG!
EN ÞÚ ERT
BARA AÐ FARA TIL
TANNLÆKNIS!!!
MAÐUR
GETUR ALDREI
FARIÐ OF
VARLEGA
ÞÉR
HEFUR VERIÐ
SAGT UPP
STÖRFUM,
VERIÐ REKINN,
LÁTINN FJÚKA,
SPARKAÐ!
ÉG BUGAST NÆSTUM ÞVÍ ÞEGAR
ÉG HUGSA UM ÖLL ÞAU VANDAMÁL SEM
BLASA VIÐ MANNKYNINU
NÚVERANDI VERKEFNI:
NÝ SAMHEITAORÐABÓK
EN ÞEGAR ÉG SÉ KÖTU
LEGGJA SIG SVONA MIKIÐ FRAM VIÐ
AÐ BJARGA UMHVERFINU,
ÞÁ FYLLIST ÉG VON
JÁ,
ÉG VAR
SVONA ÞEGAR
ÉG VAR
YNGRI
NÚNA
HEF ÉG
AFTUR
ÁHYGGJUR
ÉG
SKAL FARA
MEÐ HANN Í
STEININN
ÉG
ÞARF FYRST
AÐ HEIM-
SÆKJA
SJÚKLING
ÉG KEM AFTUR MEÐ HANN
EFTIR SMÁ STUND!
HVERT
Í...
ÞÚ
MÁTTIR EKKI
HLEYPA NEINUM
INN!
HVERNIG
ÁTTI ÉG AÐ
STOPPA HANN!
Mislangar raðir
– matarúthlutanir
Hvaða skýring skyldi
vera á því að alltaf eru
minnstu raðir hjá
Hjálparstofnun kirkj-
unnar (Grensáskirkja)
á miðvikudögum í
matarúthlutun en
mestu raðir hjá Fjöl-
skylduhjálpinni (þeir
fá lægsta styrkinn)?
Einnig finnst mér
mjög ljótt að það er
matarúthlutun hjá öll-
um þessum stofnunum
á sama tíma. Rökin
eru að þetta sé gert til
að fólk sé ekki að fara á milli staða og
safna mat. Þvílíkur vanþroski að
hugsa svona. Hver leikur sér að því
að labba /keyra milli staða til að fá
sem mest af mat? Ef einhver gerir
það þá eru það örfáir. Hjálpar-
stofnun kirkjunnar var með matar-
úthlutun bæði miðviku- og fimmtu-
daga en tók annan daginn út, þ.e.
fimmtudaginn. Af hverju ekki mið-
vikudaginn? Mér finnst þetta bara
ljótt. Það var gott að geta farið annan
hvorn daginn ef um veikindi var að
ræða en ég held reynd-
ar að meðan þessar
matarstofnanir séu til
notfæri stjórnendur
þessa lands sér það og
geri ekkert í málinu.
Því styð ég félagið Bót
í að leggja niður þessar
hjálparstofnanir.
Það er hvort sem er
fullt af fólki sem
treystir sér ekki til að
fara á þessa staði og
sveltur.
Þetta er smánar-
blettur á okkar flotta
Íslandi. Allt er „flottast
og best“ á Íslandi.
Ekki satt?
Manneskja.
Ráð við sinadrætti
Vikverji skrifaði um sinadrátt sem
hann fékk, ég veit um gott ráð við
honum og það er að drekka tonic wa-
ter fyrir svefninn.
Ingvar.
Ást er…
… þegar hjartað
verður villt á ný.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnust. kl. 9, gönguhóp-
ur II kl. 10.30, vatnsleikf. kl. 10.45, mynd-
list/prjónakaffi kl. 13, bókm.klúbb. kl. 13.15,
jóga kl. 18.
Árskógar 4 | Handav./smíðar/útskurður
kl. 9, botsía kl. 9.30, helgist. kl. 10.30,
myndlist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Myndlist, leikfimi kl.
13, bókband, almenn handavinna.
Dalbraut 18-20 | Stóladans kl.10.30,
bókabíllinn kl. 11.15, samvera með sr.
Bjarna Karlssyni kl. 15.15.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8-16.
Digraneskirkja | Leikfimi kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
spilað kl. 13.
Félagsheimilið Boðinn | Jóga kl. 9,
handavinna kl. 10, botsía og handav. kl. 13.
Málþ.um Guðrúnu frá Lundi 16. nóv kl. 15.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefn-
aður kl. 9.05, leikfimi kl. 9.15, málm- og
silfursmíði kl. 9.30, bókband kl. 13,bingó kl.
13.30, myndlistarhópur kl. 16.10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinna kl. 9, ganga kl. 10, handav./brids kl.
13, jóga kl. 18.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinna kl. 9, ganga kl. 10. Handavinna og
brids kl. 13, jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Gönguh. kl. 11, handav. og karlaleikfimi kl.
13, botsía kl. 14, Garðakórinn, æfing kl. 16.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Gönguhóp. kl. 11, handav./karlaleikf. kl. 13,
botsía kl. 14, Garðakórinn, æf. kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergi | Helgistund kl.
10.30. Vinnust. e. hádegi, m.a myndlist,
búta- og perlus.. Bjartsýni í Breiðholti,
Breiðholtsd., 15.-21. nóv. Laugard. 20. nóv.
kl. 15 Guðrún frá Lundi lifir enn, fjölbreytt
dagskrá, umsj. Marín Hrafnsdóttir.
Félagsþjónustan Hraunbæ 105 | Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Hraunsel | Morgunr.kl.9, qi-gong kl. 10,
leikfimi kl. 11.20, glers. kl. 13, opið hús kl.
14. Tilboðsv. f. eldri borgara á Orð skulu
standa, kr. 1.800, í Borgarleikh., uppl. í s.
861-9047.
Hvassaleiti 56-58 | Botsía kl. 10. Handav.
kl. 13, félagsvist kl. 13.30.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið- kaffi-
tár kl. 8.50. Stefánsganga kl. 9. Listasmiðj-
an. Spænska kl. 12, leikfimi kl. 10. Þegar
amma var ung kl. 10.50. Sönghópur Hjör-
dísar Geirs kl. 13.30. Línudans kl. 15. Vín-
arhljóml. 7. jan. 2011. Uppl. 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópa-
vogsskóla kl. 17.
Korpúlfar Grafarvogi | Listasmiðjan er
opin í dag og á morgun kl. 13. Á morgun er
sundleikfimi kl. 9.30.
Laugarneskirkja | Ómar Ragnarsson
kemur í heimsókn og tekur lagið, spjallar
og spekúlerar kl. 14. Umsjón með samver-
unni hefur Sigurbjörn Þorkelsson.
Norðurbrún 1 | Handav. og leirlistarn. og
útskurður kl. 9-12 og 13-16, botsía kl. 10.
Vesturgata 7 | Handav. kl. 9 15, gler-
skurður (Tiffanys), ganga kl. 11.30. Kerta-
skreyt. kl. 13 og kóræf., leikf. kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band/postulín kl. 9, morguns. kl. 9.30,
botsía kl. 10, framh.s. kl. 12.30, handav.
eftir hádegi, spil/stóladans kl. 13.
ÍFundafélagi Grímseyinga árið1924 var samþykkt að efna til
samkomu til minningar um Willard
Fiske. Síðan hafa slíkar samkomur
verið haldnar á fæðingardegi hans
11. nóvember, sem í daglegu tali er
kallaður „þjóðhátíðardagur Gríms-
eyinga“. Willard Fiske þótti merki-
legt að á svo afskekktum stað skyldi
menningarlífi haldið uppi af slíkri
reisn af svo fáum og hreifst af leikni
eyjarskeggja í skák. Hann gaf þeim
allgott bókasafn, sendi tafl á hvern
bæ og ánafnaði þeim verulegan pen-
ingasjóð í erfðaskrá sinni. Þrátt fyr-
ir rúmlega fimm mánaða einangrun
björguðust Grímseyingar frostavet-
urinn 1918 með því að koma sér upp
kornforðabúri, um 20 tonnum af
korni, fyrir hluta af dánargjöfinni.
Séra Matthías Jochumsson orti
Grímseyjarljóð til prófessors Will-
ards Fiske. Þar eru þessi erindi:
En sögð mun þín saga
og sungin þín fremd,
meðan góðs er getið
og Grímsey er nefnd.
Meðan ég á manntafl
og máta kann hrók,
um frægð þína, Fiske,
ei fletta þarf bók.
Síra Jón Normann segir að
barnafælan í Grímsey heiti hvorki
Grýla né Leppalúði heldur Klapp-
arkarl:
Karlinn undir klöppunum
klórar sér með löppunum,
baular undir bökkunum
og ber sig eftir krökkunum – á kvöldin.
Grímsey heitir eitt ljóða Guð-
mundar Friðjónssonar á Sandi og er
17 erindi og byrjar svo:
Af gróðurmold og grasailm
er Grímsey rík
og silfri og gulli, er sólin skín
í Súlubrík.
Og Eyjan sama og áður fyrr
sinn ávöxt ber:
á fiski og eggjum fullvel getur
fóðrað her.
Hún lifir sjálfstæð, lítur naumast
landið á.
Í röst, sem nálgast ríki Dumbs,
hún réttir tá.
Vísnahorn
Á degi Grímseyinga